Fréttablaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 29.10.2014, Blaðsíða 36
 | 8 29. október 2014 | miðvikudagur „Við Hildur höfum unnum náið saman í nokkur ár hjá Bakkavör. Það sem einkennir hana er hvað hún er fær í sínu starfi, traust, fylgin sér og mikill dugnaðarforkur. Hún hefur náð miklum árangri í viðskiptalífinu, ekki síst í tengslum við alþjóðlega uppbyggingu Bakkavarar þar sem hún var í lykilhlutverki í tíu ár. En Hildur er hógvær, býr yfir einstöku jafnaðargeði og lætur verkin tala. Hún er klár, nákvæm og það toppa hana fáir þegar kemur að skipulagshæfileikum. Það skemmtilega við Hildi er að í henni býr ævintýramanneskja sem vílar ekkert fyrir sér – en það sem stendur upp úr er frábær samstarfsmaður og heilsteypt manneskja með stórt hjarta.“ Ásdís Pétursdóttir, sviðsstjóri samskiptasviðs hjá Actavis „Hildur er mjög skipulögð og ég held að það séu fleiri klukkustundir í sólar- hringnum hjá henni en flestum öðrum. Hún áorkar mjög miklu, fylgist ótrúlega vel með á öllum sviðum ásamt því að stunda áhugamálin af miklum krafti. Ef það er ekki nóg að gera hjá henni þá ræðst hún bara á allt það sem hægt er að skipuleggja betur. Hún er frábær vinkona sem gott er að eiga að. Hún er mjög heilsteyptur persónuleiki og talar ekki af sér. Það er því mjög gott að leita til hennar þegar eitthvað er. Hún er töffari. Það tekur nokkurn tíma að kynnast henni þannig að hún hleypi að sér en þegar þangað er komið þá er maður aldrei einn.“ Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála Landsnets „Þetta er fjármögnun bankans og stýring á þessum ójöfnuði hans sem er verðtryggingarjöfnuður, gjaldeyrisjöfnuður og síðan lausa- fjárstýring,“ segir Hildur Árna- dóttir þegar hún er beðin um að útskýra hvað felst í starfi hennar sem forstöðumaður Fjárstýringar Íslandsbanka. „Fjárstýringin tengist öllum þáttum í starfsemi bankans og núna er í fullum gangi áætlana- gerð fyrir næstu fimm ár. Það þarf víst að fjármagna bankann og samhæfa inn- og útlán,“ segir Hildur og hlær. Hildur var ráðin til Íslands- banka í byrjun október en hún starfaði áður hjá Bakkavör Group. Hún er viðskiptafræðing- ur frá Háskóla Íslands, útskrifað- ist þaðan 1991, og löggiltur endur- skoðandi. „Eftir nám vann ég hjá KPMG sem endurskoðandi og einn af eig- endum félagsins allt til ársins 2004 þegar ég færði mig yfi r til Bakka- varar,“ segir Hildur. Hún starfaði sem fjármálastjóri Bakkavarar til ársins 2008. Þá fór hún að vinna sem stjórnarmað- ur í fullu starfi og sat til ársins 2010 í stjórnum fyrirtækja á borð við Skipti, Lýsingu, Bakkavör og Exista. Eftir það gerðist hún inn- anhússráðgjafi hjá Bakkavör þar sem hún sinnti aðallega endurfjár- mögnun samstæðunnar. „Að fara yfi r til Íslandsbanka er talsverð breyting því ég hef síð- ustu tíu ár unnið hjá framleiðslu- fyrirtæki sem þurfti á fjármögn- un að halda. Nú er ég hinum megin við borðið og þarf nú að fara að velta þeim þætti fyrir mér.“ Hildur er gift Ragnari Þ. Guð- geirssyni, ráðgjafa og stjórnar- formanni ráðgjafafyrirtækisins Expectus. Þau eiga tvö börn, 17 og 21 árs, og einn hund af Border Collie-kyni. „Á sumrin fer frítíminn aðallega í golf en ég er í kvennahópi í golfi sem heitir Vippurnar og í parahópi sem heitir Kollan,“ segir Hildur þegar hún er spurð um áhugamál. „Svo fi nnst mér gaman að lesa góðar bækur og fara í göngur. Ég fer í eina fjögurra daga gönguferð á ári með hóp sem heitir Krumma- fætur og hefur gengið saman í allavega fi mmtán ár en ég hef verið í honum í fi mm ár. Einnig var ég á tímabili mjög virk í veiðistússi en ég hef þó verið latari við það und- anfarin ár. Að lokum fer ég mikið á skíði en ég fór með vinahópnum í skemmtilega ferð til Colorado í Bandaríkjunum í janúar.“ Spilar golf á sumrin með Vippunum Hildur Árnadóttir var nýverið ráðin forstöðumaður Fjárstýringar Íslandsbanka en starfaði áður hjá Bakkavör Group. Hún er viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi. Vann um tíma sem stjórnarmaður í fullu starfi. NÁKVÆM OG HEILSTEYPT Á NÝJUM STAÐ Hildur ber meðal annars ábyrgð á lausafjárstýr- ingu og innlendri og erlendri fjármögnun Íslandsbanka. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Að fara yfir til Íslandsbanka er talsverð breyting því ég hef síðustu tíu ár unnið hjá fram- leiðslufyrirtæki sem þurfti á fjármögnun að halda. Nú er ég hinum megin við borðið. SVIPMYND Haraldur Guðmundsson | haraldur@frettabladid.is Skúli Mogensen kom eins og stormsveipur inn í íslenskt efnahagslíf eftir hrun. Hann var meðal fjárfesta sem komu að endurreistum MP banka þar sem hann fer enn með 9,9 prósenta hlut í gegnum eignar- haldsfélagið Títan B. ehf. og þá er Títan Fjárfestingarfélag ehf., sem er að fullu í hans eigu, eigandi alls hlutafjár í Wow Air. Fyrirtækið er stórhuga þrátt fyrir að hafa tapað miklu fé á síðustu árum og tilkynnti á dög- unum um beint áætlunarfl ug til Boston í Bandaríkjunum frá og með 27. mars á næsta ári og til Washington D.C. frá og með 4. júní. Skúli er gestur í nýjasta þætti Klinksins sem má nálgast á forsíðu Vísis. SKÚLI MOGENSEN „Einhver dýrasti skóli sem þú getur farið í“ Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@frettabladid.is Viðtalið við Skúla Mogensen er hægt að sjá í þættinum Klinkinu á www.visir.is. Þú tekur fljótlega sjálfur við sem forstjóri Wow Air árið 2012. Veistu alveg hvað þú ert að gera? „Ég tel mig vita það í dag en ég skal fúslega játa að við vissum það ekki þegar við fórum af stað. Við gerðum okkur ekki grein fyrir því hvað það er raunverulega að vera með lág- gjaldaflugfélag. Þegar við fórum af stað vorum við ekki með neinn fókus á hliðartekjur. Við vorum í of miklum mæli að selja í gegnum þriðja aðila og vorum ekki búin að fjárfesta í tækni- og netmálum. Það hafa verið gerð fullt af mistökum í fyrsta fasa þessa félags.“ Fórstu þetta þá bara á hnefanum og reynslunni eða þurfti þú að fara í sjálfsmenntun í rekstri flugfélaga og hvernig gerir maður það? „Það hafa margir sagt að þetta sé einhver dýrasti skóli sem þú getur farið í. Það má ekki gleyma því að það hefur enginn gert þetta, eins og við erum að gera þetta, áður á Íslandi. Það hefur aldrei verið raunverulegt lággjaldaflugfélag starfrækt á Íslandi. Fólk sem hefur reynslu á Íslandi kemur í raun úr gamla skólanum. Iceland Express var ekki lággjaldaflugfélag, alls ekki. Ég hef farið mjög mikið erlendis og verið meira og minna þar oft á tíðum. Hitt marga koll- ega og reynt að læra.“ Hvar liggja tækifærin fyrir ykkur að keppa við Ice- landair í flugi til Banda- ríkjanna? „Það hefur ríkt einokun í flugi til og frá Norður-Ameríku í fjölda ára á meðan það er mjög mikil samkeppni í flugi til Evrópu. Við erum mjög spennt að geta boðið upp á ódýr fargjöld til Bandaríkjanna og byrjum á þessum tveimur stöðum. Þetta eru þekktir staðir fyrir Íslendinga og Ísland er vel kynnt þarna. Miðað við móttökurnar sem við fengum þá ætlum við okkur að halda áfram að vaxa Bandaríkja- megin.“ Hvernig getið þið boðið svona ódýrar flugferðir til Banda- ríkjanna? „Helsta ástæðan er sú að við erum með nýrri og mun sparneytnari flugvélar. Olíukostnaður er einn þriðji af rekstrarkostnaði flugfélaga. Við erum með litla yfirbyggingu, eingöngu þessa skrifstofu á Íslandi og enga skrifstofu og starfsfólk úti í heimi. Við seljum allt í gegnum okkar eigin vefsíður, milliliðalaust, það er mikill sparnaður í því. Þá er eng- inn fjármagnskostnaður á félaginu.“ Tap Wow Air hefur frá stofnun numið 1.304 millj- ónum króna og þú hefur lagt félaginu til samtals 1.807 milljónir króna í gegnum Títan. Þetta lítur ekki sérstaklega vel út? „Það fer eftir því hver rýnir í tölurnar. Mér finnst þetta reyndar líta mjög vel út og miðað við umfang félagsins þá er þetta ekki mikil fjárfesting. Ef þú setur þetta í samhengi við skráð félög á Íslandi þá er velta Wow Air í ár í kringum 11 milljarðar króna. Við áætlum að vaxa 50-60 prósent á næsta ári. Meðal- vöxtur í úrvalsvísitölunni er í kringum 3-4 prósent. Við erum með jákvæða afkomu á þriðja ársfjórðungi og ég reikna með jákvæðri afkomu á seinni hluta þessa árs. Það er fullkomlega eðlilegt við uppbyggingu flugfélags að það þarfnist fjárfestingar. Ég ætla mér að halda áfram að fjárfesta í félaginu.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.