Fréttablaðið - 19.03.2015, Page 52

Fréttablaðið - 19.03.2015, Page 52
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 36 Flottar fimleika-og ballettvörur • Jazzballett • Tátiljur • Zumba • Dansskór • o.m.fl. Fyrsta tölublað bók- menntatímaritsins Skíðblaðnis er komið út hjá Tunglinu for- lagi. Í því eru áður óbirtar smásögur eftir Einar Lövdahl, Guðrúnu Ingu Ragnars- dóttur, Magnús Sigurðs- son, Ragnar Helga Ólafs- son og Sólveigu Johnsen og ritstjóri er Sverrir Nor- land. Skíðblaðni e r d r e i f t ókeypis til lesenda enda er hann til í óendanlega mörgum eintökum. Auðvelt er að lesa hann á www.skidbladnir.is og þar er hægt að skilja eftir athugasemdir, læka og deila þeim sögum sem lesendum falla í geð. Ný hefti munu koma út fjórum sinnum á ári, jafnan undir fullu tungli. - gun Endalaus fj öldi eintaka Skíðblaðnir er nýtt og ókeypis raft ímarit með smásögum. Ritstjóri þess er Sverrir Norland. ➜ Skíðblaðni er dreift ókeypis til lesenda enda er hann til í óendanlega mörgum eintökum. SVERRIR NORLAND Birgir Sigurðsson er ótvírætt á meðal mikilvægari leikskálda okkar síðustu áratugina en hann ætlaði sér þó ekki að verða leik- skáld þegar hann var ungur maður. En lífið tók sína stefnu og ákvarð- anir tóku sig sjálfar. „Ég byrjaði að yrkja fimmtán ára gamall og það sama sumar fór ég á síld einmitt frá þessari bryggju,“ segir Birgir og brosir með smá for- tíðarglampa í augunum um leið og hann bendir út um gluggann á Café Retro sem stendur við Reykjavík- urhöfn á gamla Grandagarðinum. „Síldartúrinn var nú ekki til þess að byggja á því starfsferil enda lítið fiskað en mikið siglt í glampandi blíðu norður fyrir land þar sem síldin átti að bíða okkar. Ég hélt þó áfram að yrkja svona fram undir tvítugt en þá sneri ég mér að söng. Ætlaði að verða ljóðasöngvari.“ Doktor Zhivago Birgir lagði stund á nám í ljóða- söng í ein sex ár. Fyrst hér heima hjá Engel Lund, þeirri merku söng- og listakonu sem hafði á hann djúp- stæð áhrif, og síðar í Hollandi þar sem skáldskapurinn tróð sér að nýju inn í líf hans. „Ég var í söng- námi í Hollandi og varð það á að skreppa í bíó að sjá Doktor Zhi- vago og var einn í bíó. Ég hafði lesið bókina á sínum tíma en landslagssenurnar í myndinni, fjöllin í Kákasus, höfðu djúpstæð áhrif á mig. Eftir myndina labb- aði ég út og tók stefnuna á lítinn veitingastað. Á leiðinni inn rek ég augun í bókina um Doktor Zhi- vago í lítilli bókabúð við hlið veit- ingastaðarins. Kaupi hana, sest inn, fæ mér bjórglas og byrja að lesa. Áður en ég vissi af var ég farinn að yrkja á spássíur bókar- innar. Þar með var Doktor Zhi- vago búinn að hafa af mér söng- ferilinn. Ég orti dag og nótt. Þessi ljóð komu út í minni fyrstu bók Réttu mér fána en hana tileinkaði ég frú Engel Lund. Þó svo að ég hafi farið til Hol- lands til þess að læra söng þá hvarflar stundum að mér að innst inni hafi ég verið í leit í friði til þess að leyfa skáldinu að skríða úr skelinni. Fá frið í sálinni í því frelsi sem felst í fjölmenni. Þetta verk hefur raunverulega verið að gerjast í mér í 25 til 30 ár. Tvisvar byrjaði ég að skrifa það en gafst upp. Ég einfaldlega náði ekki utan um efnið. Samt gat ég ekki losnað. Loksins fann ég leið- ina og skilaði leikritinu af mér sumarið 2013 til leikhússins.“ Átakaverk Birgir er dulur þegar kemur að umfjöllunarefni verksins. „Ég má eiginlega ekki segja þér það. En þetta er svona þessi klassíska spurning um lygi og sannleika í mannlegu lífi og þegar leikritinu lýkur má segja að allar persónurn- ar séu orðnar aðrar en þær voru í upphafi verks. Þær umhverfast í annað. Þetta verk fjallar mest um sjálfs- blekkingu og sjálfslygi með mikl- um átökum frá upphafi til enda og hvergi slegið af – hádramatískt en samt ekki þungt. Það bregður víða fyrir léttleika þó svo að verkið sé fjandi átakamikið. Þetta verk er kannski í botn og í grunninn ástar- saga. Ég get þó sagt þér að þetta verk er eins og sokkur. Maður tekur hann og snýr honum við og horf- ir í úthverfuna. Þetta er það sem maður gerir við persónurnar sem leikskáld. Nietzsche sagði menn ljúga miklu meira að sjálfum sér en öðrum og ég held að það sé rétt. Manneskjan lifir mikið í sjálfsblekkingarheimi. Vissir hlutir í þessari blekkingu eru eyðileggjandi og það er ég að fást við í þessu verki.“ Trú á manninn Þessi mannlegu átök eru ekki ný af nálinni í verkum Birgis. Þar tekst manneskjan oftar en ekki á við vonir sínar og þrár og vænt- ingar til lífsins. En eins og Birg- ir bendir á þá voru menn orðnir mjög hallir undir absúrdleikhús- ið hér á þeim tíma sem hann kom fram sem höfundur. „Ég gat aldrei gengið absúrd leikhúsinu á hönd. Því hinn heimspekilegi grunnur absúrd verka er fáránleiki mann- legrar tilveru og tilgangsleysi. Kjarninn er að manninum sé ómögulegt að breyta sér og sam- félaginu til betri vegar en ég hef aldrei haft þessa tilfinningu. Hef aldrei meðtekið þetta og mín heim- speki gengur þvert á þetta og það sést í öllum mínum verkum og þessu verki líka. Öll mín verk hafa margbreytilegar persónur en þær eru aldrei fulltrúar eins eða neins. Þær eru bara manneskjur.“ Mín sérkenni Það leiðir óneitanlega hugann að því hvað einkennir verk Birgis. En þar er oftar en ekki að finna í senn raunsæi og ljóðrænu, átök og uppgjör mannlegrar tilveru. „Mín verk eru dramatísk og orðið skiptir mjög miklu máli – það er miðlægt. Þegar maður kafar í manneskjuna þá finnur maður bæði fegurð og ljótleika. Leikverk mín eru meira og minna á tilfinningalitrófinu og það setur mark sitt á þau frá upp- hafi til enda. Þannig að í raun eru þau varla raunsæisverk eins og þau eru alla jafna skilgreind. Hvað sem ytra formi líður. Mitt fólk Birgir hefur áður unnið með Hilmi Snæ sem nú leikstýrir Er ekki nóg að elska? Hann leggur mikla áherslu á það hversu mikil- vægt það er í leikhúsinu að vinna með fólk sem maður treystir og hefur sterka sýn á verkið. „Sem leikskáld á maður mjög mikið undir öðru fólki. Hvað fólkið sem tekur við gerir við verkið skipt- ir mann öllu máli. Því ríður á að fá góðan leikstjóra og gott fólk í allar stöður. Ég er ákaflega ánægður með Hilmi Snæ enda hef ég unnið með honum áður og hann er listamaður af guðs náð. Hann spyr í sjálfu sér alltaf þessarar spurningar: Hvað get ég gert við þetta leikrit? En ekki: Hvað getur þetta leikrit gert fyrir mig? Þann- ig hefur mér fundist leikhópurinn hafa róið allur í eina átt og nú er komið að frumsýningu. Þetta er frumsýningardagur sem hefur látið bíða eftir sér í ein tuttugu og fimm, þrjátíu ár.“ Þetta verk er eins og sokkur Borgarleikhúsið frumsýnir annað kvöld nýtt leikrit eft ir Birgi Sigurðsson; Er ekki nóg að elska? Verk sem tók hann hátt í 30 ár að koma frá sér kemur nú loks á fj alirnar. Verkið segir hann meðal annars fj alla um spurninguna klassísku um lygi og sannleika í mannlegu lífi . UPPHAFSPUNKTUR Birgir á bryggjunni þaðan sem hann lagði til síldveiða fimmtán ára gamall en þetta sama ár byrjaði hann að yrkja. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Þetta verk fjallar mest um sjálfsblekk- ingu og sjálfslygi með mikl- um átökum frá upphafi til enda og hvergi slegið af – hádrama- tískt en samt ekki þungt. MENNING 1 8 -0 3 -2 0 1 5 2 2 :5 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 4 2 F -4 9 6 0 1 4 2 F -4 8 2 4 1 4 2 F -4 6 E 8 1 4 2 F -4 5 A C 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 7 2 s C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.