Fréttablaðið - 09.09.2014, Síða 14
9. september 2014 ÞRIÐJUDAGUR| TÍMAMÓT | 14TÍMAMÓT
Þegar Ásdís Sif Gunnarsdóttir, sem
á dögunum hlaut styrk úr Listasjóði
Guðmundu S. Kristinsdóttur, fór að
performera fyrir framan kameruna,
eins og hún orðar það, í listaháskólan-
um sem hún gekk í í New York fann
hún miðil sem sameinaði öll áhugamál
hennar í listinni. „Ég var í alhliða lista-
skóla þar sem ég var meðal annars í
tímum í myndlist, höggmyndalist og
vídeólist. Ég var líka að læra leiklist og
hafði jafnmikinn áhuga á henni. Þetta
kom allt þegar ég fór að performera í
skúlptúrtíma,“ segir Ásdís um listform
sitt, gjörninga, innsetningar og vídeó-
verk, sem vakið hefur mikla athygli
innanlands og erlendis.
Til New York fór hún beint að loknu
námi á myndlistarbraut í Fjölbrauta-
skólanum í Breiðholti. „Ég kom svo
heim og var hér í eitt ár áður en ég fór
til Los Angeles í framhaldsnám í vídeó-
list og performance-list. Ég útskrifað-
ist þaðan fyrir tíu árum og þetta hefur
gengið rosalega vel síðan. Maður telur
sig alltaf heppinn þegar það geng-
ur upp. Manni er sagt í listaskóla að
aðeins fimm prósent verði starfandi í
listinni. Þetta byggist á þrjósku og að
gefast aldrei upp.“
Ásdís hefur tekið þátt í fjölda sýn-
inga og selt vídeóverk sín. Hún hefur
fengist við kennslu og nokkrum sinn-
um fengið listamannalaun, að því er
hún greinir frá. Meðal safna sem sýnt
hafa valin vídeóverk eftir Ásdísi er
Centre Pompidou-safnið í París.
Það var listamaðurinn Erró sem
veitti Ásdísi verðlaunafé og viðurkenn-
ingu úr Listasjóði Guðmundu S. Krist-
insdóttur fyrir framlag hennar til
myndlistar í Listasafni Reykjavíkur,
Hafnarhúsi, þegar sýning hennar Skip-
brot úr framtíðinni/Sjónvarp úr fortíð-
inni var opnuð ásamt sýningunni Erró
og listasagan og sýningu listamann-
anna Mojoko og Shang Liang, Gagn-
virkur veggur. „Mér hefur alltaf fund-
ist þetta vera eftirsótt verðlaun. Mér
finnst svo fallegt af Erró að stofna sjóð
fyrir listakonur til minningar um móð-
ursystur sína. Það er gaman að vera í
hópi þeirra sem fengið hafa styrk úr
sjóðnum. Það er líka gaman að sýna í
svona fallegum sal í Hafnarhúsinu. Þar
er hægt að upplifa verkið eins og best
verður á kosið.“ ibs@frettabladid.is
Fann miðilinn í list-
inni í skúlptúrtíma
Ásdís Sif Gunnarsdóttir fékk á dögunum verðlaun fyrir myndlist sína úr sjóði sem Erró
stofnaði til minningar um móðursystur sína. Gaman að sýna í Hafnarhúsinu.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir,
systir og tengdadóttir,
SVANDÍS RÓS HERTERVIG
Sörlaskjóli 64,
sem lést á Landspítalanum föstudaginn
5. september, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn
16. september kl. 15.00.
Vésteinn Ingibergsson Ingibjörg Gunnarsdóttir
Júlía Hertervig Óli Jón Hertervig
Emma Hertervig Óli Hákon Hertervig
Jón Gunnar Hertervig
Guðrún Þórunn Gísladóttir
Ingiberg Magnússon
Maðurinn minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
GRÉTAR HINRIKSSON
lést á hjartadeild Landspítalans 14G við
Hringbraut 27. ágúst sl. Jarðarförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Innilegar þakkir fyrir góða aðhlynningu.
Sjöfn Georgsdóttir
Aðalbjörg Grétarsdóttir Jóhannes Halldórsson
Hinrik Grétarsson Gunnjóna Guðmundsdóttir
Kristín Grétarsdóttir
Guðmundur Georg Grétarsson
barnabörn og barnabarnbörn hins látna.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
INGIBJÖRG KARLSDÓTTIR
frá Neðri-Lækjardal,
síðast til heimilis að Húnabraut 40,
andaðist þann 3. september á
Heilbrigðisstofnuninni á Blönduósi. Útför
hennar fer fram þann 13. september kl. 14.00 frá Blönduóskirkju.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar
er bent á Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi.
Jakob Þór Guðmundsson Sigurbjörg Auður Hauksdóttir
Ellert Karl Guðmundsson Birna Sólveig Lúkasdóttir
Óskar Páll Axelsson
og fjölskyldur.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýju og samúð vegna andláts ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
ÖNNU MARÍU GUÐMUNDSDÓTTUR
(ANA PANCORBO GÓMEZ)
Urðarstíg 7a, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Droplaugarstaða fyrir góða umönnun.
Marie Jo Etchebar Jean Etchebar
Rósa M. Guðmundsdóttir Guðm. Ómar Óskarsson
Hannes I. Guðmundsson Ingibjörg E. Jóhannsdóttir
barnabörn, langömmubörn og langalangömmubörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, systir,
amma og langamma,
ÞÓRUNN STEFÁNSDÓTTIR
frá Skagaströnd,
lést á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum
Reykjanesbæ 31. ágúst sl. Útför hennar fer
fram frá Kálfatjarnarkirkju Vatnsleysuströnd
föstudaginn 12. september kl. 14.00.
Sigurður Kristinsson Hrafnhildur Bryndís Rafnsdóttir
Guðmundur Kristinsson
Lilja Kristinsdóttir
Margrét Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn faðir, tengdafaðir,
afi og bróðir,
STEFÁN B. GÍSLASON
lést á Hjúkrunarheimilinu Grund
4. septem ber. Útförin fer fram frá Neskirkju
fimmtudaginn 11. september kl. 15.00.
Guðný Jónsdóttir
Helga Björk Birgisdóttir Guðmundur Guðbrandsson
Óskar Ingi Stefánsson
Kjartan Stefánsson
Daldís, Arnþór, María, Hekla
og Guðmundur Gíslason
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR SÆMUNDSDÓTTIR
Klapparhlíð 1, Mosfellsbæ,
lést föstudaginn 5. september síðastliðinn í
faðmi fjölskyldunnar. Útför hennar fer fram
frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
11. september næstkomandi kl. 15.00.
Ólafur Guðmundsson
Elva Ösp Ólafsdóttir
Íris Eik Ólafsdóttir Bjarni Hólmar Einarsson
og ömmubörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
EINAR VALUR BJARNASON
læknir,
lést að kvöldi 5. september á hjúkrunar-
heimilinu Lundi, Hellu. Útförin fer fram
mánudaginn 15. september kl. 13.00
frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Blóm og kransar vinsamlegast
afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hans eru beðnir um að láta
hjúkrunarheimilið Lund njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Else Bjarnason
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
VIGDÍS ESTER EYJÓLFSDÓTTIR
Vallartröð 10, Kópavogi,
lést á líknardeild LSH föstudaginn
5. september.
Ingimar G. Jónsson
Valgerður Ingimarsdóttir Andrés Indriðason
Jón Ingimarsson Kristín H. Traustadóttir
Eyjólfur Ingimarsson Margrét Á. Gunnarsdóttir
Guðrún Hrönn Ingimarsdóttir Gunnar Hauksson
barnabörn og barnabarnabörn.
Minningarathöfn um
GUÐRÚNU HULDU
GUÐMUNDSDÓTTUR
hjúkrunarfræðing,
sem lést í Danmörku 15. júní sl. fer fram í
Dalvíkurkirkju laugardaginn 13. september
kl. 13.30.
Viggo Carlo Block
systkini, fjölskyldur þeirra og aðrir ættingjar.
ÁSDÍS SIF
GUNNARS-
DÓTTIR
Sýning Ásdísar
í Hafnarhúsinu,
Skipbrot úr
framtíðinni/
Sjónvarp úr
fortíðinni, er
vídeóinnsetning
sem hún segir
virkja heilan sal.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VIÐ VERÐ-
LAUNAAF-
HENDINGUNA
Erró, Ásdís Sif
Gunnarsdóttir
og Dagur B.
Eggertsson
borgarstjóri.