Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 40
Lífi ð FRÉTTABLAÐIÐ Samfélagsmiðlarnir Fotballfrue.no – Caroline Berg Eriksen Fótboltafrúin Caroline Berg Eriksen er vinsælasti blogg- ari Noregs og um leið sá umdeildasti. Bloggið er orðið að fyrirtæki hjá fjölmiðlanemanum og nýbökuðu móð- urinni og veltir milljónum. Caroline er gift fótboltamann- inum Lars Kristian og þaðan kemur nafn blogg síðunnar. Bloggið er persónulegt þar sem hún deilir fallegum myndum af heimili sínu, hversdagslífi, fatnaði og munum. Mikil áhersla er á líkamsrækt, mataræði og heilsu sem hefur stundum stuðað lesendur og myndir af Caroline orðið að bitbeini í fjölmiðlum. Þá vakti mynd sem Caroline tók af sér á nærfötunum og birti á Insta- gram fjórum dögum eftir fæðingu – í toppformi – mikla athygli. BLOGGARINN FÓTBOLTAFRÚ VINSÆLASTI BLOGGARI NOREGS As we grow Iceland https://www.facebook.com/ aswegrowiceland As we grow er íslenskt vörumerki sem er innblásið af sannri sögu um prjónapeysu sem ferðaðist á milli margra barna á níu ára tímabili. Hugmynd þeirra er að flíkur vaxi með barninu. Stofnendur merkis- ins eru Gréta Hlöðversdóttir, María Th. Ólafsdóttir og Guðrún R. Sigur- jónsdóttir. Cupcake Couture http://www.pinterest.com/ sammi808/cupcake-cout- ure/ Þessi síða er bollukökuævintýri fyrir áhugasamt kökugerðarfólk. Síðan inniheldur myndir af fallegum bollakökum sem veita innblástur fyrir afmælið, saumaklúbbinn eða veisluna. Þarna er að finna sykur- sætar ávaxtakökur, súkkulaðilostæti og White Russian-kökur. Funda Christophersen http://instagram.com/ fundachristophersen Danska tískugyðjan og stofnandi Luelle Magazine heldur úti blogg- inu byfunda.com. Hún hefur nú tekið að sér að sjá um danska tískutímaritið Costume. Hjartasjúkdómar Ert þú í áhættuhópi? Hjarta-Aspirín inniheldur asetylsalicylsýru, sem í litlum skömmtum tilheyrir flokki lyfja sem hindra samloðun blóðflagna. Blóðflögur eru örsmáar frumur í blóðinu sem valda því að blóðið storknar og taka þátt í segamyndun. Þegar blóðtappi myndast í slagæð kemur hann í veg fyrir blóðstreymi og hindrar súrefnisflutning. Þegar þetta gerist í hjartanu getur það valdið hjartaáfalli eða hjartaöng; í heilanum getur þetta valdið heilablóðfalli. Fræðsla 20% afsláttur í júní www.lyfogheilsa.is Notkunarsvið: Hjarta-Aspirín er notað til að minnka hættu á að blóðtappar myndist og fyrirbyggja þannig hjartaáfall, heilablóðfall eða vandamál í hjarta og æðum hjá sjúklingum með hjartaöng. Hjarta-Aspirín er einnig notað til að koma í veg fyrir myndun blóðtappa eftir ákveðnar tegundir hjartaaðgerða. Ekki má nota Hjarta-Aspirín: Ef um er að ræða ofnæmi fyrir asetylsalicylsýru eða einhverju öðru innihaldsefni lyfsins, ofnæmi fyrir öðrum salicylötum eða bólgueyðandi gigtarlyfjum. Ef þú hefur fengið astmakast, eða þrota á ákveðnum svæðum á líkamanum, eftir töku salicylata eða bólgueyðandi gigtarlyfja. Ef þú ert með eða hefur verið með sár í maga eða smáþörmum eða einhverja aðra tegund blæðingar, svo sem heilablóðfall. Ef þú hefur einhvern tíma verið með blóðstorknunarvandamál. Ef þú ert með alvarleg lifrar- eða nýrnavandamál. Ef þú ert að nota lyf sem kallast methotrexat í skammti sem er stærri en 15 mg á viku. Varnaðarorð og varúðarreglur: Leitið ráða hjá lækninum áður en Hjarta-Aspirín er notað ef þú ert með; nýrna-, lifrar- eða hjartavandamál, hefur einhvern tíma verið með vandamál í maga eða smáþörmum, ert með háan blóðþrýsting, ert með astma, frjókornaofnæmi, sepa í nefi eða annan langvinnan sjúkdóm í öndunarfærum, hefur verið með þvagsýrugigt eða færð miklar tíðablæðingar. Láttu lækninn vita ef þú þarft að fara í aðgerð. Ekki ætlað börnum yngri en 16 ára. Gæta skal þess að ofþorna ekki þar sem notkun asetylsalicylsýru við slíkar aðstæður getur valdið skerðingu á nýrnastarfsemi. Meðganga og brjóstagjöf: Leita skal ráða hjá lækninum áður en lyfið er notað. Skömmtun: Fullorðnir: Til að fyrirbyggja hjartaáfall, hjarta- og æðasjúkdóma hjá sjúklingum með hjartaöng eða blóðtappa eftir ákveðnar tegundir hjartaaðgerða er ráðlagður skammtur er 75-160 mg einu sinni á dag. Til að fyrirbyggja heilablóðfall er ráðlagður skammtur er 75-325 mg einu sinni á dag. Aldraðir: Eins og hjá fullorðnum. Algengar auka- verkanir: meltingartruflanir, aukin blæðingartilhneiging. Lesið vandlega fylgiseðil sem fylgir lyfinu. SmPC: Febrúar 2013.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.