Fréttablaðið - 19.03.2015, Síða 54
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 38
www.snuran.is
vefverslun S: 537-5101
Snúran
opnar verslun
að Síðumúla 21
Opnunar teiti
fimmtudaginn 19. mars frá
klukkan 17-19
20% afsláttur af völdum vörum.
Viskastykki frá Skjalm P.
fylgir með kaupum yfir 10.000 kr.
„Við erum að leika okkur að ljóðun-
um hennar Vilborgar Dagbjartsdótt-
ur,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir
leikstjóri sem ætlar að stjórna leik-
dagskrá í Iðnó á sunnudaginn. Þar
verða, auk hennar, sjö konur úr hópn-
um Sviðslistakonur 50+ og tvær tón-
listarkonur að auki.
„Það er alls ekki þannig að hver
konan af annarri standi upp og lesi
ljóð heldur eru þau sungin og brot-
in upp og flutt með margvísleg-
um hætti,“ lýsir Þórhildur og segir
skáldið Vilborgu ekkert skipta sér af
flutningnum. „Þetta er samt allt gert
með hennar góðfúslega leyfi og hún
mætir örugglega ef hún getur.“
„Þessi viðburður heitir á fés-
bókinni Vilborgargjörningur en ég
leggst gegn því nafni, mér finnst það
svo ó-Vilborgarlegt. Við köllum bara
dagskrána Enn hefur mig dreymt,“
segir Þórhildur
Flytjendur eru Edda Þórarinsdótt-
ir, Bryndís Petra Bragadóttir, Jórunn
Sigurðardóttir, Ólöf Sverris dóttir,
Salvör Aradóttir, Vilborg Halldórs-
dóttir og Þórunn Magnea Magnús-
dóttir. Um tónlistina sjá Arnhildur
Valgarðsdóttir og Jóhanna Þórhalls-
dóttir og leikmynd og búninga gerir
Rebekka Ingimundardóttir.
Frumsýning á Enn hefur mig
dreymt verður klukkan 17 á sunnu-
dag og önnur sýning er klukkan 20 á
mánudaginn, 23. mars. „Þarna koma
saman sér til skemmtunar konur
sem eru yfir fimmtugt – skuggaver-
ur samfélagsins,“ segir Þórhildur
sposk. „Ég get lofað því að þær verða
öðrum til skemmtunar líka.“
- gun
Leika sér að ljóðum Vilborgar
Sviðslistakonur 50+ frumsýna leikdagskrá í Iðnó á sunnudaginn.
„Sjávarsinfónían er ótrúlega flott.
Þótt verkið sé samið snemma á
20. öldinni og hafi þá þótt fram-
úrstefnulegt í tónmáli er Vaughan
Williams svo melódískur og skrif-
ar fyrir alla. Hann fangar líka
stemninguna vel þegar hann túlk-
ar hafið og baráttu sjóaranna við
það.“ Þetta segir Fjölnir Ólafsson
baritón sem ásamt Tui Hirv sópr-
an syngur einsöng í Sjávarsin-
fóníunni með Háskólakórnum og
Sinfóníuhljómsveit unga fólksins
á laugardaginn í Langholtskirkju
klukkan 17 og á mánudaginn
klukkan 20. Gunnsteinn Ólafsson
stjórnar.
Fjölnir hefur áður sungið með
sama kór og sömu hljómsveit. Það
var sumarið 2012, þegar hann
söng aðalhlutverkið í Don Giov-
anni. Hann er sonur Ólafs Kjart-
ans Sigurðarsonar óperusöngvara
og afabarn Didda fiðlu. Því gerir
maður ráð fyrir að hann sé á kafi
í tónlist en í ljós kemur að hann
er að ljúka fyrsta ári við laganám
í Háskóla Íslands. Honum þykir
það frábærlega skemmtilegt en
þegar honum bjóðast söngverk-
efni sem heilla þá tekur hann
þeim fagnandi.
Um frumflutning hér á landi
er að ræða á Sjávarsinfóníunni
en þar sem Fjölnir hefur sungið
líka í Þýskalandi er hann spurð-
ur hvort hann hafi kynnst henni
áður. „Ég hef aldrei sungið þessa
sinfóníu en ég þekki hana og hef
sungið frægan ljóðaflokk, Songs
of Travel, eftir sama höfund,
barítónhlutverkið þar er keim-
líkt þessu. Við vorum með fyrstu
samæfingu í gær, söngvarar, kór
og hljómsveit og allt er að smella
saman,“ segir hann og bætir við.
„Það er gríðarlega metnaðarfullt
hjá Gunnsteini að takast á við
þetta verk og það er frábært að fá
að taka þátt í því.“
gun@frettabladid.is
Túlka hafi ð og átök
sjóaranna við það
Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins frumfl ytja hér á landi Sjávar-
sinfóníuna eft ir Vaughan Williams í Langholtskirkju á laugardaginn undir stjórn
Gunnsteins Ólafssonar. Fjölnir Ólafsson barítón er annar einsöngvara.
Í IÐNÓ Líflegt er á sviðinu í leikdagskránni Enn hefur mig dreymt.
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Á ÆFINGU Hundrað og þrjátíu manna hópur ungmenna flytur Sjávarsinfóníuna og Gunnsteinn Ólafsson stjórnar.
BARÍTÓN „Ég hef aldrei sungið þessa sinfóníu en ég þekki hana,“ segir Fjölnir.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Þótt verkið sé samið snemma á 20. öldinni og hafi
þá þótt framúrstefnulegt í tónmáli er Vaughan Williams
svo melódískur og skrifar fyrir alla.
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
F
-5
D
2
0
1
4
2
F
-5
B
E
4
1
4
2
F
-5
A
A
8
1
4
2
F
-5
9
6
C
2
8
0
X
4
0
0
6
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K