Fréttablaðið - 19.03.2015, Síða 28

Fréttablaðið - 19.03.2015, Síða 28
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 28 Það er samdóma álit flestra þeirra sem fjalla um efna- hagsmál af skynsamlegu viti að samkeppni sé helsti drifkraftur öflugs við- skiptalífs og velmegunar í markaðstengdum hagkerf- um. Færa má rök fyrir því, að samkeppni í viðskipt- um í ESB/EES-ríkjum sé hvergi minni en á Íslandi. Því valda m.a. stór auð- lindageiri, íslenska krónan og smæð hagkerfisins. Auðlinda- atvinnuvegirnir, þ.e. landbúnaður, sjávarútvegur og stóriðja, bjóða ekki upp á mikla samkeppni og þar sem hægt væri að koma henni við, er það ekki leyft, svo sem með því að bjóða upp hluta kvótans, sem væri samkeppni í reynd. Þá þjóna bönn á erlendu eignarhaldi í sjávar útvegi og innflutningi á land- búnaðar vörum sama tilgangi. Samkeppni á fjármálamarkaði er einnig í skötulíki og verður það í enn ríkara mæli, eftir því sem leng- ist í fjármálahöftunum eða meðan krónan er enn gjaldmiðill þjóðar- innar. Á meðan fitna bankarnir og vextirnir haldast háir. Land- lægir háir vextir og verðtrygg- ing samninga og lána eru fylgi- fiskar íslensku krónunnar. Sá sem borgar brúsann er síðasti neytandi vörunnar, hvort sem það eru mat- vörur, ferðalög eða húsnæði. Ekk- ert verndar innlenda starfsemi og dregur úr samkeppni hérlendis eins og veikleikar krónunnar. Því má spyrja, hvort það sé ekki bara gott mál? Nei, því skortur á sam- keppni er ávísun á stöðnun og síðan afturför. Verndun er einnig ávísun á hátt innlent verðlag og lélegri lífskjör. Með því að viðhalda krón- unni er viðskiptaumhverfi lands- ins sett í sóttkví og ýtt til baka til áranna fyrir 1985. Forsenda velmegunar Ríkisstjórn sem vill auka vel- megun og vernda velferð í landinu verður sífellt að hafa auga á sam- keppnishæfni landsins. Ef okkur tekst ekki að bæta samkeppnis- hæfnina umtalsvert munum við ekki geta fjármagnað það sem þó er enn eftir af velferðar kerfinu, hvað þá að borga þau laun, sem halda ungu fólki hér heima. Íslenska krónan er stærsta hindr- unin á þessari vegferð. Hún virkar eins og hár, sveigjanlegur verndar- tollur til að gera innflutning dýr- ari. Þótt aldrei megi missa sjón- ar á því, að íslenskt hagkerfi er örsmátt og þar þrífast ekki margir öflugir leikendur á mörkuðum, þá höfum við verið iðin við að fækka þeim eftir megni. Hér er sú afstaða útbreidd að líta á samkeppni sem ógnun. Sérstaklega höfum við haft horn í síðu útlendinga sem hafa viljað fást við heilbrigð viðskipti hér. Þá er ég ekki að tala um viðskipti sem eru af pólitískum toga og til þess stunduð að koma heima- landi viðkomandi til áhrifa í landinu. Það hefur ekkert með heilbrigð viðskipti að gera, heldur nýja, mjúka yfirráða- stefnu. Sterkur gjaldmiðill vernd gegn ásælni Sterkur og stöðugur gjaldmiðill er lykillinn að samkeppnishæfu hagkerfi. Það er engin tilviljun að þær þjóðir sem búið hafa við sterk- ustu gjaldmiðlana hafa jafnframt verið árangursríkastar í heims- við skiptum. Sterkur gjaldmiðill er pískur til meiri hagkvæmni og vörn gegn hagsveiflum. Þá má ekki gleyma þeim mikla vaxtamun sem er að jafnaði á milli sterkra gjald- miðla og veikra. Hér er hann 5–10% m.v. evrulöndin. Sterkur gjald miðill er jafnframt hlíf gegn ásælni og yfirráðum fjársterkra einstaklinga eða ágengra ríkja. Lítill veikburða gjaldmiðill er auðveld bráð þeim sem vilja koma róti á efnahag lands og valda póli- tískum óróa. Í litlum vanmáttug- um gjaldmiðli liggur mikil pólitísk áhætta. Ein meginástæða þess að Eystrasaltsríkin flýttu sér að taka upp evruna var að útiloka þann leik Rússa að valda usla í efnahag þeirra með því að veikja litlu þjóð- legu gjaldmiðlana þeirra. Þetta ætti að verða okkur Íslendingum sér- stakt umhugsunarefni. Og það þarf hvorki Rússa né Kínverja til. Það dugar einn stór íslenskur banki. Þó ekki væri nema af þessum sökum mun íslenska krónan aldrei getað þjónað þjóðinni sem frjáls gjald- miðill. Hún verður bundin í hjóla- stól, gengi hennar „handstýrt“ og hún mun ekki verða gjaldgeng erlendis. Íslenskum bönkum verð- ur ekki leyft að setja niður útibú erlendis. Sömu sögu er að segja um útibú erlendra banka hér lendis, nema Kínverjar vilji hasla sér völl hér, til að hliðra fyrir áhrifum stjórnar sinnar á stjórnmál og efna- hag landsins. Ef þessi litla þjóð á að geta dafn- að á erlendum mörkuðum og bægt frá sér erlendri ásælni, þarf hún alþjóðlegan gjaldmiðil. Gjald miðill í hjólastól mun hins vegar verða íslenskum efnahag fjötur um fót. Það er því dýrkeypt blekking að halda að það beri vott um þjóðlega reisn og sjálfstæði að halda dauða- haldi í krónuna. Þessu er því miður öfugt farið. Hún er ógn við fullveldi þjóðarinnar. Gjaldmiðill í hjólastól Maður þarf ekki að líta í margar innkaupakörfur til að átta sig á því að hvatvísi sér ansi oft um að velja í matinn. Flestir vita hvaða mat þeir ættu að velja en þegar áreitið í umhverfinu er mikið eða þreyta byrgir sýn getur verið erfitt fyrir rökhugsunina að ráða för. „Ruslfæði“ endar einhvern veginn allt of oft í melt- ingar veginum. Rörið flytur eldsneyti og byggingarefni Miðað við óhollustuna sem fólk lætur ofan í sig ímyndar maður sér að meltingarvegurinn sé ein- hvers konar flutningsrör fyrir fæðuna, sem hann að hluta til er. Auk þess að flytja fæðuna er aðal- starf meltingarvegarins að brjóta niður matinn í smæstu einingar næringar efna fyrir líkamann, sem þarf eldsneyti og byggingar- efni til endur nýjunar og viðhalds. Ef líkaminn fær ekki nauðsyn- leg næringarefni (vatn, kolvetni, fitu, prótein, vítamín og steinefni) getur hann haft verra af. Meðfædd leti? Eitt frægasta dæmi sögunnar um næringarskort er frá rannsókn- um skoska læknisins James Lind (1716-1794) sem er oft nefndur frumkvöðull næringarfræðinnar. Hann gerði tilraunir á sjómönn- um sem fengu skyrbjúg á lang- ferðum sínum. Einkenni skyr- bjúgs eru almenn þreyta (sumir læknar töldu sjómennina þjást af meðfæddri leti), öndunar- færasýkingar, stoðkerfis- verkir, þunglyndi, blæð- ingar frá húð og bólgur í gómum. Tennur geta losnað og sjúklingarnir fá krampa og deyja að lokum ef þeir fá ekki meðferð. James tók fljótt eftir því að skyrbjúgssjúklingar sem fengu sítrónur og app- elsínur sýndu undraverð batamerki og uppgötvaði þar með C-vítamínskort sem orsök skyrbjúgs. Eftir það voru alltaf til C-vítamín ríkir ávextir í skipunum. Eitt er að vita Kannanir sýna að meirihluti fólks er meðvitaður um að það ætti að borða að minnsta kosti fimm ávexti og grænmeti á dag – um það bil 500 grömm, jafnt af hvoru og sem fjölbreyttast litaval – en mjög fáir fara eftir því. Sömu- leiðis eru sífellt fleiri rannsókn- ir sem sýna að fæði hefur áhrif á fjölda sjúkdóma, eins og krabba- mein. Sem dæmi eru sterkar vís- bendingar um að trefjaríkt fæði, ávextir, grænmeti og baunir sé verndandi fyrir ristilkrabbamein en rautt kjöt og unnar kjötvörur auki áhættuna. Í því samhengi er miðað við að borða ekki meira en sem nemur 500 grömmum af rauðu kjöti á viku og sem minnst af kjötáleggi. Síðan er áfengi og tóbak áhættuþáttur fyrir ristil- krabbamein, eins og margir vita. Við borðum oft af gömlum vana og án þess að hugsa almennilega hvaða afleiðingar það getur haft. Bragðlaukarnir eiga líka sinn þátt. Skemmdur matur er beiskur og býr til minni um að forðast hann en sætur matur lætur okkur líða vel og við munum því fyrst eftir honum þegar við erum svöng eða döpur. Það kostar undirbúning að ýta hvatvísinni frá og hleypa rök- hugsuninni að. Rökhugsunin er ekki ólík vöðva að því leyti að hún þreytist eftir mikla notkun og til að hvatvísin nái ekki stjórninni þurfum við að gera áætlun. Skrifa innkaupalista og ákveða að kaupa ekkert umfram það sem er á list- anum. Einnig er gagnlegt að velja skráargatsmerktar vörur en þær segja þér að þú ert að velja holl- ustu vöruna í hverjum flokki. Til dæmis ef þú kaupir skráargats- merkt brauð þá geturðu verið viss um að fá mikið af trefjum. Það tekur örfáar mínútur að undir búa innkaupin en þær eru dýrmæt fjárfesting í nytsamlegu eldsneyti og sterkum byggingar- efnum sem borga til baka með bættri líðan og heilbrigðara lífi ævilangt. Kynntu þér heilbrigt líf á mottumars.is. Hvernig er rennslið í rörinu? Opið bréf til ráðherra mennta- og menningar- mála, ráðherra velferðar og landlæknis Börn og unglingar sem hreyfa sig lítið, hafa lítið þrek og of hátt hlutfall fitu í líkama eru líklegri en aðrir til að þróa með sér áhættuþætti tengda hjarta- og æðasjúkdóm- um. Með daglegri hreyf- ingu og réttri næringu er hægt að koma í veg fyrir þessa þróun.1 Langvinnir lífsstíls tengdir sjúkdóm- ar eru helsta dánarorsök í heiminum. Þeir verða fleira fólki að aldurtila en allar aðrar ástæður samanlagt.2 Í ljósi framan- greindra staðreynda leyfir mennta- og menningarmálaráðuneyti sér að leggja fram tillögu sem felur í sér verulega skerðingu á heilsuræktar- kennslu í framhaldsskólum. Ráðuneytið leggur til að tak- marka umfang heilsuræktar innan framhaldsskóla úr átta gömlum einingum í tvær. Þetta er gert á sama tíma og alþjóðlegar heil- brigðisstofnanir ítreka mikilvægi daglegrar hreyfingar fyrir ung- menni. Tillögurnar ýta undir lífs- stílstengda sjúkdóma meðal fram- haldsskólanema í landinu. Á sama tíma er velferðarráðuneyti að móta verkefnið Heilsueflandi fram- haldsskóli í samvinnu við Embætti landlæknis og framhaldsskóla. Stefnumótun mennta- og menning- armálaráðuneytis er því í hrópandi andstöðu við þessar hugmyndir. Með vel útfærðri heilsuræktar- kennslu í grunn- og framhaldsskól- um væri hægt að koma í veg fyrir stóran hluta ofangreindra dánar- orsaka síðar á lífsleiðinni.3 Stjórn- endur framhaldsskóla, ráðherra mennta- og menningarmála og vel- ferðarráðuneytis ásamt landlækni ættu miklu frekar að finna leiðir í skólakerfinu sem hindra þróun áhættuþátta langvinnra sjúkdóma. Á ráðstefnunni Lýðheilsa 2015 ræddi heilbrigðis- og velferðarráðherra, Krist- ján Þór Júlíusson, um mikil vægi forvarna í kom- andi framtíð. Inga Dóra Sigfúsdóttir prófessor, sem fer fyrir ráðherraskipaðri nefnd um lýðheilsu, fór yfir stefnumörkun næstu ára þar sem meðal annars daglegar hreyfistundir í grunnskólum landsins yrðu að veruleika á skólaárinu 2016–2017. Slík stefnumót- un gæti orðið til lítils ef heilsuræktarkennsla verð- ur lögð af í framhaldsskólum. Nú er komið að mennta- og menningar- málaráðherra, Illuga Gunnarssyni, að taka þátt í leiknum. Hornsteinn að góðri lýðheilsu Á tíu árum skólaskyldunnar þarf að leggja hornstein að góðri heilsu út lífið. Á framhaldsskólaárum þarf að festa í sessi stefnu sem mörkuð hefur verið og gera einstaklinginn hæfan og sjálfbæran til heilsurækt- ar. Í gildandi Aðalnámskrá segir á bls. 21: „Heilbrigði byggist á and- legri, líkamlegri og félagslegri vel- líðan. Það ræðst af flóknu samspili einstaklings, aðstæðna og umhverf- is. Allt skólastarf þarf að efla heil- brigði og stuðla markvisst að vel- ferð og vellíðan enda verja börn og ungmenni stórum hluta dagsins í skóla“.4 Hvaða þýðingu hefur þetta orðalag löggjafans? Lokaorð Ráðherra mennta- og menningar- mála í samvinnu við ráðherra vel- ferðarráðuneytis og landlækni þurfa að blása lífi í hugsjón og hug- myndafræði alls skólakerfis. Ekki kippa undan því helstu stoðinni – heilsunni sjálfri. Ábyrgð skóla- stjórnenda á lýðheilsu þjóðar er gífurleg. Tækifærin eru óþrjótandi í ljósi breyttra tíma og nýrrar tækni. Skólakerfi landsins á að hlúa að lýð- heilsu Íslendinga með umgjörð sem eflir heilsu einstaklingsins í sam- félagi við aðra. Það þarf að opna augun fyrir fjölþættum möguleik- um heilsuuppeldis. Það þarf að auka til muna líkamlega virkni og sjálf- bærni nemenda í framhaldsskólum og gera kennsluna aflvaka nýrra leiða í heilsurækt og forvörnum. Rannsóknir sýna að aukin samþætt- ing líkamlegrar virkni og almenns náms í skólum ýtir undir einbeit- ingu og áhuga nemenda á öllu námi.5 Heimildir 1. Peluso, M. J., Encandela, J., Hafler, J. P. og Margolis, C. Z. (2012). Guid- ing principles for the development of global health education curricula in undergraduate medical education. Medical Teacher, 34(8), 653–658. 2. Karl Andersen og Vilmundur Guðna- son. Langvinnir sjúkdómar: heims- faraldur 21. aldar. Læknablaðið. Nóvember 2012; 98 (11): 591-595. 3. Alwan, A. (2011). Global status report on noncommunicable diseases 2010. Genf: World Health Organization. 4. Mennta- og menningarmálaráðuneyt- ið. (2012a). Aðalnámskrá grunnskóla 2011: Almennur hluti. Reykjavík: Höf- undur. 5. Kibbe, D. L., Hackett, J., Hurley, M., McFarland, A., Schubert, K. G., Schultz, A. o.fl. (2011). Integrating physical activity with academic con- cepts in elementary school classro- oms. Preventive Medicine, 52 (Supple- ment), S43– S50. Þróun áhættuþátta langvinnra sjúkdóma í framhaldsskólum framtíðar? HEILBRIGÐIS- MÁL Dr. Janus Guðlaugsson lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og fyrrverandi náms- stjóri í íþróttum við menntamálaráðu- neytið EFNAHAGSMÁL Þröstur Ólafsson hagfræðingur HEILBRIGÐIS- MÁL Lára Sigurðardóttir læknir og fræðslu- stjóri Krabbameins- félagsins ➜ Ráðuneytið leggur til að takmarka umfang heilsuræktar innan fram- haldsskóla úr átta gömlum einingum í tvær. ➜ Sterkur gjaldmiðill er pískur til meiri hag- kvæmni og vörn gegn hagsveifl um. ➜ Við borðum oft af gömlum vana og án þess að hugsa almennilega hvaða afl eiðingar það getur haft. Bragðlaukarnir eiga líka sinn þátt. Sjá má lengri útgáfu greinar- innar á Vísi. visir.is www.netto.is Kræsingar & kostakjör EPLI - HONEY CRISP 4STK Í PAKKA 299 ÁÐUR 598 KR/PK -50% Í hverri viku er valinn ávöxtur vikunnar á 50% afslætti! 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 4 2 F -7 A C 0 1 4 2 F -7 9 8 4 1 4 2 F -7 8 4 8 1 4 2 F -7 7 0 C 2 8 0 X 4 0 0 3 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.