Fréttablaðið - 28.06.2014, Side 30
KYNNING − AUGLÝSINGSnjallsímaforrit LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, 512 5429, jonivar@365.is Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
112-appið fyrir öryggið
112-appið hefur tvenns konar virkni.
Annars vegar er hægt að kalla á
aðstoð neyðarlínunnar ef á þarf að
halda og hins vegar er hægt skilja
eftir sig „slóð“ GPS-punkta.
Flashlight
Það getur komið sér vel að hafa
vasaljós í símanum. Til dæmis við
lestur ofan í svefnpoka.
Kindle
Kindle-appið er reyndar hægt að ná
í í símann og sækja krassandi reyfara
gegnum amazon.com til að lesa
í símanum og þá þarf ekkert vasaljós.
Vagahandbókin
Vegahandbókarappið gefur nýjustu
upplýsingar um vegakerfið og
ferðaþjónustu á landinu öllu. Sérstök
kortabók fylgir og með QR-kóðum
er hægt að fá gagnlegar upplýs-
ingar, svo sem um áætlun ferja,
veður og færð.
Boðið er upp á að hlusta á fjöldann
allan af lesnum þjóðsögum með því
að skanna QR-kóða.
Veðrið
Veðurappið er gott að hafa þar sem
skjótt skipast veður í íslensku lofti.
Þar er hægt að skoða staðarspár
allra stöðva á einu korti en einnig fá
veðurspá fyrir það landsvæði sem
maður er staddur á, eftir GPS.
Eldsneyti
Bensínvaktin: Appið sækir upplýsing-
ar um bensínverð hjá öllum bensín-
stöðvum á Íslandi og lætur vita
hvar bensínið er ódýrast og hvaða
bensínstöð er næst. Hægt að reikna
út bensíneyðslu bíls og kostnað út
frá uppgefnum gögnum.
Trapster
Appið lætur þig vita af hraðamynda-
vélum í nágrenninu.
Almenningssamgöngur
Strætóappið sýnir hvenær
næsti strætó kemur og
hvert hann fer. Einnig
er hægt að finna
bestu leiðina þang-
að sem ferðinni er
heitið og leita uppi næstu biðstöð á
rauntímakorti.
Næði í fríinu
Já-appið flettir sjálfkrafa upp nafni
þess sem er að hringja og birtir á
skjánum. Getur komið sér vel ef þú
vilt ekki láta ónáða þig í fríinu. Einnig
birtir appið nafn þess sem þú ert að
hringja í.
Myndir
Instagram-appið heldur myndrænt
utan um ferðasöguna.
Kóðaðar upplýsingar
Scan-appið skannar inn QR-kóða
sem geta innihaldið ýmiskonar
upplýsingar. Til dæmis eru listasöfn
mörg með fróðleik á QR-kóðum og á
söguslóðum er oft að finna QR-kóða
með upplýsingum.
Appaðu þig gegnum sumarfríið
Síminn og spjaldtölvan eru löngu orðin staðalbúnaður í töskunni hvert sem ferðinni er heitið. Eftirfarandi smáforrit gæti verið
skynsamlegt að hafa á ferðalagi um Ísland.
Undirbúðu sumarfríið í símanum og náðu í smáforrit til að létta þér lífið á ferðinni.
BANKAÞJÓNUSTA
Á NOKKRUM SEKÚNDUM
Með Arion appinu getur þú borgað reikninga,
millifært og fyllt á Frelsið í símanum
á nokkrum sekúndum.
Sæktu Arion appið á arionbanki.is
Einnig í Play Store og App Store
S
ARION
APPIÐ
Passbook
Clock
Phone
N
S
Safari
ARION
APPIÐ