Fréttablaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 26
Ferðir MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 20142
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmenn auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, s. 512-5446, jonatan@365.is
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Menningartengd ferðaþjón-usta hefur vaxið jafnt og þétt undanfarna áratugi
og er stór hluti af þeirri ferðaþjón-
ustu sem boðið er upp á í heimin-
um í dag. Einn þeirra Íslendinga
sem flétta iðulega saman ferða-
lögum og menningu er Selma Guð-
mundsdóttir, aðjúnkt við tónlist-
ardeild Listaháskóla Íslands, sem
hefur á undanförnum árum sótt
ýmsar óperuhátíðir og óperuhús í
Evrópu og Bandaríkjunum. Meðal
viðkomustaða Selmu undanfarin
ár má nefna Metropolitan-óper-
una í New York, Parísaróperuna,
Wagner-hátíðina í Bayreuth, Bæ-
versku ríkisóperuna í München,
Rossini-óperuna í Pesaro á Ít-
alíu og svo óperuhúsin í Berlín.
„Það er afar skemmtilegt að sam-
eina ferðalög til heillandi staða
og heimsóknir í óperuhús. Eink-
um getur verið gaman að gera það
í góðum hópi samferðamanna því
fátt er skemmtilegra en að stinga
saman nefjum eftir sýningar og
bera saman upplifunina yfir góðri
máltíð.“
Meðal verka sem Selma hefur
séð undanfarið er hluti af tíma-
mótauppsetningu á Nif lunga-
hringnum eftir Wagner í Metropol-
itan-óperunni árið 2012. Ári síðar
sá hún Niflungahringinn aftur í
München með félögum sínum í
Wagnerfélaginu og skömmu síðar
Parsifal í München. Í Parísaróper-
unni síðasta vor sá hún heillandi
uppfærslu á Tristan og Isolde eftir
Wagner auk óperunnar I Capuleti
e i Montecchi eftir Bellini. Í Berl-
ín hefur hún séð Tristan og Isolde
þar sem Kristinn Sigmundsson
söng König Marke með glæsibrag.
Í sömu borg sá hún Meistarsöngv-
arana og Lé konung þar sem Tómas
Tómasson fór á kostum, sem Sachs
í Meistarasöngvurunum og í titil-
hlutverki Lés konungs eftir Þjóð-
verjann Aribert Reimann. Í sumar
heimsótti Selma í fyrsta sinn hina
árlegu Rossini-hátíð sem hald-
in er í Pesaro á Ítalíu í yndislegu
litlu óperuhúsi auk þess sem hún
hefur sótt óperuhátíðina í Verona
sem haldin er utandyra. Þá er enn
eftir að telja Wagnerhátíðina í Bay-
reuth sem er haldin hvert sumar en
þangað ferðast hún nær árlega.
Opin fyrir öllu
Ef Selma ætti að nefna eitthvað sem
stendur upp úr á ferðum sínum
undanfarin ár nefnir hún óperu-
húsið í Bayreuth í Þýskalandi sem
er eitt fullkomnasta óperuhús
heims enda með óviðjafnanleg-
um hljómburði. „Richard Wagn-
er hannaði það sjálfur og reisti.
Hann hafði m.a. hljómsveit í hús-
inu í byggingarferlinu sem tryggði
þennan einstaka hljómburð sem
tekur öllu fram.“
Þótt óperur hafi löngum verið í
forgrunni ferðalaga Selmu reynir
hún stöðugt að vera opin fyrir öllu
því sem viðkomustaðirnir hafa upp
á að bjóða. „Metropolitan-óperan í
New York er til að mynda skemmti-
lega staðsett rétt við Central Park.
Ég fer alltaf að minningarreitnum
um John Lennon í garðinum og
svo er þar yndislegur veitingastað-
ur þar sem gaman er að snæða eftir
góðan göngutúr í garðinum. Fjöl-
mörg söfn eru í New York og hef ég
sérstakt dálæti á Frick Collection.“
Þegar óperuhátíðin í München
er haldin í júlí eru allar dásemd-
ir Bæjaralands innan seilingar að
sögn Selmu. „Þar má finna vötn
til að synda í og Alparnir bjóða
upp á gönguferðir. Svo er ótrúlega
heillandi að gera sér ferðir og skoða
hallir Lúðvíks 2. sem hann reisti í
Neuschwanstein, Linderhof og við
Chiemsee.“
Í Berlín er einnig mikið af bæði
söfnum og veitingastöðum. „Í sér-
stöku uppáhaldi hjá mér er Bók-
menntahúsið, Haus der Literatur, í
fallegum garði við Fasanenstrasse.
Þar er frábært kaffihús og matsala
og mjög fín bókabúð í kjallaran-
um.“
Það er þétt dagskrá fram
undan hjá Selmu næstu mánuði.
Í nóvember fer hún til Vínarborg-
ar þar sem hún sér tvær uppsetn-
ingar. Þaðan verður haldið til Fen-
eyja á aðrar tvær. „Einnig mun ég
sjá uppfærslu á Niflungahringn-
um í þýsku borginni Dessau í maí
á næsta ári auk þess sem ég mun
eyða nokkrum dögum á óperuhá-
tíðinni í München í júlí á næsta ári
þar sem er mikið úrval af óperum í
boði og mjög hár standard í flutn-
ingi.“
Heillandi heimur óperunnar
Það færist sífellt í vöxt að ferðamenn blandi menningarviðburðum saman við ferðalögin. Margir óperuunnendur fjölmenna til
Evrópu þar sem fjölmargar óperuhátíðir eru haldnar ár hvert auk þess sem óperuhúsin sýna mikið úrval ópera allt árið um kring.
Selma með Selmu Láru dóttur sinni við Wagner-leikhúsið í Bayreuth árið 2004.
MYND/ÚR EINKASAFNI
Skemmtigarðurinn Walt Disney World tilkynnti á dögunum að
reisa ætti sérstakan Frosin-garð í Disney World á Flórída.
Reiknað er með að ísi lagður ævintýraheimur norsku systranna
úr Frosin opni formlega snemma árs 2016. Þaðan í frá geta gest-
ir Disney World gengið inn í konungsríkið Arendelle til að endur-
upplifa og taka þátt í eftirlætisatriðunum sínum við ómþýða og
margverðlaunaða tónlistina úr Frosin. Vitaskuld fá þeir konung-
legar móttökur Elsu og Önnu og allt um kring skottast persónur úr
vinsælasta ævintýri Disney til þessa.
Óþreyjufullir hafa úr nógu að moða í millitíðinni. Þannig taka
Elsa drottning, Anna prinsessa, Kristján og sólskinselskandi snjó-
karlinn Ólafur þátt í jólaskrúðgöngu Mikka Músar og Elsa breyt-
ir kastala Öskubusku í glitrandi íshöll sína á hverju kvöldi á kom-
andi aðventu, yfir jól og áramót.
Ævintýraveröld Frosin verður á sama stað og Maelstrom hefur
verið í Escot, svæði sem helgað hefur verið sögu víkinga frá því
á níunda áratugnum í Disney World. Það hefur valdið aðdáend-
um víkingasagna vonbrigðum en Disney lofar að Maelstrom verði
opnað aftur á nýjum stað árið 2016.
Frosin í Disney World
Það stenst þær enginn; norsku prinsessurnar og systurnar úr teiknimyndinni Frosin.