Fréttablaðið - 12.02.2015, Qupperneq 46
12. febrúar 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 30
LEIKLIST ★★★ ★★
Eldbarnið
HÖFUNDUR: PÉTUR EGGERZ
LEIKSTJÓRI: SIGRÚN VALBERGSDÓT-
TIR
LEIKARAR: ALDA ARNARDÓTTIR, AN-
DREA ÖSP KARLSDÓTTIR OG PÉTUR
EGGERZ
LEIKMYND OG BÚNINGAR: GUÐRÚN
ØYAHALS
TÓNLIST: KRISTJÁN GUÐJÓNSSON
LÝSING: ARNÞÓR ÞÓRSTEINSSON
Möguleikhúsið sýnir Eldbarnið í
Tjarnarbíói um þessar mundir og er
leikritið byggt á sömu atburðum og
sýningin Eldklerkurinn sem hefur
verið í sýningu hjá hópnum síðustu
misseri. Sögusviðið er Ísland árið
1783, nánar til tekið Austurland,
þegar Lakagígar hófu að gjósa þá
um sumarið. Afleiðingarnar voru
ekkert annað en skelfilegar og er
sýningin tilraun til þess að sjá þess-
ar hryllilegu hamfarir með barns-
augum.
Sveitastúlkan Sólveig, sem nýlega
hefur misst föður sinn af slysför-
um, og móðir hennar flýja undan
Skaftáreldum af miklu harðfylgi
en finna loks skjól hjá séra Jóni
Steingrímssyni og verða vitni að
goðsagnakenndri eldmessu hans.
Eftir að frekari áföll dynja á stúlku-
barninu endar hún í samfylgd með
þjófum sem ferðast um landsvæðið
í þýfisleit.
Andrea Ösp Karlsdóttir leikur
hina þjáðu Sólveigu og gerir það
ágætlega þó að eitthvað vanti upp
á tilfinningalegu dýptina sem hún
sýnir. Viðbrögð Sólveigar við öllum
þeim harmi sem umvefur líf henn-
ar sveiflast á milli undrunar og
ótta en lítið meira, jafnvel þegar öll
von virðist úti. Alda Arnardóttir og
Pétur Eggerz sjá um að leika allar
hinar persónur verksins en þær
eru flestar skissur af fólki frek-
ar en þrívíðar persónur fyrir utan
Jón Steingrímsson sem Pétur hefur
mikla reynslu af að leika og stífu
sýslumannsfrúna í leik Öldu.
Handritið er frekar einsleitt og
blæbrigðin fá í textanum sem er
á köflum bæði of þungur og óþjáll
fyrir yngstu kynslóðina, gaman-
sömu uppbrotin hefðu líka mátt
vera fleiri. Leikritið er rammað
inn með veikri sögu af ungri stelpu
á okkar tímum sem er að uppgötva
fjölskyldusögu sína í gegnum frá-
sagnir eldri bónda. Ekki er þörf á
stóru stökki til að sjá ákveðið sam-
hengi milli Skaftárelda fyrri tíma
og eldgossins í Holuhrauni nú, teng-
ingarnar eru undirstrikaðar í Eld-
barninu en eru iðulega yfirborðs-
kenndar.
Sviðshönnunin er skemmtilega
unnin og útfærð, Guðrún Øyahals
hefur næmt auga fyrir smáatriðum
og má þar sérstaklega nefna notk-
unina á sviðsmununum. Sviðsetn-
ingin er mjög minimalísk en í hönd-
um Sigrúnar Valbergsdóttur kvikna
áhugaverðar myndir út frá litlum
augnablikum. Aftur á móti hefði
verið gaman að sjá jafn góða vinnu
í búningunum en þeir voru helst til
of einfaldir og ófrumlegir. Tónlistin
er hljómþýð en ekkert sérstaklega
afgerandi og sömu sögu má segja
um lýsinguna. Sigríður Jónsdóttir
NIÐURSTAÐA: Magnaður efniviður
og skýr grunnhugmynd en Eldbarnið
er að mestu kraftlaust.
Hamfarir með augum barnsins
ELDBARNIÐ Andrea Ösp Karlsdóttir er í hlutverki sveitastúlkunnar Sólveigar en Pétur
Eggerz og Alda Arnardóttir fara með öll önnur hlutverk verksins. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Sýningin walk+talk er hluti af
Reykjavík Dance Festival sem nú
stendur yfir. Philipp Gehmacher
er upphafsmaður walk+talk sem
hófst í heimalandi hans Austur-
ríki árið 2008. Í walk+talk skapar
danshöfundurinn blöndu af sóló og
fyrirlestri, þar sem hreyfing og
tal danshöfundarins birtist á svið-
inu á sama tíma. Umfjöllunarefni
verkanna er hugmynd og skilning-
ur listamannanna á líkama sínum
á hreyfingu, saga þeirra eigin
hreyfinga og þeim hugmyndum
sem þar má finna.
„Walk (ganga) stendur fyrir
þann tíma sem ákveðin hreyfing
þarf til þess að opinbera sig en
talk (tal) stendur fyrir þá fullyrð-
ingu sem felst í þessari tjáningu
með tali sem er ætlað að tjá hreyf-
ingarnar. Í þessari tjáningu felst
bæði merkingarauki og tap hverju
sinni sem mér finnst spennandi að
rannsaka.
Við höldum utan um þetta
með því að skrá þetta sem heim-
ild vegna þess að listamennirnir
hverju sinni eru í raun að sýna
vinnubrögð og við sjáum líka við-
brögð við því sem þeir koma á
framfæri. Listamennirnir ramma
inn með tungumálinu það sem
þeir eru að gera og það býður upp
á nýja þátttöku áhorfenda og getur
þannig verið ný áskorun fyrir þá.“
Philipp leggur áherslu á að sýn-
ing sem þessi sé alls ekki bara
fyrir dansara og aðra listamenn.
„Dansarar sækja vissulega í
walk+talk en það koma líka alltaf
almennir áhorfendur og skemmta
sér vel. Mér finnst mikilvægt að
leikhúsið sé líka staður til þess að
eiga samræður og sjá hugmyndir
fæðast og vona að það komi sem
flestir.“
Á Reykjavik Dance Festival
hefur Philipp boðið danshöfund-
unum Margréti Bjarnadóttur
og Ernu Ómarsdóttur til þess að
skapa með sér walk+talk í Borgar-
leikhúsinu annað kvöld. Þar munu
áhorfendur sjá og heyra Margréti
og Ernu gera tilraun til að ræða
upphátt, og á hreyfingu, hvernig
þær skilja og skynja sínar eigin
hreyfingar.
Margrét segir að í sjálfu sér sé
þetta ekki að öllu leyti nýtt fyrir
sér þar sem hún noti alltaf texta í
sínum verkum. „En þessi nálgun,
að tala jafnhliða um mínar vinnu-
aðferðir, er góð áskorun sem ég
varð að taka. Ég hef verið sjálf-
stætt starfandi í tíu ár og þetta
var tilvalið tækifæri til þess að
taka aðeins til í því sem ég hef
verið að gera á þessum tíma. Þetta
er ákaflega gagnlegt og skemmti-
legt ferli en maður verður auð-
vitað að gæta þess að þetta verði
það fyrir áhorfendur líka.
Erna nefnir að óneitanlega
tengist þetta dálítið því sem hún
hefur verið að fást við síðasta
árið. „Ég kynntist Philipp fyrir 20
árum og vann með honum í einu
verkefni fyrir tíu árum þannig að
ég hef fylgst með því sem hann
er að gera og fundist það spenn-
andi. En þetta er mikil áskorun
fyrir mig. Að takast á við að tala
og dansa án tónlistar eða ljósa,
heldur vera þarna og upplifa
sig nakta og reyna að finna leið
sem manni líður vel með. Það er
gaman en vissulega mikil áskor-
un og þá þarf maður að finna ein-
hvern annan drifkraft en venju-
lega. Ég held að þetta verði mjög
áhugavert kvöld þar sem fólki
gefst tækifæri til þess að koma og
sjá eitthvað nýtt, eitthvað sem er
ekki verið að gera hérna heima.“
- mg
Hreyfi ng
römmuð með
tungumáli
Danshöfundurinn Philipp Gehmacher, upphafs-
maður walk+talk, og Grímuverðlaunahöfundarnir
Margrét Bjarnadóttir og Erna Ómarsdóttir skapa
walk+talk í Borgarleikhúsinu annað kvöld.
SKEMMTILEG ÁSKORUN Danshöfundarnir Margrét Bjarnadóttir og Erna Ómarsdóttir
takast annað kvöld á við walk+talk verkefni Philipps Gehmacher. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Save the Children á Íslandi
MENNING
➜ Í walk+talk skapar danshöf-
undurinn blöndu af sóló og
fyrirlestri, þar sem hreyfing og
tal danshöfundarins birtist á
sviðinu á sama tíma. 11
-0
2
-2
0
1
5
2
2
:0
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
3
C
7
-0
0
5
0
1
3
C
6
-F
F
1
4
1
3
C
6
-F
D
D
8
1
3
C
6
-F
C
9
C
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
6
4
s
C
M
Y
K