Fréttablaðið - 28.06.2014, Page 2
28. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
Fari svo að ný reglugerð
um vistvænan landbúnað
verði gefin út myndi
Matvælastofnun fram-
fylgja eftirlitinu. Eftirlit
með lífrænum búskap
er nú í höndum Túns
vottunarstofu með leyfi
Matvælastofnunar. Það er
lögbundið að farið sé á hverja framleiðslu-
stöð að minnsta kosti einu sinni á ári fyrir
utan eftirlitsferðir sem ekki er tilkynnt um
fyrir fram.
Bændur í lífrænum búskap greiða sjálfir
fyrir eftirlitið.
GOTT ER AÐ BORÐA GULRÆTURNAR Grænmetisbændur nota marklausa merkingu á vörur
sínar. Fram hefur komið gagnrýni sem segir að verið sé að blekkja neytendur. FRÉTTABLAÐIÐ/HARALDUR
NEYTENDAMÁL „Þeir geta haldið því fram
að þeir séu með vistvæna framleiðslu en
þeir hafa engan opinberan stuðning við
að svo sé á meðan ekkert eftirlit er fyrir
hendi,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson,
atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra.
Í Fréttablaðinu í gær kom fram að nær
allt íslenskt grænmeti væri merkt vottun-
inni Vistvæn landbúnaðarafurð sem lítið
sem ekkert eftirlit hefur verið með frá
árinu 2002. Dæmi eru um að garðyrkju-
bændur sem nota merkinguna hafi aldrei
fengið vottun. „Þeir hljóta að þurfa að
spyrja sig að því hvort það sé ekki óeðli-
legt að nota eitthvað sem ekki er vottað af
neinum opinberum aðila,“ segir Sigurður.
Reglugerð um vistvænan landbúnað
var gefin út árið 1998. Búnaðarsambönd
landsins áttu að annast eftirlit með þeim
búum sem fylgdu vistvænum skilyrðum
en ráðuneytið átti að annast vottunina.
Samkvæmt henni má enginn nota merkið
Vistvæn landbúnaðarafurð nema hafa
fengið vottun frá ráðuneytinu. „Það má
alveg velta því fyrir sér hvort þetta hug-
tak standi fyrir nokkuð annað en bara
hefðbundinn landbúnað,“ segir Sigurður.
Reglugerðin þykir ekki gera nægilega
strangar kröfur til að standa undir orðinu
vistvænn. Til dæmis að í dag er almennt
notað mun minna af köfnunarefni á tún og
grænmeti en miðað er við í reglugerðinni.
„Ég held að það verði að segjast eins og
er að þessi reglugerð er komin vel til ára
sinna. Staðan núna er sú að annaðhvort
þurfum við að fara yfir þetta og gefa
reglugerðina út að nýju og koma því eftir-
liti á sem eðlilegast er eða þá að velta því
fyrir okkur að fella reglugerðina á brott.“
Hann segir íslenskan landbúnað
almennt góðan. „En það er ekki for-
svaranlegt að halda því fram að sextán
ára gamlir staðlar séu vistvænir að öllu
óbreyttu og án þess að það sé skoðað.“
snaeros@frettabladid.is
Ég held að það verði
að segjast eins og er að þessi
reglugerð er komin vel til
ára sinna.
Sigurður Ingi Jóhannsson,
atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra
Ráðherra segir óeðlilegt
að nota óvottað merki
Sigurður Ingi Jóhannsson, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, segir að grænmetisbændur verði
að spyrja sig að því hvort þeim þyki eðlilegt að nota eftirlitslausa merkingu. Nær allir grænmetis-
bændur nota merkinguna þrátt fyrir að ekkert eftirlit sé haft með því hvort þeir uppfylli skilyrði.
➜ Lífræn vottun undir
ströngu eftirliti
STJÓRNSÝSLA Hanna Birna Krist-
jánsdóttir innanríkisráðherra
telur að endurskoða þurfi íslensku
nafnalögin. „Ég hef lengi talið að
taka þurfi lög um mannanöfn til
endurskoðunar, með hliðsjón af
auknu frelsi og ákvörðunarvaldi
hvers og eins.“
Hanna Birna vill ekki segja
nákvæmlega hvernig endurskoð-
un fari fram en segir að „íslenskur
raunveruleiki og fjölmörg dæmi
gefi fullt tilefni sé til að endur-
skoða og rýmka lög um manna-
nöfn“.
Eitt þeirra dæma er mál Harri-
etar Cardew sem var í vikunni
neitað um vegabréf af Þjóðskrá
því mannanafnanefnd tekur
nafnið Harriet ekki gilt. Foreldr-
ar Harrietar hafa kært úrskurð-
inn til innanríkisráðuneytisins.
Þau telja það ekki standast lög að
neita íslenskum ríkisborgurum
um vegabréf.
Hann Birna segir að foreldr-
ar ættu að fá að ráða nafngift-
um barna sinna: „Hér er rétt að
stjórnvöld setji sem minnstar tak-
markanir og hindranir, en treysti
einstaklingum og foreldrum til að
vita best hvað þetta varðar.“
Ráðherrann telur eðlilegt að
nöfn breytist líkt og annað í
íslensku máli: „Alveg eins og
okkar fallega tungumál er lifandi
og í sífelldri þróun er eðlilegt að
það sama gerist með nafngiftir.“
Einn þeirra sem vilja breyta
lögunum er Óttarr Proppé, þing-
maður Bjartrar framtíðar. Hann
lagði á nýliðnu þingi fram frum-
varp um að mannanafnaefnd yrði
lögð niður. Frumvarpið var ekki
afgreitt úr nefnd.
- ih
Innanríkisráðherra segir eðlilegt að tungumál og nafngiftir séu í sífelldri þróun:
Hanna Birna vill rýmka nafnalög
ENDURSKOÐAÐ Hanna Birna Kristjáns-
dóttir telur að endurskoða þurfi nafna-
lögin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
2
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
Fríinu hjá Harriet
bjargað
Fríi Cardew-fjölskyldunnar til
Lyon í Frakklandi bjargað
þegar Harriet Cardew fær
breskt neyðarvegabréf.
Þjóðskrá hafði neitað
Harriet um vegabréf því
nafnið Harriet fæst ekki
samþykkt af manna-
nafnanefnd. Fjölskyld-
an heldur af landi
brott á þriðjudaginn.
Gunnhildur Árnadóttir,
hjúkrunarfræðingur hjá Lækn-
um án landamæra, sagði frá
erfi ðri baráttu samtakanna gegn
ebólu í Gíneu. Faraldurinn breið-
ist hratt út í jarðarförum.
Kristín Halldórsdóttir,
mjólkurbússtjóri á Akureyri,
tjáði blaðamanni að Mjólk-
ursamlagið á Akureyri hefði
þurft að keyra á steinolíu í
vor vegna skertra raforku-
fl utninga til Eyjafj arðar.
➜ Bryndís Stefáns-
dóttir, kærasta
Arons Jóhanns-
sonar, sagði tilfi nn-
inguna við að sjá
hann koma inn á
völlinn í búningi
bandaríska lands-
liðsins á HM í
Brasilíu hafa verið
óraunverulega.
Skúli Magnússon formaður
dómarafélagsins tjáði sig um
kæru Polaris ehf. á hendur
Ingveldi Einarsdóttur héraðs-
dómara. Taldi hann ekkert
óeðlilegt við vinnubrögð
Ingveldar eða réttarins.
Þorsteinn Már Baldvins-
son var í fréttum vikunnar.
Dótturfyrirtæki Samherja
kærði héraðsdómara fyrir
meint brot í starfi .
VIKAN 21.06.➜27.06.2014
Fréttir af hjólreiðakeppninni WOW Cyclothon og
hinum síbítandi Luis Suarez voru áberandi í fréttum
vikunnar. Fréttablaðið fer yfir það helsta sem gerðist
í vikunni.
LAUGARDAGUR Laugardalurinn iðar af lífi
Þúsundir gesta skemmta sér á tónlistarhátíðinni Secret
Solstice í Laugardalnum. Hápunktur hátíðarinnar er
þegar breska sveitin Massive Attack stígur á svið. Á
sama tíma útskrifast metfjöldi úr Háskóla Íslands í
Laugardalshöll, yfir tvö þúsund nemendur.
SUNNUDAGUR Okurlandið Ísland Logi Einars-
son, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri, deilir
mynd á Facebook af kökusneið sem hann keypti á
1.290 krónur á kaffihúsinu Vogafjósi í Mývatnssveit.
Þjónustustúlka segir Loga að fáir Íslendingar versli þar.
Í kjölfarið skapast miklar umræður um hvort Íslend-
ingar okri á ferðamönnum.
MÁNUDAGUR Birkir dæmdur Birkir Kristins-
son, fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu,
er ásamt tveimur samstarfsfélögum sínum dæmdur í
fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Sá fjórði
hlýtur fjögurra ára dóm. Fjórmenningarnir eru dæmdir
fyrir umboðssvik, markaðsmisnotkun og brot á lögum
um ársreikninga.
ÞRIÐJUDAGUR Lífeyrissjóðir þurfa 533
milljarða króna Fjármálaeftirlitið gefur út skýrslu
um lífeyrissjóðina. Þar kemur fram að 533 milljarða
vanti upp á svo lífeyrissjóðir í ábyrgð hins opinbera
geti greitt þann lífeyri sem þeir hafa lofað.
SUAREZ BÍTUR FRÁ SÉR
„Ég kippti mér ekkert upp
við þetta svo sem, hann er
með yfirbit í öðrum flokki
með framstæðan góm.
Hann notaði örugglega
lengi snuð sem útskýrir
þetta kannski.“
Tannlæknirinn og landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson
tjáir sig um það þegar Luis Suarez beit Giorgio Chiellini í öxlina
í landsleik Úrúgvæ og Ítalíu.
MIÐVIKUDAGUR Forsætisráðherra gagnrýndur
Ríkisendurskoðun gagnrýnir 205 milljóna styrkveit-
ingar forsætisráðuneytisins til minjaverndarverkefna.
Ráðuneytið er beðið um að setja sér skýrar reglur um
úthlutun til málaflokksins. Forsætisráðherra segist hafa
farið að lögum.
FIMMTUDAGUR Hjólað til góðs Lið Workforce
A hjólar í mark sekúndubrotum á undan næsta liði
í WOW Cyclothon. Fyrstu lið voru ekki nema rétt
rúmlega 39 klukkustundir að hjóla hringveginn. Yfir 14
milljónir safnast með áheitum til styrktar bæklunar-
deild Landspítalans.
FIMM Í FRÉTTUM DÓMARAR KÆRÐIR OG FÓTBOLTA SPARKAÐ