Fréttablaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 8
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 8
SVEITARSTJÓRNIR Konur segjast eyða færri
klukkustundum á viku í sveitarstjórnarstörf en
karlar, samkvæmt könnun sem Jafnréttisstofa
gerði meðal kjörinna fulltrúa. Einnig virðist þeim
ganga betur að samræma starfið fjölskyldulífinu.
Flestir svarendur verja 5-20 tímum á viku í
sveitarstjórnarstörf eða 63 prósent svarenda.
Mestur munur milli karla og kvenna er í neðsta
og efsta valflokknum. 24 prósent kvenna verja að
jafnaði 0-5 tímum í viku í störfin en 22 prósent
karla segjast vinna meira en 20 tíma í viku.
Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur á Jafn-
réttisstofu, segir þessar niðurstöður vissulega
vekja fleiri spurningar.
„Það þarf að kanna hvort munur sé á verk-
efnum karla og kvenna sem gæti útskýrt þennan
mun á vinnuframlagi,“ segir Tryggvi og bendir
á að misjafnt sé hvað kjörnir fulltrúar fái stóran
skerf af nefndarstörfum og fundarhöldum tengd-
um þeim.
„Einnig væri áhugavert að kanna hvort það
séu tengsl á milli fjölskyldulífsins og vinnustund-
anna. Hvort konur eigi auðveldara með að sam-
ræma fjölskyldulífið vinnunni því vinnufram-
lag þeirra er minna eða hvort þær beri meiri
ábyrgð á heimilinu sem komi svo niður á vinnu-
framlagi.“
Ríflega fimmtíu prósent svarenda í könnun-
inni segjast óánægð með laun sín og á það við
bæði kynin. Ekki er heldur kynbundinn munur
á svörum fulltrúanna þegar þeir eru spurðir
hvort þeir hafi gefið kost á sér til áframhald-
andi starfa í sveitarstjórn. Um helmingur karla
og kvenna segist gefa kost á sér. Tryggvi segir
þetta athyglisverða niðurstöðu í ljósi umræð-
unnar um hlut kvenna á framboðslistum.
„Umræðan sem hefur verið í undanfara kom-
andi kosninga hefur til dæmis snúist um hvort
konum sé hættara til að hætta sveitarstjórnar-
störfum. Þessi könnun sýnir að þær hafi sama
vilja og karlarnir til að halda áfram þannig að
það virðist ekki fótur fyrir því.“
Könnunin var send til 524 viðtakenda og alls
svöruðu 267 eða 51 prósent. Meðal þátttakenda
voru konur 46 prósent og karlar 54 prósent.
erlabjorg@frettabladid.is
TÍMAR Í VIKU SEM FARA Í SVEITARSTJÓRNARSTÖRF
■ Karlar ■ Konur
MÉR GENGUR VEL AÐ SAMRÆMA EINKALÍF OG SVEITARSTJÓRNARSTÖRF
0-5 tímar
13%
24%
5-10 tímar
35% 34%
10-20 tímar
30%
28%
meira en 20 tímar
22%
15%
TAÍLAND, AP Herforingjastjórnin,
sem gerði stjórnarbyltingu í Taí-
landi í síðustu viku, ætlar ekki
að efna til kosninga fyrr en búið
er að samþykkja stjórnarskrár-
breytingar.
Þetta fullyrti Prayuth Chan-
ocha, leiðtogi herforingjabylt-
ingarinnar. Jafnframt sagði hann
að lýðræði yrði ekki að veruleika
á ný í Taílandi fyrr en mótmæl-
endur fara að sýna skilning á því
hvað lýðræði er. Þetta sagði hann
í ræðu í gær, þeirri fyrstu frá því
herinn tók völdin þann 22. maí.
Með ræðunni vildi hann leggja
áherslu á að herinn hafi það eitt í
hyggju að tryggja stöðugleika og
lýðræði í landinu.
Planið nú er að herinn taki sér
um tvo til þrjá mánuði í að koma
á sáttum milli andstæðra fylk-
inga. Að því búnu muni það taka
um eitt ár að semja nýja stjórn-
arskrá, og þá fyrst verði hægt
að huga að kosningum. „Gefið
okkur tíma til að leysa vanda-
málin fyrir ykkur,“ sagði hann.
„Þá munu hermennirnir stíga til
hliðar og horfa á Taíland úr fjar-
lægð.“ - gb
Áform hersins í Taílandi:
Ekkert lýðræði
fyrr en að ári
HERSTJÓRN Hermaður segir fólki til í
Bangkok. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Mjög sammála
7%
13%
■ Karlar ■ Konur
Sammála Hvorki né Ósammála Mjög ósammála
0
10
20
30
40
50
40
30
20
10
0
Konur verja færri tímum á
viku í sveitarstjórnarstörf
Samkvæmt könnun Jafnréttisstofu meðal kjörinna sveitarstjórnarfulltrúa verja flestir 5 til 20 klukkustundum
á viku í starfið. Konur vinna færri tíma en karlar en gengur betur að samræma starfið fjölskyldulífinu.
44%
47%
25%
18% 18% 19%
5%
2%
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
13
31
46