Fréttablaðið - 12.02.2015, Blaðsíða 10
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR |
Stjórnarandstaðan telur ESB verða tímafrekt mál en stjórnarflokkarnir nefna málið ekki
Óðalsostur hefur verið á borðum landsmanna frá
árinu 1972 þegar Mjólkursamlag KEA hóf framleiðslu
hans á Akureyri. Fyrirmynd hans er Jarlsberg,
frægasti ostur Norðmanna. Óðalsostur er mildur með
örlítinn möndlukeim og skarpa, sæta, grösuga tóna.
Frábær á morgunverðarborðið, hádegishlaðborð eða
bara einn og sér.
www.odalsostar.is
ÓÐALSOSTUR
TIGNARLEGUR
„Stærð mála er skilgreiningar-
atriði og oft eru þau mál sem
verða kannski pólitískt
stór frekar
lítilfjörleg,“
segir Guðlaugur
Þór Þórðarson,
varaformaður
þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins.
„Ég vona hins vegar að
við náum að klára ný lög
um opinber fjármál. Fjár-
málaráðherra lagði þau fram
í vor og síðan aftur í haust og
fjárlaganefnd vann í því máli
í sumar og vinnur enn. Lögin
hafa það markmið að auka
festu og ábyrgð í opinberum
fjármálum og taka upp þá
siði sem hafa reynst hvað
bestir hjá nágrannalöndum
okkar. Ég vona að það verði
stóra málið, en ýmis önnur
álitamál verða auðvitað rædd.
Þegar minnst er á stór mál,
þá eru gjaldeyrishöftin auð-
vitað annað gríðarlega stórt
mál.“
➜ Opinber fjármál
„Stóra óvissan er hvort þeir
komi annars vegar með
ESB-tillögu og hins vegar
varðandi kvót-
ann. Að öðru
leyti eru afnám
gjaldeyrishafta
og mál tengd
uppgjörum
slita búanna, sem boðuð
hafa verið með vorinu,
stærstu málin,“ segir Helgi
Hjörvar, formaður þing-
flokks Samfylkingarinnar.
Hann segir einnig
einboðið að umræða tengd
yfirvofandi kjarasamn-
ingum setji svip sinn á
þingstörf.
„Þar gæti til dæmis liðk-
að fyrir gerð kjarasamninga
ef menn tækju á húsnæðis-
málum eins og verkalýðs-
hreyfingin hefur kallað eftir
og ráðherrann boðað. Þá
má nefna virkjanafrumvarp
Jóns Gunnarssonar, Seðla-
bankann, Fiskistofumálið
og langan lista deilumála.“
➜ ESB og kvótinn
Helgi Hrafn Gunnarsson,
formaður þingflokks Pírata,
segist hafa búist við að
stærstu mál
vorþingsins yrðu
almannavarna-
frumvarp eða
frumvarp um
fiskveiðistjórn-
un. „En það er búið að draga
í land með þau bæði. Eftir
stendur að þeir eru aftur
farnir að hóta með ESB.
Maður fer eiginlega að halda
að þeim leiðist, en það
sofnar allavega enginn yfir
þeirri umræðu. Það má búast
við átökum um það ef það
verður lagt fram.
Ef ríkisstjórnin heldur
áfram þeirri góðu venju að
hætta við það sem hún er að
pæla verður kannski meiri
tími í þingmannamál.“
Sjálfur segist Helgi Hrafn
helst hafa viljað að umræðan
snErist um grunngildi eins
og lýðræði, tjáningarfrelsi og
friðhelgi einkalífsins.
➜ Átök um ESB
Það stefnir í átakatíma á Alþingi,
verði öll boðuð frumvörp ríkis-
stjórnarinnar lögð fram. Þegar bíða
45 frumvörp ráðherra afgreiðslu,
á ýmsum stigum, og miðað við
umfang þeirra mála sem ætlunin
er að afgreiða fyrir vorið er ljóst
að halda verður vel á málum ef
þeir 37 fundardagar sem eftir eru
á dagskrá Alþingis eiga að duga til
að þau verði öll að lögum.
Heimildarmönnum Fréttablaðs-
ins ber saman um að störf þings-
ins muni fyrst og fremst ráðast af
tveimur tillögum sem boðaðar hafa
verið; annars vegar þingsályktunar-
tillögu utanríkisráðherra um að
draga umsókn um aðild að Evrópu-
sambandinu til baka og hins vegar
frumvarpi sjávar útvegs- og land-
búnaðarráðherra til breytinga á
lögum um stjórn fiskveiða. Ráð-
herrar Framsóknarflokksins bera
þessi mál bæði uppi.
Þrátt fyrir að oddvitar ríkis-
stjórnarflokkanna gefi lítið fyrir
ósætti á milli flokkanna, er tölu-
verð ólga innan flokkanna beggja.
Steinakast í geitungabú
Heimildarmenn Fréttablaðsins
eru sammála um það að enginn
efnislegur ágreiningur sé á milli
stjórnar flokkanna um að slíta form-
lega viðræðum við ESB. Sjálfstæð-
isflokkurinn lofaði þjóðaratkvæða-
greiðslu um framhald viðræðnanna,
en innan flokksins virðist sú skoðun
njóta meirihlutafylgis að mikilvæg-
ara sé að halda samstarfsflokknum
góðum. Því verði tillagan studd,
með hangandi hendi þó.
Sú skoðun er þó ríkjandi innan
flokksins að tillagan sé óþörf. Hún
muni engu breyta um stöðuna,
engar viðræður séu í gangi við ESB
og formleg breyting á stöðu Íslands
sem umsóknarlands skipti litlu. Til-
lagan muni hins vegar vekja litla
hrifningu stjórnarandstöðunnar,
sérstaklega Samfylkingarinnar
og Bjartrar framtíðar og það muni
setja sinn svip á þingstörfin. Fram-
lagning tillögunnar sé því eins og
að kasta steinum í geitungabú.
Á móti kemur að í baklandi
Framsóknarflokksins eru fjölmarg-
ir sem vilja slíta öll tengsl við Evr-
ópusambandsumsókn fyrri ríkis-
stjórnar. Ráðherrar flokksins verði
varir við þrýsting í þá átt.
Allt eða ekkert
Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra
sjávarútvegsmála, hefur kallað
eftir víðtækri sátt um fyrirkomu-
lag fiskveiðistjórnunar. Á stund-
um hefur virst sem hann muni ekki
leggja fram frumvarp um breyting-
ar á fiskveiðistjórnun nema sú sátt
liggi fyrir. Svandís Svavarsdóttir,
þingmaður Vinstri grænna, orðar
það sem margir stjórnarandstöðu-
þingmenn hugsa.
„Það gengur náttúrulega ekki
með svona stór mál eins og fisk-
veiðistjórnun að verið sé að byggja
á einhverjum sögusögnum og ein-
hverju sem mönnum hefur verið
sýnt á lokuðum fundum.
Þetta er mál af þeirri stærðar-
gráðu að menn eiga bara að koma
með það til þingsins og ræða það
þar.“ Innan Sjálfstæðisflokksins er
hins vegar andstaða við breytingar
á fiskveiðistjórnunarkerfinu. Kerf-
ið virki í grundvallaratriðum, sé
jafnvel öfundarefni í öðrum lönd-
um, og því sé engin ástæða til að
breyta því.
Það virðist því vera allt eða ekk-
ert í þessum málum, enn sem komið
er allavega; annaðhvort algjör sátt
eða engin breyting.
Haftaumræða í höftum
Undarlega hljótt hefur verið um
stærsta málið sem boðað hefur
verið á yfirstandandi þingi; afnám
gjaldeyrishafta. Það er mál af
þeirri stærðargráðu að það hefur
gríðarleg áhrif á efnahag þjóðar-
búsins.
Heimildarmenn Fréttablaðsins
innan stjórnarflokkanna voru sam-
mála um að Bjarni Benediktsson
og Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son héldu þeim málum þétt að sér.
Ljóst er þó að ágreiningur er á milli
þeirra um hvaða leiðir eigi að fara.
Af nógu að taka
Það verður því nóg að gera hjá
þingmönnum fram á sumar. Það
skýrist á næstu vikum hvaða mál
koma til þingsins, en frestur til að
leggja fram ný frumvörp rennur út
26. mars. Ráðherrar hafa því aðeins
42 daga til að ganga frá þeim frum-
vörpum sem ætlunin er að fá sam-
þykkt fyrir vorið.
Fjölmörg átakamál fram undan
Fiskveiðistjórnun, ESB-umsókn, náttúruvernd og orkunýting eru á meðal mála sem Alþingi á að afgreiða fyrir sumarið. Sem og afnám
gjaldeyrishafta. Undir sléttu yfirborðinu ólgar ósætti á milli stjórnarflokkanna. Ráðherrar hafa 42 daga til að leggja fram frumvörp.
„Auðvitað verður ESB-málið
mjög fyrirferðarmikið, ef
það pólitíska skemmdarverk
verður lagt fram.
Það má búast
við því að
sjávarútvegs-
málin verði
mikið rædd
ef þau komast á dagskrá,“
segir Róbert Marshall, for-
maður þingflokks Bjartrar
framtíðar. Þá nefnir hann
náttúruverndarlög og
rammaáætlun.
„Ég hef hvorki séð fisk-
veiðistjórnina né form-
úleringuna á ESB-tillögunni.
Ef það er tillaga um að fara
með málið í þjóðaratkvæða-
greiðslu verður auðveldara að
leysa það. Það væri líka meira
í anda þess sem þeir hafa
sagt. Ef draga á ályktanir af
því hvernig þessi ríkisstjórn
hefur hagað sér hingað til
virðist hún alltaf velja slaginn
frekar en að ná pólitískri
lendingu.“
➜ ESB stórmál
Svandís Svavarsdóttir, for-
maður þingflokks Vinstri-
hreyfingarinnar– græns
framboðs,
segir ljóst að
umræða um
fiskveiðistjórn-
unarmál taki
tíma. Hún
kallar eftir því að ráðherra
leggi málið strax fyrir
þingið. „Fjármálaráðherra
sagði fyrir um tveimur vikum
að ríkisstjórnin væri að fara
að koma með tillögu um slit
á aðildarviðræðum um ESB.
Það mun taka einhvern tíma
á þinginu. Síðan er ýmislegt
sem þingið á eftir að fjalla
um, eins og breytingar til
stjórnarráðslaga, sem for-
sætisráðherra hefur mælt
fyrir, en þau gefa ráðherrum
heimildir til að færa ríkis-
stofnanir fram og til baka. Þá
hefur menntamálaráðherra
boðað heildarendurskoðun á
lögum um LÍN, en ekki bólar
á samáði um það.“
➜ ESB tekur tíma
Þórunn Egilsdóttir, formað-
ur þingflokks Framsóknar-
flokksins, segir viðbúið
að miklar
umræður séu
fram undan á
Alþingi, enda
liggi mörg stór
mál fyrir og
von sé á fleirum. Hún von-
ast til þess að umræðurnar
verði góðar, enda sé ekki
vanþörf á að ræða þessi
mál vel. „Það eru komin
mörg stór mál inn og mikil-
væg, til dæmis varðandi
raflínur, sem verið er að
klára inni í nefnd núna. Það
er mjög mikilvægt mál. Svo
er náttúrupassinn nátt-
úrulega kominn inn í nefnd
og það mál leysist vonandi
farsællega.
Ýmis stór mál eru á
leiðinni, sjávarútvegsmál og
sitthvað fleira. Þá má nefna
rammaáætlun, en það er
náttúrulega mál sem mikil-
vægt er að gaumgæfa vel.“
➜ Raflínur
HORFÐU TIL HIMINS Oddvita ríkisstjórnarflokk-
anna bíður ærinn starfi. Þeir þurfa að sætta eigin
flokksmenn í þeim málum sem fram undan eru og
fá þau síðan samþykkt á Alþingi.
FR
ÉT
TA
BL
AÐ
IÐ
/G
VA
■ Samþykkt: 33
■ Bíða 1. umræðu: 8
■ Í nefnd: 29
■ Bíða 2. umræðu: 1
■ Í nefnd eftir 2. umræðu: 1
■ Bíða 3. umræðu: 6
■ Heildarfjöldi: 78
Stjórnarfrumvörp
Kolbeinn
Óttarsson Proppé
kolbeinn@frettabladid.is
ASKÝRING | 10
STAÐA MÁLA Á ALÞINGI
1
1
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
3
C
7
-1
D
F
0
1
3
C
7
-1
C
B
4
1
3
C
7
-1
B
7
8
1
3
C
7
-1
A
3
C
2
8
0
X
4
0
0
7
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K