Fréttablaðið - 28.06.2014, Blaðsíða 64
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 28. JÚNÍ 20144
1. Borðaðu mildan og
bragðdaufan mat fyrir
ferðalag. Saltar kexkökur,
brauð, gjarnan ristað, ban-
anar, hrísgrjón og eplamauk
eru góðir kostir.
2. Sittu í farþegasætinu
frammi í. Reyndu að sjá
fyrir þér leiðina fram undan
og búðu þig þannig undir
hreyfingar farartækisins.
Biddu um gluggasætið í
flugvél, helst fyrir miðju. Í bát
skal reyna að sitja í miðjum
bátnum og festa augun á
sjóndeildarhringnum.
3. Ráðfærðu þig við lækni
varðandi lyf. Hafðu í huga að
þau geta haft slævandi áhrif
og þarf að taka þau inn hálf-
tíma fyrir brottför.
4. Prófaðu að nota þar til
gert armband um úlnliðinn.
Það er sagt trufla ógleði-
tilfinninguna.
5. Reyndu að útiloka sýn
á hreyfinguna utan við
bíl- eða lestargluggann, til
dæmis með sólgleraugum
með breiðum spöngum,
derhúfu eða skyggni.
6. Reyndu að drekka
engiferte eða taka inn
engifertöflur. Eins reynist
mörgum vel að tyggja ferskt
engifer til að bægja burt
ógleðinni.
wikihow.com
RÁÐ VIÐ FLUG OG BÍLVEIKIGARÐÁLFAR, HUNDA
ÓLAR OG KORKTAPPAR
Víða um heim er að fi nna
furðuleg söfn þar sem til sýnis
eru hinir hvunndagslegustu
munir. Vefsíða Telegraph tók
saman nokkur slík.
Breska sláttuvélasafnið
í Merseyside
Þar má sjá sláttuvélar ríka og
fræga fólksins og muni úr
sláttuvélakappakstri.
www.lawnmowerworld.co.uk
Hundaólasafnið í Leeds-
kastalanum í Kent
Í safninu má skoða yfi r hundrað
hundaólar, bæði fornar og nýjar.
Blýantasafnið í Kaswick
í Bretlandi
Hér má sjá heimsins stærsta og
heimsins fyrsta blýant. Þá má
þar einnig sjá hvernig blýið er
sett í blýanta nútildags.
www.pencil museum.co.uk
Lásasafnið í Willenhall
í vestur-miðhéruðum
Bretlands
Áhugavert og óvenjulegt safn
af lásum og lyklum auk vélbún-
aðar sem notaður er til að búa
til hengilása.
Tekatlaeyja í Maidstone
í Kent
Teapot Island
er heiti á
safni þar sem
hægt er að
skoða yfi r 6.700
tekatla.
www.teapot-
island.com
Saga veggfóðurs
Safnið Musée du Papier Peint í
Rixheim í Frakklandi veitir yfi r-
gripsmikla sýn yfi r sögu vegg-
fóðurs í heiminum.
www.museepapierpeint.org
Korktappasafn í
Palafrugell á Spáni
Allt sem þú vildir vita um tilurð
og sögu korktappa.
www.museuscostabrava.cat
Dvergafriðland í Devon
á Englandi
Í Gnome Reserve má fi nna yfi r
þúsund garðdvergastyttur.
Allir gestir fá dvergahatt og
veiðistöng þegar gengið er inn
á safnið.
www.gnomereserve.co.uk