Fréttablaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 76
FÓLK|HELGIN
Sumaropnun Fjölskyldu- og húsdýragarðsins gengur í gildi í dag, laugardag, en
garðurinn verður opinn alla daga
í sumar milli kl. 10 og 18. Undan-
farnar vikur hafa framkvæmdir
staðið yfir í garðinum en verið er
að endurbæta leiksvæði og leik-
tæki. Auk þess verður nýr inn-
gangur tekinn í notkun í sumar
þar sem verið er að stækka og
breyta eldra móttöku- og miða-
söluhúsi. Svo eru dýrin auðvitað
komin á stjá og mörg hver búin
að eignast afkvæmi sín að sögn
Sigrúnar Thorlacius, aðstoðar-
forstöðumanns garðsins. „Við
gerum ráð fyrir góðri aðsókn í
garðinn í sumar eins og síðustu
ár. Frá og með deginum í dag
verða leiktækin opin en þau hafa
einungis verið opin um helgar
í vor. Flest dýrin verða á vappi
utandyra og þau eru mörg búin
að eignast afkvæmi þótt einhver
bætist vafalaust í hópinn á næstu
dögum og vikum. Við eigum til
dæmis von á kópum á næstu
dögum.“
Fjölskyldu- og húsdýragarður-
inn var opnaður árið 1990 og
hefur því starfað í nær aldar-
fjórðung. Sigrún segir gaman að
sjá hvað garðurinn sé alltaf jafn
vinsæll ár eftir ár. Fjölskyldu-
fólk sæki hann mikið allt árið og
skólahópar voru reglulegir gesti
í vetur og slógu aðsóknarmet
nánast í hverjum mánuði.
Undanfarnar vikur hafa starfs-
menn staðið í miklum fram-
kvæmdum vegna endurbóta á
svæðinu. „Fyrst má nefna nýtt
vað- og vatnsleikjasvæði við
stóru tjörnina sem við stefnum
á að opna á næstu vikum. Þar
geta gestir á öllum aldri sullað
að vild, búið til stíflur og eigin
farveg fyrir vatn. Raunar er
þetta svæði fyrir fólk á öllum
aldri sem finnst gaman að sulla í
vatni.“ Nýja svæðið stendur við
enda stóru tjarnarinnar þar sem
vaðlaug stóð áður. Nú er búið að
skilja formlega milli svæðanna
sem gerir nýja svæðið hrein-
legra og auðvelda verður að
skipta um vatn.
MARGT Í BOÐI
Litla kofaþorpið við klifurkastala-
svæðið fær einnig andlitslyft-
ingu en búið er að gera upp alla
kofana og mála þá, auk þess sem
búið er að skipta um undirlag.
„Það er einnig verið að útbúa
nýja aðstöðu fyrir smágröfurnar.
Við erum að láta smíða stóran
trépall þar sem gröfurnar munu
standa. Þar verður hægt að
moka eins og áður en nú þurfa
foreldrar ekki að standa á kafi í
sandinum.“
Að lokum má nefna meiri-
háttar viðhald á Krakkafossi
sem er rugguskipið í garðinum.
„Við höfum unnið að endur-
nýjun skipsins í allan vetur og
stefnum á að það verði tilbúið
næstu helgi.“
Meðal nýlegra leiktækja í garð-
inum nefnir Sigrún dansleikja-
tæki sem tekið var í notkun síð-
asta haust. „Það er mjög vinælt,
sérstaklega hjá yngri krökkum.
Leikurinn gengur út á að rödd
segir krökkunum til um hvernig
þeir skuli dansa. Þeir fá stig fyrir
rétt spor og geta þannig unnið
andstæðinga sína. Tækið er búið
að vera í gangi í allan vetur og
nýtur mikilla vinsælda.“
Á morgun, sunnudag, verður
haldið kassabílarallí í garðin-
um þar sem börn og unglingar
keppa í skemmtilegri og spenn-
andi keppni. Grasagarðurinn,
sem stendur við hlið Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðsins, er
að sjálfsögðu einnig opinn og
því ljóst að margt verður í boði
fyrir landsmenn í Laugardaln-
um um helgina.
FJÖR Í LAUGARDALNUM
SKEMMTUN FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA Í nær aldarfjórðung hefur Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn skipað stóran sess í lífi
landsmanna. Sumaropnunartími garðsins gengur í gildi í dag. Undanfarnar vikur hafa staðið yfir endurbætur á mörgum leiktækjum.
GOTT SUMAR
„Við gerum ráð fyrir
góðri aðsókn í garðinn
í sumar eins og síð-
ustu ár,“ segir Sigrún
Thorlacius, aðstoðar-
forstöðumaður Fjöl-
skyldu- og húsdýra-
garðsins.
MYND/VILHELM
Fjölmargar uppákomur verða í
tilefni Hátíðar hafsins á gamla
hafnarsvæðinu í Reykjavík um
helgina en fimmtán ár eru síðan
hafnardagurinn og sjómanna-
dagurinn voru sameinaðir í
tveggja daga hátíð, eða Hátíð
hafsins. Hafnardagurinn er í dag
og sjómannadagurinn á morgun.
Í fyrra komu 40 þúsund manns á
hátíðina.
Hátíðin hefur þróast ár frá
ári og nú í ár var meðal annars
farið í að afmarka betur svæði
hátíðarinnar. Hún nær núna frá
Hörpu, gegnum Gömlu höfnina,
Grandagarð og út að HB Granda.
Þrjú útisvið verða á svæðinu
með skipulögðum viðburðum
báða dagana.
ÚTISVIÐ GRANDAGARÐI
( AÐALSVIÐIÐ LAUGARDAG OG
SUNNUDAG FRÁ 13–16)
Á hátíðarsviðinu fer fram hefð-
bundin hátíðardagskrá sjó-
mannadagsins. Má þar nefna
heiðrun sjómanna, ávörp og
skemmtiatriði.
ÚTISVIÐ GAMLA HÖFNIN
(LAUGARDAG FRÁ 16–18)
Þar munu Borgardætur meðal
annarra láta ljós sitt skína. Flest
veitingahúsin á svæðinu munu
bjóða gestum upp á fiskismakk
ásamt því að vera með tilboð
á sjávarréttum á matseðlinum.
Ýmsar fleiri uppákomur verða á
svæðinu.
ÚTISVIÐ HB GRANDA (SUNNU-
DAG FRÁ 13–15)
Skemmtilegar uppákomur
fyrir yngstu kynslóðina. Latibær,
Sirkusfólk, Skoppa og Skrítla, Atli
Þór og Bói, og Arnór töframaður
mæta á svæðið en auk þess
verða ýmsar veitingar í boði.
Fjölmargar aðrar uppákomur
verða í tilefni hátíðarhaldanna.
Sæbjörgin fer í þrjár sjóræningja-
siglingar báða dagana klukkan
14, 15 og 16. Þá hefur svæðinu
á bak við Sjóminjasafnið verið
breytt í ævintýralegt sjávartívolí
en það sló rækilega í gegn á síð-
ustu hátíð.
Allar nánari upplýsingar um
dagskrá hátíðarinnar er að finna
á www.hatidhafsins.is.
SJÓRÆNINGJAR
OG SJÁVARTÍVOLÍ
Hátíð hafsins verður haldin um helgina. Fjöl-
breytt tónlistaratriði, sjóræningjasiglingar og
sjávartívolí eru á meðal dagskrárliða.
STÓRIR SEM SMÁIR SJÓRÆNINGJAR
VELGKOMNIR Sæbjörgin fer í þrjár
sjóræningjasiglingar í dag og á morgun,
klukkan 14, 15 og 16.
Kjólar áður 14.990
nú 5.000 kr.
Mussur áður 14.990
nú 3.000 kr.
Mega lagersala í Flash