Fréttablaðið - 28.06.2014, Side 73
KYNNING − AUGLÝSING Snjallsímaforrit28. JÚNÍ 2014 LAUGARDAGUR 17
Notkun
snjalltækja á
skólatíma á að miðast við
að afla þekkingar, nýta
sköpunarkraftinn og
stuðla að því að nám og
kennsla verði
einstaklingsmiðuð.
Mark mið snjallskólans er að stuðla að betri – „snjallari“ – skólum á Ís-
landi; skólum sem búa nemendur
undir líf og starf í lýðræðisþjóð-
félagi og frekara nám með vega-
nesti sem nýtist,“ segir Birgir Rafn
Friðriksson í Snjallskólanum.
Birgir segir snjalltæki, svo sem
snjallsíma og spjaldtölvur, hafa
rutt sér til rúms á örfáum árum og
nú þegar setja mark sitt á íslenskt
samfélag.
„Sé rétt haldið á málum getur
notkun snjalltækja í skólastarfi
valdið straumhvörfum á öllum
skólastigum og haft áhrif á hvern-
ig kennarar kenna og hvernig
nemendur læra, hvað þeir læra og
hvenær þeir læra.“
Snjallskólinn mun fjalla um og
hvetja til umræðu um þessi mál.
„Það er jafnframt ástæða til að
fjalla um áhrif snjalltækja, sam-
félagsmiðla og annarra fylgifiska
tækniþróunar á félagsleg tengsl
fólks, persónulega líðan nemenda
og aðra þætti sem koma við námi
og kennslu og eru óneitanlega
hluti af skólastarfi og samvinnu
heimilis og skóla.“
Þörf á endurnýjun í skólastarfi
Að sögn Birgis er þörf á endur-
nýjun í skólastarfi vegna þróun-
ar í tölvutækni og upplýsingaöfl-
un sem kalli á nýtt veganesti fyrir
nemendur.
„Margt af því sem skólar hafa
boðið upp á heldur gildi sínu og
er hluti af sígildri menntun sem
er mikilsvert að viðhalda. Annað
hefur misst vægi sitt og notagildi
og enn aðrir þættir í kennslu og
námi snúa að tækni sem ekki var
til en getur nú auðveldað nám og
kennslu.“
Upplýsingaleit og gagnaöflun sé
nú mjög frábrugðin því sem tíðk-
aðist fyrir fáeinum árum.
„Í mörgum tilfellum eru kenn-
arar ekki lengur helsta uppspretta
gagna eða upplýsinga enda geta
nemendur leitað svara við hverju
sem er á milli himins og jarðar
með því einu að líta í lófa sér – á
snjallsímann.“
Ekki bara tæknileg áskorun
Birgir segir Snjallskólann ekki
síður snúast um kennslufræði-
lega þætti, eins og hvernig hlut-
verk kennara þróast og vinnudag-
ur nemenda breytist.
„Mikilsvert er að þróa náms-
og kennsluaðferðir þannig að
hver einstaklingur geti notið sín.
Úrlausnarefnin eru því mörg og
mismunandi og kalla á samvinnu
margra til að nemendur fari rétt
nestaðir út í lífið.
Opinn öllum – fyrir alla
Snjallskóli.is fylgir þeirri megin-
stefnu að mæla með opnum lausn-
um fremur en lokuðum.
„Snjallskólinn er þó ekki ein-
göngu opinn í tæknilegum skiln-
ingi. Mikilsvert er líka að vera
opinn fyrir mismunandi þörfum
nemenda. Hver og einn nemandi
hefur sína einstaklingsbundnu
eiginleika: styrkleika, hæfileika,
veikleika og þarfir. Því er mikils-
vert að í kennslu- og skólastarfi
sé komið til móts við alla einstak-
linga eins og frekast er kostur,“
segir Birgir.
Snjalltæki eru ekki leiktæki
Birgir bendir á að notkun snjall-
tækja í skólum eigi ekki að snú-
ast um að nemendur fái að spila
Angry Birds eða fara á YouTube
þegar þeir hafa lokið verkefnum
sínum.
„Notkun snjalltækja á skólatíma
á að miðast við að afla þekkingar,
nýta sköpunarkraftinn og stuðla
að því að nám og kennsla verði
einstaklingsmiðuð. Til þess þurfa
nemendur og kennarar að líta á
snjalltæki sem mikilsverð náms-
tæki – ekki leiktæki.“
Hugmyndin sé að hagnýting
upplýsingatækni og snjalltækja
megi verða til þess að breyta formi
og innihaldi náms.
Snjallskóli fyrir farsæla framtíð
Snjallskólinn stuðlar að því að nám í íslenskum skólum búi nemendur betur undir framtíðina. Skólinn miðlar upplýsingum til
kennara og nemenda sem vilja leggja sitt af mörkum í von um betri menntun, betri skóla og betri hag komandi kynslóða.
„Sé rétt haldið á málum getur notkun snjalltækja í skólastarfi valdið straumhvörfum á öllum skólastigum,” segir Birgir Rafn Friðriksson í
Snjallskólanum. MYND/GVA
GAGNLEG SNJALLFORRIT
Fátt gleður snjalltækjaeigendur meira en góð snjallforrit til að auðvelda lífið, gera vinnuna skilvirkari og
tilveruna skemmtilegri. Á snjallskoli.is er að finna umfjöllun um snjallforrit sem gætu komið að gagni í kennslu
og námi; þar á meðal Orð í tíma töluð sem geymir þúsundir tilvitnana fyrir ritgerðir og tækifærisræður, Wolfram-
Alpha fyrir stærðfræðinörda, Trello fyrir verkefna- og skipulagsvinnu, teikni- og málunarforritið Sketchbook og
ljósmyndaforritið Pixlr-o-Matic. Snjallskólinn tekur fagnandi öllum ábendingum um snjallforrit sem eru þess
virði að um þau séu fjallað á síðu skólans.
Sum snjalltæki eru komin býsna langt inn fyrir eldvegg og geta, ef ekki er að gáð, valdið nokkr-
um usla,“ segir Björn Björnsson,
sölu- og markaðsstjóri hjá TVR.
Björn segir mörg fyrirtæki og
stofnanir hafa gert sér grein fyrir
að halda þarf utan um snjallsíma
og spjaldtölvur með sambærilegum
hætti og annan tölvubúnað sem
veitir aðgang að netum, kerfum og
gögnum.
„Þeir sem hafa innleitt einhvers
konar tækjastjórn (e. Mobile Device
Management) þurfa í flestum tilvik-
um að setja reglur um hvað notend-
ur snjalltækja innan þeirra vébanda
mega og mega ekki. Þeim reglum er
fylgt eftir með svokölluðum MDM-
kerfum og með því móti er umráða-
réttur starfsmanna/notenda skilyrt-
ur og frelsi þeirra til að nota snjall-
tækið skert,“ útskýrir Björn.
Til dæmis geti vinnuveitandi
bannað notkun á tilteknum snjall-
forritum í tækjum sem tengjast neti
fyrirtækisins.
„Þannig má hugsa sér að vinnu-
veitandi banni notkun á Facebook,
myndavélum eða Dropbox. Þess
háttar íhlutanir falla ekki allar jafn
vel í kramið hjá starfsmönnum
sem finnst snjalltækin þeirra allt
í einu ekki svo snjöll þegar búið er
að banna uppáhalds „öppin“,“ segir
Björn.
Til bjargar í þessum aðstæð-
um kemur Samsung Knox sem afar
snjöll lausn.
„Knox brúar á vissan hátt bilið á
milli upplýsingaöryggis fyrirtæk-
isins annars vegar og frelsis starfs-
manns til einkalífs hins vegar.“
Til einföldunar segir Björn að
segja megi að Knox búi til tvö að-
skilin sýndartæki í einu og sama
tækinu.
„Annað sýndartækið er í umsjá
og á forræði fyrirtækisins, lýtur
reglum sem fyrirtækið setur og
hefur því aðgang að netum, kerfum
og gögnum sem starfsmaður þarf
á að halda starfs síns vegna. Hitt
sýndartækið er alfarið á forræði
starfsmanns líkt og það væri ekki
undir neinni tækjastjórn en ekki
er hægt að afrita eða flytja kerfis-
aðgengi eða gögn frá öðru sýndar-
tækinu til hins. Í meginatriðum er
því virkni milli sýndartækjanna
tveggja líkt og um tvö aðskilin tæki
væri að ræða.“
Samsung Knox er afar snjöll lausn
og einföld í notkun fyrir notendur
snjalltækja.
„Það verður að teljast mikilvæg-
ur þáttur í því að hægt sé að innleiða
lausnina þannig að starfsmenn bæði
geti og vilji nota hana. Knox er fjöl-
hæft og með öllum helstu stjórnkerf-
um (e. MDM) sem í boði eru í dag.“
Sjá nánar á snjallskoli.is
Brúar bil á milli öryggis og frelsis
Snjalltæki hafa þegar hafið innreið sína í fyrirtæki, stofnanir og skóla landsins. Ef fyllsta öryggis er ekki gætt geta snjalltækin valdið
nokkrum usla. Þar kemur Samsung Knox til skjalanna sem afar snjöll lausn sem verndar í senn öryggi fyrirtækja og frelsi notenda.
Björn Björnsson er sölu- og markaðsstjóri TVR. Hann segir Knox vera einfalt í notkun,
fjölhæft og með öllum helstu stjórnkerfum sem í boði eru í dag. MYND/GVA
„Til þess þurfa kennarar, skóla-
stjórnendur, nemendur og foreldr-
ar að hafa augun opin fyrir mögu-
leikunum, finna nýjar leiðir og
prófa sig áfram. Vonandi verður
snjallskóli.is til þess að skólafólk
miðli af reynslu sinni um hvernig
unnt er að nota snjalltæki í skóla-
starfi. Setjum markið hátt og
verum ófeimin við að fara ótroðn-
ar slóðir um leið og við höldum í
það sem vel hefur reynst í gegn-
um tíðina.“
Viltu leggja orð í belg?
Hafir þú áhuga á að taka á ein-
hvern hátt þátt í þessu starfi, segja
frá reynslu þinni úr skólastarfi eða
með öðrum hætti vinna að mark-
miðum þessa vefs, er velkomið að
hafa samband við okkur.
Sjá nánar á snjallskoli.is