Fréttablaðið


Fréttablaðið - 29.10.2014, Qupperneq 6

Fréttablaðið - 29.10.2014, Qupperneq 6
29. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| FRÉTTIR | 6 Ég skil ekki hvernig Hæstiréttur komst að þessari niðurstöðu og trúi ekki að mér sé gert að snúa aftur í þessar að- stæður með börnin. 1. Hversu marga nýja vagna fær Strætó á næsta ári? 2. Hver er stærsti hópur þeirra sem fá endurhæfi ngarlífeyri? 3. Hversu margar skurðaðgerðir voru framkvæmdar á Landspítalanum í fyrra? Svör: 1. 20. 2. Konur á aldrinum 18 til 35 ára. 3. 13.688. *Að sjálfsögðu fær ríkissjóður 25.5% virðis- aukaskatt af söluverði. 20,32% afslátturinn er alfarið á kostnað DORMA. Ekki missa af þessu EBÓLA Frá því að ebólufaraldurinn braust út hafa rúm tíu þúsund til- felli sjúkdómsins verið skráð. Af þeim hafa tæplega fimm þúsund látið lífið. Þá er ótalinn sá fjöldi sem látist hefur án þess hafa að komist undir hendur lækna. Nær allir sem látist hafa eru frá Gíneu, Síerra Leóne og Líberíu. Í grein sem birtist í The New England Journal of Medicine er því velt upp hver hafi verið fyrsti einstaklingurinn til að smitast af ebólu. Sá var tveggja ára dreng- ur frá suðurhluta Gíneu, Emile Ouam uono að nafni. Hann lést í desember í fyrra en faðir hans stendur einn eftir af fjölskyld- unni. Yfirvöld um allan heim hafa gripið til ýmissa aðgerða til að tryggja að faraldurinn breið- ist ekki út. Ástralar hafa til að mynda gripið til þess ráðs að takmarka fjölda ferðamanna frá áðurnefndum löndum. Læknar og hjúkrunarfræðingar sem snúa heim frá hjálparstarfi þurfa margir að dvelja í sóttkví dagana eftir heimkomu. Í gær tilkynnti Alþjóðaheil- brigðisstofnunin að háskóla- sjúkrahúsið í Lausanne í Sviss væri að byrja að prófa bóluefni gegn sjúkdómnum á fólki. Alls munu 120 manns verða bólusettir, þeir fyrstu næsta föstudag. Hluti sjálfboðaliðanna mun í kjölfar- ið halda til hjálparstarfa. Einnig styttist í að tilraunir með bóluefni fari fram í Kanada, Bandaríkjun- um, Bretlandi og Malí. - joe Stjórnvöld víða um heim hafa gripið til aðgerða til að hindra að faraldurinn breiðist út um hnöttinn: Tæp fimm þúsund dauðsföll vegna ebólu HJÁLPARSTARFSMAÐUR Læknir án landamæra að störfum í Monróvíu, höfuðborg Líberíu. Mestar líkur á smiti hjálparstarfsmanna er í lok dags er þeir afklæðast veiruþöktum hlífðargallanum. DÓMSMÁL „Ég ætla bara að berj- ast þangað til ég verð dregin út. Það er í raun og veru ekk- ert annað sem ég get gert. Ég er að reyna að komast frá þessum manni og ég ætla ekkert bara að gefast upp,“ segir Ásta Gunn- laugsdóttir, sem var í gær gert af Hæstarétti að afhenda börn sín tvö föður þeirra í Bandaríkjum. Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms Reykjaness sem áður hafði áður úrskurðað að það myndi stefna andlegri heilsu þeirra í hættu að vera tekin úr umsjá móður þeirra. Þarf Ásta að snúa aftur í fyrrverandi heimabæ sinn í Poulsbo, Washington, innan tveggja mánaða. Dómur vegna barnakláms Eiginmaður Ástu sem er Banda- ríkjamaður og er 20 árum eldri en hún, hafði að hennar sögn hlot- ið dóm fyrir vörslu barnakláms hér á landi skömmu áður en þau kynntust árið 2006. Þá hafði hann búið hérlendis í tíu ár. Þau fluttu út til Bandaríkjanna 2007 þar sem Ásta varð fyrirvinna þeirra þrátt fyrir að vera ekki með atvinnuleyfi þar ytra þar til að þau stofnuðu ísverksmiðju árið 2010. Hæstiréttur taldi að þar sem eiginmaður Ástu sagðist getað útvegað henni vinnuvísa í gegn- um fyrirtæki þeirra, þar sem hún gæti unnið á meðan mál þeirra færi fyrir dóm, gæti hún snúið aftur til Bandaríkjanna. „Eins og það sé einhver lausn á vandanum að ég þurfi að fara að vinna hjá manninum sem ég stend í forræðisdeilu við og hefur hald- ið mér í nokkurs konar ánauð í sjö ár. Ég verði aftur algjörlega upp á hann kominn. Mér finnst það ótrúlegt.“ Algjörlega einangruð Ásta segir að hún og börnin sem eru tveggja og fjögurra ára gömul hafi búið við óviðunandi aðstæður og hún óttist nú um velferð þeirra. Þau hafi búið við bág kjör og afar slæman húsakost þar sem þau notuðust við eldivið til að kynda húsið. Hún hafi í raun ekki áttað sig á aðstæðunum sem hún var í fyrr en hún kom heim til Íslands í apríl síðastliðnum í von um að fá lán til að setja í rekstur fyrir- tækisins. Þá hafi runnið upp fyrir henni ljós að hún hafði lifað við aðstæður sem væru með öllu óboð- legar. „Ég var algjörlega einangruð og upp á hann komin. Hann skammt- aði mér peningana og stjórnaði algjörlega við hvern ég talaði og hvað ég gerði. Ég sá um börnin, heimilið og bar þungann af rekstri og framleiðslu fyrirtækisins okkar. Það var mjög erfitt. Stund- um var ég með annað barnið á bak- inu og hitt framan á mér á meðan ég vann. Ég var hætt að hugsa um sjálfa mig og allt sem sneri að mér mætti afgangi þar sem ég þurfti að komast yfir svo margt. Ég var í rauninni eins og nokkurs konar þræll. Þegar ég kom heim og gat allt í einu hringt í vinkonur mínar og gert það sem mig langaði án þess að hann gæfi mér leyfi áttaði ég mig á því að ég gat ekki farið aftur út. Ég gat ekki boðið börnun- um mínum upp á þetta.“ Börnin bera skaðann Hún segir börnin sín hafa borið skaða af þessum aðstæðum þar sem velferð þeirra hafi alltaf lotið í lægra haldi fyrir hagsmun- um fyrirtækisins. Stelpan, sem er fjögurra ára, hafi alist upp við mikla streitu og hafi ekki þrosk- ast eðlilega. Hún segir stelpuna hafa tekið miklum framförum eftir að þau komu til Íslands þar sem hún er núna í leikskóla og fær stuðning. „Það var ekki pláss í hennar lífi til þess að þroskast. Þau voru allt- af með mér í vinnunni og þurftu bara að hafa ofan af fyrir sér sjálf. Þriggja ára gat hún sagt þrjátíu orð. Það var alveg sama þótt þau væru veik eða sofnuð þegar honum datt í hug að það þyrfti að fara niður í verksmiðju að kvöldi til. Þá þurfti maður bara að vekja þau og taka þau með. Ég áttaði mig ekki á þessu þar sem maður hugsaði alltaf bara um næsta skref og svo næsta skref því ef maður leyfði sér að hugsa fram í tímann bugaðist maður.“ Ætlar ekki að gefast upp Þegar Ásta er spurð hvernig henni líði eftir að Hæstiréttur kvað upp sinn dóm og henni var gert að fara út með börnin, segir hún að hún sé ekki farin að með- taka niðurstöðuna eða átta sig á hvað tekur við. „Ég skil ekki hvernig Hæsti- réttur komst að þessari niður- stöðu og trúi ekki að mér sé gert að snúa aftur í þessar aðstæður með börnin. En ég ætla ekki að gefast upp og mun berjast áfram með það að leiðarljósi að búa börnum mínum gott líf þar sem þau finna fyrir öryggi og ást.“ hannarut@365.is Berst fyrir börnin Ástu Gunnlaugsdóttur var gert með dómi Hæstaréttar að afhenda börn sín föður þeirra í Bandaríkjunum. Hún óttast um velferð þeirra og segir þau hafa búið við slæman kost ytra. Ætlar að berjast áfram með hagsmuni þeirra að leiðarljósi. GEFST EKKI UPP Ásta Gunnlaugsdóttir þarf að afhenda börn sín tvö til Bandaríkjanna samkvæmt dómi Hæstaréttar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.