Fréttablaðið - 31.05.2014, Síða 120

Fréttablaðið - 31.05.2014, Síða 120
31. maí 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 76SPORT HM Í FÓTBOLTA Í BRASILÍU 12 DAGAR Í FYRSTA LEIK MEXÍKÓBÚINN JAVIER „CHICHARITO“ HERNÁNDEZ, þá 22 ára, lék eftir afrek afa síns á HM í Suður-Afríku fyrir fjórum árum þegar hann skoraði fyrsta mark Mexíkó í 2-0 sigri á Frakklandi aðeins níu mínútum eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Afi hans, Tomas Balcazar skoraði einnig á móti Frakklandi en á HM í Sviss 1954 og var þá einnig 22 ára gamall. Mexíkó tapaði þeim leik 2-3 og komst ekki upp úr riðlinum. Mark Chicharito var aftur móti lykilmark í að koma Mexíkó áfram í 16 liða úrslit- unum. Faðir Chicharito var einnig í HM-hópi Mexíkó á heimavelli árið 1986 en fékk ekki að koma inn á. FÓTBOLTI „Við erum bara nokkuð glaðir með þetta,“ sagði Heimir Hall- grímsson, annar landsliðsþjálfara Ís- lands í fótbolta, við Fréttablaðið eftir 1-1 jafntefli karlaliðsins við Austur- ríki í vináttulandsleik í Innsbruck í gærkvöldi. Íslenska liðið spilaði ekki vel í fyrri hálfleik og var marki undir eftir hann. Aron Einar Gunnarsson missti boltann illa á miðjunni og heima- menn keyrðu í gegn og skoruðu. Það tók Ísland ekki nema 50 sek- úndur að jafna metin í seinni hálf- leik. Kolbeinn Sigþórsson stangaði boltann í netið eftir glæsilega aukaspyrnu Ara Freys Skúlasonar. Ekki voru fleiri mörk skoruð. „Þetta voru tveir ólíkir hálfleikir. Það sem við ætluðum að gera í fyrri hálfleik heppnaðist ekki. Við ætluðum að reyna að pressa framar og fara framar á völlinn en þeir voru bara sterkari þannig að við féllum of langt til baka,“ sagði Heimir um fyrri hálfleikinn en hann var mun sáttari við þann síðari. „Það var miklu meira hugrekki og hreyfing á liðinu í sókninni. Menn tóku betri hlaupaleiðir og sýndu meiri vilja,“ sagði Heimir Hallgríms- son við Fréttablaðið eftir leik. - tom Jafntefl i í kafl askiptum leik MARKAVÉL Kolbeinn er búinn að skora 14 landsliðsmörk. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DRÁTTURINN Í HEILD SINNI Stjarnan - Þróttur, Samsung-velli Keflavík - Hamar, Nettó-velli KR - Fjölnir, KR-veli KV - Fram, Egilshöll Víkingur - Fylkir, Víkingsvelli BÍ/Bolungarvík - ÍR, Torfnesvelli Breiðablik - Þór, Kópavogsvelli ÍBV - Valur, Hásteinsvelli LEIKIRNIR FARA FRAM 18. OG 19. JÚNÍ HANDBOLTI Guðjón Valur Sigurðs- son hefur unnið flesta þá titla sem í boði hafa verið fyrir hann á glæst- um félagsliðaferli en Evrópumeist- aratitillinn fyrir sigur í Meistara- deildinni bíður hans enn. Þessi margreyndi hornamaður hefur spilað undanfarin átta ár í Meistara- deildinni með fjórum liðum – Kiel, AG Kaupmannahöfn, Rhein-Neck- ar Löwen og Gummersbach og er nú kominn til Kölnar, þar sem úrslita- helgin í Meistaradeildinni hefur farið fram ár hvert síðan 2010. Undanúrslitin fara fram í dag en úrslitaleikurinn á morgun. Guðjón Valur þekkir aðstæður vel en hann er nú að spila í Köln fjórða árið í röð. Honum hefur þó aldrei tekist að komast í sjálfan úrslitaleikinn. „Þetta er auðvitað titill sem mig hefur alltaf langað til að vinna og vonbrigðin þegar það tekst ekki hafa verið mikil. Þetta er titill sem mig vantar og langar í. Það væri ekki verra að geta fullkomnað safn- ið,“ sagði Guðjón Valur í samtali við Fréttablaðið í gær. Æfing strax næsta dag Kiel varð um síðustu helgi Þýska- landsmeistari eftir æsispennandi lokasprett í deildinni þar sem nið- urstaðan réðst á markatölu. Rhein- Neckar Löwen var á toppnum fyrir lokaumferðina en Kiel vann þá stærri sigur en ljónin sem dugði til að tryggja titilinn. „Við leyfðum okkur að fagna þessu um kvöldið en svo var æfing strax á sunnudaginn. Við fengum svo einn frídag en eftir það byrjaði hefðbundinn undirbúningur fyrir þessa helgi,“ segir Guðjón Valur. Það er mikið um dýrðir í Köln þessa helgi enda einn allra stærsti viðburður handboltaheimsins ár hvert – ef ekki sá stærsti. Guðjón Valur segir að leikmennirnir taki þó minnstan þátt í dagskránni utan vallarins. „Maður veit svo sem hvað er í gangi en oftast er maður út af fyrir sig uppi á hótelherbergi,“ segir hann. „En þetta er skemmtilegt og stórt mót og það er allt gefið í botn þessa tvo daga.“ Spænsk áhrif í Veszprem Kiel mætir ungverska liðinu Vesz- prem í sinni undanúrslitaviðureign í dag en í hinni mætast Flensburg og Barcelona. Guðjón Valur á von á mjög erfiðum leik gegn ungversku meisturunum sem hafa á að skipa ógnarsterku liði. „Helsti munurinn á liðunum er að þeir koma úr veikari deild og hafa því haft mun meiri tíma til að und- irbúa sig fyrir þennan eina leik. Á sama tíma vorum við í þessari bar- áttu um markatöluna í deildinni og full keyrsla á okkar liði. Við höfum því minna getað sérhæft okkur fyrir þennan leik og verðum því að ein- beita okkur frekar að því sem við gerum best,“ útskýrir Guðjón Valur en hann segir spænsk áhrif sterk í Veszprem. „Þjálfarinn er spænskur og nokkrir leikmenn líka, auk þess sem margir þeirra hafa spilað á Spáni og þekkja þann bolta vel. Liðið getur bæði spilað öfluga 6-0 og 5-1 vörn þar sem þeir geta leitt mann í alls kyns gildrur.“ Síðustu leikirnir með Kiel Þetta verða síðustu leikir Guðjóns Vals í búningi Kiel þar sem hann hefur ákveðið að leita á önnur mið að tímabilinu loknu. Hann hefur verið sterklega orðaður við Barce- lona en ekkert hefur fengist staðfest í þeim efnum. Guðjón Valur segist þó hafa tekið ákvörðunina um að fara fyrir nokkru og sjái ekki eftir henni. „Manni þykir þó afar vænt um félagið og allt fólkið og kemur til með að sakna þess. Ég er þó glaður að hafa náð að klára deildina með því að vinna titilinn á heimavelli á þann máta sem við gerðum. Það var frábært,“ segir hann. „Það er þó skrýtið að hugsa til þess að ég sé að fara, enda hefur tími minn hjá Kiel verið mjög góður.“ eirikur@frettabladid.is Vantar þennan titil í safnið Úrslitin í Meistaradeild Evrópu í handbolta ráðast í Köln í Þýskalandi um helgina. Þýskalandsmeistararnir í Kiel freista þess nú að bæta enn einum titlinum í safnið– titli sem Guðjón Val Sigurðsson hefur vantað. VILL VINNA Guðjón Valur Sigurðsson hefur unnið allt sem hægt er að vinna í félagsliðaboltanum nema Meistaradeild Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY FÓTBOLTI „Við gátum alveg verið heppnari með mótherja en við gátum líka verið óheppnari. Við fáum heimaleik gegn skemmtilegu liði sem við þekkjum vel, bæði leikmenn og þjálfara. Þegar komið er í sextán liða úrslitin eru flest af bestu liðum landsins í pottinum og enginn auðveldur mótherji,“ sagði Páll Kristjánsson, þjálfari KV, eftir að dregið var í Borgunarbik- arnum í gær. KV mætir Fram. Páll vonast til þess að leikurinn geti fari fram á heimavelli KV. „Mér skilst að það séu aðrar reglur í bikarnum og vonandi fáum við að spila á heimavellinum okkar. Annars erum við tilbúnir að ræða það að spila hér á Laugar- dalsvellinum.“ KV hefur aldrei komist í sextán liða úrslitin áður en liðið er á sínu fyrsta ári í fyrstu deildinni. „Við erum búnir að vinna tvo leiki í sumar, báða í bikarnum og eitt jafntefli í deildinni. Við eigum erfiðan leik á morgun í deildinni en þessi bikarkeppni hefur gert mikið fyrir andann í hópnum,“ sagði Páll að lokum. - kpt Góð lyft istöng fyrir móralinn ÞJÁLFARINN Páll Kristjánsson er annar þjálfara KV. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.