Fréttablaðið - 19.03.2015, Side 52
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36
Flottar fimleika-og ballettvörur
• Jazzballett
• Tátiljur
• Zumba
• Dansskór
• o.m.fl.
Fyrsta tölublað bók-
menntatímaritsins
Skíðblaðnis er komið
út hjá Tunglinu for-
lagi. Í því eru áður
óbirtar smásögur
eftir Einar Lövdahl,
Guðrúnu Ingu Ragnars-
dóttur, Magnús Sigurðs-
son, Ragnar Helga Ólafs-
son og Sólveigu Johnsen
og ritstjóri er
Sverrir Nor-
land.
Skíðblaðni
e r d r e i f t
ókeypis til
lesenda enda
er hann til í
óendanlega
mörgum
eintökum. Auðvelt er að lesa
hann á www.skidbladnir.is
og þar er hægt að skilja eftir
athugasemdir, læka og
deila þeim sögum sem
lesendum falla
í geð.
Ný hefti
munu koma
út fjórum
sinnum á
ári, jafnan
undir fullu
tungli.
- gun
Endalaus fj öldi eintaka
Skíðblaðnir er nýtt og ókeypis raft ímarit með
smásögum. Ritstjóri þess er Sverrir Norland.
➜ Skíðblaðni er dreift
ókeypis til lesenda enda
er hann til í óendanlega
mörgum eintökum.
SVERRIR NORLAND
Birgir Sigurðsson er ótvírætt á
meðal mikilvægari leikskálda
okkar síðustu áratugina en hann
ætlaði sér þó ekki að verða leik-
skáld þegar hann var ungur maður.
En lífið tók sína stefnu og ákvarð-
anir tóku sig sjálfar.
„Ég byrjaði að yrkja fimmtán ára
gamall og það sama sumar fór ég
á síld einmitt frá þessari bryggju,“
segir Birgir og brosir með smá for-
tíðarglampa í augunum um leið og
hann bendir út um gluggann á Café
Retro sem stendur við Reykjavík-
urhöfn á gamla Grandagarðinum.
„Síldartúrinn var nú ekki til þess
að byggja á því starfsferil enda lítið
fiskað en mikið siglt í glampandi
blíðu norður fyrir land þar sem
síldin átti að bíða okkar. Ég hélt þó
áfram að yrkja svona fram undir
tvítugt en þá sneri ég mér að söng.
Ætlaði að verða ljóðasöngvari.“
Doktor Zhivago
Birgir lagði stund á nám í ljóða-
söng í ein sex ár. Fyrst hér heima
hjá Engel Lund, þeirri merku söng-
og listakonu sem hafði á hann djúp-
stæð áhrif, og síðar í Hollandi þar
sem skáldskapurinn tróð sér að
nýju inn í líf hans. „Ég var í söng-
námi í Hollandi og varð það á að
skreppa í bíó að sjá Doktor Zhi-
vago og var einn í bíó. Ég hafði
lesið bókina á sínum tíma en
landslagssenurnar í myndinni,
fjöllin í Kákasus, höfðu djúpstæð
áhrif á mig. Eftir myndina labb-
aði ég út og tók stefnuna á lítinn
veitingastað. Á leiðinni inn rek
ég augun í bókina um Doktor Zhi-
vago í lítilli bókabúð við hlið veit-
ingastaðarins. Kaupi hana, sest
inn, fæ mér bjórglas og byrja að
lesa. Áður en ég vissi af var ég
farinn að yrkja á spássíur bókar-
innar. Þar með var Doktor Zhi-
vago búinn að hafa af mér söng-
ferilinn. Ég orti dag og nótt. Þessi
ljóð komu út í minni fyrstu bók
Réttu mér fána en hana tileinkaði
ég frú Engel Lund.
Þó svo að ég hafi farið til Hol-
lands til þess að læra söng þá
hvarflar stundum að mér að innst
inni hafi ég verið í leit í friði til
þess að leyfa skáldinu að skríða
úr skelinni. Fá frið í sálinni í því
frelsi sem felst í fjölmenni.
Þetta verk hefur raunverulega
verið að gerjast í mér í 25 til 30 ár.
Tvisvar byrjaði ég að skrifa það
en gafst upp. Ég einfaldlega náði
ekki utan um efnið. Samt gat ég
ekki losnað. Loksins fann ég leið-
ina og skilaði leikritinu af mér
sumarið 2013 til leikhússins.“
Átakaverk
Birgir er dulur þegar kemur að
umfjöllunarefni verksins. „Ég
má eiginlega ekki segja þér það.
En þetta er svona þessi klassíska
spurning um lygi og sannleika í
mannlegu lífi og þegar leikritinu
lýkur má segja að allar persónurn-
ar séu orðnar aðrar en þær voru í
upphafi verks. Þær umhverfast í
annað.
Þetta verk fjallar mest um sjálfs-
blekkingu og sjálfslygi með mikl-
um átökum frá upphafi til enda og
hvergi slegið af – hádramatískt en
samt ekki þungt. Það bregður víða
fyrir léttleika þó svo að verkið sé
fjandi átakamikið. Þetta verk er
kannski í botn og í grunninn ástar-
saga.
Ég get þó sagt þér að þetta verk
er eins og sokkur. Maður tekur
hann og snýr honum við og horf-
ir í úthverfuna. Þetta er það sem
maður gerir við persónurnar sem
leikskáld.
Nietzsche sagði menn ljúga miklu
meira að sjálfum sér en öðrum og
ég held að það sé rétt. Manneskjan
lifir mikið í sjálfsblekkingarheimi.
Vissir hlutir í þessari blekkingu
eru eyðileggjandi og það er ég að
fást við í þessu verki.“
Trú á manninn
Þessi mannlegu átök eru ekki ný
af nálinni í verkum Birgis. Þar
tekst manneskjan oftar en ekki á
við vonir sínar og þrár og vænt-
ingar til lífsins. En eins og Birg-
ir bendir á þá voru menn orðnir
mjög hallir undir absúrdleikhús-
ið hér á þeim tíma sem hann kom
fram sem höfundur. „Ég gat aldrei
gengið absúrd leikhúsinu á hönd.
Því hinn heimspekilegi grunnur
absúrd verka er fáránleiki mann-
legrar tilveru og tilgangsleysi.
Kjarninn er að manninum sé
ómögulegt að breyta sér og sam-
félaginu til betri vegar en ég hef
aldrei haft þessa tilfinningu. Hef
aldrei meðtekið þetta og mín heim-
speki gengur þvert á þetta og það
sést í öllum mínum verkum og
þessu verki líka. Öll mín verk hafa
margbreytilegar persónur en þær
eru aldrei fulltrúar eins eða neins.
Þær eru bara manneskjur.“
Mín sérkenni
Það leiðir óneitanlega hugann að
því hvað einkennir verk Birgis.
En þar er oftar en ekki að finna í
senn raunsæi og ljóðrænu, átök og
uppgjör mannlegrar tilveru. „Mín
verk eru dramatísk og orðið skiptir
mjög miklu máli – það er miðlægt.
Þegar maður kafar í manneskjuna
þá finnur maður bæði fegurð og
ljótleika. Leikverk mín eru meira
og minna á tilfinningalitrófinu og
það setur mark sitt á þau frá upp-
hafi til enda. Þannig að í raun eru
þau varla raunsæisverk eins og þau
eru alla jafna skilgreind. Hvað sem
ytra formi líður.
Mitt fólk
Birgir hefur áður unnið með
Hilmi Snæ sem nú leikstýrir Er
ekki nóg að elska? Hann leggur
mikla áherslu á það hversu mikil-
vægt það er í leikhúsinu að vinna
með fólk sem maður treystir og
hefur sterka sýn á verkið. „Sem
leikskáld á maður mjög mikið
undir öðru fólki. Hvað fólkið sem
tekur við gerir við verkið skipt-
ir mann öllu máli. Því ríður á að
fá góðan leikstjóra og gott fólk
í allar stöður. Ég er ákaflega
ánægður með Hilmi Snæ enda hef
ég unnið með honum áður og hann
er listamaður af guðs náð. Hann
spyr í sjálfu sér alltaf þessarar
spurningar: Hvað get ég gert við
þetta leikrit? En ekki: Hvað getur
þetta leikrit gert fyrir mig? Þann-
ig hefur mér fundist leikhópurinn
hafa róið allur í eina átt og nú er
komið að frumsýningu. Þetta er
frumsýningardagur sem hefur
látið bíða eftir sér í ein tuttugu
og fimm, þrjátíu ár.“
Þetta verk er eins og sokkur
Borgarleikhúsið frumsýnir annað kvöld nýtt leikrit eft ir Birgi Sigurðsson; Er ekki nóg að elska? Verk sem tók hann hátt í 30 ár að koma
frá sér kemur nú loks á fj alirnar. Verkið segir hann meðal annars fj alla um spurninguna klassísku um lygi og sannleika í mannlegu lífi .
UPPHAFSPUNKTUR Birgir á bryggjunni þaðan sem hann lagði til síldveiða fimmtán ára gamall en þetta sama ár byrjaði hann að yrkja. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Þetta
verk fjallar
mest um
sjálfsblekk-
ingu og
sjálfslygi
með mikl-
um átökum
frá upphafi
til enda og
hvergi
slegið af
– hádrama-
tískt en
samt ekki
þungt.
MENNING
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
F
-4
9
6
0
1
4
2
F
-4
8
2
4
1
4
2
F
-4
6
E
8
1
4
2
F
-4
5
A
C
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K