Fréttablaðið - 31.05.2014, Blaðsíða 44
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 31. MAÍ 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512-5447
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Eftirminnilegasta ferðin er sennilega heimsókn til skáta-vina minna í Síle 2003 þar
sem við gengum meðal annars upp
á virkt eldfjall,“ segir Bragi Björns-
son skátahöfðingi.
„Við Íslendingarnir vildum ólmir
ganga á fjallið en sílesku vinir okkar
urðu eftir. Við mátum aðstæður svo
að engin hætta væri á ferðum og
fylgdum eftir öðrum hópi. Okkur
brá þó illilega þegar við settumst
niður á toppnum með nestið og fjall-
ið fór að hristast og yfir okkur rigndi
gjósku. Við vorum fljótir niður.“
Í felum fyrir herlögreglu
Eftir eldfjallaævintýrið var ferðinni
heitið til Atacama-eyðimerkurinnar
í Síle þar sem félagarnir gistu undir
berum himni í Moon Valley. Hita-
stigið fór vel undir frostmark um
nóttina og yfir 40 stig yfir daginn.
„Við vorum sérstaklega spennt-
ir að skoða Moon Valley því þang-
að fóru fyrstu geimfararnir til að
æfa sig. Þarna þrífst nánast ekkert
líf enda enginn raki í loftinu en við
ákváðum að gista. Afgreiðslumaður
í ferðamannaverslun ráðlagði okkur
þá að láta lítið á okkur bera. Við
komumst svo að því seinna að það
er bannað að gista í dalnum og her-
lögregla fylgist stöðugt með svæð-
inu. Við sluppum með skrekkinn,“
segir Bragi hlæjandi.
Ávallt viðbúinn
Bragi segir slíka ferðamennsku
krefjast reynslu. Kunnáttu þurfi til
að meta aðstæður og hana hafi hann
öðlast í skátunum.
„Við skátar erum ávallt viðbún-
ir og það er ástæða þess að maður
treystir sér í svona ferðir. Þetta er
ég að reyna að kenna börnunum
mínum og uppáhaldsstaður fjöl-
skyldunnar er Fjaðurárgljúfur. Til
að komast upp eftir gljúfrinu þarf að
vaða yfir ána þvers og kruss. Sonur
minn 10 ára var óhræddur við að
vaða í ísköldu vatninu en sex ára
dóttir mín þurfti aðeins lengri tíma
til að hafa sig út í. En verðlaunin eru
ævintýraleg. Gljúfrið er ótrúlega fal-
legt, eins og að vera staddur í miðri
Hringadróttinssögu,“ segir Bragi.
„Við eigum að ögra krökkun-
um okkar með því að láta þau tak-
ast á við náttúruna og fá þeim stig-
vaxandi verkefni í styttri ferðum.
Þannig læra þau á hætturnar en
njóta landsins á góðan og skemmti-
legan hátt. Við eigum ekki að segja
þeim að vatnið sé blautt og kalt, þau
verða að komast að því sjálf. Börn
geta miklu meira en við höldum.“
Gekk á virkt eldfjall
Bragi Björnsson skátahöfðingi segir börn verða að fá að reyna á sig til að læra
á umhverfið og meta aðstæður. Það hafi hann lært í skátunum.
Bragi ásamt krökkunum sínum í ævintýralegri göngu upp Fjaðurárgljúfur. Hann segir að börn
læri að njóta náttúrunnar og meta hætturnar ef þau fá að reyna dálítið á sig. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ferðaskrifstofan Íslandsvinir býður upp á útivistarferðir víðs vegar
um Evrópu. Að öðrum ólöstuðum verður hjólaferð í september um
eyjarnar í Kvarner-flóanum í Króatíu að teljast sérstæðust þeirra.
Brandur Jón Guðjónsson verður fararstjóri í ferðinni. „Kvarner-
flóinn er fallegt og sólríkt svæði og þar eru margar eyjur. Farið er
um nokkrar þeirra stærri á reiðhjólum. Þátttakendur munu gista og
snæða morgun- og kvöldverði um borð í bátnum Poseidon. Á meðan
hjólað er um tiltekna eyju siglir báturinn í aðra höfn til að taka hóp-
inn um borð aftur og síðan er farið yfir að þeirri næstu,“ útskýrir
Brandur.
Hann segir dagleiðirnar vera 25–55 kílómetra og yfirleitt er hjólað
um góða vegi og stíga. „Ég hvet fólk til að gefa sér tíma til að stoppa
og líta í kringum sig og upplifa það sem fyrir augu ber – að njóta
augnabliksins.“
Fyrst og fremst er um að ræða ævintýraferð um Kvarner-flóann í
Króatíu en auk þess er gist þrjár nætur í Ljubljana, höfuðborg Slóv-
eníu og farið um hana bæði hjólandi og gangandi.
Ferðin stendur yfir frá 11. til 21. september en vikuna á undan
verður boðið upp á aðra og meira krefjandi ferð um nokkrar af perl-
um Slóveníu,“ segir Brandur og hvetur áhugasama til að kíkja inn á
heimasíðu Íslandsvina www.islandsvinir.is. Þar er hægt að fá allar
nánari upplýsingar um ferðir skrifstofunnar. Eins er hægt að hringja
í síma 510-9500 eða senda fyrirspurnir á netfangið info@explorer.is
Ævintýraferð til Króatíu
Siglt verður á milli eyja í Kvarner-flóanum. Þátttakendur gista um borð í
bátnum Poseidon.
BL Sævarhöfða 2, sími 525 8000
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
6
17
3
6
*Miðað við uppgefnar viðmiðunartölur framleiðanda um eldsneytisnotkun í blönduðum akstri.
Less emissions. More driving pleasure.
AKTU FRAMFÖRUM
dísilvél og 8 gíra sjálfskiptingu og notar einungis 5,8 l/100 km í blönduðum akstri.
Aktu framförum – kynntu þér nýjan BMW X5!
BMW X5 - 5,8 l/100 km.* Verð frá 10.490 þús. kr.
OPIÐ Í DAG FRÁ 12-16
Hrein
akstursgleði
BMW X5
www.bmw.is