Fréttablaðið - 28.06.2014, Page 66
FÓLK|HELGIN
ENGINN ÞEKKIR ÁVEXTI BETUR EN FROOSH!
Froosh-drykkirnir eru hannaðir svo neytendur á Ís-
landi geti auðveldlega bætt ávöxtum í mataræðið og
til að gera okkur svolítið auðveldara að lifa heilbrigðu
lífi,“ segir Kamilla Sveinsdóttir, markaðsstjóri Core
heildsölu, en Core fer með umboð fyrir ávaxtadrykk-
ina Froosh.
„Við eigum að borða fimm hundruð grömm af
ávöxtum á grænmeti á dag. Flestir gera það ekki og
þá er Froosh svarið,” segir Kamilla en engin aukaefni
er að finna í Froosh-drykkjunum.
„Drykkirnir eru stútfullir af vítamínum, steinefnum
og trefjum. Froosh býr til eigin uppskriftir, pressar,
kreistir og maukar gæðaávexti í glerflöskur. Nú er
liðin tíð að ferskir drykkir renni út í höndunum á þér.
Froosh er pakkað í loft-
tæmdar umbúðir sem
tryggja að ferskleik-
inn helst lengur.
Ekkert þykkni
ratar í umbúð-
irnar, enginn við-
bættur sykur eða
rotvarnarefni. Froosh hefur slegið í gegn og unnið til
verðlauna erlendis fyrir gæði og frábært bragð. Við
bjóðum upp á sex bragðtegundir í verslunum á Ís-
landi,“ segir Kamilla.
FITULÍTIÐ SNAKK FRÁ POPCORNERS
Core býður einnig upp á fitulítið snakk sem hentar
þeim sem hugsa um heilsuna.
„Við erum með lausn fyrir þá sem vilja náttúrulegt
snakk sem hvorki er djúpsteikt né bakað en það er
loftpoppaður maís frá Popcorners. Þetta snakk er
frábært fyrir þá sem eru að hugsa um línurnar en í
hundrað grömmum eru einungis átta grömm af fitu.
Bragðtegundirnar sem við erum með í verslunum
eru salt, cheddar og kettle en nýjasta bragðtegundin
er sweet chilli. Það er bragð sem rífur í og er sjúklega
gott.“
Götugrill Securitas er skemmtilegt verkefni sem fór af stað fyrir tveimur árum og hefur fengið frábærar við-
tökur,“ upplýsir Hjörtur Freyr Vigfússon,
markaðsstjóri Securitas.
Hjörtur segir alla þá sem eru með heima-
vörn Securitas geta fengið lánað stærðar-
innar grill sem sé keyrt heim að dyrum til
íbúa höfuðborgarsvæðisins og sótt eftir
notkun, að kostnaðarlausu.
„Við hjá Securitas erum miklir áhuga-
menn um grill og allt sem tengist grill-
mennsku. Í starfi okkar höfum við líka séð
hvað nágrannavarsla skiptir miklu máli. Því
betur sem nágrannarnir þekkjast, því örugg-
ara er hverfið,“ útskýrir Hjörtur um upphaf-
legan tilgang verkefnisins.
„Okkur fannst tilvalið að sameina þetta
tvennt og bjóða viðskiptavinum okkar
afnot af glæsilegu grilli svo þeir geti slegið
upp skemmtilegri götugrillveislu með
nágrönnum sínum.“
GRILLAÐ ÁN FYRIRHAFNAR
Götugrill Securitas eru einstaklega vegleg
og hægt að grilla ofan í marga svanga
munna á einu grilli sem rúmar allt að fjóra
grillara í einu.
„Grillin okkar eru kolagrill og alkunna
að grillmatur verður mun bragðbetri á
kolagrillum. Á þeim tveimur sumrum sem
við höfum boðið upp á grillin höfum við
komist að því að fjöldi fólks hefur aldrei
grillað á kolagrilli og mörgum finnst það
fyrirhöfn. Málið er einfalt með götugrillum
Securitas því við komum færandi hendi
með grillin heim til fólks, ásamt öllu því
sem þarf til að grilla; kol, kveikilög, eld-
spýtur, tangir, svuntu og hanska. Þegar
grillveislunni svo lýkur, og búið er að gæða
sér á góðum grillmat og hafa það gaman
saman, sækir Securitas grillið og allir fara
sælir heim, án frekari fyrirhafnar.“
Hjörtur segir einnig færast í aukana að
fyrirtæki fái götugrill Securitas lánuð í há-
deginu á virkum dögum og haldi grillveislu
fyrir starfsfólk sitt og jafnvel viðskiptavini.
„Til að byrja með er útkeyrsla á grill-
unum aðeins í boði á höfuðborgarsvæðinu
en markmiðið er að fjölga grillum í fram-
tíðinni og dreifa þeim um landið. Við erum
því rétt að byrja með þetta skemmtilega
verkefni og sjáum að það getur vaxið og
dafnað á komandi árum.“
DJARFUR VIÐ GRILLIÐ
Hjörtur er duglegur að grilla í frístundum
sínum heima við.
„Ég grilla við hvert tækifæri og prófa
allt sem mér dettur í hug að matreiða á
grilli. Sumt heppnast með ágætum og
kemur bragðlaukunum ánægjulega á óvart
en annað er kannski ekki alveg eins gott,“
segir hann og skellir upp úr.
Kolagrill eru í sérstöku dálæti hjá Hirti
þótt hann kunni líka prýðilega við grillað
góðgæti af gasgrilli.
„Ég mæli eindregið með kolagrilluðum
mat og þegar fólk er orðið leitt á mikilli
grilltörn við gasgrillið er upplagt að breyta
til og skella steikinni á kolagrill. Bragðmun-
urinn er skemmtilega áberandi og sumir
segja að kolabragðið geri gæfumuninn.“
Hjörtur er lítið fyrir að velta sér upp úr
uppskriftabókum og hvetur aðra grillara
til að sýna dirfsku og nýjungagirni við
grillið.
„Ég skora á fólk að láta hugmynda-
flugið ráða þegar kemur að matreiðslu
við grillið og elta ekki endilega uppskriftir
annarra. Grillmatur er í eðli sínu góður og
þótt mér finnist langbest að grilla einfalda
nautasteik hef ég ekki síður gaman af því
að spreyta mig á framandi forréttum og
eftirréttum úr eigin ranni.“
Hægt er að sækja um götugrill Securi-
tas á www.gotugrill.is.
GRILLAÐ MEÐ GÓÐUM GRÖNNUM
SECURITAS KYNNIR Góðir grannar gæta hver annars og fátt er betra til að styrkja nágrannatengslin en að grilla saman gómsætar
kræsingar á ljúfum sumardegi. Securitas lánar íbúum sem vilja kynnast betur vegleg kolagrill með öllu tilheyrandi heim að dyrum.
GRILLARI Hjörtur Freyr Vigfússon með grillsvuntuna og klár í grillmennsku við eitt af götugrillum Securitas. MYND/ARNÞÓR
HOLLIR DRYKKIR
OG FITULÍTIÐ SNAKK
CORE KYNNIR Froosh-ávaxtadrykkirnir eru stútfullir af vítamínum og inni-
halda engin aukefni. Þeir auðvelda neytendum að uppfylla ráðlagðan dag-
skammt af ávöxtum. Core býður einnig upp á fitulítið snakk úr maís.
HOLLARA
SNAKK
Nýjasta bragðteg-
undin í Popcorners
er sweet chili.