Fréttablaðið - 27.06.2014, Blaðsíða 1
NEYTENDAMÁL Nærri allt græn-
meti frá stærsta dreifingaraðila
grænmetis á Íslandi, Sölufélagi
garðyrkjumanna, er merkt með
vottuninni Vistvæn landbúnaðar-
afurð. Í Fréttablaðinu í gær kom
fram að vottunin hefði verið eft-
irlitslaus um árabil og þætti vill-
andi fyrir neytendur.
Vottunin hefur ekki verið gefin
út um margra ára skeið og listi
yfir þá aðila sem fengu hana á
sínum tíma er ekki til í atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneyt-
inu. Einu upplýsingarnar sem
fundust í ráðuneytinu sneru að
níu kartöflubændum í
Eyjafjarðarsveit árið
2010. Þá hafði eftirlit
með vistvænum búskap
grænmetis- og kartöflu-
bænda nánast ekki verið
neitt.
Samkvæmt reglugerð um
vistvænar landbúnaðar afurðir
skal eftirlitsaðili koma einu sinni
á ári í hverja ræktunar stöð.
„Menn eru kannski ekki að
reka neitt eftirlit í kringum þetta
merki en það þýðir samt ekki að
það séu ekki gerðar gæðakröfur
til framleiðanda,“ segir Bjarni
Jónsson, framkvæmdastjóri
Félags garðyrkjubænda.
„Varðandi sjálft merkið
get ég alveg tekið undir þá
gagnrýni að ef maður notar
merki til þess að votta eitt-
hvað þá þarf auðvitað að
uppfylla ákveðin skilyrði og
fylgja því eftir að þau séu upp-
fyllt,“ segir Bjarni.
Guðrún Arndís Tryggvadótt-
ir, framkvæmdastjóri Náttúran.
is, er ósátt við notkun merking-
arinnar. „Þetta þýðir ekki nokk-
urn skap aðan hlut. Merking sem
hefur ekkert eftirlit þýðir ekki
neitt.“ Hún segir hugtakið vist-
vænn landbúnaður þess utan ekki
hafa neina eiginlega merkingu.
„Þetta er bara þessi sannfæring
um að Ísland sé allt vistvænt og
æðislegt.“
- ssb / sjá síðu 10
LÍFIÐ
U ppskeran heilsumarkaður, Skeif-unni 3a, er ný verslun þar sem meðal annars er boðið upp á úrval af hampvörum.„Líkamleg og andleg vellíðan okkar snýst að miklu leyti um það sem við látum ofan í okkur og er hampprótein frá-bær lausn fyrir þá sem vilja auka orkuna með yfirburða næringu yfir daginn,“ segir Þórunn Stefánsdóttir hjá Uppskerunni.Hampprótein er svokallað fullkomið prótein þar sem það inniheldur allar am-ínósýrurnar frá náttúrunnar hendi. Auk þess er það ríkt af ómegafitusýrum og mjög trefjaríkt.
„Þetta er algjörlega óunnin og hrá vara.
Hamppróteinið er fengið með kaldvinnslu
á hampfræjum sem eru mjög prótein-rík og innihalda auk þess fjöldann allan
af vítamínum og stein efnum,“ útskýrir Þórunn og bendir sérstaklega á hamppró-
teinið frá GOOD. „Það er án aukefna, lakt-
ósa, kólesteróls og glútens. Það er mjög
auðmeltanlegt og hentar því flestum. Það er til dæmis full komið fyrir þá sem
tileinka sér paleo-lífsstílinn og er einnig
vinsælt hjá þeim sem eru grænkerar (vegan),“ segir hún.Þórunn segir boðiðupp á n kk
AUKIN ORKA MEÐ HAMPPRÓTEINIUPPSKERAN KYNNIR Þórunn Stefánsdóttir, einkaþjálfari og heilsuráðgjafi,
mælir með hamppróteini fyrir fólk á öllum aldri.
HUMARHÁTÍÐ Á HÖFNHumarhátíð á Höfn verður haldin um helgina. Humar-
súpa um allan bæ og glæsileg dagskrá víða í sveitar-
félaginu. Humarhátíðin dregur ávallt til sín fjölda
gesta og allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
ÚTSALAN ER HAFIN 30-50% afsláttur af öllum útsöluvörum
Næsta námskeið hefst 2. júli 2014
Kynningarblað Hestar, mannlíf, verslun, skemmtiatriði, keppni og kynbótasýningar.
LANDSMÓT
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 2014
HESTAMANNA
Sannkallað fjölskyld fjör á HelluRúmlega 800 hestar og yfir tíu þúsund gestir eru væntanlegir á Landsmót hestamanna sem haldið verður á á Hellu dagana 29. júní til 6. júlí. Þar skemmta sér saman ungir sem aldnir enda sönn fjölskylduhátíð fyrir hestafólk og aðra góða gesti.Í slenski hesturinn er hluti af ís-lenskri menningu og sam ofinn þjóðinni. Landsmót hesta-
manna er kjörið tækifæri til að
fagna íslenska hestinum og halda
merki hans á lofti,“ segir Axel
Ómars son, framk væmdastjóri
Landsmóts hestamanna, en mótið
er nú haldið í 21. sinn.
Fjölskylduskemmtun
Axel leggur áherslu á að mótið sé
síður en svo aðeins ætlað hesta-
fólki. „Þetta er fjölskylduvið burður
á Suðurlandi og til dæmis tilvalið
fyrir fólk í sumarbústöðum í ná-
grenninu að renna á Hellu enda
leggjum við mikið í hliðardag-
skrána,“ segir Axel og bendir þar á
heilmikla skemmtidagskrá sem er í
gangi sérstaklega u h l i á
markaðstjald og hitt veitingatjald
með sviði. Þá verðum við með hátt
í tíu gámahús og klósetthús.“
Erlendir og innlendir
jálfb ð
Íslenski
hesturinn er
hluti af íslenskri
menningu og samofinn
þjóðinni. Landsmót
hestamanna er kjörið
tækifæri til að fagna
íslenska hestinum og
halda merki hans á lofti.
MYNDIR/LANDSMÓT HESTAMANNALífi
27. JÚNÍ 2014
FÖSTUDAGUR
Linda Jóhannsdót
tir
fatahönnuður
PASTELPAPER-
MYNDIRNAR ERU
VINSÆLAR 2
Sigríður, Lára, Pál
ína
og Vilborg
FJÖLSKYLDUFJÖR
Í ÖSKJUHLÍÐ Á
SUNNUDAG 8
Andre Magnúsdó
ttir
fatahönnuður
HANNAÐI HREIN
-
DÝR MEÐ EIGIN-
MANNINUM 10
ERU EKKI
BARA ANDLIT
PPELSÍNS
Guðný Gígja og B
artey
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup janúar - mars 2012
Föstudagur
18
3 SÉRBLÖÐ
Lífið | Landsmót hestamanna | Fólk
FRÉTTIR
Sími: 512 5000
27. júní 2014
149. tölublað 14. árgangur
Tónlistin yljar fólki um
hjartarætur
Bjartey Sveinsdóttir og Guðný Gígja
Skjaldardóttir kynntust í kór í Flens-
borgarskóla. Fljótlega uppgötvuðu
þær sameiginlegan áhuga á tónlist og
í dag búa þær saman, eru í hljóm-
sveitinni Ylju og tengjast sterkum
vináttuböndum.
Kastað á milli Ríki og sveitarfélög
bregðast sjón- og heyrnarskertum.
Fólki er kastað milli stofnana. 4
Fá háa styrki Fimm íslensk fyrirtæki
koma að jarðhitaverkefnum í Rúm-
eníu sem fengið hafa samtals 1,6
milljarða króna styrk frá EES. 8
Þetta þýðir ekki
nokkurn skap aðan hlut.
Merking sem hefur ekkert
eftirlit þýðir ekki neitt.
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
framkvæmdastjóri Náttúran.is
SKOÐUN Styðja á við sam-
keppni en ekki fákeppni,
skrifar Pawel Bartoszek. 19
MENNING Sýning Bjarkar
í MoMA-safninu spannar
tuttugu ára feril. 30
LÍFIÐ Bergur Ebbi og Dóri
DNA vinna að handriti að
jólamynd. 42
SPORT Vörn FH-inga stendur
föst fyrir og er sú besta í
efstu deild í heil 26 ár. 38
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
fyrir börn í Suður-Súdan
Neyðarákall
Sendu sms-ið
BARN í númerið 1900
og gefðu 1.900 krónur
FAGNA SIGRINUM Liðsmenn Workforce A hjóluðu hringinn á undir fjörutíu klukkustundum. Í gær höfðu þeir safnað fimmtíu
þúsund krónum í áheitum. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
DÝRAVELFERÐ Dýraverndunarfélag
Íslands (DÍ) gagnrýnir harðlega
að það hafi verið lögleitt í dýravel-
ferðar löggjöf að drekkja megi mink
við gildruveiði. Það gangi gegn anda
laganna.
Hallgerður Hauksdóttir, for-
maður DÍ, segir viðurkenningu á
þessari aðferð við að aflífa mink
ósiðlega og óboðlega. Hún segir að
það orki vægast sagt tvímælis að
ein dýrategund á Íslandi sé ofurseld
þessum andstyggilega dauðdaga,
með því fororði að hún sé skaðleg
og óvelkomin.
Sif Traustadóttir dýralæknir
skrifar í nýjasta tölublaði Dýra-
verndarans um meðferð dýra og
gerir lögin að umtalsefni. Þar minn-
ir hún á að búið sé að sýna fram á
með óyggjandi hætti að taugakerfi
spendýra sé í engu frábrugðið
taugakerfi manna. Sársaukaskyn
þeirra sé því það sama.
„Þarna er ein dýrategund tekin
fyrir og látin þola þjáningar sem
ekki eru taldar boðlegar þegar um
önnur dýr er að ræða,“ segir Sif.
Ný lög um dýravelferð voru sam-
þykkt á liðnum þingvetri. Þessi
aðferð við að aflífa mink var mikið
rædd, bæði innan atvinnuvega-
nefndar og í umsögnum við frum-
varpið. Þar kemur fram að minkur-
inn var sérstaklega tekinn út fyrir
sviga og það gagnrýnt hart af dýra-
verndunarsinnum. Matvælastofnun
segir til dæmis í umsögn sinni að
með því að leyfa að aflífa mink með
drekkingu sé gengið of langt frá
meginmarkmiði laganna, enda segi
þar að dýr skuli aflífuð með skjótum
og sársaukalausum hætti. Nauðsyn-
legt sé því að skoða aðra kosti.
Einu rökin sem hægt er að finna
stað fyrir leyfi til gildruveiði með
minkasíum eru hversu skilvirkar og
hagkvæmar þær séu og gefi mögu-
leika til að halda stofni minks niðri.
Þetta meginsjónarmið til minkaveiði
kemur skýrt fram í niður stöðum
vinnuhóps ríkis og sveitarfélaga um
framkvæmd refa- og minkaveiði frá
því í vetur. - shá / sjá síðu 6
Gagnrýna undanþágu sem heimilar drekkingar í nýjum lögum um dýravernd:
Lýsa andstyggð á minkadrápi
Nær allt íslenskt grænmeti
merkt eftirlitslausri vottun
Ekkert eftirlit hefur verið með vottuninni Vistvæn landbúnaðarafurð sem flestir grænmetisbændur setja á
vörur sínar. Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið veit ekki hvaða framleiðendur hafa fengið vottunina.
FÉLAGSMÁL Liðið Workforce A
vann nauman sigur í hjólreiða-
keppninni umfangsmiklu, Wow
Cyclothon, í gærmorgun.
Í keppninni hjóla lið hring-
veginn um landið á tveimur til
þremur sólarhringum en sigur-
vegararnir komu í mark innan
við sekúndu á undan liðinu Örn-
inn Trek. Þrjú fyrstu liðin bættu
öll mettímann í keppninni frá
árinu 2012.
„Að vaka allan tímann var
langerfiðast,“ sögðu liðsmenn
Workforce A við komu í mark á
Rauðavatni rétt fyrir ellefu eftir
tæplega fjörutíu klukkustunda
ferð.
Keppnin gengur fyrst og
fremst út á að lið safni áheitum
sem renna til styrktar bæklunar-
skurðdeildar Landspítala. Í ár
tóku 63 lið þátt og samtals hafa
safnast rúmlega þrettán milljónir
króna í áheitum. - bá
Nýtt met í Wow Cyclothon:
Munaði litlu á
efstu sætunum
Bolungarvík 10° SV 5
Akureyri 14° SV 2
Egilsstaðir 15° S 1
Kirkjubæjarkl. 12° S 2
Reykjavík 13° SA 5
Skýjað á köflum en milt um allt land.
Vindur frekar hægur og hiti yfirleitt
10-18 stig. Súld víða um landið V-vert og
búast má við síðdegisskúrum víða. 4
Þarna er ein dýra-
tegund tekin fyrir og látin
þola þjáningar sem ekki
eru taldar boðlegar þegar
um önnur dýr er að ræða.
Sif Traustadóttir dýralæknir