Fréttablaðið - 31.05.2014, Page 62

Fréttablaðið - 31.05.2014, Page 62
| ATVINNA | Starf forstöðumanns tæknideildar Snæfellsbæjar er laust til umsóknar Hlutverk og ábyrgðarsvið: Forstöðumaður tæknideildar Snæfellsbæjar hefur yfirumsjón með skipulags- og byggingarmálum og öllum verklegum framkvæmdum og viðhaldi á vegum sveitarfélagsins. Forstöðumaðurinn hefur forystu um faglegan undirbúning við mótun stefnu sveitarfélagsins á sviði skipulags- og byggingamála á hverjum tíma og er skipulags og byggingarnefndum, bæjarstjóra og bæjarstjórn til ráðgjafar á því sviði og sér um að lögum um mannvirki nr. 160/2010, skipulagslögum nr. 123/2010 og öðrum lögum og reglugerðum varðandi byggingarmál í sveitarfélaginu sé framfylgt. Hann ber m.a. ábyrgð á skráningu mannvirkja, eftirliti með viðhaldi, staðfestingu eignaskiptayfirlýsinga, gjaldtöku, skráningu, varðveislu og miðlun upplýsinga um mannvirki til íbúa. Menntunar- og hæfniskröfur: • Háskólamenntun á sviði skipulags- og byggingarmála sbr. 8 gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010 og 7. gr. skipulags- laga nr. 123/2010 er skilyrði. • Þekking á lögum um mannvirki, skipulagslögum, byggingarreglugerð er æskileg. • Reynsla af stjórnun er æskileg. • Þekking á starfsumhverfi opinberrar stjórnsýslu er æskileg. • Leiðtogahæfileikar, frumkvæði, framsýni og skipulagshæfni. • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og þjónustulund. • Hæfni til þess að tjá sig í ræðu og riti á íslensku. • Góð almenn tölvukunnátta. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi fagfélags og Launanefndar sveitarfélaga. Umsóknarfrestur er til og með 16. júní nk. Umsækjendur eru beðnir um að senda umsókn til Kristins Jónassonar, bæjarstjóra, á netfangið kristinn@snb.is Umsókninni þarf að fylgja greinargott yfirlit yfir nám og störf þar sem umsækjandi gerir sérstaklega grein fyrir hæfni til starfans út frá ofangreindum hæfnikröfum. Umsækjendur eru beðnir um að tilgreina a.m.k. 2 umsagnaraðila í umsókn sinni. Öllum umsóknum verður svarað Fossaleyni 16 | 112 Reykjavík | Sími 534 8400 | www.tgverk.is Umsóknir er hægt að fylla út á tgverk.is undir flipanum fyrirtækið / starfsumsókn – eða með samtali í síma 534 8400 þar sem jafnframt er hægt að fá nánari upplýsingar um störfin. VERKSTJÓRAR / MÓTASMIÐIR ÞG-VERK óskar eftir að ráða verkstjóra í krefjandi verkefni á vegum fyrirtækisins. Hæfniskröfur: · Iðnmenntun eða meistarabréf. · Reynsla af verkstjórn flókinna og krefjandi verkefna. · Góðir stjórnunar- og samskiptahæfileikar. ÞG-VERK leitar að hressu og öflugu fólki í mælingu í steypumótun. Góð laun í boði fyrir gott fólk. AÐJÚNKT Í FRÆÐIGREINUM VIÐ HÖNNUNAR- OG ARKITEKTÚRDEILD LISTAHÁSKÓLINN AUGLÝSIR EFTIR UMSÓKNUM UM STARF AÐJÚNKTS Í FRÆÐIGREINUM VIÐ HÖNNUNAR- OG ARKITEKTÚRDEILD. UM ER AÐ RÆÐA 50–80 % STARF. Gert er ráð fyrir að ráðning taki gildi frá og með 1. ágúst næstkomandi til eins árs með möguleika á framlengingu á samningi. Starfið felur m.a. í sér kennslu í akademískum vinnubrögðum og ritgerðarskrifum auk kennslu á sérsviði umsækjenda. Áhersla er á kennslu í meistaranámi í hönnun. Meistaranám í hönnun er alþjóðlegt nám og kennt á ensku (sjá http://lhi.is/ namid/honnun-og-arkitektur/meistaranam/). Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu af kennslu og rannsóknum. Mikilvægt er að umsækjandi búi yfir þekkingu og reynslu af þverfaglegu starfi og hafi áhuga á samþættingu fræða og listsköpunar. Hæfniskröfur: > Meistarapróf á sviði hönnunar, arkitektúrs, hugvísinda eða félagsvísinda. > Reynsla af kennslu og rannsóknum. > Góður skilningur á tengslum akademísks og faglegs starfs, rannsókna og kennslu. Aðjúnkt tekur þátt í uppbyggingu og stefnumót- andi starfi sem fer fram við deildina í samstarfi við aðra starfsmenn deildarinnar og deildarforseta. Við ráðningu í stöðuna verður m.a. tekið tillit til þess hvaða færni umsækjandi hafi til samstarfs og hæfni til frumkvæðis í starfi. Umsókn skal fylgja yfirlit yfir námsferil og störf umsækjanda, auk ritaskrár. Umsækjandi skal gera grein fyrir kennslustörfum sínum og rannsóknum og jafnframt veita upplýsingar um önnur störf sem hann hefur gegnt, þ.m.t. félags- og stjórnunarstörf. Afrit af prófskírteinum og öðrum staðfestingum varðandi menntun skulu fylgja umsókn. Umsóknir skulu merktar deildarforseta og skal skila þeim ásamt fylgigögnum til Listaháskóla Íslands, Þverholti 11, 105 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn 16. júní. Yfirlit um starfsferil og verk skal einnig skila á rafrænu formi. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál. Fyrirspurnir má senda á deildarforseta sigrunbirgis@lhi.is. Sjá upplýsingar um viðmið Listaháskólans um mat á þekkingu og reynslu háskólakennara og reglur um veitingu akademískra starfa á heimasíðu skólans (sjá http://lhi.is/skolinn/stjornsysla/log-og-reglur/). Listaháskóli Íslands er sjálfseignarstofnun með viðurkenningu á fræðisviðinu listir. Skólinn starfar í fimm deildum; myndlistar- deild, hönnunar- og arkitektúrdeild, tónlistardeild, sviðslistadeild, og listkennsludeild. Starfsstöðvar skólans eru þrjár við Þverholt, Sölvhólsgötu og Laugarnesveg í Reykjavík. www.gardabaer.is Tækni- og umhverfissvið ÚTBOÐ EFTIRLIT MEÐ FRAMKVÆMDUM Garðabær auglýsir eftir tilboðum í umsjón og eftirlit með framkvæmdum við byggingu 2ja hæða viðbyggingar við Hofsstaðaskóla, Skólabraut 5 í Garðabæ, ásamt breytingum innandyra í núverandi skólabyggingu og frágangi aðliggjandi lóðar. Tilboð verktaka í bygginguna hafa verið opnuð og unnið er að gerð samnings um framkvæmdina. Framkvæmdakostnaður er áætlaður ríflega 400 milljónir króna. Umsjón og eftirlit hefst við töku tilboðs og stendur yfir fram til loka verkefnis, ráðgerð lok framkvæmda eru 1. ágúst 2015. Nánari upplýsingar um verkið og skilmála þess eru í útboðsgögnum sem eru rafræn og aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar, www.gardabaer.is frá og með miðvikudeginum 28. maí. Tilboðum skal skilað eigi síðar en 12. júní 2014 kl. 11:00 á skrifstofu VSB Verkfræðistofu að Bæjarhrauni 20 í Hafnarfirði, þar sem þau verða opnuð að viðstöddum bjóðendum sem þess óska. 31. maí 2014 LAUGARDAGUR8
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.