Fréttablaðið - 29.10.2014, Síða 30

Fréttablaðið - 29.10.2014, Síða 30
KYNNING − AUGLÝSINGSvanurinn MIÐVIKUDAGUR 29. OKTÓBER 20144 VANDIÐ VALIÐ Á BLAUT ÞURRKUM OG BLEYJUM Notkun á blautþurrkum er mikil en þær eru mismunandi að gæðum. Foreldrar ættu að vera vakandi yfir því hvaða innihaldsefni geta verið í bleyjum og blautþurrkum sem notaðar eru. Mörg efni eru notuð við framleiðslu á pappírsbleyjum, má þar nefna sellulósakvoðu, bómull, plastefni, lím, ilm- og litarefni. Sumar bleyjur innihalda krem og ilmefni. Athugið að ilmefnin geta valdið ofnæmi. Ef hugað er að náttúrunni, húð barnsins og hollari vörum ættu foreldrar að velja umhverfisvottaðar bleyjur og blautþurrkur. Margar blautþurrkur innihalda bæði ilm- og rotvarnarefni. Rotvarnarefnin paraben geta haft hormónaraskandi áhrif og ýmis ilmefni geta valdið ofnæmi. Svansmerktar blautþurrkur inni- halda hvorki paraben né ilmefni. Á síðu Umhverfisstofnunar er fólki bent á eftirfarandi: • Veljum umhverfisvottaðar bleyjur, hvort heldur um er að ræða tau- eða pappírsbleyjur • Veljum bleyjur sem ekki innihalda ilmefni og krem • Notum minna af blautþurrkum - vatn og þvottapoki kemur oftast að jafn góðum notum. • Veljum blautþurrkur án ilmefna og parabena, til dæmis Svans- merktar vörur. Svansmerktar vörur fyrir ungbörn mega ekki innihalda ilmefni. UPPFYLLA STRANGAR KRÖFUR Þegar fólk velur Svansmerktar vörur hvetur það fyrirtæki til að framleiða vörur sem uppfylla ströngustu umhverfis-, heilsu- og gæðaskilyrði. Svanurinn gerir strangar kröfur til framleiðslu vöru og þjónustu, svo sem um: ● Hráefnanotkun ● Orkunotkun ● Notkun hættulegra efna ● Útblástur og losun efna í vatn og jarðveg ● Umbúðir ● Flutninga ● Förgun og endurvinnslu Grand Hótel er eitt þeirra fyrirtækja á Íslandi sem fengið hafa Svansvottun. GEFÐU GRÆNAR JÓLAGJAFIR Jólin eru hátíð ljóss og friðar en líka hátíð neyslunnar. Umhverfisstofnun vekur neytendur til umhugsun- ar og gefur góð ráð til að minnka umhverfisáhrif jóla. Að mörgu er að hyggja við val á jólagjöfum og um að gera að nota ímyndunaraflið við innpökkunina. ● Veljið gæði frekar en magn. Forðist óvandaðar eftirlíkingar sem bila oftast fljótt og enda í ruslinu. ● Leitið að Svani. Svansmerktar vörur fást í öllum helstu verslunum og úrval þeirra fer stöðugt vaxandi. ● Gerið kröfur sem neytendur. Máttur neytenda er mikill því þeir geta aukið eftirspurn eftir umhverfisvænni vörum og þá eykur markaðurinn framboðið. ● Gefðið heimatilbúna gjöf. Hvar liggja hæfileikarnir? Í prjónaskap, sultugerð eða listum? ● Gefið upplifun. Bjóðið í leikhús, á námskeið eða í ferð með útivistarfélagi. ● Gefið áskrift. Gefið sjónvarpssjúklingi áskrift að góðri sjónvarpsrás og tónlistarunnandanum áskrift að tónlistarvefverslun. ● Gefið bágstöddum. Öll þekkjum við fólk sem á allt og vantar ekkert. Gefið til góðs málefnis í þeirra nafni og sendið þeim kort sem útskýrir hvernig gjöfin mun nýtast til góðs.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.