Fréttablaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 27
SVANURINN MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 2014 Kynningarblað Nú þarf 25 prósent minna af þvottaefni í eina vél en notandinn fær nákvæm- lega sömu góðu virkni og áður. Búið er að þjappa öllum tegund- um af Neutral-þvottadufti enn meira saman og því er það orðið enn þá umhverfisvænna en það var áður,“ útskýrir Guðrún Hún- fjörð, vörumerkjastjóri Neutral á Íslandi. Minni umbúðir spara orku „Einnig er búið er að minnka umbúðirnar en svipaður fjöldi þvotta fæst út úr pakkanum og áður. Með því að minnka um- búðirnar sparast orkunotk- un, bæði í framleiðslu- og flutn- ingsferlinu, færri vörubíla og skip þarf til að flytja jafnmarga þvottaskammta og minni um- búðir draga einnig úr úrgangi,“ segir Guðrún og bendir á að minni skammtar í hverja vél þýði einnig að minna skolast út í umhverfið með þvottavatn- inu. Þá þurfi neytandinn ekki að bera eins mikið heim úr búð- inni og spari pláss í þvottahús- inu án þess þó að þurfa að kaupa þvottaefni oftar. Enn þá minni skammtar með Compact-vörunum „Neutral Compact-vörunum hefur verið þjappað enn meira saman og því þarf margfalt minna af því þvottaefni í hvern þvott. Neutral Compact er fram- leitt bæði fyrir litaðan þvott og hvítan. Það er Svansmerkt, sem staðfestir að það uppfyllir allar kröfur um umhverfisvænstu vör- urnar í flokknum.“ Þvegið við lægra hitastig „Allt þvottaefni frá Neutral, bæði fljótandi og duft, inniheld- ur ensím sem lyfta blettunum frá efninu sem gerir það að verk- um að þvotturinn verður hreinn við lægra hitastig en ella. Það fer betur með fatnaðinn að þvo við lægra hitastig og sparar að sjálf- sögðu orku sem hefur jákvæð áhrif á umhverfið.“ Strangar gæðakröfur Guðrún segir markmið Neutral að gera vörurnar eins umhverf- isvænar og hægt er, án þess að slaka á þeim ströngu kröfum sem fyrirtækið sjálft geri um gæði og ofnæmisprófanir. „Við leitumst stöðugt við að búa til betri vöru sem neytand- inn getur notað án þess að hafa áhyggjur af því að skaða um- hverfið eða auka hættu á ofnæmi í fjölskyldunni.“ Neutral-þvottaefni er nú enn umhverfisvænna en áður Neutral-þvottaduft er orðið enn umhverfisvænna en áður eftir breytingar sem gerðar hafa verið á því, nú þarf fjórðungi minna af þvottaefni í hverja vél. Markmið Neutral er að gera vörurnar eins umhverfisvænar og hægt er án þess að slaka á gæðakröfum. Neutral Compact fyrir litaðan þvott hreinsar burt blettina án þess að litirnir dofni. Neutral Compact fyrir hvítan þvott heldur hvítum og ljósum þvotti björtum og hreinum. Neutral Storvask er gott þvottaefni fyrir allan þvott. Guðrún Húnfjörð, vörumerkjastjóri Neutral á Íslandi, segir Neutral í stöðugri vöruþróun. MYND/ERNIR Við leitumst stöðugt við að búa til betri vöru sem neytandinn getur notað án þess að hafa áhyggjur af því að skaða umhverfið eða auka hættu á ofnæmi í fjölskyldunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.