Fréttablaðið - 31.05.2014, Page 46

Fréttablaðið - 31.05.2014, Page 46
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 31. MAÍ 20144 Okkur var búið að dreyma lengi um að fara í heims-reisu en það var jólin 1999 sem við tókum ákvörðun og byrjuðum að skipuleggja,“ segir Eyrún Björnsdóttir sem hélt ásamt manni sínum, Stefáni Gunnars- syni, börnum þeirra tveimur, vina hjónum og barni þeirra í tíu mánaða heimsreisu á húsbílum haustið 2000. „Við höfðum ekki sagt neinum frá plönum okkar þegar vinahjón okkar komu í heimsókn og ráku augun í allar ferðabækurnar sem við höfðum safnað að okkur. Úr varð að þau ákváðu að koma með,“ segir Eyrún en þeim þótti styrkur í því að vera á tveimur bílum. Upphafleg heimsreisuplön voru raunar lögð til hliðar þar sem ljóst var að eitt ár nægði ekki til slíkrar farar. „Við ákváðum því að halda okkur við Evrópu, Afríku, Suður- og Norður-Ameríku.“ Innréttaði sjálf húsbílinn Þau hjónin ákváðu að breyta 15 manna Econoline-bíl sem þau höfðu notað í túristaakstur, í hús- bíl. Eyrún er innanhússarkitekt og hannaði innréttingarnar sjálf. „Ég passaði að vera með rúm fyrir fjóra, lítið eldhús, ísskáp og gas- eldavél,“ segir hún, en ekki var hægt að hefjast handa við inn- réttingu fyrr en stuttu fyrir brott- för. „Stefán var að keyra ferða- menn fram á síðustu stundu, kom í bæinn viku fyrir brottför. Þá hófst kapphlaup við að raða inn í bíl- inn,“ segir Eyrún glettin en kunn- ingjar þeirra keyptu einnig Econo- line-húsbíl. Ferðalangarnir fóru með Nor- rænu til Danmerkur. Farið var hægt í fyrstu. „Við græjuðum bílana betur og nýttum okkur gott úrval húsbílaverslana í Þýska- landi. Þá stoppuðum við í viku í Bonn til að safna vegabréfsáritun- um. Eftir vikudvöl hjá föður Stef- áns á Spáni var haldið út í óviss- una. Hundrað ár aftur í tímann Nú var siglt með ferju til Mar- okkó. „Það var eins og að fara hundrað ár aftur í tímann. Síðan ókum við inn í Sahara þar sem víða voru engir vegir og við ókum fjörur með hjálp gps-tæk- is. Fórum síðan inn til Máritan- íu, gegnum Malí, Níger og Tsjad,“ segir Eyrún. Vegna óeirða í Mið- Afríkuríkjunum reyndist örðugt að fá vegabréfaávísun til Súdans og um tíma leit út fyrir að þau þyrfti að snúa við. En með sann- færingarkraftinn á lofti tókst þeim að kría út áritun. Þeim hafði verið sagt frá fal- legri öskju og vatni í Súdan sem þau langaði mikið að skoða. „En við fengum hvergi að beygja út af veginum vegna vegatálma. Eitt sinnið vorum við þó svo heppin að einn hermaðurinn þurfti að komast heim til sín í þorpið sitt. Hann fékk far á toppi bílsins með stóru byssuna sína og við feng- um að skoða hina óviðjafnan- legu öskju.“ Sökuð um iðnaðarnjósnir Í Eþíópíu réðu ferðalangarnir ungan dreng sem leiðsögumann. „Þegar við vorum rétt komin inn í landið sáum við stóra bruggverk- smiðju. Þetta þótti okkur merki- legt enda nýkomin frá Súdan þar sem ríkir áfengisbann. Við stukk- um út úr bílnum og tókum mynd. Þá kom aðvífandi öryggisvörð- ur og sakaði okkur um iðnaðar- njósnir. Þegar drengurinn reyndi að útskýra barði vörðurinn hann með byssuskeftinu. Þá var Stefáni nóg boðið og skammaði mann- inn heiftarlega á íslensku,“ segir Eyrún, sem leist nú ekkert á blik- una enda maðurinn vopnaður. „Þetta endaði með því að við fórum á lögreglustöðina þar sem menn sannfærðust um að við værum saklaus,“ rifjar hún upp. Brúnaðar kartöflur á jólum Nú var haldið í gegnum Kenía þar sem fjölskyldurnar upplifðu alvöru safarí. „Við fórum í gegn- um Ngorongoro-gíginn. Þar sátum við börnin á toppi bílsins og horfðum á fíla, hýenur og ljón rétt hjá okkur. Jólin 2000 héldu þau til við Viktoríuvatn. Við fórum á hótel á aðfangadag og pöntuðum pipar- steik. Okkur fannst þó engin jól án brúnaðra kartaf lna og því kenndum við kokkinum að gera þær. Um áramótin dvöldu þau á strönd í Tansaníu en þaðan var haldið til Malaví, Sambíu, Botsv- ana og loks til Suður-Afríku. Bílarnir settir í gám Í Suður-Afríku var bílunum bók- staflega troðið í 40 feta gám. „Þeir rétt pössuðu þegar búið var að taka lofið úr dekkjunum,“ rifjar Eyrún upp. Fólkið f laug til Argentínu og síðan til Úrúgvæ til að bíða eftir bílunum. „Þar gistum við á hóteli manns sem við höfðum áður hitt á bensínstöð í Máritaníu. Hann kom á gulum Hummer, gaf sig á tal við okkur og gaf okkur loks nafnspjald þar sem hann skrifaði aftan á að við fengjum viku fría dvöl á hótel- inu hans ef við kæmumst alla leið,“ minnist Eyrún brosandi. Hæðarveiki hjá fólki og bílum Nú var ekið frá Argentínu og suður á syðsta odda Suður-Am- eríku, Eldland. „Þar fannst okkur stundum eins og við værum komin heim,“ segir Eyrún. Þaðan var haldið upp með ströndum Síle. „Við fórum meðal annars upp að efsta hverasvæði í heimi sem er í 2.500 metra hæð. Reynd- ar gerðum við þau mistök að gista þar um nóttina. Þegar við vökn- uðum vorum við öll hæðarveik en Stefán þó sýnu verst og endaði á sjúkrahúsi í Bólivíu.“ Í Perú urðu Eyrún og Stefán fyrir því óláni að bíllinn bræddi úr sér. „Bílarnir urðu í raun hæð- arveikir. Við vissum ekki að olían þynnist í mikilli hæð og brenn- ur því hraðar upp,“ lýsir hún en bíllinn var fluttur til Líma í Perú og þar voru þau föst í hátt í fjór- ar vikur. „Við skoðuðum allt sem hægt var í Líma og þangað þurf- um við aldrei að fara aftur,“ segir hún glettin. Þegar viðgerð var lokið var bíl- unum skipað til Flórída. „Við key rðum ef t ir austurströnd Bandaríkjanna til Halifax og þar fóru bílarnir á skipi heim í byrjun sumars.“ Mikill lærdómur fyrir börnin Innt eftir því hvort það hafi verið erfið ákvörðun að taka börnin úr skóla í heilt ár segir Eyrún það alls ekki svo. „Stelpan okkar var sjö ára, jafn gömul og sonur vina- hjóna okkar. Sonur okkar var tólf ára. Þegar við ákváðum ferðina töluðum við strax við skólastjóra Digranesskóla. Hann varð mjög spenntur og taldi börnin líkleg til að læra mun meira á ferðalaginu heldur en í skólanum. Við tókum einnig með okkur námsefni og á hverjum morgni settust börnin fyrir utan bílana og lærðu meðan við stússuðumst við undirbún- ing,“ lýsir Eyrún. Við lok ferðar- innar voru þau öll á sama stað og jafnaldrar þeirra heima á Íslandi auk þess sem sonur Eyrúnar var kominn ári fram úr í stærðfræði og búinn að taka aukaeðlisfræði. Eyrún játar því að ferðalagið hafi kostað skildinginn. „En þetta var hverrar krónu virði. Þetta var upplifun sem ekki er hægt að reikna út í krónum og aurum.“ Heimsreisa á húsbílum Tvær fjölskyldur lögðu haustið 2000 af stað í ævintýralega húsbílaferð um heiminn. Í tíu mánuði flökkuðu þau frá Íslandi, gegnum Evrópu og Afríku til Suður- og síðar Norður-Ameríku. Ferðin var lærdómsrík fyrir hina fullorðnu en ekki síst fyrir börnin þrjú. Á hverjum morgni settust börnin við borð fyrir framan bílana og lærðu. Eyrún og Stefán með börnin sín tvö. Ýmislegt bar fyrir augu fjölskyldnanna á ferðalagi þeirra um heiminn. Til dæmis þessa fílahjörð. “Færðu útileguna á hærra plan og tjaldaðu á toppnum” www.topptjald.is RAFTÆKJAVERSLUN • SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • WWW.SM.IS FÁÐU ÞRÁÐLAUSAN AÐGANG AÐ TÓNLISTINNI Í ÖLLUM HERBERGJUM Sonos er kerfi þráðlausra hátalara og hljómtækja. Það sameinar stafræna tónlistarsafnið þitt og útvarpsstöðvar í einu appi sem þú getur stjórnað frá hvaða síma eða spjaldtölvu sem er.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.