Fréttablaðið - 15.05.2014, Qupperneq 50
15. maí 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 34
PEPSI-DEILDIN 2014
ÚRSLIT 1. UMFERÐAR
ÍA - Fylkir 0-1
0-1 Carys Hawkins (44.).
Þór/KA - Valur 1-1
1-0 Dóra María Lár us dótt ir (67.), 1-1 Helena
Rós Þórólfs dótt ir (86.).
Selfoss - ÍBV 1-2
1-0 Shaneka Gor don (72.), 2-0 Vesna Smilj-
kovic (79.), 2-1 Guðmunda B. Óladóttir (82.).
Afturelding - FH 1-3
1-0 Stein unn Sig ur jóns dótt ir (8.), 1-1 Jó hanna
S. Gúst avs dótt ir (40.), 1-2 Heiða Dröfn Ant ons-
dótt ir (68.), 1-3 Ana Victoria Cate (72.).
Breiðablik - Stjarnan 0-1
1-0 Al dís Kara Lúðvíks dótt ir (49.).
STAÐAN
FH 1 1 0 0 3-1 3
ÍBV 1 1 0 0 2-1 3
Breiðablik 1 1 0 0 1-0 3
Fylkir 1 1 0 0 1-0 3
Valur 1 0 1 0 1-1 1
Þór/KA 1 0 1 0 1-1 1
Selfoss 1 1 0 1 1-2 0
ÍA 1 0 0 1 0-1 0
Stjarnan 1 0 0 1 0-1 0
Afturelding 1 0 0 1 1-3 0
SPORT
HANDBOLTI Leikmenn Hauka og
ÍBV fá ekki langan tíma til að
jafna sig eftir leik fjögur í Vest-
mannaeyjum á þriðjudagskvöldið
því í kvöld spila þessi tvö bestu
handboltalið landsins nefnilega
hreinan úrslitaleik um Íslands-
meistaratitilinn.
Þetta er fyrsti oddaleikurinn
um Íslandsmeistaratitilinn í fjög-
ur ár og aðeins sá annar á síð-
ustu ellefu árum. Í nítján úrslita-
keppnum karlahandboltans frá
upphafi hafa úrslitin aðeins fjór-
um sinnum áður ráðist í hreinum
úrslitaleik. Leikurinn í kvöld er
því sjaldgæf veisla fyrir íslenska
handboltaáhugamenn sem láta sig
örugglega ekki vanta á pallana á
Ásvöllum klukkan 19.45 í kvöld.
Heimavöllurinn hefur verið
ósigrandi vígi í oddaleikjum síð-
ustu tólf ár sem gerir verkefnið
enn vandasamara fyrir Eyja-
menn.
Frá sögulegum sigri KA-manna
í oddaleik um titilinn 10. maí 2002
hafa farið fram sextán oddaleikir
í úrslitakeppni karla og þeir hafa
allir unnist á heimavelli. Hauk-
arnir sjálfir hafa unnið fimm
þeirra á Ásvöllum, þar á meðal
spennuleik við nágrannana í FH
í undanúrslitaeinvígi liðanna í ár.
Reynslan úr oddaleikjum er öll
Haukamegin því enginn í liði ÍBV
hefur tekið þátt í svona leik áður.
Haukarnir tryggðu sér níunda
Íslandsmeistaratitilinn sinn í
oddaleik og geta nú endurtekið
leikinn fjórum árum síðar. - óój
Úrslitastund í kvöld
Eyjamenn þurfa að enda sextán leikja sigurgöngu
heimaliða í oddaleikjum ætli þeir sér titilinn.
ÁFRAM Í STRANGRI GÆSLU Róbert
Aron Hostert þarf að eiga góðan leik
ætli ÍBV sér titilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
1995
28. MARS 1995 VALUR– KA 30-27
Fyrri hálfleikur: Jafnt (12-12) Seinni: Jafnt (11-11)
Framlenging: Valur +3 (7-4).
Ólafur Stefánsson, Val 8
Partrekur Jóhannesson, KA 7
Valdimar Grímsson, KA 7
Dagur Sigurðsson, Val 6
Jón Kristjánsson, Val 6
Alfreð Gíslason, KA 6
2001
5. MAÍ 2001 KA– HAUKAR 27-30
Fyrri: Haukar +4 (14-10) Seinni: KA +1 (17-16)
Rúnar Sigtryggsson, Haukum 10
Halldór Jóhann Sigfússon, KA 10
Óskar Ármannsson, Haukum 7
Guðjón Valur Sigurðsson, KA 5
2002
10. MAÍ 2002 VALUR– KA 21-24
Fyrri: Valur +1 (10-9) Seinni: KA +4 (15-11)
Halldór Jóhann Sigfússon, KA 8
Sigfús Sigurðsson, Val 6
Snorri Steinn Guðjónsson, Val 5
Sævar Árnason, KA 4
Jóhann G. Jóhannsson, KA 4
2009
8. MAÍ 2010 HAUKAR– VALUR 25-20
Fyrri: Haukar +1 (10-9) Seinni: Haukar +4 (15-11)
Arnór Þór Gunnarsson, Val 7
Sigurbergur Sveinsson, Haukum 6
Pétur Pálsson, Haukum 4
Björgvin Þór Hólmgeirsson, Haukum 4
Guðmundur Árni Ólafsson, Haukum 4
Sigurður Eggertsson, Val 4
ODDALEIKIRNIR Í LOKAÚRSLITUM KARLA
HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU
28 DAGAR Í FYRSTA LEIK
HANDBOLTI Úrslitin í Olísdeild
kvenna munu ráðast í oddaleik,
þriðja árið í röð. Valur knúði fram
oddaleik með sigur á deildar-
meisturum Stjörnunnar, 23-19, í
æsispennandi framlengdum leik í
Vodafone-höllinni í gær.
Eins og í öðrum leikjum í rimm-
unni var það markvarsla og varn-
arleikur sem einkenndi fyrst og
fremst leikinn. Fyrri hálfleikur
var kaflaskiptur en Stjarnan náði
undirtökunum rétt áður en flautað
var til hálfleiks og hélt þeim lengst
af í þeim síðari.
Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
skoraði svo jöfnunarmark Vals
þegar 20 sekúndur voru eftir og
hún skoraði svo öll fimm mörk liðs-
ins í framlengingunni gegn aðeins
einu marki Stjörnunnar.
„Þetta var bara vilji og græðgi,“
sagði Anna Úrsúla. „Við vorum
staðráðnar í því að halda bara
áfram og jafna leikinn. Það tókst,
sem betur fer. „Við vildum fá odda-
leikinn í Mýrinni.“
Anna gerði sér reyndar ekki
grein fyrir því að hún hafði skor-
að síðustu sex mörk Vals í leikn-
um. „Var það?“ spurði hún og
brosti. „Við fengum að vera fjórar
saman í sókninni sem erum alltaf
saman á æfingum. Ég átti bara að
gera eitthvað og þetta endaði allt-
af með því að ég fékk boltann. En
það skiptir engu máli hver skorar
mörkin,“ sagði hún.
Anna sagði að liðið ætti tals-
vert inni, sérstaklega í sókninni.
„Við höfum ekki náð að sýna okkar
rétta andlit að undanförnu og von-
andi kemur það í úrslitaleiknum,
þegar þörfin verður sem mest.“
Hrafnhildur Skúladóttir lék sinn
síðasta heimaleik fyrir Val í gær
en hún leggur skóna á hilluna eftir
tímabilið. „Hún er drottning. Hvað
er hægt að segja meira? Þvílíkur
leiðtogi sem er frábært að vera
með í sínu liði,“ sagði Anna. -esá
Alla leið þrjú ár í röð
Valskonur tryggðu sér oddaleik eft ir sigur á Stjörnunni í gærkvöldi.
ODDALEIKUR Hrafnhildur Skúladóttir fagnar sínum síðasta sigri á Hlíðarenda en hún hættir eftir tímabilið. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Í FYRSTA SINN Í HM-SÖGUNNI taka átta þjóðir þátt í
heimsmeistarakeppninni sem eiga það allar sameiginlegt að
hafa orðið heimsmeistarar. Fyrir fjórum árum varð Spánn
áttunda þjóðin til að vinna HM í fótbolta og spænska liðið
er með á HM í Brasilíu alveg eins og hinar sjö þjóðirnar
sem hafa unnið heimsmeistaratitilinn í gegnum tíðina:
Brasilía (1958, 1962, 1970, 1994, 2002), Ítalía (1934,
1938, 1982, 2006), Þýskaland (1954, 1974, 1990),
Úrúgvæ (1930, 1950), Argentína (1978, 1986),
England (1966) og Frakkland (1998). Þessar sjö
þjóðir voru einnig með í Suður-Afríku 2010 sem og
þegar keppnin fór fram í Japan og Suður-Kóreu árið
2002 sem var fyrsta keppnin eftir að Frakkar urðu
sjöunda þjóðin til að vinna HM-gull.
Heilsa ehf
Bæjarflöt 1, 112 Rvk
www.gulimidinn.is
HUGSAÐU UM HEILSUNA
Í yfir tuttugu og fimm ár,
var einn miði,
nú kynnum við hann,
með nýju sniði.
37 TEGUNDIR VÍTAMÍNA OG FÆÐUBÓTAREFNA
FÓTBOLTI Fylkir vann ÍA, 1-0,
í nýliðaslagnum í Pepsi-deild
kvenna í fótbolta á Akranesi í
gærkvöld en með leiknum lauk 1.
umferð deildarinar. Carys Hawk-
ins skoraði eina mark leiksins
á 44. mínútu þegar hún skallaði
hornspyrnu Rut Kristjánsdóttur í
netið. Flott byrjun hjá stúlkunum
hennar Rögnu Lóu. - tom
Fylkir vann
nýliðaslaginn
SIGUR Ragna Lóa fagnaði sigri með
Fylkiskonum í fyrsta leik. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN