Fréttablaðið - 19.03.2015, Qupperneq 24
19. mars 2015 FIMMTUDAGURSKOÐUN
HALLDÓR
FRÁ DEGI
TIL DAGS
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr
Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI:
Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið
áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Þingmaðurinn skilur ekki
Eina bestu ræðuna, um stöðuna í ESB-
málinu, flutti Björt Ólafsdóttir. Björt
játaði að henni væri um megn að
skilja málið. „Er það til of mikils mælst
að fólk tali bara hreina íslensku? Erum
við að biðja um of mikið? Ég skil ekki
helminginn af því sem hér fer fram, ég
verð bara að viðurkenna það, út af því
að hér er talað tvist og bast, algjör-
lega. En það kannski lýsir
því hvernig málið er
allt saman, það er
algjörlega í upp-
námi og ég næ illa
utan um þessar
skýringar út af því
að þær eru
úti um allt.“
Ræðum
svikin loforð
Björt Ólafsdóttir sagði meira eftir-
tektar vert í ræðu sinni. „Sífellt er verið
að lýsa störfum fyrri ríkisstjórnar í
þessu máli öllu saman. Ég verð að segja
að mér er bara nákvæmlega sama um
það hvernig Steingrímur J. Sigfússon
eða Össur Skarphéðinsson töluðu á
fyrra kjörtímabili eða hvað þeir sögðu.
Við erum að ræða hvað þessi ríkis-
stjórn er að gera, við erum að
ræða sviknu loforðin hennar
og við skulum halda okkur
við það. Það er lúalegt og það
er dapurlegur vitnisburður
um innrætingu viðkomandi
ráðherra og þingmanna að
það réttlæti eigin gjörðir
að einhverjir aðrir hafi
hagað sér kjánalega.“
Meira en úldin spilling
Jónas Kristjánsson fjallar um íviln-
unarsamning Ragnheiðar Elínar
Árnadóttur. Jónas segir hana stela frá
skattgreiðendum og afhenda frænda
Bjarna Benediktssonar. Hann bendir á
að aðrir í bleikjueldi hafi ekki fengið
ámóta fyrirgreiðslu. Það er afslátt af
sköttum og gjöldum, helmings afslátt
af tryggingagjaldi og fasteignagjaldi,
undanþágu frá aðflutningsgjöldum
og þjálfunarstyrk upp á hundruð
milljóna. „Þetta er ekki bara úldin
spilling, heldur hreinn þjófnaður. Von-
andi verður glæpakvendið sjálft látið
endurgreiða þetta, þegar hún hefur
verið hrakin frá völdum. Óbeit
sjálfstæðismanna á frjálsri
samkeppni keyrir meira um
þverbak en nokkru sinni.“
sme@frettabladid.is
Landsskipulagsstefna er nýtt og spenn-
andi skipulagsverkfæri sem er ætlað að
stuðla að sjálfbærri þróun, skilvirkri áætl-
anagerð og vera sveitarstjórnum leiðarljós
við skipulagsgerð, en felur ekki í sér fyrir-
mæli um nákvæma útfærslu. Meðal ann-
ars er lögð áhersla á samspil ólíkrar land-
notkunar og nýtingar lands einkum fyrir
landbúnað, ferðaþjónustu og skógrækt.
Þingsályktunartillaga um landskipu-
lagsstefnu 2015-2026 verður lögð fram nú
á vorþingi. Umhverfis- og auðlindaráð-
herra fól Skipulagsstofnun í október 2013
að hefja vinnu við stefnuna og kynnti við-
fangsefni og áherslur. Í vinnu sinni hefur
Skipulagsstofnun nýtt vel þann tíma-
ramma sem var til umráða og átt náið
samráð við almenning, sveitarstjórnir,
opinberar stofnanir og félagasamtök víða
um land.
Ferlið hefur tekist sérlega vel. Reglu-
lega var leitað eftir ábendingum og hug-
myndum og segja má að almennt hafi þátt-
taka verið góð á fundum. Auk þess hefur
sérstök nefnd verið Skipulagsstofnun og
ráðherra til ráðgjafar.
Landið teiknað
Frá byrjun hefur almenningi gefist kostur
á að koma að verkefninu og útfæra hug-
myndir sínar myndrænt. Meðal annars
var þátttakendum á opnum fundum boðið
til vinnusmiðju þar sem einn eða nokkrir
saman í hóp teiknuðu upp sína hugmynd
að landsskipulagi á Íslandskort í mismun-
andi litum, allt eftir viðfangsefnum svo úr
urðu um 100 kort sem nýttust í vinnunni.
Í framhaldinu var nokkrum valkostum
stillt upp og þeir ræddir ítarlega á opnum
fundum þar sem skipst var á skoðunum
og samtímis boðið upp á að koma að skrif-
legum athugasemdum sem nýttar voru
við endanlega tillögu að landsskipulags-
stefnu. Loks sendi Skipulagsstofnun bréf
á um 180 aðila með beiðni um umsögn og
bárust 73 umsagnarbréf. Farið var yfir
allar innsendar athugasemdir áður en
gengið var frá formlegri tillögu að lands-
skipulagsstefnu sem skilað hefur verið til
umhverfis- og auðlindaráðherra.
Ég hvet eindregið til þess að sem flestir
kynni sér ferlið og tillöguna á landsskipu-
lag.is. Þegar vel tekst til getur skipulags-
vinna dregið fram ímynd staða eða svæða
og mætt þörf okkar á hverjum tíma, eins
og fyrir aukna ferðaþjónustu. Aukin
ásókn í takmarkaðar auðlindir getur leitt
til aukins álags á umhverfið og óvissu
og mun landskipulagsstefna því þurfa að
vera í virkri þróun til framtíðar.
Framtíðarsýn í skipulagsmálum
SKIPULAG
Sigrún
Magnúsdóttir
umhverfi s- og
auðlindaráðherra
L
andsfundur Samfylkingarinnar verður settur í fyrramálið.
Engum dylst að Samfylkingin á bágt. Flokkurinn var
stofnaður til að vera annar af tveimur turnum íslenskra
stjórnmála. Í fyrstu blés ágætlega í segl Samfylkingar-
innar. Flokkurinn fékk síðan einstakt tækifæri þegar hann
var leiddur til forystu. Formaður flokksins varð forsætisráðherra.
Síðan hefur hallað undan fæti.
Staða flokksins er fjarri settum
markmiðum. Þjóðin fyrirgaf
honum að hafa verið helmingur
hrunstjórnarinnar. Í kosningum
eftir hrunið jók flokkurinn fylgi
sitt og bætti við sig tveimur þing-
mönnum, fór úr átján í tuttugu.
Nú eru þeir aðeins níu. Og allir
eiga þeir sameiginlegt að hafa í
kosningunum 2013 tapað þingmönnum, samherjum, í sínum kjör-
dæmum. Allir þingmenn Samfylkingarinnar fóru halloka í kosning-
unum. Hinn stjórnarflokkurinn, Vinstri græn, fór einnig illa í þeim
kosningum, en hefur ratað aftur á sinn fyrri bás.
Landsfundur Samfylkingarinnar er fram undan og nokkuð víst
er að umboð æðstu forystu flokksins verði endurnýjað, eins og
ekkert sé sjálfsagðara. Það getur ekki verið sjálfsagt. Nærri tvö ár
eru frá kosningunum afdrifaríku og fylgi flokksins er enn svo langt
frá öllum markmiðum að erfitt er að trúa að félagar í flokknum geti
sæst á stöðuna.
Í nýlegri skoðanakönnun Fréttablaðsins mældist Samfylkingin
með rétt rúm sextán prósent sem er einu prósentustigi minna en
flokkurinn fékk í síðasta Þjóðarpúlsi Gallup.
Hvað ætli valdi að í slíku árferði séu ekki átök um forystuna? Og
málefnin? Hvað ætlar flokkurinn að ræða á fundinum? Samkvæmt
dagskránni verða málstofur um sveitarstjórnarmál, hvort Ísland sé
best í heimi og þriðja æviskeiðið, það er sextíu ára og eldri, hús-
næðismál, kvennahreyfingu og græna netið.
Hvað með Evrópusambandið, peningamálin, fjármagnshöftin,
krónuna, sjávarútveginn, stjórnarskrána, menntamálin, samgöng-
urnar, virkjanir og ekki virkjanir, atvinnustefnuna, mannréttindi,
byggðastefnu, náttúruna, menninguna? Og svo mætti áfram telja.
Samfylkingin virðist kunna vel við sig á áhorfendabekkjunum.
Eigi að verða minnsta von til að draumar stofnenda Samfylk-
ingarinnar rætist er ljóst að gera verður betur. Það hlýtur að teljast
hart að flokkur sem frá stofnun og fram að síðustu kosningum
hafði sautján til tuttugu þingmenn skuli ekki hafa afl til að takast
á við stöðuna. Meðan hér situr óvinsæl ríkisstjórn þarf Samfylk-
ingarfólk að horfa á fylgið, sem nú tínist af Framsóknarflokki, fara
fram hjá. Samfylkingin er ekki að gera það gott þessa dagana.
Þegar illa áraði hjá Alþýðuflokknum, einum af forverum Sam-
fylkingarinnar, steig Jón Baldvin Hannibalsson fram og bauð sig
fram gegn sitjandi formanni, Kjartani Jóhannssyni, með þeim
rökum að þegar kallinn í brúnni fiskaði ekki, yrði að skipta um for-
mann. Og hafði betur. Í dag gilda greinilega önnur lögmál. Eða er
staðan sú að enginn fæst til að fara gegn formanninum? Vill enginn
leiða flokkinn í þeim dal sem hann virðist fastur í? Hvað sem því
líður skuldar Samfylkingin þjóðinni að koma fram með lausnir,
málefni og skarpa framtíðarsýn.
Samfylkingin gengst undir stöðupróf um helgina.
Fram undan virðist vera málefnarýr landsfundur:
Samfylkingin er
í tilvistarkreppu
Sigurjón Magnús
Egilsson
sme@frettabladid.is
300
ÞÚSUND KRÓNA
LÁGMARKSLAUN
Já
www.sgs.is
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
4
2
F
-3
0
B
0
1
4
2
F
-2
F
7
4
1
4
2
F
-2
E
3
8
1
4
2
F
-2
C
F
C
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K