Fréttablaðið - 29.10.2014, Qupperneq 2
29. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 2
NÁTTÚRA „Hljóðið í fólki er ótrú-
lega gott. Það kemur mér eig-
inlega mest á óvart hvað þessi
mengun virðist hafa lítil áhrif á þá
sem eru með undirliggjandi sjúk-
dóma. Það finna allir fyrir þessu,
en menn eru vel upplýstir og taka
þessu með miklu jafnaðargeði,“
segir Elín Freyja Hauksdóttir,
læknir á Heilbrigðisstofnun Suð-
austurlands, um áhrifin af gríðar-
legri mengun sem barst til Hafnar
í Hornafirði um og eftir helgina.
Elín Freyja ákvað á sunnudag-
inn að hringja í alla sína skjólstæð-
inga sem glíma við sjúkdóma sem
gerir þá viðkvæmari en aðra fyrir
brennisteinsmengun frá eldgosinu
í Holuhrauni.
„Fólk upplifir þetta bara sem
ónæði, eins og vegna óveðurs.
Fólk upplifir þetta svipað og það
sé stórhríð úti og fátt annað að
gera en að halda sig heima,“ segir
Elín Freyja sem segir þetta eiga
jafnt við um full-
orðna sem börn
– sem taka því
vel þegar þau fá
fyrirmæli tengd
gosmenguninni.
Eins og komið
h e f u r f r a m
í fréttum þá
mældist meiri
mengun en áður
á byggðu bóli eftir að eldgosið
hófst í lok ágúst. Sló mælum upp
í 21.000 míkrógrömm á rúmmetra
sem er langt yfir hættumörkum.
Björn Ingi Jónsson, bæjar-
stjóri á Hornafirði, segir að allir
séu þess meðvitandi að mengun-
arskýið muni hellast yfir bæinn
að nýju, en loftgæði í bænum voru
góð í gær eftir að mengunarskýið
hafði lúrt yfir í rúmlega tvo sólar-
hringa. Mikil mengun var einnig í
tvo daga í liðinni viku.
Spurður hvort bæjaryfirvöld
hafi sest niður og rætt framhald-
ið – hvort einhverjar ráðstafan-
ir verði gerðar, segir Björn Ingi
að fátt sé hægt að gera til viðbót-
ar við það sem þegar hefur verið
gert.
„Þó að komi svona gusa aftur
þá eru allar stofnanir og forráða-
menn þeirra meðvitaðir um hvað
við getum gert. Mælingar hafa
verið bættar. Síritandi loftgæða-
mælir hefur verið settur upp. Þá
er lögreglan með handmæli sem
hún nýtir ef eitthvað er að ger-
ast,“ segir Björn Ingi, sem segir að
stefnt sé á að halda íbúafund, og fá
til fundarins jarðvísindamenn og
fulltrúa frá Almannavörnum.
„En við ráðum lítið við móður
náttúru, og menn taka því ein-
faldlega sem að höndum ber,“
segir Björn, sem hefur ekki heyrt
Hornfirðinga lýsa yfir sérstökum
áhyggjum af mengun frá Holu-
hrauni. svavar@frettabladid.is
Fátt annað að gera
en halda sig heima
Lækni á Höfn í Hornafirði kemur á óvart hversu lítil áhrif mengun frá eldgosinu
í Holuhrauni hefur á fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Ráðum lítið við móður
náttúru og tökum því sem að höndum ber. Gott hljóð í fólki á Höfn.
BJÖRN INGI
JÓNSSON
SÓL Í EITURBAÐI Er
nafn þessarar myndar
sem tekin var í Horna-
firði á sunnudag.
MYND/SVERRIR AÐALSTEINSSON
KANADA John Baird, utanríkisráðherra Kanada, Charles J. Cass-
idy, yfirmaður kanadíska flotans, og John Kerry, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, lögðu blómsveig að Gröf óþekkta hermannsins við
athöfn í Ottawa í Kanada í gær.
Kanadamenn minntust í gær Nathans Cirillo hermanns, sem var
skotinn til bana þar sem hann stóð við minnismerkið í síðustu viku.
Banamaðurinn skaut Cirillo áður en hann fór inn í þinghúsið. Þar hóf
hann skothríð sem endaði með því að hann skaut sjálfan sig til bana.
- jhh
Stjórnmálamenn komu saman við minningarstund:
Minntust kanadísks hermanns
Í OTTAWA John Kerry var viðstaddur minningarstundina í Kanada. NORDICPHOTOS/AFP.
HEILBRIGÐISMÁL Læknar á Sjúkra-
húsinu á Akureyri hófu verkfall
á miðnætti og stendur verkfall
þeirra yfir til miðnættis annað
kvöld. Bjarni Jónasson, for-
stjóri Sjúkrahússins á Akureyri,
segir stjórnendur stofnunarinn-
ar reyna sem mest að milda þau
áhrif sem verkfall lækna kunni
að hafa.
„Það er þannig að það eru
læknar á öllum vaktlínum og
öllum bráðatilvikum verður
sinnt. Þjónustan er sett upp
þannig að fjöldinn dugi til að
halda þeim sem eru hér í inn-
lögn í öruggum höndum. Síðan
tökum við á þeim tilvikum sem
upp munu koma,“ segir Bjarni.
Um tíu aðgerðum verður frest-
að á sjúkrahúsinu þessa tvo sól-
arhringa. Þessi röskun mun hafa
nokkur áhrif á sjúklinga en um
valkvæðar aðgerðir er að ræða.
„Þetta er auðvitað vont þegar
verkföll skella á en við munum
reyna allt hvað við getum til að
minnka óþægindin. Þjónusta dag-
göngudeilda verður til að mynda
nokkuð skert þessa tvo sólar-
hringa eins og við má búast í
svona aðgerðum.“ - sa
Læknar á Sjúkrahúsinu á Akureyri verða í verkfalli næstu tvo sólarhringa:
Reyna að milda áhrif sem mest
SAK Læknar á
Akureyri hafa lagt
niður störf í tvo
sólarhringa.
FRÉTTABLAÐIÐ/KK
SAMKEPPNISMÁL Forsvarsmenn
Mjólkursamsölunnar(MS) segja
fyrirtækið með öll tilskilin leyfi
til þess að kalla sig afurðastöð og
benda á að á þeim grundvelli hafi
stjórnvöld fjallað um fyrirtækið.
Því sé ekki rétt sem Ólafur M.
Magnússon haldi fram að MS sé
ekki afurðastöð.
Fréttablaðið sagði frá því í gær
að Ólafur hefði kært MS og KS
fyrir ólögmætt samráð. Byggir
Ólafur kæruna á því að MS sé í
raun ekki afurðastöð þar sem
Auðhumla, móðurfyrirtæki MS,
kaupi alla mjólk af bændum.
Lögfræðileg úttekt LEX lög-
mannsstofu, sem MS lét gera fyrir
sig, kemst að þeirri niðurstöðu að
MS sé réttilega afurðastöð í skiln-
ingi búvörulaga. Fram kemur að
MS starfi á grundvelli afurða-
stöðvaleyfis frá Matvælastofnun
og lúti eftirliti sem slík. „Þá ligg-
ur ljóst fyrir að bæði þau stjórn-
völd sem fara með framkvæmd
búvörulaga og Samkeppniseft-
irlitið telja Mjólkursamsöluna
ehf. vera afurðastöð í skilningi
þeirra,“ segir í tilkynningunni. - sa
Mjólkursamsalan hefur látið lögfræðistofu meta það hvort MS sé afurðastöð:
Öll tilskilin leyfi sem afurðastöð
MJÓLKURSAMSALAN starfar á grund-
velli afurðastöðvaleyfis. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HAMFARIR Vegurinn um Ólafs-
fjarðarmúla, milli Dalvíkur og
Ólafsfjarðar, var ófær bróður-
part gærdagsins eftir að snjóflóð
féll skömmu fyrir hádegi og lok-
aði honum. Enginn var á svæðinu
er flóðið féll en einn ökumaður ók
á það eftir að það féll.
Vinna við að opna veginn stóð
fram eftir degi en meta þurfti
hvort hætta væri á fleiri flóðum.
Þetta er fyrsta skráða snjóflóð
vetrarins og var stærð þess eitt
stig. - joe
Ólafsfjarðarmúli lokaður:
Fyrsta snjóflóð
vetrarins fallið
Guðrún Ágústa, eru menn á
villigötum?
„Ætli menn séu ekki frekar úti að
aka.“
Tuttugu umhverfisvænni strætisvagnar verða
teknir í notkun af Strætó bs. og þjónusta
aukin. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir er
verkefnastjóri hjá Strætó.
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarstjórn-
in í Frederiksberg í Danmörku
hefur ákveðið að gefa vinabæ
sínum, Hafnarfirði, jólatré fyrir
þessi jól eins og endranær. Þetta
segist Jørgen Glenthøj bæjar-
stjóri tilkynna með gleði til
bæjar yfirvalda í Hafnarfirði
með kveðju til bæjarbúa þar.
Glenthøj biður um, ef unnt er,
að Hafnfirðingar sendi mynd
af því þegar kveikt er á jóla-
trénu út til Frederiksberg. Þá
segist hann vona að Hafnfirð-
ingar fjölmenni á vinabæjamót í
Frederiksberg í maí.
- gar
Góð kveðja til Hafnfirðinga:
Fá jólatré frá
Frederiksberg
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl-
maður hefur verið ákærður fyrir
stórfellt fíkniefnalagabrot með
því að hafa staðið að innflutningi
á 555 MDMA-töflum og rúmlega
64 grömmum af kókaíni árið 2012.
Hægt hefði verið að framleiða
um 232 grömm af neysluefni úr
kókaíninu sem talið er að átt hafi
að selja í ágóðaskyni. Maðurinn
var handtekinn við komu til lands-
ins frá Kaupmannahöfn en efnin
fundust bæði innan klæða og inn-
vortis. Þá er hann einnig ákærður
fyrir að hafa haft 0,66 grömm af
maríjúana í sinni vörslu við húsleit
sama ár. - ktd
Flutti inn 555 MDMA-töflur:
Maður ákærð-
ur fyrir smygl
SPURNING DAGSINS
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Nýr 36% sýrður rjómi gerir gott enn betra.
Uppskriftir á gottimatinn.is
NÝTT
rjóminn af
sýrða rjómanum