Fréttablaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 6
28. júní 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK
SÍMI: 552 0800
ALLT Í FÓKUS
NÆR OG FJÆR
SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI
SÍMI: 462 4646
50% afsláttur
af margskiptum glerjum
LÖGREGLUMÁL „Þessi hægagangur
er ekki ásættanlegur,“ segir Jónas
Þór Guðmundsson, formaður Lög-
mannafélags Íslands.
Stjórn félags-
ins óskaði eftir
fundi með ríkis-
saksóknara þann
16. apríl 2013 til
að ræða fram-
kvæmd síma-
hlustunar og
eyðingu upplýs-
inga þegar um
samtöl lögmanna
og sakborninga væri að ræða.
Félaginu barst svar frá embættinu
daginn eftir þar sem fram kom að
ekki væri tímabært að funda sér-
staklega vegna þessa.
Jónas greinir frá þessu í grein
sem hann skrifar í nýjasta tölu-
blað Lögmannablaðsins. Í svarinu
hafi komið fram að ríkissaksókn-
ari myndi á næstu vikum upplýsa
félagið um tilhögun eftirlits emb-
ættisins með hlustunum og breytta
framkvæmd á því sviði. Frá því
að þetta svar barst hefur erindið
tvisvar verið ítrekað án svars frá
ríkissaksóknara. „Ég staðfesti það,
við höfum ekkert heyrt í þeim,“
segir Jónas.
Í grein sinni segir Jónas að svör
ríkissaksóknara við spurningum
blaðamanna í tilefni nýgengins
dóms í Imon-málinu, þar sem dóm-
arar töldu sérstakan saksóknara
hafa gerst brotlegan við lög með
því að hlera símtöl verjenda og
sakborninga, veiti því miður ekki
skýrar vísbendingar um hvort
brugðist hafi verið við ábending-
um og kvörtunum með breyting-
um, og þá hverjum, um þessi mál.
Jónas segir að með núgildandi
fyrirkomulagi sé hugsanlegt, og
reyndar líklegt, að rannsakandinn
hafi komist yfir upplýsingar sem
gagnist við rannsókn mála og mál-
sókn, enda þótt þær verði ekki not-
aðar beinlínis sem sönnunargögn
í sakamáli. Hann segir þetta allt
benda til þess að bæði framkvæmd
símhlustunar og eftirlit með henni
sé ófullnægjandi.
Þá leggur Jónas í grein sinni
í dæmaskyni til þrjár leiðir til
úrbóta. Hann segir að að því er
eftirlitið snerti hafi ríkissaksókn-
ari sjálfur bent á að embættið hafi
vart burði vegna fjárskorts til að
sinna því, að minnsta kosti svo vel
sé.
„Þetta er staðan eins og hún
blasir við okkur,“ segir Jónas í
samtali við Fréttablaðið. Hann
segir að lokum að verði ekki
gerðar úrbætur á bæði fram-
kvæmd símahlustunar og eftirliti
með henni blasi við að eina raun-
hæfa aðhaldið felist í því að dóm-
stólar ónýti málatilbúnað ákæru-
valdsins þar sem í ljós komi að
símtöl sakbornings og verjanda
hafi verið hlustuð. Komi aðhaldið
ekki frá dómstólunum sjálfum sé
óhjákvæmilegt að breyta lögum.
Ríkissaksóknari hefur ekki
svarað fyrirspurnum Fréttablaðs-
ins um þetta mál.
fanney@frettabladid.is
Ónýti málatilbúnað
í hlerunarmálum
Formaður Lögmannafélagsins segir framkvæmd og eftirlit með símhlustunum
ófullnægjandi. Ríkissaksóknari hefur ekki svarað fundarbeiðnum frá félaginu vegna
málsins. Verði ekki gerðar úrbætur þurfi dómstólar að ónýta málatilbúnaðinn.
ÓLÖGLEGAR HLERANIR Nokkur tilfelli hafa komið upp að undanförnu þar sem
staðfest er að rannsóknaraðilar hafa hlerað símtöl verjenda og sakborninga.
JÓNAS ÞÓR
GUÐMUNDSSON
1. Að hlutlaus aðili eyði upptökum með símtölum verjenda og sakbornings
áður en rannsakandi fer yfir upptökur.
2. Að fundin sé tæknileg útfærsla á því að upptaka sé stöðvuð ef hringt er
úr hinum hlustaða síma í tiltekin símanúmer.
3. Að við uppkvaðningu úrskurðar um símahlustun skipi dómari sakborn-
ingi sérstakan lögmann sem hefði það hlutverk við framkvæmd hlustunar
að gæta hagsmuna sakbornings og þeirra sem hann talar við, án vitundar
þeirra og vilja.
Tillögur til úrbóta
BELGÍA „Hvílíkur dagur,“ sagði Petro Porosj-
enkó Úkraínuforseti geislandi af ánægju eftir
að hafa undirritað samstarfssamning við Evr-
ópusambandið í gær. „Kannski mikilvægasti
dagurinn fyrir land mitt frá því að sjálfstæði
fékkst.“
Úkraína varð sjálfstætt ríki árið 1991 eftir
að hafa tilheyrt Sovétríkjunum áratugum
saman. Auk Úkraínuforseta undirrituðu leið-
togar Georgíu og Moldóvu sams konar samning
í Brussel í gær.
Rússar eru hreint ekki ánægðir: „Undirritun
Úkraínu og Moldóvu á örugglega eftir að hafa
alvarlegar afleiðingar,“ sagði Grigorí Karasín,
aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands.
Á leiðtogafundi Evrópusambandsins í Brussel
var hins vegar ákveðið að fresta frekari refsi-
aðgerðum á hendur Rússlandi, en ESB hefur
krafist þess að rússneskir ráðamenn leggi sig
fram um að stilla til friðar í Úkraínu.
Vopnahléið, sem átti að gefa uppreisnarmönn-
um í Úkraínu kost á því að leggja niður vopn, er
nú liðið án þess að mikið hafi gerst.
Ólgan í Úkraínu hófst í nóvember eftir að
Viktor Janúkóvitsj, þáverandi forseti lands-
ins, ákvað að undirrita ekki þennan sama sam-
starfssamning við ESB sem nú hefur verið und-
irritaður. - gb
Úkraína, Georgía og Moldóva undirrituðu í gær samstarfssamninga við Evrópusambandið:
Rússar hóta alvarlegum afleiðingum
ÁNÆGÐIR Petró Porosjenkó Úkraínuforseti á milli for-
setanna Jose Maria Barroso, forseta framkvæmdastjórnar
ESB, og Herman van Rompuy, forseta ráðherraráðsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR „Það er óbreytt
ástand í makríldeilunni,“ segir
Sigurður Ingi Jóhannsson sjávar-
útvegsráðherra. Norski sjávarút-
vegsráðherrann Elisabeth Aspaker
var hér á landi í síðustu viku og var
staðan í makríldeilunni rædd.
„Menn hafa kannski betri skiln-
ing á vandamálinu og hafa sameig-
inlega sýn á það. Þegar því er náð er
styttra í að menn geti fundið lausn-
ir,“ segir Sigurður Ingi og bætir við
hann viti ekki hvort lausnin verði
nákvæmlega eins og Íslendingar
vilji.
Sigurður Ingi segir að Íslendingar
hafi lýst sig reiðubúna að ganga til
samninga um makrílveiðar næsta
árs strax í sumar. Norski sjávarút-
vegsráðherrann hafi hins vegar lýst
því yfir að hann teldi að málið yrði
ekki tekið upp fyrr en næsta haust.
Treglega hefur gengið að semja
um veiðar úr makrílstofninum sem
er flökkustofn. Í vetur sömdu Evr-
ópusambandið, Norðmenn og Fær-
eyingar um skiptingu veiðiheimilda
úr stofninum. Íslendingum var ekki
boðið að vera með í þeim samningi.
- jme
Íslendingar tilbúnir að ganga til samninga um makrílveiðar næsta árs:
Óbreytt ástand í makríldeilu
LÝSA SAMNINGSVILJA Makríldeilan
var rædd á fundi sjávarútvegsráðherra
Noregs og Íslands. Íslendingar hafa lýst
yfir því að þeir vilji semja um kvóta
næsta árs. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
SJÁVARÚTVEGUR Sigurður Ingi
Jóhannsson, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, hefur tekið
ákvörðun um
heildarafla til-
tekinna fiskteg-
unda fyrir næsta
fiskveiðiár. Ráð-
herra fylgir til-
lögum Hafrann-
sóknarstofnunar
um ráðlagðan
heildarafla í öllum tegundum.
Í tilkynningu frá ráðuneytinu
segir að mikilvægt sé að halda orð-
spori Íslands sem sé „sjálfbær nýt-
ingarþjóð sem byggir ákvarðanir
sínar á vísindum“.
Þar er kallað eftir auknu sam-
ráði vísindamanna og sjómanna,
enda stangist reynsla þeirra síðar-
nefndu stundum á við vísindi
þeirra fyrrnefndu. - sój
Ráðherra ákveður afla:
Fylgir ráðlegg-
ingum Hafró
SIGURÐUR INGI
JÓHANNSSON
1. Hvað heitir hljómsveitin sem Ásgeir
Börkur Ásgeirsson syngur í?
2. Hver er nýskipaður dómkirkju-
prestur?
3. Hvað heitir eftirlitslausa vottunin
sem fl estir grænmetisbændur nota?
SVÖR
SJÁVARÚTVEGUR Rúmlega 4.000
erlendir ferðamenn og Íslending-
ar hafa í júní skrifað undir yfir-
lýsingu þar sem þeir heita því
að borða ekki hvalkjöt og lýsa
yfir vilja til þess að hvalveiðum
Íslendinga verði hætt.
Í gær afhentu sjálfboðaliðar
IFAW-samtakanna og Hvalaskoð-
unarsamtaka Íslands fulltrúa
atvinnuvegaráðuneytisins 2.018
undirskriftir en fyrir tveimur
vikum var farið með 2.015 póst-
kort með jafn mörgum undir-
skriftum í ráðuneytið.
Um 60 sjálfboðaliðar munu í
sumar ræða við ferðamenn og
Íslendinga í Reykjavík um kosti
þess að velja hvalaskoðun frekar
en hvalveiðar.
Þeir hvetja enn fremur fólk
til að velja þá veitingastaði sem
merktir eru Whale Friendly. - gb
Undirskriftir afhentar:
Andmæla
hvalveiðum
1. Mercy Buckets. 2. Sveinn Valgeirsson.
3. vistvæn landbúnaðarafurð.