Fréttablaðið - 09.09.2014, Qupperneq 18
FÓLK|HEILSA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
Hópur danskra vísinda-
manna við Háskólann í
Kaupmannahöfn kynnti
nýlega rannsókn á evrópskri
ráðstefnu um hjarta- og
æðasjúkdóma í Barcelona.
Vísindamenn höfðu rann-
sakað muninn á norrænum
mat og venjulegum mat á
heilsuna. Á sex mánuðum
léttist sá hópur sem borðaði
einungis gamaldags nor-
rænan mat mun meira en
hópurinn sem var á venju-
legu nútímafæði auk þess að
minnka líkur sínar á hjarta-
og æðasjúkdómum.
„Við höfum á undanförnum árum hallað okkur meira og meira að
amerísku mataræði. Þess vegna er skemmtilegt að horfa til fortíðar
okkar og skoða á hvaða mataræði Norðurlandabúar voru á árum
áður. Við ættum að horfa til fortíðar í mataræði okkar, skoða hvað við
getum framleitt sjálf, læra af gömlum uppskriftum og nútímavæða,“
segir Thomas Meinert Larsen, dósent við Háskólann í Kaupmanna-
höfn, í samtali við sænska ríkisútvarpið.
Norrænt fæði inniheldur svokallaðan steinaldarmat; ber, rótargræn-
meti, kál sem vex á norrænum slóðum, gróft brauð, fisk og kjöt af
dýrum sem lifa í náttúrunni. Thomas bendir á að rapsolíu, sem mikið
var notuð á Norðurlöndum, svipi til ólífuolíu frá Miðjarðarhafinu.
Fyrri norrænar rannsóknir hafa einnig bent til þess að norræn matar-
hefð hafi góð áhrif á lýðheilsu okkar.
Ákveðin tískubylgja er í Danmörku með að nota norrænt hráefni
með tilkomu veitingastaða á borð við Noma, sem sérhæfir sig í nor-
rænu fæði. Nafnið Noma er stytting á „nordisk mat“. Norrænt matar-
æði byggir á árstíðabundnum mat og að fólk borði fisk og grænmeti
að minnsta kosti tvisvar í viku.
NORRÆNN MATUR ER
GÓÐUR FYRIR HEILSUNA
Matur sem forfeður okkar og -mæður snæddu er,
samkvæmt danskri rannsókn, jafngóður fyrir heils-
una og matur sem kenndur er við Miðjarðarhafið.
EINS OG Í GAMLA DAGA Ættum við að horfa
á mataræði forfeðra okkur og sleppa pasta og
pitsum?
Hólabrekkuskóli tók upp svokallað vinaliðaverkefni síðastliðið vor. Verkefnið
gengur út á að hvetja nemendur
til meiri þátttöku í leikjum og af-
þreyingu í frímínútum og skapa
betri skólaanda. Þannig sjá vel
valdir nemendur í 4. til 7. bekk
skólans um leiki sem eiga að
höfða til allra krakka á fyrstu
skólastigum.
Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir,
kennari við Hólabrekkuskóla og
umsjónarmaður verkefnisins,
segir verkefnið í raun þríþætt.
„Fyrir utan að auka afþreyingar-
möguleika verður þetta til þess
að minni tími er fyrir stríðni og
leiðindi í frímínútum auk þess
sem krakkarnir fá meiri hreyf-
ingu.“
Vinaliðaverkefnið er norskt
að uppruna og hefur verið fram-
kvæmt í mörg hundruð grunn-
skólum þar í landi. Árskóli á
Sauðárkróki var fyrsti skólinn
á Íslandi til að taka það upp en
Hólabrekkuskóli var fyrsti skól-
inn á höfuðborgarsvæðinu sem
tók þátt.
„Nokkrir kennarar skólans
heyrðu af þessu verkefni á nám-
skeiði. Þeim leist svo vel á að
þeir fengu kennara úr Árskóla til
að halda fyrirlestur fyrir kennara
Hólabrekkuskóla. Við sáum strax
að þetta myndi henta hér og ég
var svo heppin að fá að stýra
þessu verkefni,“ segir Ragnheið-
ur en í framhaldinu voru tveir
kennarar frá Sauðárkróki fengnir
til að halda leikjanámskeið fyrir
vinaliða skólans. „Vinaliðar eru
valdir af bekkjarfélögum sínum,
fjórir úr hverjum bekk. Börnun-
um var gerð mjög góð grein fyrir
því að þetta væri ekki vinsælda-
kosning heldur átti að kjósa ein-
hvern sem þau treystu til að vera
góður við alla, því annars væri
ekki hægt að vera vinaliði,“ lýsir
Ragnheiður og segir kosninguna
hafa komið mjög vel út. Á síðustu
önn voru vinaliðar 36 en í ár
munu 40 vinaliðar skipta með
sér verkefnum. Hópnum er skipt
í tvennt og hver hópur sér um
tvær frímínútur í viku en vinalið-
ar aðstoða í frímínútum fjórum
sinnum í viku.
Ragnheiður segir verkefnið
hafa reynst mjög vel. „Okkur
finnst miklu minni vandamál
skapast í frímínútum. Þá er
krakkarnir mun glaðari og fljótari
út í frímínútur,“ segir hún. Verk-
efnið er nú fyrir krakka í 1. til 7.
bekk en Ragnheiður segir stefnt
að því að útfæra það fyrir ung-
lingadeildina líka.
Vinaliðaverkefnið hefur
lagst vel í allt skólasamfélagið.
„Foreldrafélagið styrkti okkur
til dæmis vel með alls kyns dóti
sem gerir starfið miklu auðveld-
ara,“ segir hún og bendir á að
aðrir skólar hafi sýnt þessu mik-
inn áhuga. ■ solveig@365.is
SKEMMTILEGRA Í FRÍMÍNÚTUM
FLOTT VERKEFNI Vinaliðar í 4. til 7. bekk Hólabrekkuskóla sjá um að allir finni eitthvað við sitt hæfi í lengstu frímínútum dagsins við
leiki og aðra afþreyingu. Allir mega vera með, stærri sem smærri, enda eru vinaliðar valdir út frá því hversu góðir þeir eru við alla.
VINALIÐAR Ragnheiður með flottum hópi vinaliða sem stjórna leikjum í frímínútum. MYND/VALLI
GAMAN Börnin eru alltaf spennt yfir að
fara í frímínútur. Sérstaklega þegar vina-
liðar eru að störfum. MYND/VALLI
Lágmúla
Laugavegi
Nýbýlavegi
Smáralind
Smáratorgi
Borgarnesi
Grundarfirði
Stykkishólmi
Búðardal
Patreksfirði
Ísafirði
Blönduósi
Hvammstanga
Skagaströnd
Sauðárkróki
Húsavík
Þórshöfn
Egilsstöðum
Seyðisfirði
Neskaupstað
Eskifirði
Reyðarfirði
Höfn
Laugarási
Selfossi
Grindavík
Keflavík
20% afsláttur í september
ibuxin rapid
Fæst hjá okkur án lyfseðils
Fluconazol
ratiopharm
Naso-ratiopharm
400 mg hraðvirkt ibuprofen
10 töflur og 30 töflur
150 mg fluconazol
1 hylki til inntöku
Xylometazolin hýdróklóríð
0,5 mg/ml og 1 mg/ml
10 ml nefúði