Fréttablaðið - 31.05.2014, Page 36

Fréttablaðið - 31.05.2014, Page 36
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 36 uarashi var stofnuð í einhverjum skúr í Vest- urbænum af mér, Hössa og Steina. Það var mikil breyting fyrir okkur að fara úr því í að standa á sviði fyrir framan þrjá- tíu til fjörutíu þúsund manns á örfáum árum. Það var mikið sjokk,“ segir Sölvi Blöndal, meðlim- ur í hljómsveitinni Quarashi. Sveitin er ein sú allra vinsælasta sem þjóð- in hefur alið og spannar saga hennar tæplega tvo áratugi. Fréttablaðið fór yfir ferilinn með upprunalegu með- limunum Sölva Blöndal og Steinari Fjeldsted og Agli „Tiny“ Thoraren- sen sem gekk til liðs við bandið árið 2003 þegar Höskuldur Ólafsson, eða Hössi, hætti. Tjillað með Eminem Sveitin var stofnuð árið 1996 en hætti árið 2005 eftir fimm breiðskífur og fjölmörg tónleikaferðalög, helst í Bandaríkjunum þar sem hún var geysivinsæl. Hvernig var þessi tími? Steinar: „Þetta voru níu ár þar sem við vorum að allan sólarhringinn. Við vorum inni í loftbólu og þegar ég lít til baka sé ég að við gerðum okkur ekki grein fyrir því hvað var að gerast.“ Sölvi: „Okkur fannst þetta bara eðlilegt – að tjilla með Eminem og vera vinir Cypress Hill, gera plötu- samninga, selja fimm hundruð þús- und plötur.“ „Eruð þið ruglaðir?“ En af hverju fór Quarashi ekki alla leið? Sölvi: „Hópurinn þarf að vera sam- stillutr í að vilja gera bara þetta og ekkert annað, leggja egó til hliðar og annað. Fæstir ná því. Við vorum ekki með neitt Excel-plan um að fara til útlanda. Við vorum bara að djamma og spila á tónleikum og vera gaurar. En við seldum vel frá fyrsta degi og allar plöturnar fóru í gull.“ Steinar: „Við löbbuðum á milli íslenskra plötufyrirtækja með fyrstu smáskífuna okkar og allir hlógu að okkur. „Ætlið þið að gefa út íslenskt rapp? Eruð þið ruglaðir?“ fengum við að heyra. Það hafði enginn áhuga á okkur.“ Henti fyrstu ávísuninni Árið 1999 kom önnur breiðskífa sveitarinnar, Xeneizes, út og þá byrj- uðu hjólin að snúast. Erlend plötufyr- irtæki sýndu sveitinni áhuga og þeir Steinar, Hössi og Sölvi fluttu til New York árið 2000. Steinar: „Við vorum með tvær íbúðir á tveimur hæðum í East Village á Manhattan og stúdíó og æfingahúsnæði í New York. Hljóm- ar glamúrus en þetta var alls enginn glamúr. Það voru stanslaust einhverj- ir gaurar fyrir utan íbúðina og buðu okkur ýmislegt. Ýmsir krakkreykj- andi menn og konur.“ Sölvi: „Til að varpa ljósi á hversu lítið við tókum þetta alvarlega þá fengum við ávísun upp á fjörutíu þúsund dollara þegar við gerðum samning við EMI. Við trúðum eigin- lega ekki að við hefðum fengið þenn- an pening þannig að við settum ávís- unina upp á arinhillu og hún var þar í um það bil mánuð. Einu sinni var Steini að þrífa og henti óvart ávísun- inni. Það var megavesen.“ Okkur fannst þetta bara eðlilegt – að tjilla með Eminem og vera vinir Cypress Hill, gera plötusamn- inga, selja fimm hundruð þúsund plötur. Síðan eftir nokkurn tíma fattar maður að þetta var rosalegt. Sölvi Blöndal ÞETTA VAR MJÖG DÝRT NÝTT EFNI VÆNTANLEGT Quarashi gefur út þriggja til fimm laga EP-plötu á árinu. 1996 Quarashi gefur út EP-plötuna Switchstance. Fimm lög voru á plötunni og hún aðeins framleidd í fimm hundruð eintökum. 1997 Quarashi hitar upp fyrir rapp- sveitina The Fugees í Laugar- dalshöll. Sveitin gefur út plötuna Quarashi sem inniheldur til dæmis lagið Catch 22. 1999 Önnur breiðskífa sveitar- innar, Xeneizes, kemur út, sem inniheldur meðal annars lagið Stick ’Em Up. Ómar Örn „Swarez“ gengur til liðs við sveitina. 2000 EMI Music tilkynnir að Quarashi sé búið að skrifa undir samning hjá breska fyrirtækinu. Bandaríska plötuútgáfan Columbia Records tilkynnir að samningar hafi náðst við Quarashi um að gefa út sex plötur undir nafni fyrirtækis- ins. Meðlimir Quarashi flytja til Bandaríkjanna. 2001 Platan Kristnihald undir jökli kemur út sem inniheldur lög eftir Sölva og Hössa sem samin voru fyrir samnefnt leikrit sem sýnt var í Borgar- leikhúsinu veturinn 2001. 2002 Platan Jinx kemur út. Quarashi PARTÍ Tímaritið Spin nefnir Quarashi sem eina af hljóm- sveitunum sem fólk þurfi að gefa gaum. Myndband við lagið Stick ’Em Up er tilnefnt til MTV Video Music-verðlaunanna fyrir listræna stjórnun. 2003 Quarashi tilkynnir að Hössi sé hættur í sveitinni. Rapparinn Opee kemur fram í einu lagi með sveitinni. Seinna sama ár gengur Egill til liðs við sveitina. 2004 Columbia Records tilkynnir að samningum hafi verið slitið við Quarashi vegna dræmrar sölu Jinx. Guerilla Disco kemur út. 2005 Sölvi Blöndal segir í viðtali við Fréttablaðið að sveitin sé hætt. 2011 Quarashi kemur saman á Bestu útihátíðinni. 2014 Lagið Rock on kemur út, fyrsta lag Quarashi í tíu ár. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL Q Lilja Katrín Gunnarsdóttir liljakatrin@frettabladid.is Quarashi var stofnuð árið 1996 og náði mjög langt fyrir utan landsteinana á fáum árum. Í Fréttablaðinu gera þeir upp ferilinn og rifj a upp tímann þegar þeir bjuggu í vafasömu hverfi á Manhattan, bollalögðu með Eminem og þegar fyrsti launatékkinn lenti óvart í ruslinu. Hössi hættir Í byrjun árs 2003 hætti Hössi í hljóm- sveitinni og um haustið sama ár gekk Egill til liðs við sveitina. Af hverju hætti Hössi? Sölvi: „Það var komin þreyta í menn og menn vildu gera annað. Að mörgu leyti var þetta mjög gagn- kvæm ákvörðun og tekin í góðu þannig séð.“ Egill: „Ég fékk aldrei hlýja stemn- ingu frá kjarnaaðdáendahópnum. Auðvitað tók ég þann slag við aðdá- endur og mér finnst ég hafa staðið uppi sem sigurvegari. Fyrsta giggið mitt var í Tókíó fyrir tuttugu þúsund manns. Það var mitt stærsta gigg fyrir utan Skrekk. Sölvi var búinn að vera að hræða mig að ef ég myndi ekki standa mig þá fengj- um við ekki samning hjá Sony.“ Sölvi: „Sagði ég það?“ Egill: „Já. Ég fattaði hvað ég var búinn að koma mér í. Það leið næst- um því yfir mig áður en ég fór á sviðið og það þurfti að styðja mig alla leiðina upp ramp sem í minn- ingunni var hundrað metra langur en var örugglega bara fimmtán metra langur.“ Túraði í hjólastól Þessum lífsstíl fylgir oft mikil áfeng- isneysla og stanslaus partí. Fundu Quarashi-menn mikið fyrir því? Steinar: „Þetta var allt til staðar. Við vorum ungir strákar að ferðast um heiminn með stóran plötusamn- ing. Auðvitað skemmtum við okkur. Það var oft alls konar rugl í gangi en ekkert sem fór yfir strikið.“ Sölvi: „Margar hljómsveitir fá A-plús fyrir að taka eiturlyf en ná aldrei neitt í músík. Svo eru sveitir eins og Guns N Roses sem fá A-plús fyrir að taka fíkniefni en líka A-plús fyrir tónlistina. Við höfðum klár- lega gott vinnusiðferði til að fara ekki þangað. En það var mjög mikið af partíum. Ég man að Steini sneri á sér löppina einu sinni og ég þurfti að fara með hann á slysó. Hann endaði á því að vera í hjólastól og daginn eftir spiluðum við risagigg fyrir þrjátíu þúsund manns. Hann þurfti að vera í hjólastól á sviðinu að skemmta.“ En græddu Quarashi-menn ekki mikið á ferlinum? Sölvi: „Ég veit það ekki. Gerðir þú það?“ Steinar: „Þetta var mjög dýrt partí.“ Gerði lag með Prodigy Sveitin lagði upp laupana árið 2005 og segja strákarnir að líftími bandsins hafi einfaldlega verið búinn. Sjá þeir eftir einhverju? Sölvi: „Það voru kannski níu frábær móment á móti einu slæmu. Annað væri óeðlilegt. En ég hugsa ekki til baka um hvað mig langar að vera fræg- ur og búa í þakíbúð í New York. Ég hugsa meira um að ég hefði getað notið þess sem var að gerast á þessum tíma betur. “ En hvað stendur upp úr? Sölvi: „Annars vegar þegar við hituðum upp fyrir Prodigy. Sú sveit var æskuástin mín. Liam Howlett, heilinn á bak við bandið, kom til mín baksviðs og sagði að þetta hefðu verið einir bestu tónleikar sem hann hefði séð. Síðan bað Prodigy mig um að endurhljóðblanda fyrir sig lag, Diesel Power. Og hins vegar þegar Jinx kom út í Bandaríkjunum árið 2002 og við fórum inn á Billboard- listann.“ Meira efni væntanlegt Quarashi kemur saman aftur á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina, þeir Sölvi, Steinar og Egill ásamt Hössa og Ómari „Swarez“. Þeir komu síðast saman árið 2011 á Bestu útihátíð- inni og sögðust þá aldrei aftur ætla að endurtaka leikinn. Af hverju eru þeir að koma saman núna? Egill: „Það myndaðist mikið bræðralag á Bestu útihátíðinni þann- ig að það var mjög auðveld ákvörðun þegar Eyjar höfðu samband.“ Sölvi: „Þetta hefur auðvitað ekkert með þá staðreynd að gera að þetta er best borgaða gigg Íslandssögunnar.“ Í tilefni af endurkomunni gáfu Quarashi-menn út eitt nýtt lag, Rock On. Þá munu Hössi og Egill koma fram í Quarashi-lagi sem kemur út í ágúst en þeir hafa aldrei áður leitt saman hesta sína. Þá er þriggja til fimm laga EP-plata væntanleg frá sveitinni í ár. Nýr kafli hafinn Eftir að sveitin hætti fóru hljóm- sveitarmeðlimir hver í sína áttina. Sölvi: Ég starfa í fjármálageiran- um. Ég tók meistaragráðu í hagfræði í Stokkhólmi og er hálfur í doktors- námi enn þá.“ Steinar: „Ég þekki tvo Sölva í einum manni. Hagfræði-Sölvi er í jakkafötum, er mikið í símanum og mætir á fundi. Svo þekki ég þennan Sölva. Þann sem er í strigaskóm og hettupeysu. Egill: „Ég hef verið að bóka íslensk bönd á hátíðina Secret Solstice sem verður haldin í Laugardal í sumar. Ég er líka aðeins að taka upp tónlist.“ Steinar: „Ég starfa sem sölumað- ur í verslun. Ég er líka faðir. Ég á tvo drengi og einn stjúpson. Sonur minn hlustar á Quarashi sem er mjög fyndið. Ég bjóst ekki við því þegar ég samdi textana en þá hefði ég kannski blótað aðeins minna. Þessi lífsstíll sem var á mér þegar Quarashi var upp á sitt besta er löngu farinn. Sá kafli er búinn og nýr kafli er hafinn.“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.