Fréttablaðið - 28.06.2014, Qupperneq 29
SNJALLSÍMAFORRIT
LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 2014 Kynningarblað Öppin í fríið, gagnleg öpp fyrir krakka og alla hina.
Vantar eitthvað
í ísskápinn?
„Out of Milk er fullkomið
app fyrir fjölskylduna,“ segir
Jóna Soffía Baldursdóttir,
vefþróunarstjóri Símans. „Inn-
kaupalistinn verður sameigin-
legur og ekki annað að gera
en að bæta því sem vantar í
ísskápinn inn og sá sem fer
fyrstur í búðina getur kippt
þeim vörum sem vantar með
heim.“
Ekki missa af marki
„Forza Football er frábært
app nú þegar fótboltavertíðin
stendur sem hæst,“ segir Jóna
Soffía. „Appið sendir fréttir um
stöðu fótboltaleikja, hvar sem
er í heiminum og hvenær sem
er. Besta app fyrir fótbolta-
unnendur sem ég hef kynnst.“
Sneiddu hjá vondu víni
„Vivino er frábært app fyrir
léttvínsáhugamenn. Með því
að mynda flöskuna fáum við
að vita um vínið og sjáum
með hvaða mat það passar
og hvaða einkunn það fær.
Með þessu appi er ekki slegin
feilnóta í Vínbúðinni,“ segir
Jóna Soffía.
Frábær er-
lend öpp inn
í sumarið
Hvar stend ég þegar kemur að farsímanotkun minni? Hvað hef ég eytt miklu? Hversu
mikið hef ég talað? Þetta eru spurn-
ingar sem við getum fengið svör við
með einföldum hætti í þjónustu-
appi Símans,“ segir Jóna Soffía Bald-
ursdóttir, forstöðumaður vefþróun-
ar Símans, en eining hennar hefur
hannað fjölda appa, bæði til afþrey-
ingar og þjónustu, síðustu ár.
Notkun á þjónustuappinu hefur
farið stigvaxandi frá því að það fór
fyrst í loftið í lok árs 2012. Nú er svo
komið að það er skoðað nærri sextíu
þúsund sinnum á mánuði eða nærri
tvö þúsund sinnum á dag.
Æ fleiri kjósa appið
„Við sjáum að fólk er margt hvert
farið að sjá að með því að fylgjast
betur með notkuninni getur það
sparað peninga og ekki hvað síst
tíma – því svörin við spurningunum
fást strax,“ segir Jóna Soffía og bætir
við að átta þúsund notendur séu vel
virkir, þeim fjölgi stöðugt og sjá megi
hversu vel þeir nýta appið á því hve
oft þeir nota það. Hún hvetur því við-
skiptavini til að sækja sér appið og sjá
möguleikana.
„Með þjónustuappinu geta við-
skiptavinir skoðað sundurliðaða
notkun sína sex mánuði aftur í tím-
ann, tekið stöðuna á gagnamagni,
smáskilaboðum og mínútum, breytt
gagnamagni netpakka, séð hvaða
númer eru skráð sem vinanúm-
er þegar það á við, athugað hvað er
innifalið í áskriftarleiðinni sinni og
keypt áfyllingu á frelsi og netpakka
fyrir öll frelsisnúmer,“ lýsir Jóna
Soffía. Þægindin séu augljós.
„Áhersla Símans þegar kemur að
öppum er að hafa þau notendavæn,
þau þurfa að henta við daglegt amst-
ur, skemmtileg tilefni eða afþrey-
ingu.“ Auk þjónustuappsins hefur
Síminn til að mynda, í samstarfi við
Gangverk, unnið app að Sjónvarpi
Símans. „Það sló í gegn. Strax sáum
við þúsundir notenda og ljóst var að
eftirspurnin var mikil enda appið
einfalt og tilgangur þess skýr, því
það veitir möguleikann á að horfa á
sjónvarpið hvar og hvenær sem er,“
segir hún.
Öpp með tilgangi
Ansi mörg öpp floppa á meðan önnur
blómstra. Spurð hvað þurfi til svo
þau slái í gegn svarar Jóna Soffía:
„Öpp sem hafa skýran tilgang eru
þau sem slá í gegn. Gott dæmi um
slíkt er til dæmis GoMobile-söfn-
unarappið sem veitir notendum
sem versla hjá samstarfsfyrirtækj-
um inneign hjá Símanum. Henni
geta þeir svo ráðstafað að vild í
vörur og þjónustu.“
En Jóna Soffía er þó á því að hag-
nýtingin ein og sér skili ekki endi-
lega bestu öppunum. „Þau verða
líka að vera flott. Það er lykillinn að
velgengni.“
Spara má tíma og peninga
með réttu öppunum
Með réttu öppin í snjallsímanum má ekki aðeins spara peninga heldur einnig tíma. Átta þúsund
viðskiptavinir Símans nýta þjónustuapp fyrirtækisins mörgum sinnum í hverjum mánuði. Öpp sem hafa
skýran tilgang eru þau sem helst slá í gegn og það hjálpar þeim enn frekar að vera flott.
Þjónustuvefur Símans veitir greinargóðar og
nákvæmar upplýsingar um símanotkun. Þar
má einnig fylla á frelsið svo dæmi séu tekin.
Jóna Soffía Baldursdóttir segir þjónustuvef Símans hafa sannað gildi sitt. Þeir fjölmörgu sem noti hann geri það oft og reglulega, enda
geti þeir sparað bæði tíma og peninga með því að vita hver notkunin er. MYND/GVA
Landsmótsapp Símans á eftir að nýtast mótsgestum vel. Þar eru upp-
lýsingar um hesta og knapa sem taka þátt. Hægt er að sjá stöðuna í riðl-
unum og fylgjast með árangri hesta og knapa. Öll dagskráin er í appinu,
bæði keppnisdagskrá og skemmtidagskrá. Þar fást fréttir um hesta-
mannamótið ásamt því að hægt er að tengjast Twitter í gegnum það.
Í appinu er kort af svæðinu og almennar upplýsingar um aðstöðuna,
veitingastaði, salerni, tjaldsvæði og bílastæði.
Appið var fyrst kynnt til leiks árið 2012. Það er unnið af Símanum og
er á íslensku og ensku.
Allar helstu upplýsingar í appi
fyrir Landsmót hestamanna
App Símans fyrir Landsmót hestamanna heldur utan um allar upplýsingar móts-
ins. Þar má finna fréttir, kort af mótssvæði og aðrar nauðsynlegar upplýsingar.