Fréttablaðið - 09.09.2014, Side 17

Fréttablaðið - 09.09.2014, Side 17
| 3 Þann 28. mars síðastliðinn gerðu Sálfræðingar Höfðabakka og Janus endurhæfing með sér þjónustusamning um að JE kaupi sértæka þjónustu af sálfræðing- um Höfðabakka. Hér er um að ræða þjónustu við fólk sem á við veikindi að stríða eða hefur lent í öðrum heilsufarslegum áföllum. Þarna er um að ræða frábæra samvinnu á sviði endurhæfingar og úrvinnslu vandamála þar sem hægt er að nota sértæka sál- fræðilega meðferð til að hjálpa fólki til betra lífs. Hjá Janusi endurhæfingu fer fram starfs- og atvinnuendur- hæfing. Markmið starfseminnar er að aðstoða fólk til að komast á vinnumarkaðinn og fyrir- byggja varanlega örorku. Þó að fyrirtækið hafi á að skipa liðlega þrjátíu sérfræðingum dugar það því miður ekki til og því er samvinna eins og hér um ræðir öllum aðilum til hagsbóta og þó allra mest þeim sem þjónustuna fá. Á Höfðabakkanum eru starf- andi á þriðja tug sérfræðinga með margs konar sérhæfingu og því auðvelt að finna hverju máli vandaðan farveg. Auðvitað er það þannig að þau mál sem okkur berast frá Janusi fá sérstakan forgang. Reynt er af fremsta megni að koma á virkri samvinnu milli aðila og finna bestu lausn sem til er fyrir skjól- stæðinginn. Að lokinni með- ferð sendir meðferðaraðili frá Höfðabakkanum skýrslu um meðferðarárangur og hugsanlegt framhald til ráðgjafans. Markmið meðferðarinnar er að koma skjól- stæðingnum til betra lífs gjarnan með virkri þátttöku í atvinnu- lífinu. SAMNINGUR UM SÁLFRÆÐIÞJÓNUSTU Meðferðarnámskeið fyrir átraskanir og þá einkum átkastaröskun (bulemia) er dæmi um meðferð sem boðið er upp á hjá sálfræðingum Höfðabakka. Þar er áhersla lögð á að aðstoða fólk við að öðlast heil- brigðara samband við mat. Þar eru til dæmis kenndar aðrar leiðir til að takast á við streitu og lífið sjálft en að nota mat, brjóta upp vanamynstur, skilja líkamann og hvernig endurtekin megrun hefur neikvæð áhrif og hætta að láta vigtina, eða boð og bönn um ákveðnar matartegundir, stjórna öllu. Einnig hafa verið haldin námskeið sem tengja saman þrautreyndar hugleiðsluaðferðir við vestræna sálfræði. Löng reynsla er að kenna MBCT (Mindful- ness Based Cognitive Therapy). Þar er hugrænni atferlismeðferð blandað saman við austrænar hug- leiðsluaðferðir. MBCT er margprófuð aðferð og hefur reynst vera öflug leið til að stýra streitu í daglegu lífi, auk þess sem námskeiðið fyrirbyggir endurtekið þunglyndi og kvíða. Annað námskeið, þar sem einnig er stuðst við forna hugleiðsluþekkingu, er nýtt námskeið um sam- kennd (compassion), en auk hugleiðslunnar byggir námskeiðið á breiðum grunni vestrænnar þekkingar, skilningi á þróun lífsins, þroskasálfræði og nýjum taugasálfræðilegum rannsóknum. Námskeiðið nýtist þeim sem vilja styrkja samkennd gagnvart sjálfum sér og öðrum og takast á við skömm og sjálfsgagnrýni. Framboð á námskeiðum fyrir fagfólk hefur einnig verið gott og þá einkum þjálfun í meðferðarleið sem kallast EMDR og hefur sýnt fram á góðan með- ferðarárangur í vinnu með áföll. Boðið verður upp á námskeið fyrir heilbrigðisstarfsmenn um kulnun og hluttekningarþreytu og eins námskeið um stuðning við syrgjendur. GÓÐ NÁMSKEIÐSAÐSTAÐA Hjá Sálfræðingum Höfðabakka starfar fagfólk með margvíslega sérþekkingu. Vegna þessa hefur verið hægt að bjóða upp á fjölbreytt námskeið byggð á gagnreyndum aðferðum bæði fyrir almenning og annað fagfólk. Fólk sem glímir við geðræna sjúkdóma eins og til dæmis þunglyndi eða kvíða og þeir sem þurfa á hjálpa að halda til að komast í gegnum erfiðar breyt- ingar, atburði eða lífsskeið leita til sálfræðinga. Þangað leitar líka fólk sem vill fjárfesta í sjálfu sér, ná betri árangri á einhverju sviði lífsins og bæta sjálft sig, líf sitt og líðan. Meðferð og ráðgjöf hjá sálfræðingi er alltaf sniðin að þörfum þess sem hana sækir og er byggð á traustum vísindaleg- um grunni. Hún getur verið bæði styttri og lengri. Sumir mæta í örfá viðtöl til að fá hjálp vegna afmarkaðra erfiðleika eða atburða en aðrir eru hjá sínum sálfræðingi yfir lengri tíma og ná þannig að viðhalda lífsgæðum þrátt fyrir andleg veikindi. Rétt eins og þeir sem búa við líkamlega veikindi eins gigt eða sykursýki eru í með- ferð hjá sínum sérfræðingum til lengri tíma. Til Sálfræðinga á Höfðabakka leita foreldrar með börn og unglinga, ungt fólk, fólk á miðjum aldri, eldra fólk og fólk í hárri elli. Á hverjum degi kemur þangað fjöldi einstaklinga og þar er veitt hjóna-, para- og fjölskylduráðgjöf. Þangað leitar til dæmis fólk sem hefur orðið fyrir áföllum, misnotk- un, slysum, ofbeldi, líkamlegum veikindum, einelti eða atvinnu- missi og fólk sem er að takast á við streitu, samskiptavanda, álag eða breytingar. Auk þeirra sem búa við andleg veikindi eins og þunglyndi, depurð, kvíðaraskanir, átraskanir, þráhyggju, streituraskanir eða hegðunarvanda og sækja meðferð í lengri eða skemmri tíma. Allir eru velkomnir til sálfræð- ings og flest stéttarfélög niður- greiða sálfræðimeðferð fyrir sína félagsmenn. Það getur skipt sköp- um varðandi líðan og lífsgæði að fara til sálfræðings þegar lífið er snúið og fyrir þá sem glíma við geðsjúkdóma er sálfræðimeðferð sjálfsögð lífsnauðsyn. ■ ALLIR VELKOMNIR Að fara til sálfræðings er sem betur fer ekki feimn- ismál lengur heldur sjálfsögð fagleg þjónusta fyrir fólk sem vill hámarka lífsgæði sín og heilbrigði. Til sálfræðinga leitar fólk á öllum aldri úr öllum hópum samfélagsins. GÓÐAR MÓTTÖKUR Móttökuritararnir Hólmfríður Gunnarsdóttir og Lísa Kristín Gunnarsdóttir spjalla við Kristínu Lindu Jónsdóttur sálfræðing og Margréti Blöndal geð- hjúkrunarfræðing. SAMSTARF Halldóra Bergmann er tengi- liður Janusar og Sálfræðinga Höfðabakka og handsalar hér samstarfssamninginn við Andrés Ragnarsson. VÍÐTÆK FAGÞEKKING Hjá Sálfræðingum Höfðabakka starfa; Aðalbjörg Heiður Björgvins- dóttir, Andrés Ragnarsson, Áslaug Kristins- dóttir, Edda Hannesdóttir, Einar Gylfi Jónsson, Guðrún Anna Jónsdóttir, Gyðja Eyjólfsdóttir, Halldóra Bergmann, Harpa Katrín Gísladóttir, Hólmfríður Gunnarsdóttir, Jóhann Thoroddsen, Kristín Linda Jónsdóttir, Lísa Kristín Gunn- arsdóttir, Margrét Arnljótsdóttir, Margrét Blöndal, Monika Sóley Skarphéðinsdóttir, Ragna Kristmundsdóttir, Rakel Davíðs- dóttir, Reynar Kári Bjarnason, Sigríður B. Þormar, Sigurður Ragnarsson, Soffía Elín Sigurðardóttir, Sólrún Dröfn Þorgríms- dóttir, Þórdís Rúnarsdóttir og Þórkatla Aðalsteinsdóttir. MYND/VALLI NÁMSKEIÐ Meðal þeirra sem haldið hafa námskieið hjá Sálfræð- ingum Höfðabakka eru Margrét Arnljótsdóttir og Þórdís Rúnarsdóttir.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.