Fréttablaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 10
29. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 10 HEILBRIGÐISMÁL Meðalaldur sjúkra- liða er um 52 ár og fer ört hækk- andi. Á þessu ári hafa 118 sjúkra- liðar fengið starfsleyfi en menn telja að þeir þyrftu að vera marg- falt fleiri til að manna lausar stöður sjúkraliða og koma í stað þeirra sem fara á eftirlaun. Raunar hafa heldur fleiri starfs- leyfi verið gefin út í ár en í fyrra þegar þau voru 97. „Sjúkraliðar eru að eldast. Þó að ungt fólk fái útgefin starfsleyfi sem sjúkraliði skilar það sér ekki inn á sjúkrastofnanirnar. Þeir ungu fara í önnur störf og töluvert margir hafa haldið til Noregs og starfa þar,“ segir Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Það vantar sjúkraliða sem eru yngri en 30, raunar má segja að það vanti heilu kynslóðirnar inn á sjúkrastofnanir sem menn telja afar slæmt því það sé unga fólkið sem komi með nýja þekkingu og ný við- horf. Talið er að það verði erfitt og kannski ógerningur að snúa þessari þróun við og fá yngra fólk til starfa. Kristín segir að þetta vandamál sé ekki nýtt af nálinni. Það hafi verið viðvarandi í mörg ár. Hún segir erfitt að hvetja fólk til að læra fagið á meðan laun og starfskjör séu jafn bágborin og raun ber vitni. „Það er gríðarlegt álag í þessu starfi. Í sparnaðarskyni eru menn líka stöðugt að minnka starfshlut- fall sjúkraliða og breyta vöktun- um. Það er stöðugt verið að krefj- ast meira vinnuframlags,“ segir Kristín og bætir við að sjúkraliðar fari heim með það á tilfinningunni að þeir hafi ekki náð að sinna starfi sínu eins vel og þeir vilji. „Þetta veldur því að sjúkraliðar eru margir hverjir haldnir kvíðaröskun,“ segir Kristín. Hún segir að stórir hópar sjúkraliða séu komnir á örorku vegna álags í vinnu. „Sjúkraliðafélagið er innan vébanda BSRB. Þeir eiga aðild að sjúkrasjóði samtakanna. Ég tók þátt í því að úthluta úr sjóðnum í gær. Þrátt fyrir að sjúkraliðar séu fámennur hópur innan BSRB fengu þeir um helming þeirra styrkja sem var úthlutað,“ segir Kristín og bætir við að það segi ýmislegt um stöðuna. johanna@frettabladid.is Þetta veldur því að sjúkraliðar eru margir hverjir haldnir kvíðaröskun. Kristín Á Guðmundsdóttir, formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Lítil endurnýjun í hópi sjúkraliða Sjúkraliðar eldast hratt og lítil endurnýjun er í stétt þeirra. Sjúkraliðar undir þrítugu fást ekki til starfa. Formaður Sjúkraliðafélagsins segir að margir í hennar félagi þjáist af kvíðaröskunum. Stórir hópar sjúkraliða séu komnir á örorku. LÍTIL ENDURNÝJUN Um þrjátíu prósent þeirra sem starfa á stofnunum fyrir aldraða eru ófagmenntaðir. Sjúkraliðar fást ekki til starfa, stéttin eldist hratt og lítil endurnýjun er hópi þeirra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Ryksuguúrval Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ 6.690,- Spandy heimilisryksugan • 1600W • afar hljóðlát • mikill sogkraftur > 18KPA • Hepa filter • margnota pokiDrive ryksuga í bílskúrinn • 1200W • 20 lítra • sogkraftur > 16KPA • fjöldi fylgihluta 7.490,- Model-LD801 Cyclon ryksuga Kraftmikil 9.890,- SVEITARSTJÓRNIR Bæjarfulltrúi úr Samfylkingunni á Seltjarnar- nesi leggur til að bæjarfulltrú- um verði aftur greitt fyrir setu í nefndum. Föst laun bæjarfulltrú- anna eru 26,52 prósent af þing- fararlaunum alþingismanna. Það svarar til um 173 þúsund króna. „Árið 2010 samþykkti bæjar- stjórn þær forsendur fyrir fjár- hagsáætlun að bæjarfulltrúar þiggja ekki laun fyrir nefndar- störf og hefur það verið sam- þykkt árlega síðan,“ segir í tillögu Guðmundar Ara Sigur- jónssonar. „Ég skil fullvel að bæjarstjórn hafi viljað leggja sitt af mörkum á tímum þegar blóð- ugur niðurskurður bitnaði á þjón- ustu bæjarins en ég vil þó taka til umræðu hér útfærsluna á þessum aðgerðum og hvort ekki sé tíma- bært, nú fjórum árum síðar, að endurskoða hana.“ Guðmundur segir brýnt „að stuðla að réttlátum greiðslum til bæjarfulltrúa eftir verkefnaálagi og auka gagnsæi út á við“. - gar Vill réttlátari skiptingu launagreiðslna til bæjarfulltrúa á Seltjarnarnesi: Fái borgað fyrir setu í nefndum GUÐMUNDUR ARI SIGURJÓNSSON Telur órétti að bæjarfulltrúar fái allir sömu laun burtséð frá hversu mörgum og hvernig nefndum þeir sitja í. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR SKATTUR Erindi skattrannsókn- arstjóra um kaup á gögnum um Íslendinga sem á einn eða annan hátt tengjast skattaskjólum er enn til skoðunar í fjármálaráðuneyt- inu. Erindið sendi skattrannsókn- arstjóri um miðjan september til ráðuneytisins. Skattrannsóknarstjóri skoð- aði í sumar og haust sýnishorn af gögnum sem embættinu var boðið að kaupa. Að sögn skattrannsókn- arstjóra gáfu sýnishornin vísbend- ingar um skattaundanskot. - ibs Gögn tengd skattaskjólum: Skoða enn kaup á leynigögnum FÉLAGSMÁL Hafnarfjarðarbær mátti skerða fjárhagsaðstoð til manns sem hafnaði boði um að taka þátt í atvinnuátaksverkefni. Þetta er niðurstaða úrskurðar- nefndar félagsþjónustu og hús- næðismála. Maðurinn kærði málið en úrskurðarnefndin segir bæinn hafa verið í rétti. „Úrskurðurinn eyðir því efasemdum sem komið hafa fram um lagastoð fyrir reglum Hafnarfjarðarbæjar,“ segir um málið á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga. - gar Úrskurður Hafnarfirði í vil: Máttu skerða fjárhagsaðstoð SVEITARSTJÓRNIR „Í ljósi umræðu um vopnaburð lögreglu felur bæjarráð bæjarstjóra að leita skýringa og svara við því hvort breytingar hafi orðið á þeirri grundvallarstefnu að lögregla skuli ekki vera búin skotvopn- um við almenn störf sín,“ segir í bókun sem bæjarráð Hafnar- fjarðar samþykkti á mánudag. Fram hefur komið að yfirvöld telja það ekki grundvallarbreyt- ingu á vopnabúnaði lögreglu að hingað til lands hafa verið fengnar 360 hríðskotabyssur frá norska hernum á þremur árum heldur sé um eðlilega endur nýjun að ræða. „Telur bæjarráð ástæðu til að árétta þá afstöðu bæjaryfirvalda í Hafnarfirði að ekki sé rétt að gera breytingar á þeirri megin- reglu nema að undangenginni opinni umræðu í samfélaginu og að höfðu samráði við alla hlutað- eigandi,“ undirstrikar hins vegar bæjarráð Hafnarfjarðar. - gar Vilja ekki grundvallarbreytingar á vopnaburði lögreglu án umræðu: Leita skýringa á vélbyssunum BIÐJA UM SAM- RÁÐ Bæjaryfir- völd í Hafnarfirði kalla eftir sam- ráði ef breyta eigi stefnu um vopnabúnað almennrar lög- reglu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR TYRKLAND, AP Vatnsflaumur hélt að minnsta kosti átján námuverkamönn- um í sjálfheldu í kolanámu í bænum Ermenek í Tyrklandi í gær. Pípa sem brast í námunni olli flóðinu. Ríkisstjórinn á svæðinu sagði að um 20 aðrir verkamenn hefðu náð að komast upp úr námuni áður en flóðið lokaði henni. Verkamennirnir átján voru fastir meira en 300 metra ofan í jörðinni. Unnið var að því að dæla vatni úr námunni frá þremur stöðum en björgunarteymi höfðu engu sambandi náð við mennina í gærkvöldi. - fbj Vatnsflóð hélt námuverkamönnum föstum í Tyrklandi: 18 menn í sjálfheldu í kolanámu PUMPA VATNI Björgunarmenn notuðu pípur til að dæla vatni upp úr kolanámunni. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP EINKALÍFSMÁL Persónuvernd óskar skýringa á því að skýrsla lögregl- unnar um mótmæli í Reykjavík á árunum 2008 til 2011 rataði „í hendur óviðkomandi aðila“ með persónugreinanlegum upplýsing- um. Lesa má nöfn lögreglumanna og óbreyttra borgara sem áttu að vera yfirskyggð í þeirri útgáfu skýrslunnar sem send var fjöl- miðlum. Lögreglan hefur beðist afsökunar. Persónuvernd segist þó enn ekki hafa fengið formlega kvörtun frá einhverjum hinna nefndu einstak- linga. - gar Persónuvernd vill skýringar: Lögregla svari fyrir nafnaleka KJARAMÁL Þorsteinn Víglunds- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, telur óráðlegt að semja við lækna um tuga prósenta launahækkun. Heimildir frétta- stofu herma að kröfur lækna séu um allt að 36 prósenta hækkun. Slíkt myndi valda verulegum titr- ingi á vinnumarkaði sem aftur gæti orsakað verðbólgu og minni framleiðni að sögn Þorsteins. Hann segir að til að réttlæta slíkt þurfi að sýna fram á að læknar hafi með einhverjum hætti dregist svo mikið aftur úr öðrum stéttum hér á landi. - hh SA leggst gegn hækkunum: Tuga prósenta hækkun erfið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.