Fréttablaðið - 29.10.2014, Qupperneq 22
| 6 29. október 2014 | miðvikudagur
Tæpt ár er liðið frá því að Árni
Oddur Þórðarson tók við sem
forstjóri Marels af Theo Hoen.
Ástæða forstjóraskiptanna var
sú að stjórn þótti fyrirtækið ekki
starfa eftir þeirri stefnu sem sett
hafði verið um rekstur félagsins
og afkoman hafði valdið vonbrigð-
um. Árni Oddur segir að stefnan
hafi verið sett á að reka fyrirtæk-
ið á hagkvæman hátt en jafnframt
að vaxa mjög kröftuglega í Asíu,
Suður-Ameríku, Afríku og víðar
til jafns við Evrópu og Bandarík-
in. Jafnframt þyrfti að samþætta
þau félög sem Marel hefur keypt
á undanförnum árum. „Niðurstað-
an varð að mati stjórnarinnar þá í
nóvember að ég myndi skipta um
starf og fara úr stjórnarformanns-
starfi nu í það að verða forstjóri.
Við skulum muna það að við vorum
ekki að breyta stefnu félagsins,
hún hefur verið sú sama frá 2006
að minnsta kosti, en við vildum
aðlaga reksturinn að stefnunni,“
segir Árni Oddur.
Rekstrarárangur var óviðunandi
Var það ekki að takast fram að
þeim tíma? Árni Oddur segir að
rekstrarárangur 2013 hafi verið
óviðunandi, samdráttur í tekjum
hafi verið sjö prósent og og hagn-
aður dregist saman um 33 prósent.
Árni Oddur segir að samdráttur í
tekjum hafi í sjálfu sér ekki verið
óviðunandi miðað við það að það
hafi komið upp hrossakjötsskand-
all í Evrópu og fuglafl ensa í Kína
sem hafi gert það að verkum að
viðskiptavinir Marels þurftu að
endurhugsa alla virðiskeðjuna.
„En það sem var ekki nægjanlega
gott við sjö prósent samdrátt er
að fasti kostnaðurinn er það mik-
ill í félaginu með átján verksmiðj-
ur að hagnaðurinn dróst saman
um 33 prósent. Við viljum vera
meira dýnamísk og meira sveifl u-
jafnandi,“ segir Árni Oddur. Í lok
síðasta árs hafi því verið kynnt-
ar breytingar á uppsetningu á
framkvæmdastjórn. Framleiðslu-
stýring og innkaupastýring var
þá sett upp þvert á fyrirtækið
og það sama verði gert í nýsköp-
un. Með þessum hætti geti þessi
svið stutt betur við framleiðslu-
einingar í kjöti, kjúklingi, fi ski og
áframvinnslu. Í upphafi árs voru
áherslur til að skerpa á rekstrinum
kynntar. Árni Oddur leggur mikla
áherslu á að verið sé að skerpa
áherslur og samþætta þau fyrir-
tæki sem Marel hefur keypt, en
ekki endurskipuleggja reksturinn.
Margar skýringar á bættum rekstri
Má rekja þann viðsnúning sem
hefur orðið til hagræðingar eða
breyttra markaðsaðstæðna? Árni
Oddur segir að fl eiri en einn þáttur
skýri bættan rekstur Marels. „Því
er ekki að leyna að markaðsað-
stæður eru góðar. Þær eru búnar
að vera mjög góðar síðustu tvö
árin en voru mjög slæmar 2011.
Ef við horfum á okkar viðskipta-
vini þá er það sem skiptir veru-
legu máli eftirspurn eftir þeirra
vörum,“ segir Árni Oddur. Verð á
korni og olíu skipti líka máli. Það
hafi þrefaldast árið 2011. „En í ár
er eftirspurn umfram framleiðslu-
getu viðskiptavina okkar. Og korn-
verð og orkuverð nokkuð stöðugt,
frekar lækkandi en hækkandi en
það skiptir máli að það sé stöðugt,“
segir hann. Það hafi líka verið
skerpt á markaðssókninni. Í stað
þess að horfa til þess hvaða vörur
sé verið að selja sé núna horft til
þess hvaða þörfum félagið er að
sinna. „Gróft áætlað erum við
að horfa á að okkar tekjustreymi
skiptist í þrennt. Marel er að
endur nýja og stækka verksmiðjur
viðskiptavina sinna, þá að megin-
efni til viðskiptavina í Evrópu og í
Bandaríkjunum, félagið er að reisa
nýjar verksmiðjur á nýmörkuðum
á borð við Suður-Ameríku, Asíu
og Afríku og í þriðja lagi eru það
varahluta- og þjónustusamningar.
Þannig að í staðinn fyrir að horfa
á hvaða tæki við erum að selja þá
erum við að horfa á hvaða þörfum
við erum að mæta.“
Uppgjör Marel á þriðja fjórð-
ungi lítur vel út. Sala jókst um
tæp 20%, hagnaður um meira en
60 prósent og pantanabók stendur
vel. Á efnahagsreikningi sést að
viðskiptavild jókst um sex millj-
ónir evra, hvernig skýrirðu það?
„Það er einungis vegna þess að við
keyptum fyrirtæki í Danmörku á
öðrum ársfjórðungi sem var að
sinna þjónustu og viðhaldi við-
skiptavina í Danmörku og Svíþjóð.
Við viljum sinna þeim viðskiptum
sjálfir. Þannig að við keyptum
þann aðila, sem var þjónustuaðili
þar, á fyrsta ársfjórðungi og við-
skiptavildin jókst um það kaup-
verð,“ segir Árni Oddur.
Verið að sameina fimm félög
Geturðu lýst fyrir mér þeim hag-
ræðingaraðgerðum sem þið hafi ð
farið í frá því að þú tókst við sem
forstjóri? Árni Oddur segir að
fyrsta verkefnið hafi verið að lýsa
því sem til stóð að gera. „Við erum
með fi mm félög sem við erum að
sameina. Og við sögðum að leið-
arvísirinn væri að sameina allar
deildir sem væru að sinna sömu
viðskiptavinaþörf og byggðu á
sömu grunntækni,“ segir Árni
Oddur.
Á vegum Marel séu reknar 18
verksmiðjur og til standi að hafa
þær færri og stærri. Til dæmis
hafi nú þegar tvær verksmiðjur
verið sameinaðar. „Ef við tökum
fyrst laxaverksmiðjuna sem er
mjög skemmtilegt dæmi af því
að þar eru engar uppsagnir, þar
erum við að takast á við aukinn
vöxt frá viðskiptavinum okkar og
erum með geysilega sterka mark-
aðshlutdeild í tækjabúnaði í laxa-
vinnslu. Við erum með yfi r 50%
markaðshlutdeild í því. Þá fl ytj-
um við frá Norresund í Danmörku
yfi r í Støvring í Danmörku í nýtt
og glæsilegt húsnæði, vel tækjum
búið, klárum það í fyrsta og öðrum
ársfjórðungi og vinnum á fullum
afköstum í þriðja ársfjórðungi,“
segir Árni Oddur. Núna geti fyrir-
tækið framleitt mun meira á mun
hagkvæmari máta, sem sé gott því
ræktun á laxi hafi aukist um ell-
efu prósent á ári síðustu fi mmtán
árin vegna vinsælda Omega3 og
sushi. „Þetta tókst okkur að gera
án þess að nein trufl un yrði gagn-
vart viðskiptavinum. Við færðum
allan þann kostnað í gegnum bæk-
urnar í fyrsta og öðrum ársfjórð-
ungi og við þurftum að reka tvær
verksmiðjur samtímis til þess að
viðskiptavinurinn yrði ekki fyrir
neinum áföllum, fengi vöruna í
réttum gæðum á réttum tíma. Nú
erum við komin í nýja húsnæðið,“
segir hann. Hitt dæmið sé erfi ð-
ara. Fyrirtækið sé að fl ytja verk-
smiðju í Oss í Hollandi sem þjón-
ust aði kjötiðnaðinn og var með 140
starfsmenn og fækka þar um sex-
En það sem var
ekki nægjan-
lega gott við sjö
prósent samdrátt
er að fasti kostnað-
urinn er það mikill
í félaginu með átján
verksmiðjur að
hagnaðurinn
dróst saman um
33 prósent. Við
viljum vera meira
dýnamísk og meira
sveiflujafnandi.
Minnka kostnað um fjóra
Árni Oddur Þórðarson tók við sem forstjóri Marels fyrir tæpu ári og miklar breytingar hafa verið gerðar á rekstrinum
að reka fyrirtækið á Íslandi án undanþága frá gjaldeyrishöftum. Hann segir að um 40 prósent tekna komi af sölu var
VIÐTAL
Jón Hákon Halldórsson
jonhakon@frettabladid.is
FORSTJÓRI Í ÁR Árni Oddur segist vilja að fyrirtækið sé dýnamískara en það hafi verið og það þurfi að geta tekist á við sveiflur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI