Fréttablaðið - 09.09.2014, Síða 1
EFNAHAGSMÁL Fjárlög ársins 2015
gera ráð fyrir því að framlög til
vegamála muni einungis aukast
um einn milljarð króna frá fyrra
ári. Þetta er þriðjungur af því
sem gert hafði verið ráð fyrir
í Samgöngu áætlun. Þetta er á
meðal þess sem kemur fram í
fjárlögum sem Bjarni Bene-
diktsson, fjármála- og efnahags-
ráðherra, mun kynna venju sam-
kvæmt á blaðamannafundi í
Salnum í Kópavogi í dag. Hann
hefur hingað til lítið vilja gefa
upp um einstaka liði fjárlaga-
frumvarpsins.
Heimildir Fréttablaðsins
herma þar að auki að fjárheim-
ildir nokkurra stofnana muni
dragast saman. Þeirra á meðal
eru umboðsmaður skuldara,
Vinnumálastofnun og skatt-
rannsóknarstjóri. Skorið verður
niður í fjárheimildum til umboðs-
manns skuldara um fjörutíu pró-
sent. Hjá embættinu er gert ráð
fyrir að fjórir starfsmenn á tíma-
bundnum ráðningarsamningum
þurfi að hætta störfum um ára-
mót. Einnig mun umboðsmaður
skuldara þurfa að huga að nýju
húsnæði fyrir starfsemi sína.
Við það bætast uppsagnir í síð-
asta mánuði. Gert er ráð fyrir að
samdráttur hjá skattrannsókn-
arstjóra þýði að starfsmönnum
stofnunarinnar fækki um fimm,
en þeir eru núna 29.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
þingflokksformaður Sjálfstæðis-
flokksins, segir að helstu atriði
fjárlagafrumvarpsins hafi verið
kynnt þingmönnum flokksins á
fundi í Vestmannaeyjum. „Ég
er sátt við margt af því sem þar
kemur fram,“ segir Ragnheiður
og bendir á að fjárlagafrumvarp-
ið sé í takt við margt af því sem
sjálfstæðismenn hafi lagt áherslu
á. „Það er eru alltaf skiptar skoð-
anir um fjárlagafrumvarpið og
ég hef enga trú á því að það verði
neitt öðruvísi nú en áður,“ segir
hún, aðspurð um hvort frumvarp-
ið muni valda deilum. - jhh
FRÉTTIR
FYRIR ALLA
SEM ÞJÁST AF:Exemi
Sóríasis
Rósroða
Kláða í húð
Útbrotum
Þurri húð
Ofsakláða
S alcura DermaSpray hefur hjálpað fjölmörgum Ís-lendingum sem kljást við húðvandamál. Það inniheldur einstaka náttúrulega form-úlu sem styður viðgerðarferli húðarinnar, kemst djúpt ofaní húðina
TILBOÐ
Tilboðspakkn-ing inniheldur Salcura
Derma spray
100 ml
GEFA BLINDUM BÖRNUM SÝNSamtökin 20x20x20 vinna að því að veita fátækum blindum börnum um allan heim sýn með einfaldri aðgerð sem aðeins kostar 300 dollara. Þeir sem vilja styðja verkefnið geta skoðað vefinn 20x20x20.org.
HEFUR ÞÚ REYNT ALLT?GENGUR VEL KYNNIR Salcura DermaSpray er 100% náttúru-legt meðferðarúrræði í úðaformi sem getur veitt langvarandi bata við m.a. þurrki í húð, exemi og sóríasis. Frábær árang-ur, auðvelt í notkun og engar aukaverkanir.
LJÓS & LAMPARÞRIÐJUDAGUR 9. SEPTEMBER 2014
MEST LESNA
DAGBLAÐ Á ÍSLANDI*
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Capacent Gallup apríl-júní 2014
Þriðjudagur
12
2 SÉRBLÖÐ
Ljós og lampar | Fólk
Sími: 512 5000
9. september 2014
211. tölublað 14. árgangur
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla, Vesturbergi
og Arnarbakka
D-vítamín
G æ ð i • H r e i n l e i k i • V i r k n i
Enn meira aðhalds krafist í
fjárlagafrumvarpi næsta árs
Framlög til vegamála munu einungis aukast um einn milljarð á næsta ári, en ekki þrjá eins og gert hafði verið
ráð fyrir. Hagræðingar er krafist hjá Vinnumálastofnun, umboðsmanni skuldara og skattrannsóknarstjóra.
Bolungarvík 10° SSV 11
Akureyri 15° SSV 7
Egilsstaðir 17° SV 6
Kirkjubæjarkl. 11° SV 5
Reykjavík 12° SSV 8
SKÚRIR Í dag verða sunnan eða
suðvestan 8-13 m/s og skúrir en hægari
og bjart NA- og A-lands. Hiti 10-18 stig,
hlýjast NA-lands. 4
LÍFIÐ Hljómsveitin Stuðmenn lagði
undir sig Hörpu um helgina með mara-
þontónleikum fram á nótt. 20
SPORT Íslenska karlalandsliðið hefur
leik í undankeppni EM í kvöld er Tyrkir
koma í heimsókn í Laugardalinn. 22
SKOÐUN Bolli Héðinsson skrifar um
gjaldmiðla Íslands og Skotlands og ESB-
aðild. 12
Það eru
alltaf skiptar
skoðanir um
fjárlagafrum-
varpið og ég hef
enga trú á því
að það verði
neitt öðruvísi nú en áður.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
þingflokksformaður sjálfstæðismanna
HEILBRIGÐISMÁL Árið 2013 voru
276 sjúklingar greindir með sjálfs-
skaða á sjúkrahúsum landsins.
Sjálfsskaði felur í sér vísvitandi
eitrun eða áverka af eigin völdum,
þar á meðal tilraun til sjálfsvígs.
Þetta kemur fram í fréttabréfi
landlæknis um heilbrigðisupplýs-
ingar.
Talsverð aukning hefur orðið á
milli ára en tekið er fram í frétta-
bréfinu að varasamt sé að spá
nokkuð um þróunina vegna tilvilj-
anakenndra árssveiflna.
Konur eru rúm 68 prósent þeirra
sem lagðir eru inn lengur en sólar-
hring vegna sjálfsskaða og tilvikin
eru hlutfallslega flest meðal ein-
staklinga á aldrinum 20-29 ára.
Tveir af hverjum þremur sem
koma á sjúkrahús vegna sjálfs-
skaða, án þess að vera lagðir inn,
eru á aldrinum 10-29 ára.
Heildarfjöldi sjálfsvíga hér á
landi er á fjórða tug árlega. Talið
er að fyrir hvern einstakling sem
fremur sjálfsvíg geri tuttugu til-
raun til slíks og full kirkja situr
eftir í sárri sorg. Benedikt Þór
Guðmundsson, faðir ungs manns
sem svipti sig lífi, segir að efla
þurfi forvarnir og rjúfa þöggun í
samfélaginu um sjálfsvíg.
- ebg / sjá síðu 10.
Á þriðja hundrað manns greindir með sjálfsskaða á sjúkrahúsum í fyrra:
Fleiri skráðir sem skaða sjálfa sig
TÓNLIST „Af því að meirihluti plöt-
unnar var tekinn upp og mixaður
á Íslandi og platan var unnin með
mörgu íslensku tónlistarfólki var
hlustunarpartíið hér. Ísland er sá
staður þar sem Damien kann hvað
best við sig í heiminum,“ segir
Kári Sturluson,
samstarfsmaður
Damiens Rice.
Í gær var til-
kynnt um útgáfu
nýrra r plötu
írska tónlistar-
mannsins en eins
konar hlustunar-
partí fór fram á Kexi Hosteli í gær,
þar sem blaðamenn hvaðanæva að
ljáðu plötunni eyra. Platan ber tit-
ilinn My Favourite Faded Fantasy.
Í gærkvöldi fóru fram tónleikar
í hljóðverinu Sundlauginni í Mos-
fellsbæ. „Þetta voru svona tón-
leikar fyrir pressuna, vini og
vandamenn, það var bara verið
skála og fagna útgáfunni.“
- glp / sjá síðu 26
Damien Rice með nýja plötu:
Fagnaði útgáf-
unni á Íslandi
voru lagðir inn
vegna sjálfs-
skaða að meðaltali frá
2003-2013
102
FYRSTA LENDINGIN Airbus A319 þota færeyska fl ugfélagsins Atlantic Airways lenti á Reykjavíkurfl ugvelli skömmu eft ir
hádegi í gær. Um er að ræða fyrsta reglubundna fl ug félagsins á þessari þotu, sem er sú stærsta sem mun nota fl ugvöllinn að
staðaldri. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
RJÚFUM ÞAGNARMÚRINN Benedikt
Þór Guðmundsson segir í viðtali við
Fréttablaðið að þögnin auki skömm
eftirlifenda og veki fordóma.
ANTON BRINK
Vill skýringar á bústað
Stjórnarmaður í Orkuveitu Reykja-
víkur segist hafa talið að bústaður
fyrirtækisins við Þingvallavatn væri
ónothæfur, en annað hefur komið í
ljós. 4
Blaðamenn íhuga stöðu sína
Ósættis gætir milli starfsfólks og
stjórnar DV eftir hitafund í gær. 2
Þyrluferðir yfir gosið Fyrirtækið
Norðurflug mun bjóða upp á gos-
ferðir í þyrlu frá Akureyri og Hraun-
eyjum. 6
Safnar liði gegn Íslamska ríkinu
Barack Obama Bandaríkjaforseti
hyggst kynna hernaðaráform sín í
Írak og Sýrlandi á morgun. 8