Fréttablaðið - 29.10.2014, Page 28

Fréttablaðið - 29.10.2014, Page 28
Svanurinn MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 20142 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir, geira@365.is, s. 512-5036 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal. Innkaupanetið er nýtt verkefni fyrir fyrirtæki sem vilja vinna að umhverfismálum með því að leggja áherslu á vistvæn inn- kaup og að kaupa inn umhverfis- merktar vörur. Fyrirtæki sem taka þátt í Innkaupanetinu fá hjá okkur upplýsingar og einfaldar leiðbein- ingar um hvernig best sé að bera sig að. Þau fá jafnframt að auglýsa þátttökuna í verkefninu á heima- síðu sinni, auk þess sem lógó allra þátttakenda verður birt á heima- síðu Innkaupanetsins,“ útskýrir Anna Sigurveig Ragnarsdóttir, sér- fræðingur hjá Umhverfisstofnun, en stofnunin hefur yfirumsjón með Svaninum, opinberu umhverfis- merki Norðurlandanna hér á landi. Vistvæn innkaup draga úr umhverfisáhrifum Hún segir fyrirtæki oft og tíðum kaupa inn gríðarlegt magn vöru sem getur verið framleidd á afar ólíka vegu og á misjafnlega um- hverfisvænan hátt. „Með því að skýra innkaupaferla og styðjast við umhverfismerki í innkaup- um er oft hægt að minnka heild- arumhverfisáhrif fyrirtækisins umtalsvert.“ Anna Sigurveig segir hægt að finna merktar vörur víða og í fjölmörgum vöruflokkum. „Allar vörur sem eru merkt- ar Svaninum eða öðru áreið- a n le g u u m- hverfismerki er u a l men nt bæði umhverf- isvænni og betri fyrir heilsuna en gengur og gerist með sambæri- legar vörur. Þá er búið að setja kröfur um allt er varðar vöruna, allt frá vöggu til grafar. Má þar nefna hvernig hráefni er notað í framleiðsluna, hvernig hún hegð- ar sér á meðan á notkun stend- ur og hvað verður um hana þegar henni er fargað. Einnig eru gerðar kröfur varðandi umbúðir, gæði og endingu vörunnar því litlu þjón- ar að vera með vöru sem er um- hverfisvæn ef gæðin eru ekki full- nægjandi. Með því að styðjast við umhverfismerki í innkaupum er því auðvelt að sýna fram á að umhverfisáhrif vegna innkaupa minnki,“ segir Anna Sigurveig. Góðar undirtektir Umhverfisstofnun er að sögn Önnu Sigurveigar nú þegar byrj- uð að leita til áhugasamra fyrir- tækja. „Viðbrögðin hafa verið mjög góð og fyrirtækin sýna verk- efninu mikinn áhuga. Í dag lang- ar fjöldann allan af fyrirtækjum, sem eru að gera góða hluti í um- hverfismálum, að gera starf sitt sýnilegra. Eins eru mörg fyrir- tæki sem vilja vera umhverfisvæn en vita ekki hvar þau eiga að hefj- ast handa.“ Anna Sigurveig segir hægt að ná góðum árangri í umhverfismálum og spara heilmikið með því að skoða innkaupamálin og ætti það að henta öllum fyrirtækjum. Hún veitir nán- ari upplýsingar á anna.ragnarsdott- ir@umhverfisstofnun.is. Umhverfisvænni fyrirtæki Innkaupanetið er nýtt verkefni á vegum Umhverfisstofnunar sem fer af stað 14. nóvember næstkomandi. Það er hugsað fyrir fyrirtæki sem vilja auka vistvæn innkaup og minnka umhverfisáhrif. Fjölmörg fyrirtæki hafa sýnt verkefninu áhuga. Fyrirtæki sem taka þátt í Innkaupanetinu fá upplýsingar og einfaldar leiðbeiningar um hvernig best er að bera sig að. GLANSANDI GÓÐUR ÁRANGUR, LÁGMARKSÁHRIF Á UMHVERFIÐ GLITRA er sérþróað með tilliti til eiginleika íslenska vatnsins, sem þýðir að minna magn þarf af uppþvottaefni. GLITRA uppþvottavélatöflur eru Svansmerktar, sem er trygging þín fyrir því að varan hefur bestu mögulegu virkni en lágmarksáhrif á umhverfið. Með því að nota Svansmerktar uppþvottavélatöflur eins og GLITRU leggur þú þitt af mörkum til umhverfisverndar. Það er hagkvæmt fyrir þig og umhverfið. Anna Sigurveig Ragnarsdóttir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.