Fréttablaðið - 29.10.2014, Qupperneq 50
29. október 2014 MIÐVIKUDAGUR| SPORT | 26
Íslenska landsliðið í handbolta mætir í kvöld Ísraelsmönnum í undankeppni EM
2016 og á sunnudag mætir liðið Svartfellingum, en lokakeppni Evrópumótsins fer
fram í Póllandi 2016.
Í annað sinn frá árinu 2000 náði Ísland ekki að tryggja sér sæti í lokakeppni
heimsmeistaramótsins, sem fram fer í Katar í janúar. Strákarnir töpuðu fyrir Bosn-
íu í umspili í sumar, en það virtist enginn sjá fyrir.
Leikirnir við Bosníu hafa aldrei verið gerðir upp, en í upphafi skyldi endinn
skoða. Undirbúningur fyrir leikina gegn Bosníumönnum var í skötulíki, jafnvel
þótt íslenska liðið hafi leikið vináttuleiki gegn Austurríki og síðan Portúgal hér
heima.
Leikirnir gegn Portúgal voru líklega tímaskekkja, en leikmenn Íslands mættu
örþreyttir í það verkefni eftir að hafa verið undir álagi með félagsliðum sínum
víða um Evrópu. Steininn tók hins vegar úr á blaðamannafundi fyrir leikinn gegn
Bosníu þar sem kunnur grínari úr sjónvarpinu hélt uppi stuðinu á fundinum fyrir
einn mikilvægasta landsleik liðsins síðustu ár.
Blaðamenn horfðu forviða á skemmtikraftinn láta vaða á súðum og svo virtist
sem þjálfarar íslenska landsliðsins hefðu ekki haft hugmynd um uppákomuna.
Blaðamenn sem voru á fundinum voru orðlausir, en höfðu hins vegar ekki vit á því
að standa upp, þakka fyrir sig og ganga út.
Það er góðra gjalda vert að auka útbreiðslu handboltans og vekja áhuga á liðinu
með ýmsum hætti, en þegar svona leikir bíða er slíkt ótækt. Það er tími og staður
fyrir sprell og að sama skapi tími og staður fyrir alvöruna.
Íslenska landsliðið í handbolta hefur verið aðalsmerki íslenskra íþróttakappliða
í rúman áratug. Árangur liðsins hefur verið magnaður og leikmenn íslenska liðsins
nánast þjóðareign.
Tapið fyrir Bosníu var ekki leikmönnunum einum að kenna, heldur klikkaði allt
í tengslum við rítúalið í kringum leikinn. Slík mistök má ekki gera aftur.
Leikmenn Íslands ætla sér í lokakeppni EM í Póllandi. Leikmenn þess í dag eru
margir hverjir í betra formi en oftast áður. Ætti því að vera
hvatning fyrir þá sem standa á þröskuldinum og bíða þess
að fá tækifæri.
Ég er sannfærður um að íslenska landsliðið kemur
tvíeflt til baka. Það þarf ekki bara stuðning frá HSÍ
heldur þinn stuðning. Vegna þess að án áhorfenda
gerir íslenska landsliðið ekkert á heimavelli. Það yrði
sannarlega áfall ef Íslandi kæmist ekki í lokakeppnina
í Póllandi, en ég er sannfærður um að það tekst. Það
gerist samt ekki af sjálfu sér.
Eins og kom fram í spjalli mínu við Guðjón Val Sig-
urðsson, fyrirliða landsliðsins, í vikunni, þá
vita strákarnir mæta vel að þeir brugðust.
Ekki bara þjóðinni heldur fyrst og fremst
sjálfum sér. Þeir eru hungraðir, og ef þig
langar að sjá þetta frábæra lið svara fyrir
sig, þá verður þú í Höllinni í kvöld. Strák-
arnir hafa fyrir löngu unnið sér inn þinn stuðning.
UTAN VALLAR
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON
gudjon.gudmundsson@365.is
ÞETTA ER EKKERT GRÍN
FÓTBOLTI KR-ingar réðu í gær Bjarna Guðjóns-
son sem nýjan þjálfara liðsins og mun hann
taka við búinu af Rúnari Kristinssyni sem
hefur á síðustu sumrum náð frábærum árangri
með liðið. Bjarni var fyrirliði KR í fjórum af
fimm titlum félagsins undir stjórn Rúnars og
gjörþekkir því allt hjá KR.
KR hefur unnið sex Íslandsmeistaratitla eftir
að 31 árs biðinni lauk á hundraðasta afmælis-
árinu 1999. Fjórir þjálfarar hafa unnið þessa
sex titla og allir eiga það sameiginlegt að hafa
spilað yfir 60 leiki með KR í efstu deild. Bjarni
skapar sér sérstöðu því enginn hinna varð
Íslandsmeistari með KR sem leikmaður.
Loga Ólafssyni og Teiti Þórðarsyni tókst ekki
að gera KR að Íslandsmeistara en undir stjórn
Loga vann liðið eina titilinn á síðustu 18 árum
(bikarinn 2008) sem hefur unnist undir stjórn
þjálfara sem spilaði ekki með KR.
Enginn fastráðinn þjálfari KR á árunum 1977
til 1997 spilaði á sínum yngri árum fyrir KR og
engum tókst að gera liðið að Íslandsmeisturum
þótt KR-ingar hafi orðið tvisvar bikarmeistar-
ar undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar (1994 og
1995). Það voru fyrstu titlar félagsins frá 1968.
Það er ekki nóg með að Bjarni eigi að baki
langan feril með KR heldur er nýr aðstoðar-
þjálfari hans, Guðmundur Benediktsson,
fimmti markahæsti leikmaður KR í efstu deild.
Rúnar var með Pétur Pétursson sem aðstoðar-
mann og þá, líkt og nú, sameinast leikreyndir
KR-ingar í brúnni í Vesturbænum. Nú er að sjá
næsta sumar hvort Vesturbæingar séu búnir að
uppgötva hið eina og sanna meistaramót. - óój
Bjarni fellur vel inn í meistaramót KR-inga
KR hefur unnið sex Íslandsmeistaratitla frá 1999 og alla undir stjórn þjálfara sem spiluðu sjálfi r með liðinu.
NÝIR MENN Í BRÚNNI Bjarni Guðjóns-
son og Guðmundur Benediktsson stilltu
sér upp fyrir ljósmyndara á blaðamanna-
fundinum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Meistaraþjálfarar KR-
inga frá 1999 til 2014
ATLI EÐVALDSSON 1999
Lék 65 leiki með KR frá 1990 til 1993.
PÉTUR PÉTURSSON 2000
Lék 75 leiki með KR frá 1987 til 1991.
WILLUM ÞÓR ÞÓRSSON 2002 OG 2003
Lék 120 leiki með KR frá 1981 til 1989.
Guðmundur Benediktsson aðstoðaði 2003.
RÚNAR KRISTINSSON 2011 OG 2013
Lék 140 leiki með KR frá 1987 til 1994 og 2007.
Pétur Pétursson var aðstoðarmaður hans.
BJARNI GUÐJÓNSSON NÝR ÞJÁLFARI KR
Lék 108 leiki með KR frá 2008 til 2013.
Guðmundur Benediktsson aðstoðar hann.
Helgi Már Karlsson
Löggiltur leigumiðlari
Löggiltur fasteignasali
534 1024 / 897 7086
hmk@jofur.is
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
TIL LEIGU
Tangarhöfði 2, 110 Reykjavík
Verslunar-, iðnaðarhúsnæði
Stærð 284 fm.
Laust frá 1. nóvember 2014.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Til leigu gott 284 fm. verslunar-, iðnaðar- og/eða lagerhúsnæði á áberandi stað. Verslunarsalur með
flísum á gólfi og góðri lýsingu, afstúkuð skrifstofa, kaffistofa og wc. Rafdrifin verslunarhurð, góðir
sýningargluggar. Laust frá 1. nóvember 2014.
Laus störf hjá Akraneskaupstað
Eftirfarandi störf eru laus til umsóknar hjá Akraneskaupstað:
• Staða umsjónarkennara í Brekkubæjarskóla
• Staða aðstoðarmatráðs í leikskólanum Garðaseli
• Staða matráðs á leikskólanum Vallarseli
Nánari upplýsingar um störfin er að finna á heimasíðu
Akraness, www. akranes.is
HANDBOLTI Strákarnir okkar í
íslenska landsliðinu í handbolta
hefja leik í undankeppni EM 2016
í kvöld þegar liðið mætir Ísra-
el í Laugardalshöllinni klukkan
19.30. Strákarnir þurfa að hrista
af sér vonbrigðin rosalegu frá því
í sumar þegar liðið tapaði fyrir
Bosn íu í umspili um sæti á HM.
Guðjón Valur Sigurðsson lands-
liðsfyrirliði var hreinskilinn í við-
tali við íþróttadeild á mánudaginn
þegar hann sagðist hafa orðið var
við andlega þreytu í kringum leik-
ina, og Aron Kristjánsson lands-
liðsþjálfari tekur undir orð fyrir-
liðans.
Litum í eigin barm
Aron Kristjánsson, landsiðsþjálfari í handbolta, viðurkennir að andleg þreyta og
vanmat hafi verið til staðar gegn Bosníu. Nú er stefnt á fyrsta sætið í riðlinum.
„Alveg klárlega. Við erum búnir
að greina þetta fram og til baka og
ræða við alla leikmenn. Yfirskrift-
in var vanmat og andleg þreyta.
Þegar vanmat er í gangi þá kemur
andlega þreytan fram og meiðslin
verða meiri. Menn fara í aðgerðir
sem þeir þurfa kannski að fara í
og svo framvegis. Menn halda að
þetta sé í lagi, en svo allt í einu
stöndum við uppi með mörg afboð
og marga menn meidda,“ sagði
Aron við Fréttablaðið í gær, en nú
á að spýta í lófana og koma sér á
EM í Póllandi sem fram fer í janú-
ar 2016.
„Við þurfum að nýta þann kraft
sem gefst úr svona áfalli. Þó menn
hafi verið að klára góð tímabil með
sínum félagsliðum í fyrra þá eyði-
lögðu þessir leikir sumarið fyrir
mönnum og þeir eru með óbragð í
munni. Menn eru virkilega hugar-
farslega vel stemmdir og tilbúnir
að leggja mikið á sig fyrir landslið-
ið. Það byrjar núna strax og það er
alveg klárt að við ætlum að lyfta
okkur aftur upp í hæstu hæðir.
Þessi undankeppni er gríðarlega
mikilvæg upp á það,“ sagði Aron.
Landsliðsþjálfarinn tekur það
ekkert inn á sig að liðið sé gagn-
rýnt fyrir tapið gegn Bosníu. Hann
skilur manna best þær kröfur sem
gerðar eru til liðsins.
„Við áttum að vinna Bosníu, það
er bara svoleiðis. Við horfum allir
í eigin barm og viðurkennum að
þetta var ekki nógu gott. Við erum
okkar hörðustu gagnrýnendur og
það er kannski kostur okkar liðs
að menn eru tilbúnir að líta inn á
við og fara í naflaskoðun. Ef þú ert
ekki tilbúinn í það þá bætirðu þig
aldrei,“ sagði Aron.
Ísraelska liðið er ekki hátt skrif-
að og tapaði fyrir Finnum í aðdrag-
anda Íslandsfararinnar. Auk þess
eru Svartfellingar og Serbar með
í riðlinum og markmiðið er skýrt.
„Við stefnum á fyrsta sætið, en
markmið númer eitt er að komast
á EM. Við ætlum samt að reyna
að vinna þennan riðil. Við unnum
EM-riðilinn fyrir mótið 2014 gegn
sterkum liðum og það er það sem
við viljum,“ sagði Aron Kristjáns-
son. tomas@365.is
NÝ KEPPNI
Aron Kristjánsson er
klár í slaginn gegn
Ísraelsmönnum í Laugar-
dalshöllinni í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPORT