Fréttablaðið - 19.03.2015, Qupperneq 40
FÓLK|VERKFÆRI OG VÉLAR
Eitt af vinsælli verkfærum heims
er Leatherman-vasahnífurinn.
Saga hans er skemmtileg. Það
var Bandaríkjamaðurinn Tim
Leatherman sem fékk hugmynd-
ina að gerð hans þegar hann var á
ferðalagi með eiginkonu sinni
um Evrópu á áttunda áratug
síðustu aldar.
Bíll þeirra hjóna var sífellt
að bila á ferðalaginu. Þar
sem hann var einungis með
hefðbundinn vasahníf í
för sér til halds og trausts
fór hann að velta fyrir sér
hvort ekki gæti verið snið-
ugt að þróa vasahníf með
mörgum ólíkum töngum og skrúfjárni.
Þegar hann kom heim gekk hann með hugmynd sína milli hnífa-
framleiðenda. Enginn þeirra hreifst af hugmynd hans enda fannst
þeim Tim leggja fullmikla áherslu á verkfærahluta hennar.
Hann gafst þó ekki upp og ákvað að hefja framleiðsluna sjálfur
ásamt viðskiptafélaga sínum, Steve Berliner. Undirbúningurinn tók
langan tíma og átta árum síðar kom fyrsta pöntunin í hús.
Vasahnífarnir eru geysivinsælir í Bandaríkjunum enda enn þá
framleiddir þar, ólíkt mörgum öðrum verkfærum í dag. Verksmiðja
fyrirtækisins er í Oregon-ríki og eru allir hnífarnir auk þess hand-
smíðaðir.
Þeir njóta einnig mikilla vinsælda í Þýskalandi og Ástralíu en
um fimmtungur Ástrala á slíkan hníf. Auk þess eru milljónir hnífa
seldir um allan heim árlega.
Að gera upp á milli verk-færanna minna er nánast eins og að gera upp á milli
barnanna minna,“ segir Gulli og
hlær, segist nefnilega vera rosa-
legur verkfærakarl og að raunar sé
tækjadellan ástæðan fyrir því að
hann haldist í smíðabransanum.
„Verkfæri geta auðveldað manni
svo svakalega vinnuna og stytt
framkvæmdatímann,“ segir Gulli
sem lærði húsasmíði á sínum tíma
en gerðist síðan útvarpsmaður í
lengri tíma. „Árið 2000 ætlaði ég
að fara tímabundið út í smíðina
en ílengdist í iðninni og hef aldrei
hætt síðan.“
Gulli segist ekki missa sig í
kaupæði. „Ég spái mikið í hverju
verkfæri sem ég kaupi. Ber saman
tæki, velti fyrir mér gæðum og
ekki síst notagildi. Ef ég sé ekki
fram á að nota tækið mikið tek ég
oft ákvörðun um að leigja það frek-
ar.“ Hvert verkfæri Gulla er því vel
valið enda þótti honum erfitt að
velja aðeins fjögur til að segja frá,
en niðurstaðan varð þó þessi:
LEATHERMAN
„Leathermanninn er sennilega
það verkfæri sem ég nota mest,
allt upp í fimm til sex sinnum á
dag. Ég á þrjá slíka, einn í smíðina,
einn í útileguna og svo á ég eina
jakkafataútgáfu,“ segir hann og
hlær. Þetta fjölnotaverkfæri ber
Gulli alltaf í vasanum og hefur
það oft komið sér vel. „Ég var til
dæmis í afleysingum í Íslandi í dag
þegar allt var í beinni. Þá var með
okkur kokkur sem var að fara að
elda eitthvað. Þegar þrjátíu sek-
úndur voru í útsendingu fattaði
kokkurinn að hann hefði gleymt
tappatogaranum fyrir hvítvínið.
Gamli tók upp leðurmanninn, dró
tappatogarann fram, opnaði hvít-
vínsflöskuna og á sömu sekúndu
bauð ég gott kvöld.“
KEÐJUSÖG
„Ég held mikið upp á þessa
keðjusög sem móðir mín gaf mér
í afmælisgjöf fyrir mörgum árum.
Hún er sjálf mikil tækjamanneskja
og líklega hef ég þessa dellu frá
henni,“ segir Gulli glettinn. Hann
segist nota keðjusögina mikið,
sérstaklega hin síðustu ár. „Ég hef
verið að smíða húsgögn úr trjám
sem ég felli fyrir fólk. Þá móta ég
timbur og sæti í alls konar bekki
með keðjusöginni,“ segir Gulli en
borðið sem sést á myndinni er
úr smiðju Gulla og smíðað úr ösp
sem hann felldi fyrir fólk á Þing-
völlum. „Þetta er aðaláhugamálið
mitt núna að læra þessa iðn.“
GREINAYDDARI
Gulli segir borvél skylduverkfæri
á hverju heimili. Á borvélina má
síðan fá ýmis verkfæri á borð við
það sem sést á myndinni. „Þetta
er nokkurs konar yddari sem býr
til tappa á greinar,“ segir Gulli en á
myndinni má einnig sjá birkigrein
sem hann hefur mótað með yddar-
anum. „Úr greininni verður þannig
til fótur. Síðan bora ég í trjábol og
tek hann í tvennt, bora göt undir
og sting greininni með tappanum
inn í götin og lími svo úr verður
bekkur eða borð.“
LÍNULEISER
Gulli segir línuleiserinn eina flott-
ustu nýjungina fyrir iðnaðarmenn
síðan batterísvélin kom á markað.
„Svona tæki er nauðsynlegt þegar
búa á til beinar línur og kemur
í staðinn fyrir snúruna sem var
strengd á milli staða til að fá beina
línu. Leiserinn má einnig nota í
stað hallamáls.“
Dagarnir hjá Gulla eru æði
langir. Hann byrjar daginn með
þættinum Í bítið á Bylgjunni
klukkan 6.50. Þegar honum lýkur
klukkan 10 tekur við undirbúning-
ur fyrir næsta dag og um hádegis-
bilið hefst smíðavinnan. „Vinnu-
dagurinn er því stundum hátt í 14
tímar,“ segir Gulli sem hefur vakið
mikla athygli fyrir þætti sína Gulli
byggir en þegar hafa tvær þátta-
raðir verið sýndar á Stöð 2. Eru
líkur á því að sú þriðja verði á dag-
skrá? „Gulli byggir er að jafna sig
eftir síðustu seríu og á enn eftir að
taka ákvörðun um framhaldið. En
mér finnst þetta alveg ofboðslega
gaman. Það er frábært að geta
tekið þessar iðngreinar og fært
þær inn á heimili fólks.“
ROSALEGUR VERKFÆRAKARL
UPPÁHALDSVERKFÆRIN Gunnlaugur Helgason, Gulli Helga, útvarpsmaður á Bylgjunni, er húsasmiður að mennt og starfar við
smíðar samhliða útvarps- og sjónvarpsþáttagerð. Hann á fjöldann allan af verkfærum og vélum sem hann heldur mikið upp á.
Hann var beðinn um að velja uppáhaldsverkfærin sín en valið var honum erfitt enda á hvert og eitt stað í hjarta hans.
VERKFÆRI Á borðinu má sjá línuleiser, greinayddara framan á rafmagnsborvél, keðjusög, Leatherman og birkigrein sem mun þjóna sem fótur á bekk. MYND/ANDRI MARINÓ
VINSÆLL VASAHNÍFUR
GULLI BYGGIR
Gulli er mikill verk-
færaáhugamaður.
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
F
-7
F
B
0
1
4
2
F
-7
E
7
4
1
4
2
F
-7
D
3
8
1
4
2
F
-7
B
F
C
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K