Fréttablaðið - 28.06.2014, Qupperneq 90
28. júní 2014 LAUGARDAGUR| MENNING | 42
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
LAUGARDAGUR
28. JÚNÍ 2014
Tónleikar
12.00 Pétur Sakari kemur fram í Hallríms-
kirkju og leikur hina glæsilegu Prelúdíu og
fúgu í Es-dúr eftir Bach, umritun á Píla-
grímakórnum úr Tannhäuser auk þess sem
hann mun leika spuna af fingrum fram.
14.00 Slegið verður upp fjölskyldu-
skemmtuninni Pottapopp í gömlu Sund-
höllinni í Hafnarfirði. Sex atriði koma fram
í Sundhöllinni og eru það Kjartan Arnald,
Adda og Sunna, Sveinn Guðmundsson,
Ingunn Huld, Vítiskvalir og Vio. Á milli tón-
listaratriða styttir Diskótekið Dísa gestum
stundir.
14.00 Ragnheiður Gröndal kemur fram
á Pikknikktónleikaröð við gróðurhús
Norræna hússins.
15.00 Úrvals ungmennastórsveit
Norður-Rínarhéraða Þýskalands
kemur fram á Jómfrúnni. Tón-
leikarnir fara fram utandyra á
Jómfrúartorginu. Aðgangur er
ókeypis.
17.00 JEA– Jazzhátíð Egils-
staða. Árni Ísleifs, KK Band,
Kaleo, AT Nordic quartet,
Hljómsveitin Dútl, Georgy&Co, o.fl. Hátíðin
er haldin í Sláturhúsinu á Egilsstöðum, í
Frystiklefanum.
20.00 Ásgeir Trausti á Græna hatt-
inum, Akureyri. Miðaverð er 3.000
krónur og miða má nálgast á
heimasíðu midi.is.
20.00 Hinn franski raftónlistar-
maður LAFIDKI ásamt íslensku
hljómsveitunum Sad Owl
Brothers og AMFJ kemur
fram í Tjarnarbíói.
20.00 Gítarleikarinn
Andrés Þór heldur
ásamt norrænum kvar-
tett tónleika í Sláturhús-
inu, Egilsstöðum á JEA.
21.00 Ball með Rokksveit Jonna Ólafs á
Kringlukránni.
23.00 Þungarokkstónleikar á Íslenska
rokkbarnum í Hafnarfirði. Hljómsveitirnar
Blood Feud, Wistaria og Collective koma
fram.
Sýningar
12.00 Ljósmyndasýning Arnþórs Ævars-
sonar verður opnuð á Bókasafninu í
Hveragerði. Boðið verður upp á spjall og
hressingu.
21.00 Sirkus Íslands með sýninguna
Skinnsemi. Skinnsemi er kabar ettsýning
með sirkusívafi þar sem lögð er áhersla
á fullorðinshúmor.
Uppákomur
19.00 Sumarpartí Party Zone og Carlsberg
á Dollý. Hinn árlegi sumarþáttur Party
Zone á Rás 2 verður í beinni frá Dolly. DJ
Margeir og DJ Andrés þeyta skífum frá
klukkan 22.00.
Markaðir
13.00 Markaður myndskreyta í Hinu
húsinu. Tólf ungir myndskreytar halda
markaðinn. Gengið er inn um aðalinn-
gang Hins hússins en ekki verður posi á
staðnum.
Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@
frettabladid.is og einnig er hægt að skrá þá
inni á visir.is.
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
SUNNUDAGUR 29. JÚNÍ 2014
Tónleikar
16.00 Björg Þórhallsdóttir sópransöng-
kona og Jónas Ingimundarson píanó-
leikari flytja úrval sönglaga eftir íslensk
tónskáld, þ.á.m. Jakob Hallgrímsson,
Guðna Franzson, Daníel Þorsteinsson
og Michael Jón Clarke við ljóð Halldórs
K. Laxness, Jónasar Hallgrímssonar,
Davíðs Stefánsson o.fl., ásamt þekktum
erlendum sönglagaperlum eftir Schu-
mann, Brahms, Mendelsohn, Betho-
veen, Schubert og Richard Strauss.
Stofutónleikarnir verða í Gljúfrasteini
og er aðgangseyrir 1.500 krónur.
17.00 Pétur Sakari er finnskur konsert-
organisti sem hélt sína fyrstu einleiks-
tónleika 13 ára gamall árið 2005.
Hann mun koma fram í Hallrímskirkju
og leika sína eigin umritun á verki
píanósnillingsins Franz Liszt auk þess
að flytja verk hans Praludium und Fuge
uber B-A-C-H, auk Kórals nr. 2 í h-moll
eftir César Franck og leika af fingrum
fram.
21.00 Gítarleikarinn Andrés Þór heldur
ásamt norrænum kvartett tónleika í
Bæjarbíói, Hafnarfirði.
Sýningar
10.00 Villt hreindýr í Flóanum í Hörpu.
Miðaverð er 1.900 krónur og miða má
nálgast á heimasíðu midi.is.
13.00 Sirkus Íslands í tjaldinu Jökla
á Klambratúni. Þessa sýningu hefur
sirkusinn sett saman með yngri börnin
í huga en þó ekki á kostnað eldri áhorf-
enda. Miðaverð er 2.500 krónur og
miða má nálgast á heimasíðu midi.is.
14.00 Sunnudagsleiðsögn í Listasafni
Íslands með sýningarstjóranum Tinnu
Þorsteinsdóttir.
16.00 Heima er best er stóra fjölskyldu-
sýning Sirkus Íslands. Grippl, húlla,
loftfimleikar, einhjólalistir, trúðar og
margt fleira er sett saman svo úr verður
sannkölluð sirkusupplifun. Miðaverð
er 3.000 krónur og miða má nálgast á
heimasíðu midi.is.
19.00 How to become Icelandic in 60
minutes í Kaldalóni, Hörpu. Miðaverð
er 4.200 krónur og miða má nálgast á
heimasíðu midi.is.
Kvikmyndir
22.30 Þynnkubíó Priksins. Kvikmyndin
Spawn úr smiðju Todds MacFarlane
verður sýnd á stórum skjá á neðri hæð
Priksins. Ekta poppvél verður á staðn-
um og frítt er inn ásamt fríu poppi sem
poppað er til lokunar.
Bókmenntir
15.00 Samsæti heilagra. Útgáfufögn-
uður og leiklestur í Listasafni Einars
Jónssonar. Leiklesarar eru meðal annars
Guðrún Gílsadóttir, Ilmur Kristjáns-
dóttir, Rúnar Guðbrandsson og Ragnar
Ísleifur Bragason.
Upplýsingar um viðburði sendist
á hvar@frettabladid.is og einnig er hægt
að skrá þá inni á visir.is
DAGUR
ÍSLENSKRAR
NÁTTÚRU
Tilnefningar óskast til
viðurkenninga umhverfis-
og auðlindaráðuneytis
Umhverfis- og auðlindaráðuneytið óskar eftir
tilnefningum til tvennra verðlauna sem afhent
verða á Degi íslenskrar náttúru, 16. september
næstkomandi.
Fjölmiðlaverðlaun umhverfis- og auðlinda-
ráðuneytisins verða veitt fjölmiðli, ritstjórn,
blaða- eða fréttamanni, dagskrárgerðarfólki eða
ljósmyndara sem hafa skarað fram úr með
umfjöllun sinni um íslenska náttúru. Til greina
koma einstök verkefni eða heildarumfjöllun um
íslenska náttúru.
Náttúruverndarviðurkenning Sigríðar í
Brattholti verður veitt einstaklingi sem hefur
unnið markvert starf á sviði náttúruverndar.
Tilnefningar ásamt rökstuðningi skal senda fyrir
18. ágúst 2014 á umhverfis- og auðlindaráðu-
neytið, Skuggasundi 1,101 Reykjavík, eða á
netfangið postur@uar.is
NAM sækir innblástur til austurs.
Úr fersku hráefni framreiðum við mat
sem er æsandi og öðruvísi – en samt
fljótlegur og á viðráðanlegu verði.
Við fléttum kryddum, bragði og litum
og nútíma asísk matargerð verður að
upplifun fyrir öll skynfærin. NAM er
ekki bara lostæti – NAM er næring
fyrir hugann.
MENNING