Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 30
FRÉTTABLAÐIÐ Bjartey og Guðný Gíg ja. Lífsstíll og heilsa. Tíska. Samfélagsmiðlarnir.
6 ¿ LÍFIÐ 27. JÚNÍ 2014
„Við búum hérna fjögur saman svo
hér er svona samansafn af ýmsu
frá mörgum hornum en við eigum
þó ekki bókasafnið hér á veggnum
sem fylgdi íbúðinni,“ segir Guðný
Gígja Skjaldardóttir þegar blaða-
maður tyllir sér í sófann. Risíbúðin
er fyllt antíkhúsgögnum sem aug-
ljóslega eiga sína sögu og myndar-
legt bókasafnið á veggnum vekur
strax áhuga. Talið berst að kynnum
stelpnanna í Ylju.
Bjartey: „Við kynntumst í kór
Flensborgarskólans fyrir svona
átta árum.“
Gígja: „Ha? Hvað þykistu eigin-
lega vera gömul?“ segir hún hlæj-
andi.
Bjartey: „Nei hvað, er lengra
síðan? Hvað er ég að segja, það
var árið 2007 og við vorum í sömu
röddinni, öðrum alt.“
Gígja: „Ég er frá Patreksfi rði.
Þar var ekki mikið um tónlist svo
ég var alltaf í körfubolta. Þegar
ég var 16 ára fl utti ég að heiman
til Reykjavíkur og valdi að fara í
Flensborg. Körfuboltinn átti hug
minn allan og ég komst í unglinga-
landsliðið. Tónlistin togaði þó í
mig svo að ég skráði mig í kórinn.
Stuttu seinna átti ég stund á körfu-
boltaæfi ngu sem ég gleymi ekki.
Ég horfði á þjálfarann sem stóð
yfi r okkur með lexíu en það eina
sem komst að í huga mínum voru
laglínur sem ég raulaði inni í mér.
Þá áttaði ég mig á því að söngurinn
var að taka völdin og ég hætti í
körfubolta fl jótlega eftir það. Það
var stór ákvörðun á þeim tíma en
ég sé ekki eftir því. Síðan langaði
mig að taka þátt í söngvakeppninni
en var svolítið feimin að gera það
ein.“
Bjartey: „Þá spurði hún mig og
ég var til í að taka þátt í keppninni
með henni. Við byrjuðum að æfa
okkur saman og hittast í þeim til-
gangi að æfa lög en urðum mjög
góðar vinkonur í kjölfarið. Við
enduðum í öðru sæti í keppninni en
unnum áhorfendakosninguna með
laginu Eyvindur Fjalla.“
Gígja: „Það lag var einmitt á
fyrstu plötunni okkar og við erum
enn að syngja það lag. Í raun er það
uppáhaldslagið mitt því það hefur
svo mikla sögu. Fyrir utan nýja
lagið okkar, Fall, sem kemur út
innan skamms.“
Bjartey: „Ég var ekki almenni-
lega inni í íþróttum og sé alltaf
eftir því að hafa ekki byrjað í
fótbolta. Ég var bara svo rosalega
feimin. Ég hef haft meiri áhuga
á að dunda mér í föndri og skrifa
texta í litlar bækur. Ég bjó til
dæmis til ljós úr kaffi pokum og svo
hef ég smíðað rafmagnsgítar.“
Eru ekki blóðtengdar
Báðar eru með uppsett hár og það
glittir í líkamsskreytingu á bak við
eyru þeirra beggja. Efl aust hafa
þær ekki gert sér grein fyrir því en
þær klára setningar hvor annarrar
og eru mjög svipaðar í fasi. Þó eru
þær ólíkar rétt eins og raddirnar
sem hljóma svo vel saman. En hver
er sagan á bak við húðfl úrin?
Gígja: „Við ákváðum að fá okkur
húðfl úr á sama tíma þegar við
vorum 17 ára gamlar.“
Bjartey: „Það var svolítið
skondið, það var bara vinur okkar
úr kórnum sem gerði þau.“
Gígja: „Já, ætli hann hafi ekki
verið búinn að gera eitt húðfl úr á
ævinni þá. Margir spyrja hvort við
höfum verið fullar en nei, okkur
langaði bara í húðfl úr og þetta varð
útkoman,“ segir hún og glottir.
„Ég er með G-lykil sem tengist að
sjálfsögðu tónlistinni og Bjartey er
með nótu.“
Gígja: „Ég held að fólk haldi að
við séum alveg eins týpur en við
erum mjög ólíkir persónuleikar.
Við eigum þó mörg sömu áhuga-
mál og höfum svipaðan húmor og
fatastíl. Ég er kannski aðeins meiri
grenjuskjóða. Ætli fjölskylda mín
sé bara ekki ofnæmisgjarnari og
tárist þá sérstaklega yfi r einhverju
fallegu.“
Bjartey: „Já, þið eruð svolítið
þannig í fjölskyldunni. Margir
halda að við séum systur eða
frænkur því það er margt líkt með
okkur.“
Gígja: „Þetta er svolítið loðið.
Maður vill vera einstaklingur og
við viljum ekki vera eins en það er
bara svo margt sem tengir okkur.“
Ylja verður að veruleika
Árið 2008 stofnuðu þær hljómsveit-
ina Ylju sem vakti fl jótlega áhuga
landsmanna. Í upphafi voru þær
tvær og fengu síðan gítarleikarann
Smára Tarf til liðs við sig. Hann
hefur nú snúið sér að öðru og í
dag eru hljómsveitarmeðlimirnir
orðnir fi mm. „Það voru sögusagnir
á kreiki um að önnur okkar hafi
átt í ástarsambandi við hann en
það er langt frá því. Við erum bara
mjög góðir vinir. Örn Eldjárn kom
í staðinn fyrir hann á gítarinn og
er frábær tónlistarmaður,“ segir
Gígja. „Valgarð Hrafnsson er á
bassa. Hann er yngstur í bandinu,
nýorðinn 18 ára. Hann er svona
polli og við erum systkinabörn.
Hann er eiginlega betri gítarleik-
ari en allt annað en okkur vantaði
bassaleikara og vildum fá hann í
bandið.“
Bjartey: „Magga Magg kynnt-
umst við í gegnum Smára Tarf
þegar við vorum að spila lagið Get
Lucky á RÚV. Við vorum alltaf
svo hræddar við að fá trommara
í bandið og hann er alltaf að færa
sig upp á skaftið. Í byrjun var hann
bara með djembe sem var mjög
þægilegt en nú er hann kominn
með fullt trommusett.“
Nafnið á bandinu er sérstakt
og segjast stelpurnar hafa fundið
fyrir pressu að fi nna nafn fyrir
Airwaves-hátíðina.
Gígja: „Við vorum ótrúlega lengi
að fi nna eitthvað en eftir að hafa
legið yfi r orðabókum kom nafnið
upp úr þurru. Ylja er svolítið
væmið og við sáum smá eftir því
seinna en að ylja fólki um hjarta-
rætur með tónlistinni var kannski
hugsunin á bak við það. Þetta er
sjaldgæft nafn á Íslandi og ég held
að þetta sé rússneskt strákanafn.“
Lærðu gítarleik á YouTube
Báðar eru sjálfl ærðar á gítarinn
en þær lærðu mest í gegnum
YouTube og í gegnum gítarbækur
sem voru í eigu móður Bjarteyjar.
„Mér fannst rosalega erfi tt að fara
í þvergripin en ég fór heim eftir
skóla á hverjum degi og æfði mig
í þrjá klukkutíma í senn. Ég var
bara föst við gítarinn. Þess vegna
náði ég þessu frekar fl jótt,“ segir
Bjartey
En hvernig skilgreina þær tón-
listarstefnu sína?
Bjartey: „Við elskum raddanir
og tónlist Simons and Garfunkels
hefur veitt mér mikinn innblástur í
gegnum tíðina.“
Gígja: „Já, við höfum einnig
hlustað svolítið á Crosby, Stills
& Nash. Ég hef alltaf verið mikil
þjóðlagakona og það rólega og
þægilega heillar mig. Það er erfi tt
að setja tónlistina okkar í einhvern
ramma. Við gerum blandaða tónlist
sem er eins konar þjóðlaga- og
draumkennt popp. Svo viljum við
ekki festa okkur í neinu ákveðnu
heldur geta farið í hinar ýmsu
áttir.“
Ný plata í bígerð
Draumurinn að lifa á tónlistinni
blundar í þeim en stúlkurnar í Ylju
taka lífi nu með miklu jafnaðargeði.
Bjartey vinnur á leikskóla á daginn
og Gígja vinnur á Kexi Hosteli.
Bjartey: „Það væri alveg draum-
urinn að vinna eingöngu að tónlist-
inni og við stefnum alveg að því.“
Gígja: „Það kostar mikið að reka
hljómsveit en það er margt fram
undan sem við erum spennt fyrir.
Einnig höfum við verið að fara út
fyrir landsteinana. Í febrúar var
það Seattle og í sumar förum við til
Eistlands að spila á þjóðlagahátíð á
Hiiumaa-eyju.“
Bjartey: „Fyrstu helgina í júlí
erum við að fara að spila á Rauða-
sandi sem er alveg toppurinn
BJARTEY OG GUÐNÝ GÍGJA
TÓNLISTIN YLJAR FÓLKI UM HJARTARÆTUR
Bjartey Sveinsdóttir og Guðný Gígja Skjaldardóttir kynntust í kór í Flensborgarskóla. Fljótlega uppgötvuðu þær sameiginlegan áhuga á tónlist og í
dag búa þær saman, eru í hljómsveitinni Ylju og tengjast sterkum vináttuböndum. Lífi ð ræddi við þær um hljómsveitarlífi ð, fram tíðina og appelsínu-
auglýsinguna sem sló í gegn.
NAFN:
Bjartey Sveinsdóttir
ALDUR:
24 ára
HJÚSKAPARSTAÐA:
Í sambandi
NAFN:
Guðný Gígja Skjaldardóttir
ALDUR:
24 ára
HJÚSKAPARSTAÐA:
Á lausu
Öflug vörn gegn
sveppasýkingum
„Ég mæli með Bio Kult Candéa fyrir skjólstæðinga mína. Síðustu ár
hef ég lagt mikla áherslu á að vera í jafnvægi, með góða orku og
einbeitningu í lífi og starfi. Ég hef lagt áherslu á að taka inn góða
gerla til að viðhalda jafnvægi og orku og hef prófað þá allra bestu
hér á markaðinum hverju sinni,“ segir Sigríður Jónsdóttir, ADHD
markþjálfi og fíkniráðgjafi.
„Mér finnst Bio Kult Candéa vera skjótvirkasta varan sem ég hef
prófað. Ég mæli með henni fyrir skjólstæðinga mína sem gjarnan
eru að glíma við ójafnvægi í lífi sínu.“
Candéa