Fréttablaðið - 12.07.2014, Page 2
12. júlí 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
FIMM Í FRÉTTUM FLOTT FYRIRSÆTA OG UMDEILT HÚS
FRÉTTIR
GLEÐIFRÉTTIN
VIKAN 05.07.➜11.07.2014
Kristín Huld Sigurðardóttir,
forstöðumaður Minjastofn-
unar Íslands, segir almenna
óánægju með Þorláksbúð í
Skálholti og að stofnunin vilji
að húsið víki af staðnum.
Hanna Birna
Kristjánsdóttir innan-
ríkisráðherra stefnir að
því að leggja fram frum-
varp um millidómstig í
haust eða vetur.
➜ Nýtt frumvarp
um raforku sem
Ragnheiður Elín
Árnadóttir iðnað-
arráðherra ætlar
að leggja fram á
á næsta þingi er
talið takmarka
skipulagsvald
sveitarfélaga.
Maria Del Carmen
Jimenez Pacifi co er
íslensk fyrirsæta í
yfi rstærð. Hún hefur
skrifað undir samning
við módel skrifstofuna
Volúme Model Management.
Þorsteinn Víglundsson,
framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, segir
efnahagslega áhættu af-
náms gjaldeyrishaft a vera
minni en hættuna sem
fylgi ofh itnun hagkerfi sins.
LÖGREGLUMÁL „Stígamótum líst vel á frumkvæði lögregl-
unnar á Suðurnesjum en þar ber þolandi heimilisofbeldis
neyðarhnapp þar sem hætta er á að brotamaður brjóti nálg-
unarbann. „Frábært fordæmi,“ segir Guðrún Jónsdóttir,
talsmaður Stígamóta. Hún segir enn fremur að önnur lög-
regluumdæmi mættu taka kollega sína á Suðurnesjum sér til
fyrirmyndar.
„Almennt líst okkur afar vel á það sem lögreglan á
Suður nesjum er að gera í ofbeldismálum,“ segir hún.
„Þetta er einfaldlega sýnikennsla í því hvað hægt er að
gera í íslenska kerfinu ef forgangsröðunin er rétt og ef vilj-
inn er fyrir hendi.“ Þarna vísar Guðrún í tilraunaverkefni
sem nefndist „Að halda glugganum opnum“ en það leiddi
síðan til þess að Suðurnesjalögreglan breytti verklagi sínu
í málum er varða heimilisofbeldi.
„Þau hafa verið frábær fyrirmynd sem síðan hefur orðið til
þess, til dæmis, að borgarstjórn samþykkti einhljóða skömmu
fyrir kosningar að gera átak í þessum málum. Á Suðurnesjum
hafa þau líka verið að framfylgja lögum sem kveða á um það
að ef ofbeldismenn haga sér ekki skikkanlega þá er þeim
vísað af heimilum. Lög gera einmitt ráð fyrir því að svona sé
þetta gert en því hefur bara ekki verið framfylgt.“ - jse
Stígamót lofsama frumkvæði lögreglunnar á Suðurnesjum í ofbeldismálum:
Ánægð með Suðurnesjalöggur
GUÐRÚN JÓNSDÓTTIR Fordæmi lögreglunnar á
Suðurnesjum hefur nú þegar hreyft við yfirvöldum í
borginni og önnur umdæmi mættu taka við sér líka,
segir talsmaður Stígamóta. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR
LAUGARDAGUR Lundinn í frjálsu falli Útlit er fyrir
að varp lundans verði með versta móti eitt árið enn
og hefur lundastofninn látið svo á sjá að í raun má
tala um stofnhrun.
SUNNUDAGUR Skeifan brennur Gríðarlegt tjón
varð þegar mesti bruni í áratugi át allt það sem fyrir
varð í Skeifunni 11.
MÁNUDAGUR Banaslys í Terra Mítica Átján ára
Íslendingur, Andri Freyr Sveinsson, lést í skemmtigarð-
inum Terra Mítica er hann féll úr rússíbana.
ÞRIÐJUDAGUR Buchheit snýr aftur Lee Buchheit,
aðalsamningamaður Íslands í Icesave-deilunni, er
ráðinn til að aðstoða við afnám gjaldeyrishafta.
MIÐVIKUDAGUR Umdeildur bjargvættur í
Bolungarvík Valdimar Lúðvík Gíslason, fyrrverandi
bæjarfulltrúi í Bolungarvík, gengst við að hafa skemmt
friðað hús þar í bæ til að sporna við slysahættu.
FIMMTUDAGUR Sjúkrabíll kom í tíma Joaquín
Valera, framkvæmdastjóri skemmtigarðsins Terra
Mítica, segir aðstoð hafa borist fljótt þegar banaslysið
varð þar í garðinum.
FÖSTUDAGUR Stefnir á lækkun
skulda
„Við stefnum að því að fyrir
2020 verði skuldastaða
Íslands orðin ein sú besta í
Evrópu.“ SÍÐA 6
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarfl okksins, á fundi miðstjórnar.
ÍÞRÓTTIR „Bann við kynningu á starfsemi
íþróttafélaga í skólum er mjög bagalegt,
sérstaklega í hverfishlutum þar sem hátt
hlutfall foreldra er ekki með íslensku sem
móðurmál. Margir foreldrar hafa ekki
yfirsýn yfir það sem er í boði.“ Þetta segir
Haukur Þór Haraldsson, framkvæmda-
stjóri Íþróttafélags Reykjavíkur, ÍR.
Öflugt samband var á milli íþrótta-
félaga og skóla áður en ákveðið var með
reglugerð að banna að því er virðist aðal-
lega lífsskoðunarfélögum að kynna starf-
semi sína í skólum, eins og Haukur orðar
það. „Það bann náði einnig til íþróttafé-
laga. Ég finn vilja hjá starfsmönnum skóla
til að sambandið við íþróttafélögin verði
eins og það var áður. Við höfum farið fram
á það og þetta hefur verið rætt hjá skóla-
og frístundasviði en til þessa hafa menn
ekki verið tilbúnir að breyta þessu.“
Eva Dögg Guðmundsdóttir, stjórnandi
verkefnis sem býður fríar íþróttaæfing-
ar á lóð Fellaskóla í sumar og er styrkt af
íþrótta- og tómstundaráði, sagði í Frétta-
blaðinu í gær að nýting frístundakortsins
hefði verið miklu minni í hverfi 111 en í
öðrum hverfum Reykjavíkur.
Haukur segir foreldra hafa komið til
sín sem ekki hafi vitað hvað hann var að
tala um þegar hann nefndi frístundakort-
ið við þá. „Ég get nefnt sem dæmi strák
sem langaði að vera íþróttum hjá okkur
eins og vinur hans. Strákurinn dró pabba
sinn hingað niður eftir til að tala við mig.
Þegar ég hafði útskýrt þetta fyrir föðurn-
um var hann hissa á því sem í boði var,“
greinir Haukur frá.
Hann segir ÍR hafa fundið verulega
fyrir því þegar lokað var á kynningar
íþróttafélaga í skólunum. „Við fundum
sérstaklega fyrir þessu haustið 2011 þegar
við gátum ekki komið og kynnt vetrarpró-
grammið okkar eins og venjulega. Það var
einkum áberandi hvað það komu færri á
körfuboltaæfingar. Menn eru með miklar
væntingar til okkar og gera kröfur en
þegar við reynum að verða við þeim eru
settar takmarkanir á okkur. Í Reykja-
vík eru níu hverfisfélög sem eru að baki
tveimur þriðju hlutum allrar íþrótta-
starfsemi í borginni. Okkur finnst að
hverfis félög ættu að hafa aðgang að sínum
hverfis skólum. Það þyrfti ekki þar með að
opna aðgang fyrir 100 önnur félög.“
Það er mat Hauks að gjaldfrjálsu
íþróttaæfingarnar á lóð Fellaskóla í sumar
muni án efa bera árangur. „Þetta er mjög
gott verkefni sem við erum ánægðir með.“
ibs@frettabladid.is
Bagalegt að mega ekki
kynna íþróttir í skólum
Framkvæmdastjóri ÍR vill fá að kynna starfsemi íþróttafélaga í hverfisskólum eins og áður. Segir
bann við kynningu bagalegt, sérstaklega í hverfi þar sem íslenska sé ekki móðurmál margra for-
eldranna. Það vita ekki allir af frístundakortinu og verða hissa þegar þeim er sagt frá því.
Við gerð reglna um kynningar í skólum var
meðal annars stuðst við leiðbeinandi reglur
talsmanns neytenda og umboðsmanns
barna frá 2009 þar sem segir að engar
auglýsingar skuli vera í grunnskólum eða
leikskólum né önnur markaðssókn.
„En þar segir líka að kynning á æskulýðs-,
íþrótta- og tómstundastarfsemi sveitar-
félaga sé heimil,“ segir Sigrún Sveinbjörns-
dóttir, verkefnastjóri hjá skóla- og frístunda-
sviði. Hún segir íþrótta- og tómstundaráð
halda úti vef um íþrótta- og tómstundastarf
fyrir börn og unglinga í borginni, itr.is/
sumar, á sumrin og fristund.is á veturna,
þar sem frjálsu félögin geti komið sínum
tilboðum á framfæri.
Skólastjóri tekur ákvörðun um hvort verk-
efni styrkt af Reykjavíkurborg verði kynnt í
skólanum.
➜ Reglur um kynningar
í skólum Reykjavíkur
Á ÆFINGU Gjaldfrjálsar íþróttaæfingar
eru í boði á lóð Fellaskóla síðdegis á
þriðjudögum og fimmtudögum.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
Við slökkvistarf á stuttbuxunum
Stefán Már Kristinsson, að-
stoðarvarðstjóri hjá slökkviliðinu
á höfuðborgarsvæðinu, var í
Hagkaupum þegar hann fékk boð
um útkall vegna stórbrunans í
Skeifunni. Stefán sleppti því að
fara heim til að sækja búning og
hóf slökkvistarf á stuttbuxunum.
„Ég tímdi ekki að fara heim. Þegar
svona eldur kemur upp eru svo
ótrúlega mörg verk sem þarf að
vinna– meira að segja fyrir mann
á stuttbuxum.“
Margir
foreldrar hafa
ekki yfirsýn yfir
það sem er
í boði.
Haukur Þór Haraldsson