Fréttablaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 6
29. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Ég skil ekki hvernig
Hæstiréttur komst að
þessari niðurstöðu og trúi
ekki að mér sé gert að
snúa aftur í þessar að-
stæður með börnin.
1. Hversu marga nýja vagna fær
Strætó á næsta ári?
2. Hver er stærsti hópur þeirra sem fá
endurhæfi ngarlífeyri?
3. Hversu margar skurðaðgerðir voru
framkvæmdar á Landspítalanum í
fyrra?
Svör:
1. 20. 2. Konur á aldrinum 18 til 35 ára.
3. 13.688.
*Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 25.5% virðis-
aukaskatt af söluverði. 20,32% afslátturinn
er alfarið á kostnað DORMA.
Ekki
missa
af
þessu
EBÓLA Frá því að ebólufaraldurinn
braust út hafa rúm tíu þúsund til-
felli sjúkdómsins verið skráð. Af
þeim hafa tæplega fimm þúsund
látið lífið. Þá er ótalinn sá fjöldi
sem látist hefur án þess hafa að
komist undir hendur lækna. Nær
allir sem látist hafa eru frá Gíneu,
Síerra Leóne og Líberíu.
Í grein sem birtist í The New
England Journal of Medicine er
því velt upp hver hafi verið fyrsti
einstaklingurinn til að smitast af
ebólu. Sá var tveggja ára dreng-
ur frá suðurhluta Gíneu, Emile
Ouam uono að nafni. Hann lést í
desember í fyrra en faðir hans
stendur einn eftir af fjölskyld-
unni.
Yfirvöld um allan heim hafa
gripið til ýmissa aðgerða til að
tryggja að faraldurinn breið-
ist ekki út. Ástralar hafa til að
mynda gripið til þess ráðs að
takmarka fjölda ferðamanna frá
áðurnefndum löndum. Læknar
og hjúkrunarfræðingar sem
snúa heim frá hjálparstarfi þurfa
margir að dvelja í sóttkví dagana
eftir heimkomu.
Í gær tilkynnti Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin að háskóla-
sjúkrahúsið í Lausanne í Sviss
væri að byrja að prófa bóluefni
gegn sjúkdómnum á fólki. Alls
munu 120 manns verða bólusettir,
þeir fyrstu næsta föstudag. Hluti
sjálfboðaliðanna mun í kjölfar-
ið halda til hjálparstarfa. Einnig
styttist í að tilraunir með bóluefni
fari fram í Kanada, Bandaríkjun-
um, Bretlandi og Malí. - joe
Stjórnvöld víða um heim hafa gripið til aðgerða til að hindra að faraldurinn breiðist út um hnöttinn:
Tæp fimm þúsund dauðsföll vegna ebólu
HJÁLPARSTARFSMAÐUR Læknir án
landamæra að störfum í Monróvíu,
höfuðborg Líberíu. Mestar líkur á smiti
hjálparstarfsmanna er í lok dags er þeir
afklæðast veiruþöktum hlífðargallanum.
DÓMSMÁL „Ég ætla bara að berj-
ast þangað til ég verð dregin
út. Það er í raun og veru ekk-
ert annað sem ég get gert. Ég er
að reyna að komast frá þessum
manni og ég ætla ekkert bara
að gefast upp,“ segir Ásta Gunn-
laugsdóttir, sem var í gær gert af
Hæstarétti að afhenda börn sín
tvö föður þeirra í Bandaríkjum.
Hæstiréttur sneri þar með við
dómi Héraðsdóms Reykjaness
sem áður hafði áður úrskurðað að
það myndi stefna andlegri heilsu
þeirra í hættu að vera tekin úr
umsjá móður þeirra. Þarf Ásta að
snúa aftur í fyrrverandi heimabæ
sinn í Poulsbo, Washington, innan
tveggja mánaða.
Dómur vegna barnakláms
Eiginmaður Ástu sem er Banda-
ríkjamaður og er 20 árum eldri
en hún, hafði að hennar sögn hlot-
ið dóm fyrir vörslu barnakláms
hér á landi skömmu áður en þau
kynntust árið 2006. Þá hafði
hann búið hérlendis í tíu ár. Þau
fluttu út til Bandaríkjanna 2007
þar sem Ásta varð fyrirvinna
þeirra þrátt fyrir að vera ekki
með atvinnuleyfi þar ytra þar til
að þau stofnuðu ísverksmiðju árið
2010.
Hæstiréttur taldi að þar sem
eiginmaður Ástu sagðist getað
útvegað henni vinnuvísa í gegn-
um fyrirtæki þeirra, þar sem hún
gæti unnið á meðan mál þeirra
færi fyrir dóm, gæti hún snúið
aftur til Bandaríkjanna.
„Eins og það sé einhver lausn á
vandanum að ég þurfi að fara að
vinna hjá manninum sem ég stend
í forræðisdeilu við og hefur hald-
ið mér í nokkurs konar ánauð í sjö
ár. Ég verði aftur algjörlega upp
á hann kominn. Mér finnst það
ótrúlegt.“
Algjörlega einangruð
Ásta segir að hún og börnin sem
eru tveggja og fjögurra ára gömul
hafi búið við óviðunandi aðstæður
og hún óttist nú um velferð þeirra.
Þau hafi búið við bág kjör og afar
slæman húsakost þar sem þau
notuðust við eldivið til að kynda
húsið. Hún hafi í raun ekki áttað
sig á aðstæðunum sem hún var í
fyrr en hún kom heim til Íslands
í apríl síðastliðnum í von um að
fá lán til að setja í rekstur fyrir-
tækisins. Þá hafi runnið upp fyrir
henni ljós að hún hafði lifað við
aðstæður sem væru með öllu óboð-
legar.
„Ég var algjörlega einangruð og
upp á hann komin. Hann skammt-
aði mér peningana og stjórnaði
algjörlega við hvern ég talaði og
hvað ég gerði. Ég sá um börnin,
heimilið og bar þungann af rekstri
og framleiðslu fyrirtækisins
okkar. Það var mjög erfitt. Stund-
um var ég með annað barnið á bak-
inu og hitt framan á mér á meðan
ég vann. Ég var hætt að hugsa um
sjálfa mig og allt sem sneri að mér
mætti afgangi þar sem ég þurfti
að komast yfir svo margt. Ég var
í rauninni eins og nokkurs konar
þræll. Þegar ég kom heim og gat
allt í einu hringt í vinkonur mínar
og gert það sem mig langaði án
þess að hann gæfi mér leyfi áttaði
ég mig á því að ég gat ekki farið
aftur út. Ég gat ekki boðið börnun-
um mínum upp á þetta.“
Börnin bera skaðann
Hún segir börnin sín hafa borið
skaða af þessum aðstæðum þar
sem velferð þeirra hafi alltaf
lotið í lægra haldi fyrir hagsmun-
um fyrirtækisins. Stelpan, sem
er fjögurra ára, hafi alist upp við
mikla streitu og hafi ekki þrosk-
ast eðlilega. Hún segir stelpuna
hafa tekið miklum framförum
eftir að þau komu til Íslands þar
sem hún er núna í leikskóla og
fær stuðning.
„Það var ekki pláss í hennar lífi
til þess að þroskast. Þau voru allt-
af með mér í vinnunni og þurftu
bara að hafa ofan af fyrir sér
sjálf. Þriggja ára gat hún sagt
þrjátíu orð. Það var alveg sama
þótt þau væru veik eða sofnuð
þegar honum datt í hug að það
þyrfti að fara niður í verksmiðju
að kvöldi til. Þá þurfti maður bara
að vekja þau og taka þau með. Ég
áttaði mig ekki á þessu þar sem
maður hugsaði alltaf bara um
næsta skref og svo næsta skref
því ef maður leyfði sér að hugsa
fram í tímann bugaðist maður.“
Ætlar ekki að gefast upp
Þegar Ásta er spurð hvernig
henni líði eftir að Hæstiréttur
kvað upp sinn dóm og henni var
gert að fara út með börnin, segir
hún að hún sé ekki farin að með-
taka niðurstöðuna eða átta sig á
hvað tekur við.
„Ég skil ekki hvernig Hæsti-
réttur komst að þessari niður-
stöðu og trúi ekki að mér sé gert
að snúa aftur í þessar aðstæður
með börnin. En ég ætla ekki að
gefast upp og mun berjast áfram
með það að leiðarljósi að búa
börnum mínum gott líf þar sem
þau finna fyrir öryggi og ást.“
hannarut@365.is
Berst fyrir börnin
Ástu Gunnlaugsdóttur var gert með dómi Hæstaréttar að afhenda börn sín föður
þeirra í Bandaríkjunum. Hún óttast um velferð þeirra og segir þau hafa búið við
slæman kost ytra. Ætlar að berjast áfram með hagsmuni þeirra að leiðarljósi.
GEFST EKKI UPP Ásta Gunnlaugsdóttir þarf að afhenda börn sín tvö til Bandaríkjanna samkvæmt dómi Hæstaréttar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VEISTU SVARIÐ?