Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 35
FRÉTTABLAÐIÐ LÍFIÐ 27. JÚNÍ 2014 ¿ 7 á sumrinu fyrir okkur. Annars erum við að semja nýtt efni fyrir komandi plötu. Fyrsta breiðskífan okkur, sem var samnefnd hljóm- sveitinni, var öll á íslensku en sú næsta verður efl aust meira blönduð þar sem við syngjum einnig á ensku. Það má þó kannski ekki segja of mikið,“ segir hún og gjóar augunum til Gígju. „Á fyrri plötunni sömdum við öll lögin sjálfar en núna eru strákarnir að taka mikinn þátt í hugmyndavinn- unni og textaumgjörðinni.“ Búa með umboðsmanninum Stelpurnar búa saman með Hlyni, kærasta Bjarteyjar, og umboðs- manninum, Ásgeiri Guðmunds- syni. „Áður bjuggum við bara tvær saman, vorum saman í herbergi og ég var oft að vakna við Bjarteyju á nóttunni. Hún talar svo mikið upp úr svefni. Ég ætlaði að vera með bók og skrá niður það sem kom upp úr henni en svo er maður sjálfur svo svefndrukkinn að aldrei varð úr því. Einu sinni hrópaði hún; Tveir fyrir einn, tveir fyrir einn, efl aust verið nýkomin af djamm- inu,“ segir Gígja og þær hlæja. En getur ekki stundum verið erfi tt að búa saman og vera saman í hljómsveit? Bjartey: „Nei, það gengur mjög vel og við rífumst aldrei. Að sjálf- sögðu hefur maður stundum áhuga á að vera í friði inni í herberginu sínu og þá er alveg tekið tillit til þess. Þetta hefur gengið ótrúlega vel og við ætlum að njóta þessa lífs á meðan kostur er.“ Gígja: „Við munum ekki búa saman að eilífu en þetta hentar okkur mjög vel núna. Við erum ekki endilega öll heima á sama tíma svo við fáum öll okkur næði. Svo er bara gaman að búa svona ódýrt alveg í miðbænum. Umboðs- maðurinn okkar býr með okkur og það er mikill munur að vera komin með umboðsmann sem sinnir sínu starfi mjög vel. Nú er hann í London að vinna hjá One Little Indian og er að gera góða hluti fyrir okkur.“ Slógu í gegn í appelsínauglýs- ingu Gígja: „Við sömdum þetta lag eftir að hafa spilað á Rauðasandi í fyrsta sinn enda heitir lagið Á rauðum sandi. Þetta er svona ekta sumar- fílingur og það var ótrúlega gaman að taka upp auglýsinguna.“ Bjartey: „Fyrst vorum við svo- lítið hræddar við þessa auglýsingu. Þeir vildu nota lagið okkar og svo vildu þeir að við lékjum í auglýs- ingunni og þá vorum við ekki alveg vissar því við vildum ekki vera þekktar sem andlit appelsíns. Það leit út fyrir að vera sól og blíða allan tímann í myndbandinu en í raun var skítkalt.“ Gígja: „Nákvæmlega, en við erum svo góðar leikkonur, bara nóg af appelsíni og þá vorum við til í slaginn. Við vorum að frjósa en þetta var algjört ævintýri. Einnig fengum við frábært tónlistarmynd- band út úr þessu sem fjölskylda og vinir tóku þátt í.“ Fyrst vorum við svolítið hrædd- ar við þessa aug- lýsingu. Þeir vildu nota lagið okkar og svo vildu þeir að við myndum leika í auglýsing- unni og þá vorum við ekki alveg vissar því við vildum ekki vera þekktar sem and- lit appelsíns. Myndaalbúm Gígja, Bjartey, Svanhvít Sjöfn og Pálmi Snær á góðri stundu á Rock Werchter í Belgíu sumarið 2012. Mikið fjör að syngja á tónleikum með Helga Björns og Reið- mönnum vindanna í Eldborg fyrir stuttu. Stundum eru kósí kvöld hjá vinkonunum. Heimatilbúinn maski og gúrkur í nebbann. Grensásvegi 8, sími 553 7300
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.