Fréttablaðið - 19.03.2015, Síða 62
19. mars 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 46
Í dag heldur Paul Debevec, tölv-
unar fræðingur, tæknibrellu meistari
og Óskarsverðlaunahafi fyrirlestur
á alþjólegu málþingi, ANIREY, í
Háskólanum í Reykjavík. Þar verð-
ur rætt um framtíð teiknimynda-
gerðar og sýndarveruleika.
„Paul hefur þróað tækni sem
gerir kvikmyndaframleiðendum
kleift að búa til sýndarveruleika
þar sem hægt er að setja leikara í
aðstæður sem eru ekki til og hann
hefur aldrei verið í. Þetta er það
raunverulegt að við sjáum ekki
muninn á þessu og raunveruleikan-
um,“ segir Hannes Högni Vilhjálms-
son, dósent í tölvunarfræði og for-
stöðumaður gervigreindarseturs
Háskólans í Reykjavík.
Tæknin virkar þannig að leikar-
inn er skannaður og þannig búið til
nokkurs konar sýndarveruleikaklón.
Leikstjórinn getur þannig sett
„klónið“ í aðstæður sem eru ekki
til, en leikarinn ljær honum bara
rödd sína og hreyfingar. „Þróun-
in er síðan, og það er það sem við
hjá gervigreindarsetrinu erum að
skoða, að gera klónin greind þann-
ig að þau geti fylgt leikstjórn líka,“
segir Hannes. Hann segir það ein-
staklega merkilegt að fá hann hing-
að heim og að það sé augljóst merki
þess að mikið sé að gerast á Íslandi
í þessum geira. „Það er fólk hér
heima sem er að vinna að tækni-
brellum fyrir stórmyndir og ég held
að fólk geri sér yfirleitt ekki grein
fyrir hversu langt þetta er komið og
hvað sé búið að gerast.“
Paul Debevec hefur unnið að
þessari tækni í fimmtán ár, en
hún var fyrst notuð í kvikmynd-
inni Matrix. „Þá var hún notuð á
umhverfið, en nú höfum við þróað
þetta þannig að skanninn les hvern-
ig ljósið fellur á andlitið og þannig
hefur okkur tekist að gera andlitið
enn nákvæmara,“ segir Debevec.
Vonast hann til þess að hægt
verði að þróa þessa tækni þann-
ig að hún nýtist í ódýrari kvik-
myndagerð, í kennslu og á
söfnum. Í fyrra skönnuðu þeir
inn Bandaríkjaforseta, Bar-
ack Obama, og prentuðu svo út
nákvæma brjóstmynd af honum
í þrívíddarprentara. „Hvíta
húsið samþykkti að leyfa okkur
að skanna hann, þar sem það
vill styðja við þessa tækni og
þrívíddar prentun. Það var mjög
gaman að fá að vinna með for-
setanum,“ segir hann að lokum.
adda@frettabladid.is
Óskarsverðlaunahafi heldur fyrirlestur
um gervigreind í kvikmyndum
Paul Debevec tæknibrellumeistari hefur þróað tækni til þess að skanna leikara og setja þá í aðstæður sem búnar eru til fyrir myndina.
HVER ER ORGINAL? Þeir Hannes og Paul eru á fullu að undirbúa ráðstefnuna, en stóra spurningin er hvort þetta séu þeir eða
sýndarveruleikaklón af þeim? FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
The Matrix
Spiderman 2 og 3
Superman Returns
The Avatar
The Curious Case
of Benjamin Button
Malificent
Gravity
The Hobbit:
An Unexpected Journey
➜ Myndir
PAUL DEBEVEC
1
8
-0
3
-2
0
1
5
2
2
:5
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
2
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
4
2
F
-2
B
C
0
1
4
2
F
-2
A
8
4
1
4
2
F
-2
9
4
8
1
4
2
F
-2
8
0
C
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
7
2
s
C
M
Y
K