Fréttablaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 2
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
HEILBRIGÐISMÁL „Besta fjárfest-
ingin og sú arðsamasta liggur í
forvörnum. Því þurfum við að
setja aukna fjármuni í forvarn-
ir og baráttu við lífsstílstengda
sjúkdóma. Það er okkar verkefni,“
segir Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra. Unnið er að því
innan heilbrigðisráðuneytisins að
móta heildstæða forvarnastefnu
í anda þess sem gerist á Norður-
löndunum.
Fréttablaðið sagði frá því í gær
að samkvæmt Alþjóðaheilbrigðis-
stofnuninni væri fórnarkostnaður
vegna lífsstílssjúkdóma á Íslandi
ógnarhár, en á sama tíma verja
fáar vestrænar þjóðir eins litlu fé
til beinna forvarna.
Kristján segir dæmin sanna að
fé sem varið er til forvarna skili
sér hratt til baka með góðri ávöxt-
un. Hann segir lífsstílssjúkdóma
áhyggjuefni. „Það er alveg rétt
að við töpum mörgum mannárum
á óheilbrigðu líferni almennt en
í þessari umræðu þarf samt að
leggja áherslu á ábyrgð hvers
einstaklings á eigin heilbrigði,“
segir hann og bætir við að vinna
standi yfir í hans ráðuneyti um
forvarnamál í ágætu samstarfi
við landlæknisembættið. Stofnuð
hafi verið ráðherranefnd um lýð-
heilsumál sem væntanlega skili
af sér hugmyndum með haustinu.
Hann nefnir að ræða mætti
hvort ástæða sé til að hnika til í
námsskrá skólanna og gera hreyf-
ingu hærra undir höfði. „Þetta
snertir nefnilega ekki aðeins heil-
brigðismálin heldur uppeldis- og
menntunarþætti líka.“
Eins og Fréttablaðið greindi
frá í gær er á Norðurlöndun-
um verið að innleiða heildstæða
stefnu á sviði ósmitnæmra sjúk-
dóma – lífsstílssjúkdóma. Þar
er tekið sameiginlega á stórum
áhættuþáttum þeirra og sett eru
undir einn hatt hjarta- og æða-
sjúkdómar, sykursýki, ákveðnir
öndunarfærasjúkdómar og
krabbamein.
„Við erum að þreifa okkur inn í
slíka stefnumörkun,“ segir Krist-
ján og nefnir að í síðustu viku hafi
samningar við Sjúkratryggingar
um innleiðingu svokallaðra hreyf-
iseðla sem hluta af almennri heil-
brigðisþjónustu verið undirritað-
ir. svavar@frettabladid.is
Þarf meira fé til for-
varna segir ráðherra
Heilbrigðisráðherra segir forvarnir bestu fjárfestingu sem hægt er að ráðast í í
heilbrigðismálum. Hann vill beita sér fyrir því að auknir fjármunir renni til for-
varnastarfs. Horft er til heildstæðrar forvarnaáætlunar í anda Norðurlandanna.
Besta
fjárfestingin
og sú arðsam-
asta liggur í
forvörnum.
Því þurfum
við að setja
aukna fjármuni í for-
varnir og baráttu við
lífsstílstengda sjúkdóma.
Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra
KEYPT INN
Mataræði er í
fyrsta sæti sem
áhættuþáttur
þegar kemur að
lífsstílstengdum
sjúkdómum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FRÉTTIR 2➜12
SKOÐUN 16➜26
HELGIN 28➜54
SPORT 76➜77
FIMM Í FRÉTTUM MOSKULÓÐ OG TROÐFULLIR LEIKSKÓLAR
➜ Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknar og fl ugvallarvina í Reykjavík,
útskýrði afstöðu sína til úthlutunar lóðar undir mosku og sagði hana byggja á reynslu.
LÍFIÐ 70➜72
MENNING 64➜66
MENNTUN Nafnarnir Friðrik Árni
Hirst og Friðrik Ársælsson útskrif-
uðust á fimmtudaginn úr lagadeild
Harvard. Þeir útskrifuðust úr
LLM-námi, sem er framhaldsnám
fyrir lögfræðinga, með hæstu ein-
kunn í flestum áföngum.
Þeir eru sammála um að námið
hafi verið krefjandi og þó nokkuð
frábrugðið háskólanámi á Íslandi.
„Hér er minni áhersla lögð á loka-
próf og að reyna að hanka mann á
smáatriðum. Það er frekar ætlast
til að maður skilji stóra samheng-
ið,“ segir Friðrik Árni. Nafni hans
bætir við að nemendur þurfi alltaf
að vera á tánum. „Kennarar spyrja
reglulega af handahófi og þá þarf
maður að vera tilbúinn með svar
sem heldur vatni.“
Góð vinátta tókst á milli þeirra.
„Við bjuggum í sömu götu í Cam-
bridge. Konur okkar urðu góðir
vinir og við eigum börn á sama
aldri,“ segir Friðrik Ársælsson.
Hann bætir við að það hafi komið
á óvart hversu fjölbreyttur nem-
endahópurinn hafi verið. „Þarna
voru yfir 180 nemendur frá 80 lönd-
um. Besti vinur minn var frá Gana,
það var ekki eitthvað sem ég bjóst
við áður en ég fór út.“ - ih
Friðrik Ársælsson og Friðrik Árni Hirst fengu hæstu einkunn í lögfræði:
Nafnar útskrifuðust úr Harvard
ÚTSKRIFT ÚR HARVARD Nafnarnir
prúðbúnir á útskriftinni á fimmtudag-
inn.
Baldur Þórhallsson stjórn-
málafræðingur segir eina af
skýringunum á úrslitum ESB-
kosninga vera mótmæli kjós-
enda gegn ríkjandi valdastétt.
Kristín Dýrfj örð, dósent við
Háskólann á Akureyri, segir fl eiri
börnum troðið í húsnæði leik-
skóla en áður. Hvert barn fái
þess vegna minna rými.
Þóroddur Bjarnason, prófessor
og stjórnarformaður Byggða-
stofnunar, segir klárt að ekki verði
fi skvinnslur á öllum 67 stöðunum
sem afl amark er skráð á.
Páll Gunnar Pálsson, for-
stjóri Samkeppniseft irlitsins,
telur skipulag útboðsmála
ekki vera nægjanlega af-
markað og skýrt. Stjórn-
völdum hafi ítrekað
verið bent á það.
Á AÐ GERA HLUTINA ÖÐRUVÍSI? 16
Þorsteinn Pálsson um kosningar og skilaboð kjósenda.
LANDIÐ ER DÝRMÆT AUÐLIND 22
Gunnar Bragi Sveinsson og Monique Barbut um nýtingu
auðlinda.
HVER VELDUR FRAMTÍÐINNI? 26
Ólafur Páll Jónsson um lýðræði.
SNYRTIBUDDA ZOE 70
Kíkt á uppáhaldsvörur leikkonunnar Zoe Saldana.
STJÖRNUFÍKILL 70
Úkraínskur blaðamaður áreitir stjörnurnar.
FLJÓTLEGT OG ÞÆGILEGT 71
Einfaldar uppskrift ir að snarli.
GULLPLATA 82
Ljótu hálfvitarnir eru orðnir gulldrengir.
BARNABÓKAAPP 82
Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki gerir smáforrit upp úr vinsælli barnabók.
NÝ ÚTGÁFA AF GLEÐIBANKANUM 64
HINSEGIN KÓRINN HITAR
UPP FYRIR MÓT HINSEGIN
KÓRA Í DUBLIN 64
Fékk sérsamin orgelverk.
LÁRA BRYNDÍS EGGERTSDÓTTIR
FRUMFLYTUR VERK EFTIR SJÖ
ÍSLENSK TÓNSKÁLD 64
VITARNIR TALA 65
Leikþáttur eft ir Sigurbjörgu Þrastardóttur
frumfl uttur á Breiðinni.
FISKISÚPUDAGURINN 28
Miðbærinn býður gestum og gangandi í súpu í dag.
ANDSTÆÐINGAR Á EVRÓPUÞINGI 42
Farið yfi r stöðuna á Evrópuþinginu þar sem UKIP- fl okk-
ur inn ætlar að gera usla á næsta kjörtímabili.
EKKI HEILSUGÚRÚ 44
Leikkonan Salóme R. Gunnarsdóttir í yfi rheyrslunni.
SUMARIÐ ER LESTRARTÍMI 48
Allt um það sem helst er að frétta úr heimi bókmennta
með hækkandi sól.
FRÆGUR API 52
Apinn Lilli verður á ferð og fl ugi með Brúðubílnum í sumar.
GUÐJÓN VALUR ÆTLAR SÉR
TITILINN 76
Úrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta
ráðast um helgina.
VILJA HÚSFYLLI Á ÍSAFIRÐI 77
Strákarnir okkar halda vestur á fi rði á morgun.
TUNNUSPRENGJUM VARPAÐ 12
Tunnusprengjuherferð sýrlenska stjórnarhers-
ins hefur kostað nærri 2 þúsund manns lífi ð
í Aleppo.
ÓLÍK SÝN Í HÚSNÆÐISMÁLUM 6
Hart var tekist á um húsnæðismálin í Rey-
kjavík í Stóru málunum á Stöð 2.
FÆRRI TÍMAR HJÁ KONUM 8
Konur verja færri tímum í viku í sveitar-
stjórnarstörf en karlar.
ATLAGA AÐ SAMSTÖÐU 10
ASÍ segir tilraunina til að semja um hófl egar
kauphækkanir og stöðugleika hafa mistekist.