Fréttablaðið - 31.05.2014, Side 43

Fréttablaðið - 31.05.2014, Side 43
Kynningarblað Skátaferð, hjólaferð, heimsreisa á húsbíl, Afríka, tjaldferð, ráð og afþreying. FERÐIR LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 &ÚTILEGA Útilegur eru einstækt fyrir-bæri. Flestir eru vel búnir hvað ferðatækin varðar. Góð aðstaða er víðast hvar þar sem yfirleitt er hægt að finna rennandi vatn, ísskáp og rafmagn. Auk þess eru mörg tjaldsvæði farin að bjóða upp á þvottaaðstöðu fyrir fatn- að svo hægt sé að vera eins lengi í guðsgrænni náttúrunni og hægt er. Hingað til hefur þó eitt veiga- mikið atriði verið v a nda má l að sögn Njáls Þórð- arsonar, vöru- stjóra hjá Sím- anum. Það er að oft er erfitt að sjá sjónvarps- fréttir, veðurspá fyrir næsta dag, að leyfa krökkunum að horfa á barnaefni svo ekki sé nú minnst á HM í knattspyrnu sem hefst 12. júní. „Undanfarin ár hafa lands- menn tekið snjalltækjabyltingunni opnum örmum og iPad-spjaldtölv- ur og iPhone- og Samsung-snjall- símar er orðin algeng eign. Ef not- endur snjalltækja eru með Sjón- varp Símans á heimili sínu er nú sá möguleiki fyrir hendi að nýta þá þjónustu á tjaldsvæðum vítt og breitt um landið.“ Opnunarleikur HM Nýverið setti Síminn á markað sérstakt app svo hægt er að horfa á sjónvarpið í gegnum síma og spjaldtölvur. Hægt er að hlaða appinu niður, para á einfaldan hátt við Sjónvarp Símans og horfa hvar og hvenær sem er. „Í app- inu er hægt að horfa á útsending- ar ýmissa sjónvarpsstöðva. Ef við- komandi hefur áskrift að Stöð 2 sem dæmi verður sjónvarpsstöð- in sjálfkrafa opin. Sama gildir um allar innlendar áskriftarstöðvar. Einnig er hægt að horfa á Frelsi sjónvarpsstöðvanna og nota tíma- flakk. Ef ferðalangar eru upptekn- ir við kolagrillið þegar veðurfrétt- ir fara í loftið er einfaldlega hægt að spóla til baka og horfa á þær meðan legið er á meltunni. Þá er einfalt að ákveða hvert ferðinni er heitið næst eða hvort eyða eigi lengri tíma á sama stað.“ Það hefur ekki farið fram hjá landsmönnum að HM í knatt- spyrnu hefst í Brasilíu 12. júní. „Síminn hefur tekið ákvörðun um að gefa þeim farsímaviðskiptavin- um Símans sem hafa appið kost á því að horfa á opnunarleik HM og aðra valda leiki, án þess að greiða fyrir gagnamagnið á farsíma- áskriftinni aukalega.“ Tónlist á ferðalögum Annað sem er mjög mikilvægt í góðri útilegu að sögn Njáls er góð tónlist. Síminn hóf samstarf við alþjóðlegu tónlistarveituna Spoti fy á síðasta ári. „Það sem nýtist best í útilegunni er svo- kallað „Off line mode“. Þá geta notendur Spotify Premium hjá Símanum sett upp lagalista áður en lagt er í hann og einfaldlega smellt á „offline mode“. Við það sækir Spotify lagalistann í tækið og þá er hægt að hlusta, án þess að það sé netsamband.“ Einnig býður Síminn upp á ýmsan búnað í verslunum sínum til að tengja snjalltækið við hljómtæki bílsins svo uppá- haldstónlist hvers og eins geti alltaf hljómað undir akstrinum. „Mikið magn af vinsælli tón- list, bæði íslenskri og erlendri, er á Spotify. Til að einfalda sér vinnuna við að búa til lagalista er einfaldast að leita eftir uppá- haldslögunum sínum, finna þau í lagalistum sem nú þegar er til og smella á „follow“. Ef lagalist- inn er til fyrirmyndar þarf bara að muna að setja hann á „Offline mode“ og setja allt í botn.“ Appið fyrir Sjónvarp Símans, sem og Spotify, má finna í App- Store og Google Play. Nánari upp- lýsingar má finna á Siminn.is. Sjónvarp og tónlist í útilegunni Hið nýja app Símans gefur viðskiptavinum fyrirtækisins kost á að horfa á sjónvarpsdagskrá í útilegunni. Hægt er að fylgjast með frétt um og veðurfréttum auk þess sem HM í fótbolta hefst í júní. Samstarf við tónlistarveituna Spotify tryggir uppáhaldstónlistina í útilegunni. Njáll Þórðarson, vörustjóri hjá Símanum. Það er góð tilfinning að liggja úti í náttúrunni og hlusta á tónlist í gegnum tónlistarveituna Spotify. MYND/ÚR EINKASAFNI M Y N D /Ú R EIN K A SA FN I Með hinu nýja appi Símans geta ferðalangar skoðað veðurspá morgundagsins.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.