Fréttablaðið - 31.05.2014, Síða 58

Fréttablaðið - 31.05.2014, Síða 58
| ATVINNA | Laust er til umsóknar starf yfirlæknis bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa við bráðasvið Landspítala. Starfið veitist frá 1. september 2014 til 5 ára. Starfshlutfall er 100% og skiptist þannig að starf yfirlæknis utanspítalaþjónustu er 50% á móti starfi sérfræðilæknis við bráðamóttöku. Yfirlæknir bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa fer með læknisfræðilega forsjá sjúkraflutninga á landinu öllu skv. reglugerð nr. 262/2011 um framkvæmd og skipulag sjúkraflutninga. Hann er jafnframt umsjónarlæknir sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu skv. sömu reglu- gerð. Yfirlæknir starfar náið með viðbragðsaðilum s.s. Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins, Landhelgisgæslunni, Neyðarlínu, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Helstu verkefni og ábyrgð » Læknisfræðileg forsjá sjúkraflutninga » Læknisfræðileg forsjá neyðarsímsvörunar 112 » Læknisfræðileg ráðgjöf Slysavarnarfélagsins Landsbjargar » Klínísk vinna á bráðamóttöku Landspítala » Þátttaka í kennslu og vísindavinnu á bráðasviði Landspítala » Önnur umsjónarverkefni sem yfirlækni eru falin Hæfnikröfur » Íslenskt sérfræðileyfi í bráðalækningum » Þekking og reynsla af neyðarþjónustu utan sjúkrahúsa » Menntun og reynsla í stjórnun » Reynsla í kennslu og vísindavinnu » Leiðtogahæfni og stjórnunarreynsla » Jákvætt viðhorf og hæfni í mannlegum samskiptum Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands. Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala. Nánari upplýsingar » Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2014. » Upplýsingar veitir Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, framkvæmdastjóri bráðasviðs, gudrakel@landspitali.is, sími 543 1000. » Umsóknum fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. » Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast í tvíriti til Guðlaugar Rakelar Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra, LSH E2 Fossvogi. » Allar umsóknir eru sendar til stöðunefndar lækna hjá Landlæknisembættinu. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið einnig á þeim auk mati stöðunefndar á innsendum umsóknargögnum. BRÁÐAÞJÓNUSTA UTAN SJÚKRAHÚSA VIÐ BRÁÐASVIÐ Yfirlæknir Laus eru til umsóknar störf sérfræðilækna við kvennadeild Landspítala. Um er að ræða tvær til þrjár stöður í kvenlækningum og tvær til þrjár stöður í fæðingar- lækningum. Starfshlutfall er að lágmarki 50% eða samkvæmt samkomulagi og veitast störfin frá 1. ágúst 2014 eða eftir nánara samkomulagi. Helstu verkefni og ábyrgð » Sérfræðistörf í samráði við viðkomandi yfirlækni » Þátttaka í bundnum staðarvöktum og gæsluvöktum samkvæmt vaktafyrirkomulagi Kvennadeildar » Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samráði við yfirlækna og prófessor Hæfnikröfur » Íslenskt sérfræðileyfi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum » Leiðtogahæfileikar » Góð samskiptahæfni » Reynsla af kennslu og vísindastörfum Fyrir sérfræðilækni í fæðingarlækningum er nauðsynleg sérþekking og reynsla í ómskoðunum á meðgöngu, meðgöngu- eftirliti áhættumeðganga og fæðingarinngripum. Fyrir sérfræðilækni í kvenlækningum er æskileg sérþekking og reynsla í þvagfæravandamálum kvenna, legslímuflakki (endometriosis) og/eða innkirtlalækningum. Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og Læknafélags Íslands.Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Nánari upplýsingar um forsendur ráðningar er að finna á heimasíðu Landspítala. Nánari upplýsingar » Umsóknarfrestur er til og með 23. júní 2014. » Upplýsingar veita Hildur Harðardóttir, yfirlæknir meðgöngu- og fæðinga, netfang hhard@landspitali.is og Kristín Jónsdóttir, yfirlæknir kvenlækninga, netfang kjonsd@landspitali.is, sími 543 1000. » Umsóknum fylgi vottfestar upplýsingar um nám, fyrri störf, reynslu af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum ásamt sérprentun eða ljósriti af greinum sem umsækjandi kann að hafa birt eða skrifað. » Umsóknargögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast, í tvíriti, Dómhildi Árnadóttur, mannauðsráðgjafa, LSH Stjórn kvenna- og barnasviðs Hb-21D. » Mat stöðunefndar læknaráðs Landspítala byggist á innsendum umsóknargögnum. » Viðtöl verða við umsækjendur og ákvörðun um ráðningu í starfið byggir einnig á þeim. » Fullt starf (100%) er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. yfirlýsingu LSH vegna kjarasamnings sjúkrahúslækna dags. 2. maí 2002, sbr. breytingu 5. mars 2006. KVENNADEILD Sérfræðilæknar Á næringarstofu Landspítala eru laus til umsóknar þrjú störf næringarráðgjafa/næringarfræðinga. Í boði er góð einstaklingsaðlögun. Starfsemi næringarstofu skiptist í þrennt: Næringarráðgjöf, fræðslu og rannsóknir. Næringarstofan deilir húsnæði á Eiríksgötu með rannsóknarstofu í næringarfræðum (RÍN) við Háskóla Íslands og Landspítala. Starfsumhverfið er því fjölbreytt og býður upp á mikla möguleika. Helstu verkefni og ábyrgð » Næringarmeðferð og ráðgjöf til inniliggjandi sjúklinga og á göngudeild » Leiðsögn nemenda í klínísku námi » Umsjón með endurskoðun fræðsluefnis fyrir sjúklinga og aðstandendur » Þátttaka í faglegu gæðastarfi næringarstofu Hæfnikröfur » Löggilding samkvæmt reglugerð » Faglegur metnaður » Góð samskiptahæfni » Sjálfstæði í vinnubrögðum » Klínísk reynsla og reynsla af teymisvinnu er æskileg, ekki skilyrði Umhyggja • Fagmennska • Öryggi • Framþróun Laun samkvæmt samningi viðkomandi stéttarfélags og fjármálaráðherra. Sótt er um starfið rafrænt á; www.landspitali.is, undir „laus störf“. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu LSH við ráðningar á spítalanum. Nánari upplýsingar » Umsóknarfrestur er til og með 16. júní 2014. » Störfin eru laus frá 15. ágúst 2014 eða eftir samkomulagi. » Starfshlutfall er 80-100% eða samkvæmt samkomulagi. » Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. » Mat hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. » Upplýsingar veita Svava Engilbertsdóttir, næringarráðgjafi, svavaen@landspitali.is, sími 543 8419 og Ingibjörg Gunnarsdóttir, deildarstjóri, ingigun@landspitali.is, sími 543 8414. NÆRINGARSTOFA Næringarráðgjafi/næringarfr. Sölufulltrúi Útgáfufyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir sölufulltrúum á Íslandi, Noregi og Danmörku. Um er að ræða sölu- og kynningastarf fyrir fjöldan allan af ýmis konar ritum sem fyrirtækið gefur út, sjá heimasíðuna www.sagaz.is Krefjandi starf í skemmtilegu umhverfi. Reynsla af sölu- og kynningarmálum æskileg en ekki skilyrði. Árangurstengd þóknun í verktakaumhverfi. Umsóknir skulu sendar á netfangið: umsokn@sagaz.is fyrir 6. júní nk. 31. maí 2014 LAUGARDAGUR4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.