Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 6
27. júní 2014 FÖSTUDAGUR| FRÉTTIR | 6
DÝRAVELFERÐ Dýraverndunarsam-
band Íslands (DÍ) gagnrýnir harð-
lega að í nýjum lögum um velferð
dýra sé gefin heimild til að drekkja
mink í gildruveiði, en aflífun dýra
með drekkingu er annars með öllu
óheimil. Drekking minks er rétt-
lætt með því hversu skilvirk og
ódýr aðferðin hefur reynst.
„Þetta er siðlaust og óboðlegt.
Menn eru dæmdir þegar hundi er
drekkt vegna þess hversu grimmi-
leg aðferðin er,“ segir Hall gerður
Hauksdóttir, formaður DÍ, og
bætir við að undanþágan gangi
gegn anda laganna sjálfra um að
dýr skulu aflífuð með skjótum og
sársaukalausum hætti, og forðast
beri að valda þeim óþarfa þján-
ingum eða hræðslu.
Hallgerður segir að það orki
vægast sagt tvímælis að ein
dýrategund á Íslandi sé ofurseld
þessum andstyggilega dauðdaga,
með því fororði að hún sé skaðleg
og óvelkomin. Félagið hafi skiln-
ing á því að stofni minks sé haldið í
skefjum, en ekkert réttlæti að það
sé gert með þessum hætti. Löggjöf
Norðurlandaþjóða endurspegli
þetta og ástæða til að læra af því.
Sif Traustadóttir dýralæknir
skrifar í nýjasta tölublaði Dýra-
verndarans um meðferð þeirra
dýra sem skilgreind eru sem mein-
dýr. Þar minnir hún á að búið er að
sýna fram á með óyggjandi hætti
að taugakerfi spendýra sé í engu
frábrugðið taugakerfi manna.
Sársaukaskyn þeirra sé því það
sama. Um minkinn og nýju dýra-
velferðarlögin segir Sif: „Þarna er
ein dýrategund tekin fyrir og látin
þola þjáningar sem ekki eru taldar
boðlegar þegar um önnur dýr er að
ræða.“
Blekið á nýjum lagatexta er vart
þornað því ný lög um dýravelferð
voru samþykkt á liðnum þingvetri.
Þessi aðferð við að aflífa mink
kom mjög við sögu í lagavinnunni,
bæði innan atvinnuveganefndar og
í umsögnum við frumvarpið. Þar
kemur fram að minkurinn var sér-
staklega tekinn út fyrir sviga og
það gagnrýnt hart af dýravernd-
unarsinnum og fleirum. Á móti
kemur að í umsögnum Landssam-
bands veiðifélaga, Reynis Berg-
sveinssonar, sem fann upp svo-
kallaða minkasíu sem um ræðir, og
Æðarræktarfélags Íslands koma
fram gagnstæð sjónarmið.
svavar@frettabladid.is
Drekkingar minka
gegn anda laganna
Ný lög um dýravelferð heimila að mink sé drekkt við gildruveiði. Ólöglegt er
að drekkja nokkru öðru dýri enda skuli ekki valda dýrum óþarfa þjáningu og
hræðslu. Réttlætt af stjórnvöldum vegna þess að aðferðin er skilvirk og ódýr.
MINKUR
Heildarveiði á
landinu frá 2000
til 2005 var um
7.000 minkar
árlega en hefur
farið minnkandi
og var komin
niður í 3.000 dýr
árið 2012.
MYND/SIGRÚN
■ Að mati starfshóps ríkis og sveitarfélaga eiga minkaveiðar margt sameigin-
legt með hefðbundinni meindýraeyðingu sveitarfélaga. Markmið þeirra sé að
hefta útbreiðslu og lágmarka tjón. „Veruleg takmörkun á stofnstærð minks og
jafnvel útrýming hans úr náttúru Íslands er því í samræmi við núgildandi lög.
Á síðustu árum hafa komið fram ódýrari og skilvirkari veiðiaðferðir á mink en
áður voru notaðar. Má því ætla að ná megi niður kostnaði og bæta árangur
við minkaveiðar á umtalsverðan hátt.“
■ Dýraverndarfélagið fullyrðir að minkurinn þjáist gríðarlega við drukknun
og hún taki oft langan tíma. Dýrið þurfi oft að vera innan um hræ þar sem
gildrunnar er ekki vitjað reglulega.
■ Umhverfisstofnun lýsir vatnsgildru með eftirfarandi hætti: „Hún er samsett
úr röri sem liggur frá ár- eða vatnsbakka niður í búr sem er undir vatnsyfir-
borði. Minkurinn berst skemur um í þessari gildru en í röra- eða tunnugildru,
finnur ekki leiðina út og drukknar því strax.“
■ Reynir Bergsveinsson, sem hannaði minkasíuna, hefur sagt að aðferðin sé
mannúðleg; dýrin drukkni strax enda hafi hann aldrei komið að lifandi mink
í gildru.
Má ná niður kostnaði og bæta árangur
1. Hvað heitir breski tónlistarmað-
urinn sem kom fram á tónleikum í
Hörpu í gær?
2. Hvað kosta gervihnattaútsendingar
RÚV?
3. Hvaða athafnamaður á hellinn
Gjögur í Ölfusi?
SVÖR
STJÓRNSÝSLA Kristín Cardew, móðir Harrietar
Cardew, afhenti Innanríkisráðuneytinu í gær
formlega kæru vegna úrskurðar Þjóðskrár um
að neita Harriet um íslenskt vegabréf.
Í kærunni segir að samkvæmt lögum um vega-
bréf sé ekki nauðsynlegt að í vegabréfi komi
fram fullt nafn samþykkt af mannanafnanefnd.
Harriet hefur fram til þessa fengið íslenskt
vegabréf undir nafninu stúlka Cardew. Þjóð-
skrá segir hins vegar að vegna breyttra verk-
lagsregla fái Harriet ekki nýtt vegabréf.
Fulltrúi innanríkisráðuneytisins segir að
ráðuneytið muni úrskurða í málinu eins fljótt
og hægt.
Foreldrum Harrietar var tilkynnt í hádeg-
inu í gær að Harriet fengi breskt neyðarvega-
bréf sem gildir á meðan fjölskyldan fer í frí til
Frakklands. Þau halda af landi brott þriðjudag-
inn næstkomandi.
Að ferðinni lokinni mun Harriet geta fengið
varanlegt vegabréf frá Bretlandi, en það tekur
um sex vikur að berast til landsins.
Breska blaðið The Guardian birti frétt um
málið síðdegis í gær. Þar er fjalla um íslenskt
mannanafnalög og útskýrt að til að nöfn á
Íslandi verði samþykkt þurfi þau að falla að
íslenskri málvenju og hafa eignarfallsendingu.
-ih
Mál hinnar tíu ára gömlu Harriet Cardew komið í heimspressuna en The Guardian birti frétt um málið:
Harriet fékk neyðarvegabréf frá Bretlandi
FÉKK NEYÐARVEGABRÉF Harriet fyrir framan
breska sendiráðið í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI1. Tom Odell. 2. 70 milljónir króna.
3. Jón Ólafsson.
FER MEÐ FORMENNSKU Eygló Harðar-
dóttir er samstarfsráðherra Íslands.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
STJÓRNMÁL Endurnýjun og efling
norræns samstarfs var helst
til umræðu á fundi samstarfs-
ráðherra Norðurlandanna sem
fór fram á Hótel Rangá í gær.
Þá voru ákveðnar endurbætur
samþykktar sem stuðla eiga að
framþróun í norrænu samstarfi.
Eygló Harðardóttir er sam-
starfsráðherra Íslands og fer
með formennsku í Norrænu ráð-
herranefndinni á þessu ári. Hún
segir mikilvægt að í norrænu
samstarfi sé lögð áhersla á þau
úrlausnarefni sem hafa beina
þýðingu fyrir almenning á
Norður löndum. - bá
Samstarfsráðherrar funda:
Efling norræns
samstarfs rædd
FERÐAMÁL Fimm þúsund færri
íslenskir farþegar flugu frá
Keflavíkurflugvelli í júní, júlí og
ágúst í fyrra en í sömu mánuðum
árið 2012.
Í frétt á vefnum turisti.is
kemur fram að samdrátturinn
hafi numið rúmum fjórum pró-
sentum en sumrin á undan hafi
ferðagleði Íslendinga aukist jafnt
og þétt milli ára.
Í október fóru nærri þrjátíu og
átta þúsund Íslendingar út. Þetta
er í fyrsta skipti sem vinsælasti
ferðamánuður ársins er ekki einn
af sumarmánuðunum þremur
samkvæmt talningum sem ná
aftur til ársins 2002. - rkr
Flestir farþegar í október:
Færri flugu um
sumarið í fyrra
IÐNAÐUR Einungis 579 af þeim
rúmlega 2.500 nemum sem
útskrifuðust frá Háskóla Íslands
og Háskólanum í Reykjavík í vor
eru með iðn- og tæknimenntun.
Það gerir 22,5 prósent útskrifaðra.
Jón Ágúst Þorsteinsson, fram-
kvæmdastjóri Marorku, segir
mikla vöntun á tæknimennt-
uðu fólki hér á landi. Hann segir
það gríðarlega mikilvægt fyrir
íslenskt samfélag að fleiri útskrif-
ist með menntun í tæknigreinum.
„Það sem við höfum verið að
benda á er að það þarf að mennta
töluvert mikið af fólki í tækni-
greinum,“ segir Jón Ágúst. „Þá
sérstaklega í verkfræði- og hug-
búnaðargerð eða forritun. Félög
eins og Marorka eru að undirbúa
það að kaupa þjónustu erlendis frá,
þannig að það eru mikil tækifæri
fyrir fólk til að læra hugbúnaðar-
gerð.“ - gag
Aðeins 22,5% útskrifaðra frá HÍ og HR í vor hlutu menntun í tæknigreinum:
Vöntun á tæknimenntuðu fólki
TÆKIFÆRI Framkvæmdastjóri Marorku
segir mikil tækifæri fyrir þá sem læra
hugbúnaðargerð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SAMGÖNGUR Einungis 21 pró-
sent nýrra reiðhjóla í verslunum
á höfuðborgarsvæðinu uppfylla
reglugerð um gerð og búnað reið-
hjóla samkvæmt árlegri könnun
sem Brautin – bindindisfélag öku-
manna framkvæmdi nýlega.
Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu félagsins. Þar segir að mest
hafi munað um að bjöllu vantaði
á 72 prósent þeirra reiðhjóla sem
skoðuð voru. Þá hafi einnig vant-
að keðjuhlíf á 27 prósent hjóla. - bá
Árleg könnun Brautarinnar:
Fjöldi hjóla án
löglegs búnaðar
VEISTU SVARIÐ?
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum