Fréttablaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 96
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN KRAKKAR | 52
Brandarar
Einn af máttarstólpum Brúðu-
bílsins er eins og flestir vita eng-
inn annar en Lilli api. Lilli hefur
vakið mikla athygli enda einn
hressasti og skemmtilegasti api
sem fyrirfinnst á okkar fallegu
jörð. Fréttablaðið vildi fræðast
örlítið meira um apann knáa
og lagði því fyrir hann nokkrar
skemmtilegar spurningar.
Af hverju heitir þú Lilli, þú ert
nú ekkert svo lítill? Það er vegna
þess að Gústi frændi og hinir
aparnir eru stærri en ég.
Hvað ertu eiginlega gamall?
Helga segir allavega að ég sé
fimm ára, þannig að ég hlýt að
vera fimm ára.
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn og hver er uppáhalds-
drykkurinn þinn? Auðvitað
banan ar, af því að ég er api, og
ískalt kranavatn.
Nú ert þú svo fallegur á litinn,
þess vegna verð ég að spyrja,
áttu einhvern uppáhaldslit?
Já, appelsínugulan, eins og ég
sjálfur.
Svona skemmtilegur api eins og
þú hlýtur að eiga fullt af vinum.
Hvað heitir besti vinur þinn?
Ég á marga vini í Brúðubílnum.
Dúskur, hann er vinur minn og
Blárefurinn, þó hann sé svolít-
ið stríðinn, Svarti Svalur er líka
vinur minn. Hann er svo mikill
brandarakarl. Og svo auðvitað
allir krakkarnir. Þeir eru bestu
vinir mínir og hjálpa mér oft til
dæmis með stafina og að telja.
Áttu þér einhverja uppáhalds-
hljómsveit og uppáhaldslag?
Plebbabandið er uppáhalds-
hljómsveitin mín. Úlfarnir og
refirnir spila á trommurnar og öll
hljóðfærin. Oftast spilum við og
syngjum „Öxar við ána“ og „Það
var einu sinni api í ofsagóðu
skapi“. Ég er alltaf í góðu skapi
eins og Dúskur.
Hvað hefur þú átt heima lengi
í Brúðubílnum? Í óteljandi ár.
Minnsta kosti 100 ár eða meira.
Hvað ætlar þú að verða þegar
þú verður stór? Ég ætla að
verða geimfari eða brúðustjórn-
andi eins og Helga eða kannski
forseti.
Hvað ætlar Lilli að gera í
sumar, fara til útlanda eða eitt-
hvað svoleiðis? Ég ætla að hitta
alla krakkana. Á hverjum degi
eru margar sýningar, minnsta
kosti tvær. Og svo líka að fara
út um allt Ísland, til dæmis til
Grindavíkur og Vestmannaeyja
og bara hitta alla krakkana á
Íslandi.
Er eitthvað meira skemmti-
legt sem Lilli vill bæta við?
Mig langar að syngja fyrir alla
krakkana uppáhaldslagið mitt
„Í rólunni sit ég og syng lítið
lag“, ég held meira að segja
að ég megi syngja það í sumar
og Svarti Svalur og krakkarnir
syngja með. Það er ofsalega
gaman í Brúðubílnum sér-
staklega þegar það er ausandi
rigning, og allir krakkarnir í
allavega litum pollagöllum og
ég líka.
Lilli api og allir vinir hans í
Brúðubílnum verða á ferð og
flugi í allt sumar út um land
allt og hlakka til að hitta alla
hressu krakkana.
Frægasti api landsins
Einn sætasti og skemmtilegasti api landsins, Lilli api, undirbýr sig nú af kappi en
hann og vinir hans í Brúðubílnum verða á ferð og fl ugi um land allt í sumar.
YNDISLEGUR API Lilli api ætlar að skemmta sér og öðrum úti um land allt í sumar
með vinum sínum í Brúðubílnum. MYND/HÁLFDÁN
LÍFLEGT Arnar Ingi,
sem er í þriðja bekk
í Selja skóla, sendi
blaðinu þessa mynd.
Framboð til stjórnar
Neytendasamtakanna
Skv. 16. gr. laga Neytendasamtakanna auglýsir uppstillinga-
nefnd ef tir framboðum til stjórnar sem kosin verður á næsta
þingi samtakanna 27. september nk. Allir skuldlausir
félagsmenn geta boðið sig fram.
Áhugasamir sem ekki eru nú þegar félagsmenn geta boðið sig
fram ef þeir ganga í Neytendasamtökin og greiða árgjald. Þeir
sem áhuga hafa á að bjóða sig fram eru beðnir um að tilkynna
það skrifstofu Neytendasamtakanna í síma 545 1200
eða í netpósti (netfangið er ns@ns.is).
Uppstillinganefnd Neytendasamtakanna
Pabbi! Ég skoraði sex mörk í leiknum
í dag.
Frábært sonur sæll. Og hvernig
lauk leiknum?
Þrjú-þrjú.
Ertu ánægður með nýja hundinn
þinn?
Já, mjög, hann sækir til dæmis
alltaf Moggann fyrir mig.
En eru ekki margir hundar sem gera
það?
Jú, jú, en ég er ekki áskrifandi.
Jónsi litli sagði öllum að hann
myndi bráðum eignast lítinn
bróður og var ákaflega spenntur.
Einn dag leyfði mamma hans honum
að leggja lófann á maga sér til að
finna litla bróður sprikla. Eftir það
steinhætti Jónsi að minnast á litla
krílið. Kennara á leikskólanum þótti
það einkennilegt og spurði:
Hvernig gengur með litla bróður
þinn, Jónsi minn? Fer hann ekki
bráðum að koma í heiminn?
Nei, svaraði Jónsi leiður. Mamma
gleypti hann.
Teikningar og texti: Bragi Halldórsson
98
svar: D
Veist þú hvað þessi
fugl heitir? Er þetta:
A. Rauðbrystingur
B. Maríuerla
D. Músarrindill
Þar sem Konráð og Lísaloppa voru á gangi í kjarrlendi sáu þau
eitthvað líttið dýr skjótast um í kjarrinu. „Hvað var þetta?“
spurði Konráð. Þá sáu þau dýrið hoppa grein af grein og sáu
að þetta var pínulítill fugl með skemmtilega uppsperrt stél.
„Þetta er örugglega einn minnsti fugl sem ég hef séð,“ sagði
Lísaloppa. „Já, hann er mjög lítill“ sagði Konráð og bætti við.
„Hvað skyldi hann heita?“